Dagur - 12.01.1990, Side 3

Dagur - 12.01.1990, Side 3
Föstudagur 12. janúar 1990 - DAGUR - 3 Málefni Dags og Dagsprents hf.: Athugasemd frá Atvinmimálaneíhd Athugasemd ritstjóra Vegna skrifa ritstjóra og stjórn- arformanns Dags að undanförnu í fjölmiðlum vill Atvinnumála- nefnd Akureyrar gera eftirfar- andi athugasemd: í umfjöllun sinni kvarta ofan- greindir aðilar yfir því að Atvinnumálanefnd hafi ekki haft frumkvæði um að koma Degi/ Dagsprenti til aðstoðar í erfið- leikum fyrirtækjanna. Atvinnumálanefnd Akureyrar vill hér með koma á framfæri sem sinni skoðun að það sé ekki hlut- verk nefndarinnar að hlutast til um rekstur sjálfstæðra fyrirtækja í bæjarfélaginu, án þess að fram komi beiðni frá framkvæmda- stjórum eða stjórnum þeirra. Hefði Dagur/Dagsprent óskað á einhvern hátt eftir því að Atvinnumálanefnd Akureyrar beitti sér í málefnum þeirra, þá hefði nefndin að sjálfsögðu orðið við þeirri beiðni. í flestra huga er meginhlutverk Atvinnumálanefndar Akureyrar fólgið í því að að treysta og efla atvinnulíf á Akureyri eftir því sem nefndinni framast er unnt. Það er rétt að fyrirtækin Dagur og Dagsprent h.f. leituðu ekki formlega eftir stuðningi Atvinnu- málanefndar. Hins vegar var nefndinni eflaust, eins og flestum bæjarbúum, kunnugt um tilboð Byggðastofnunar til bæjaryfir- valda á Akureyri um að Byggða- stofnun keypti eignir Dags og Dagsprents h.f. við Strandgötu og seldi síðan eða leigði Akur- eyrarbæ. Það tilboð fól í sér lausn á vanda Dags og Dagsprents h.f., jafnframt því sem það hefði stuðlað að sameiningu Dags- prents h.f. og Prentverks Odds Björnssonar h.f. og þannig treyst atvinnuöryggi þess mikla fjölda fólks sem hjá þessum fyrirtækj- um starfar. Að mínu áliti hefði Atvinnu- málanefnd Akureyrar átt að láta málið til sín taka á þessu stigi, þar sem atvinnuöryggi svo margra var í húfi. Það gerði hún hins vegar ekki og það tel ég gagnrýnivert. Fyrrnefndu tilboði Byggðastofnunar var síðan hafn- að af forráðamönnum Akureyr- arbæjar og það er því ekki á nokkurn hátt þeim að þakka að yfirvofandi rekstrarstöðvun fyrir- tækjanna var afstýrt. Ritstjóri. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks: Skrifstofa Svavars forvitnileg - sjálfstæðismönnum ber að fagna sameiningu A-flokkanna Dæmalaust sjóðasukk og spill- ing hefur einkennt störf ríkis- stjórnar Steingríms Hermanns- sonar. Þetta er skoðun Ólafs G. Einarssonar, formanns þingflokks sjálfstæðismanna, sem hann gerði grein fyrir á opnum fundi sjálfstæðisfélag- anna á Akureyri sl. miðviku- dag. Frummælendur á fundin- um voru auk Ólafs Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins og Halldór Blöndal, þingmaður flokksins í Norður- landskjördæmi eystra. í ræðum sínum gagnrýndu þre- menningarnir allir mjög harðlega störf ríkisstjórnarinnar og kváðu hana hafa hroka og úrelta stjórn- arhætti að leiðarljósi. Formaður þingflokks sjálf- stæðismanna sagði þjóðina hafa fylgst agndofa með lýðræðis- bylgjunni í Austur-Evrópu að undanförnu. Fjölmiðlar hafi sýnt alheiminum glæsiskrifstofur fall- inna leiðtoga og undrast þá spill- Fyrsta barnið sem fæddist í Norðurlandskjördæmi eystra á árinu er myndarlegur piltur. Hann vó 3550 g og var 52 cm á lengd 2. jan. eftir fæðingu á Sjúkrahúsi Húsavíkur kl. 18:56. Foreldrar drengsins eru Val- gerður Gunnarsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi á Húsavík, og ingu sem þar hafi verið í háveg- um höfð. I ljósi þess kvað Ólafur forvitnilegt fyrir þjóðina að koma inn á skrifstofu Svavars Gests- sonar, menntamálaráðherra, hvar forstjóri Sambandsins sat áður. Ólafur sagði allt benda til þess Dagur skýrði frá „Steinaldar- mönnunum“ í byrjun síðasta mánaðar en það voru piltar sem gerðu löreglunni á Sauð- Örlygur Hnefill Jónsson héraðs- dómslögmaður. Þetta er þriðja barn þeirra hjóna, en fyrir áttu þau dreng og stúlku. Mæðginin eru komin heim og heilsast vel. Fyrsta barn sem fæddist á árinu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 3. jan. mun einnig hafa verið Húsvíkingur og eru foreldrar þess Þórunn Kristinsdóttir og Jónmundur Aðalsteinsson. IM að sameining Alþýðuflokks og Alþýðubandalags væri aftur að komast f umræðuna. Hann sagði að sjálfstæðismönnum bæri að fagna því ef af sameiningu A- flokkanna yrði. Sameinaður A- flokkur yrði aldrei sterkur, vart með meira en 12-14 prósent fylgi. óþh árkróki lífið leitt m.a. með því að hleypa úr dekkjum lög- reglubílanna og ata einkabíla lögreglumanna út í olíu og alls- kyns drullu. í þessari frétt var sagt að Stein- aldarmennirnir ættu sök á fleiru en þeir áttu skilið. Um var að ræða tvo hópa. Annar þeirra úð- aði á biðskýli skólabílsins og á fleiri staði en aðgerðir Steinald- armannanna beindust eingöngu að lögreglunni. Mál fyrri hópsins upplýstist fljótlega en nú fyrir stuttu upp- lýstist hverjir földu sig bak við nafn Steinaldarmannanna. Um var að ræða nemendur í Fjöl- brautaskólanum, nánar tiltekið á heimavist skólans. Þeir munu hafa stundað iðju sína í skjóli nætur en nemendum er strang- lega bannað að fara út af vistinni eftir miðnætti. Þeir hafa því þurft að laumast út einhversstaðar þar sem ekki sást til þeirra. Við yfirheyrslur sögðu Stein- aldarmennirnir að aðgerðum þeirra hefði ekki verið beint sér- staklega að lögreglunni þrátt fyrir að hafa atað bíla þeirra út í olíu og fleiru. Að sögn lögreglu hafa þessir piltar átt svolítil samskipti við lögreglu áður en þetta mál kom upp. Nú verða þeir kumpánar lík- lega sendir með skrúbba og hreinsiefni til að þrífa eftir sig óþverrann, sent þeir úðuðu á eyr- inni. kj Húsavík: Fyrsta barn ársins í kjördæminu Lögreglan Sauðárkróki: Stemaldarmeim- irnir upprættir - eru nemendur í Fjölbrautaskólanum Harmoniku- dansleikur í Lóni, laugardaginn 13. janúar kl. 22.00-03.00. ★ Allir velkomnir. Harmonikuunnendur við Eyjafjörð og Harmonikufélag Þingeyinga. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Oldungadeild verður sett á sal málmsmíðadeildar, Eyrar- landsholti, mánudaginn 15. janúar kl. 18.00. Skólameistari. Fundarboð Samtök jafnréttis og félagshyggju boða til fundar í Blómaskálanum Vín þriðjudaginn 16. janúar kl. 21.00. HVAÐ VILTU GERA TIL AÐ BÆTA ÁSTAND ÞJOÐMALA? Fundarstjóri: Auður Eiríksdóttir. Frummælendur: Bjarni Guðleifsson, Stefán Halldórsson, Eiríkur Hreiðarsson og Stefán Valgeirsson. Viö viljum afnema lánskjaravísitölu án tafar. Við viljum önnur bjargráð en álver við Eyjafjörð. Ráðum ráðum okkar sjálf en treystum ekki á erlenda aðila. Höfum irið ekki fengið nóg af sjónhverf- ingum og síauknu misrétti? Samtök jafnréttis og félagshyggju. Tilboð! Vátryggingafélag íslands hf., Akureyri, óskar eft- ir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir umferðaróhöpp. 1. Isuzu Gemini árg. 1989 2. Mazda 929 árg. 1986 3. Mazda 626 árg. 1985 4. Honda Accord .... árg. 1985 5. Toyota Corolla Twin Cam árg. 1985 6. MMC Tredia árg. 1984 7. Audi CD 100 árg. 1983 8. Mazda 929 árg. 1983 9. Subaru st árg. 1982 10. Toyota Carina árg. 1980 11. Lada 1600 árg. 1978 12. Fiat 132 árg. 1977 Bílarnir verða til sýnis mánudaginn 15. jan. og þriðjudaginn 16. jan. nk. geymslu við Glerárósa, frá kl. 13.00 til 16.00 báða dagana. Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands hf. fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 17. janúar 1990. > ^%/ÆkíW VATRYGGIN GAF E LAG ^riar ÍSLANDS HF

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.