Dagur - 19.01.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 19.01.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 19. janúar 1990 ir .................. Akureyríngar Nærsveítamenn Verðum á snjósleðasýningunni í íþróttahöllinni um helgina 20.-21. jan. Þar verðum við með nýja gerð af snjósleðagöllum. Einnig ýmiss konar kuldafatnað fyrir útivistarfólk. 10% sýningarafsláttur l|i EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 Wö geríd betri matarkaup íKEAHmÚ Áfram með lága verðið á nýju érií ATH! Þorramaturinn kominn Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30. Laugardaga frá kl. 10.00-14.00. Kynni&t NETTÓ-vGrBi KEANETTÓ Skúli Pálsson sjónvarpsfröinuður í Ólafslirði mundar vélina. Sprenging í móttöku erlends sjónvarpsefnis hér á landi: Skúli fann loks geislann og dreifir 3 stöðvum í Ólafsfirði - forráðamenn bæjarfélaga hér á landi gagnrýndir fyrir áhugaleysi Nærri lætur að 120 aðilar í Ólafsfirði hafi keypt áskrift af útsendingum fyrirtækis Skúla Pálssonar, Vídeo- skann í Ólafsfirði, á efni frá þrem erlendum sjónvarps- stöðvum. Pað hefur lengi verið á dagskrá hjá Skúla að taka á móti erlendu sjónvarpsefni til dreifingar í kap- alkerfi fyrirtækisins í Ölafsfirði. Pað sem lengi vel stóð í vegi fyrir þeirri fyrirætlan er sú staðreynd að fjörður- inn er girtur háum fjöllum og því örðugt að hitta á geisla frá gervihnöttum. Þrjár stöðvar í Ólafsfirði Skúli er ekki þekktur fyrir að deyja ráðalaus og í desember sl. tókst honum loks að ná sending- unum. Lausnin fólst í því að setja upp móttökudisk vestan við ósinn, þar sem geislinn næst, og síðan var lagður um 1500 metra langur kapall frá diskinum í höf- uðstöðvar Video-skann. Mynd- gæðin eru eins og best verður á kosið. Þeim Ólafsfirðingum, sem hafa aðgang að kapalkerfi Skúla í bænum, gefst nú kostur á að ná sendingum frá þremur erlendum sjónvarpsstöðvum. Þær eru Sky one, Sky movies og Euorosport. Sendingar Sky movies verða truflaðar frá og með 5. febrúar nk. og mun ætlun Skúla að taka í hennar stað bresku sjónvarps- stöðina Sky news, sem sendir út fréttir svo til allan sólarhringinn. Deyr aldrei ráðalaus Skúli er ókrýndur frumkvöðull í sjónvarpsmálum í Ólafsfirði og raunar má segja að til hans hafi verið horft sem brautryðjanda í þessum málum hér á landi. Skúli er umboðsmaður Stöðvar 2 í Ólafsfirði og dreifir henni eftir köplum um bæinn. Þess er skemmst að minnast þegar Skúli réðst í það sérstæða verkefni að setja upp dreifiútbúnað fyrir Stöð 2 upp á Múlakollu. Með því móti einu gátu Ólafsfirðingar náð sendingum hennar. Áskrifendur að Stöð 2 í Ólafs- firði eru ekki skuldbundnir til að taka inn áðurnefndar þrjár sjón- varpsstöðvar og það geta þeir einungis gert gegn greiðslu 680 króna á mánuði. Kapalkerfið er tekið í 220 hús en Skúli segir að. af þeim hafi 120 aðilar gerst áskrifendur að erlendu stöðvun- Skúli hefur hug á að taka inn fleiri erlendar stöðvar með tíð og tíma. Hann nefnir m.a. tónlistar- rás, MTV. Stofnkostnaður fyrir hverja nýja stöð er um 100 þús- und krónur. Diskabylgja gengur yfir landið Nýir straumar í sjónvarpsmálum Ólafsfirðinga leiða hugann að því hvernig þessum málum er háttað út um allt land. Svo mikið er víst að áhugi landsmanna á erlendu sjónvarpsefni hefur aukist mjög á undanförnum árum. Það stað- festa tölur. Á liðnu ári lögðu 95 inn umsóknir til Samgönguráðu- neytis um uppsetningu móttöku- disks fyrir erlendar sjónvarps- stöðvar. Árið 1988 voru þær hins vegar 32. Bæði er um að ræða umsóknir frá einstaklingum og húsfélögum. Óheimilt er að dreifa efni til fleiri en 36 íbúða. Þær upplýsingar fengust hjá Örlygi Jónatanssyni hjá Kapal- tækni hf. í Reykjavík að kostnað- ur við kaup á móttökudiski og öðrum nauðsynlegum útbúnaði væri á bilinu 100-250 þúsund krónur. Kostnaðurinn fer fyrst og fremst eftir styrkleika disksins. Með því er mælt að hér á landi kaupi menn vandaða og góða diska. Til þess er vísað að hér sé allra veðra von og líkur á því að óvandaðir diskar verði Kára að bráð. Þess munu enda nokkur dæmi og er skemmst að minnast óveðursins nú í janúar. 20-25 óruglaðar evrópskar stöðvar á boðstólum Framboð á sjónvarpsefni í himin- hvolfunum eykst ár frá ári. Sam- kvæmt upplýsingum sem Dagur hefur aflað sér eru nú 20-25 ótruflaðar evrópskar sjónvarps- stöðvar á boðstólum frá fjórum gervihnöttum, Astra og Eurosat Fl, F4 og F5. Hverjum móttöku- diski er beint að einum ákveðn- um hnetti. Á Astra-hnettinum, sem er mest notaður hér á landi, eru t.d. 12 óruglaðar sjónvarps- stöðvar. Af þeim eru fjórar þýskar, ein hollensk en hinar eru breskar. Gervihnettirnir eru allir yfir miðbaug og fylgja snúningi jarðar. Frá okkur séð eru hnett- irnir í suðvestur. Næsta skref í þessum málum í Evrópu er tilkoma bresks gervi- hnattar í vor. Gert er ráð fyrir að hann hafi fimm rásir. Rekstur þeirra sjónvarps- stöðva sem nást frá gervihnöttum er þrennskonar. I fyrsta lagi stöðvar sem eru fjármagnaðar með tekjum af auglýsingum. í öðru lagi ríkisreknar stöðvar, t.d. ítalska sjónvarpið, og í þriðja lagi ruglaðar stöðvar sem hafa tekjur af áskriftum. Kapalkerfi í ný hverfi? Eins og áður segir er kapalkerfi í Ólafsfirði og þau eru í fleiri bæjarfélögum í landinu. Með slíkum kerfum er unnt að dreifa erlendu sjónvarpsefni og sama gildir um sendingar Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins. Áhugamenn um kapalkerfi vilja álíta að hjá forráðamönnum margra bæjar- félaga ríki mikil skammsýni í þessum málum. Þeir telja það einboðið að þegar sveitarfélög ráðist í kostnaðarsamar lagnir í nýjum íbúðarhverfum sé rökrétt að leggja þar einnig kapal til mót- töku á sjónvarpsefni. Bent er á að með þessu móti geti menn losnað við móttökugreiður af þökum húsa til að ná sendingum RUV og Stöðvar 2 auk þess sem kapall auðveldi dreifingu erlends efnis ef því er að skipta. Lagabókstafur í lausu lofti Almennt er búist við að við endurskoðun útvarpslaga í vetur verði settar skýrar reglur um dreifingu á erlendu sjónvarps- efni. Samkvæmt samtölum við þá sem til þekkja eru lög og reglu- gerðir um þetta mjög í lausu lofti og nauðsynlegt að fá fram vilja stjórnvalda um móttöku og dreif- ingu á erlendu sjónvarpsefni. óþh um.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.