Dagur - 25.01.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 25.01.1990, Blaðsíða 1
Samningaviðræður á viðkvæmu stigi Forsvarsmenn vinnuveitenda og verkalýðshreyfíngarinnar funduðu fram á nótt í fyrrinótt í salarkynnum Sáttasemjara ríkisins, en í gær voru kjara- samningaviðræðurnar á mjög viðkvæmu stigi samkvæmt heimildum Dags. Hópar unnu áfram að einstökum þáttum samninganna en hvergi hafði samkomulag náðst. Ágæt sala Hegraiiessins - heildarverðmæti rúmlega 13 milljónir Hegranes SK2 seldi mjög vel í Þýskalandi í gærmorgun, nán- ar tiltekið í Bremerhaven. Seld voru rúmlega 115 tonn. Heildarverðmæti aflans var 13 milljónir og 250 þúsund krónur, sem þýðir um 115 króna meðal- verð fyrir kílóið, Samkvæmt upplýsingum hjá Skagfirðingi hf. eru menn þar nokkuð ánægðir með söluna, sér- staklega ef tillit er tekið til magnsins sem selt var. A næst- unni munu Skapti og Skagfirð- ingur selja afla erlendis, Skapti í næstu viku og Skagfirðingur í vikunni á eftir. kj Eftir því sem Dagur kemst næst var helst rætt um landbún- aðarmálin í gær en ljóst er að til að halda óbreyttu verðlagi þurfi niðurgreiðslur frá ríkinu að auk- ast um 7-800 milljónir króna. Þá ræða menn hversu háar launa- hækkanir þarf að fara fram á til að halda kaupmætti og tryggingar eru enn forsendur fyrir sam- komulagi. Þrátt fyrir þetta er ljóst að áfram verður unnið að því að ná fram samningum á þcim nótum sem rætt hefur verið um. Sú bjartsýni sem ríkti í upphafi við- ræðna um að samningar gætu náðst á skömmum tíma var þó óþörf því málin hafa snúist meira en búist var við; þau eru enn á umræðustigi. VG Umsóknir Mikil eftirspurn hefur verið eftir atvinnu á Akureyri upp á síökastið og virðist ástandið í þeim málum ekkert fara batn- andi. Umsóknir um auglýst störf geta skipt tugum, en lítið er um að auglýst er eftir at- vinnu þar sem það þýðir ekki Bæjarstjórnakosningarnar á Akureyri: Kostnaður bæjarins hálf önnur milljón Kostnaður Akureyrarbæjar vegna bæjarstjórnarkosning- anna 26. maí í vor er 1,5 millj- ónir króna. Þetta kemur fram í sundurliðaðri rekstraráætlun bæjarins sem til umfjöllunar var á bæjarstjórnarfundi í fyrradag. Að sögn Valgarðs Baldvins- sonar, bæjarritara, eru á vegum bæjarins fjölmargir starfsmenn vegna kosninganna. Þrír menn skipa yfirkjörstjórn og bænum er skipt í kjördeildir og í hverri þeirra eru þrír menn sem skipa undirkjörstjórn. Kjördeildir hafa verið 8-9 í bænum þannig að tala starfsmanna er komin nálægt 30. Þessu til viðbótar hafa verið dyraverðir við kjördeildirnar þannig að um 40 starfsmenn koma að framkvæmd kosning- anna á kjördag. „Til viðbótar þessu eru fengnir sérstakir menn í talninguna en talning byrjar áður en kjörfundi er lokið á kjördag. í þessu gætu verið 10-12 manns,“ segir Val- garður. Aðspurður segir hann að laun starfsmanna vegna kosninganna hafi verið felld inn í nefndartaxta bæjarins. Bæjarstjórn skipar yfir- kjörstjórn og undirkjörstjórnir en aðrir starfsmenn eru ráðnir af bæjarritara. JÓH Dræm loðnuveiði Engin loðnuveiði var í gær, a.m.k. hafði Loðnunefnd ekki fengið neinar tilkynningar. Bátarnir lönduðu flestir á þriðjudag eftir fremur dræma veiði og voru allir með slatta. Austfjarðahafnir tóku á móti loðnunni. Norðlensku bátarnir voru með 20Ö-400 tonn, en þessir tilkynntu Loðnunefnd um afla á þriðjudag- inn: Björg Jónsdóttir 370 tonn, Súlan 200, Hákon 350, Guð- mundur Ólafur 250, Þórður Jón- asson 250 og Dagfari 270 tonn. SS Mvnd: K1 Algeng sjón á Akureyri í gær. Atvinnuástandið á Akureyri: um laus störf geta skipt tugum - minnkandi atvinna í þjónustugreinum neitt. Einn Ijós punktur virðist þó vera á þessu ástandi en hann er sá, að mun minna er um að skólafólk hætti námi til að fara út á vinnumarkaðinn eins og algengt var t.d. á síð- asta ári, þar sem enga atvinnu er nú að fá. Að sögn Gunnars Jónssonar hjá Ráðningarþjónustu Endur- skoðunar Akureyri hf., eru þess dæmi að um 25-30 manns sæki um eitt og sama starfið sem aug- lýst er á þeirra vegum. Flestir sækja um afgreiðslustörf og er þar helst á ferðinni ungt fólk sem nýkomið er úr framhaldsskóla. Eftirspurn eftir atvinnu segir Gunnar nú heldur meiri en á sama tíma í fyrra og auk þess sé nú h'tið sem ekkert framboð á atvinnu. StarfsfóI k Vi n n u m ið 1 unars k rif- stofu Akurcyrar hefur haft í nógu að snúast að undanförnu en skráð atvinnuleysi hefur ekki ver- ið jafn mikið og nú í mörg ár. í síðustu viku voru 349 manns á skrá hjá þeim, mcst verkafólk og iðnaðarmcnn. Lítið er leitað til Vinnumiðlunarskrifstofunnar cftir fólki, cinn og einn fær atvinnu á þann hált að undan- skildum nokkrum hóp kvenna sem nýlega fengu atvinnu hjá Útgerðarfclagi Akureyringa hf. Hins vegar hefur orðið vart við minnkandi vinnu hjá fólki í þjón- ustugreinum og nokkuð er um aö verslunarfólk sé aö missa hluta vinnu sinnar. Nú mun vera lítiö um að ungt skólafólk skrái sig atvinnulaust. scm gæti bent til þess að í stað þess að hætta námi og liefja þátttöku í lífsgæöa- kapphlaupinu, sjáú nemendur þaö sem betri kost að halda sig í skólanum. Undanfarnar tvær vikur hafa atvinnuauglýsingar ekki verið plássfrekar á síðum Dags. A þessum tt'ma var óskað eftir fóíki í 10 störf og f flest þeirra var kraf- ist cinhverrar sérþekkingar. en aö sögn starfsmanna auglýsinga- dcildar koma mjög margar um- sóknir um almenn störf. t.d. afgrciðslustörf. Aðeins 3 aðilar óskuðu eftir atvinnu í Degi síð- ustu tvær vikurnar. en ástæðan mun líklega vera sú að fólk gefst upp á aö auglýsa eftir starfi því það her engan árangur V ( i Framtíð Atvinnutrygginga- og HlutaQársjóðs: Atviimutryggingadeild um aramót en spuming með Hlutaflársjóð - Qöldi umsókna enn á borði sjóðanna Samkvæmt lögum er gert ráö fyrir að Atvinnutryggingasjóö- ur útflutningsgreina verði frá og með næstu áramótum atvinnutryggingadeild innan Byggðastofnunar. Hins vegar er óvíst með framtíð Hlutafjár- sjóðs Byggðastofnunar. Sjóð- urinn hefur þegar lagt fram fé til fjölmargra fyrirtækja í land- inu og þess vegna leggst hann sem slíkur ekki niður. Lögum samkvæmt á sjóðurinn að starfa áfram sjálfstætt, en engu að síður er ýmislegt í lausu lofti með framtíðarskipulag hans. Að sögn Bjarka Bragasonar, starfsmanns Hlutafjársjóðs, eru nú á borði sjóðsins erindi frá 4-5 fyrirtækjum. Þar á meðal er Tangi hf. á Vopnafirði. Tangi var fyrsta fyrirtækið sem fékk já- kvæða afgreiðslu hjá Alvinnu- tryggingasjóði og hefur nú einn- ing óskað eftir fyrirgreiöslu hjá Hlutafjársjóði. Ekki tókst í gær að ná tali af Pétri Olgeirssyni, framkvæmda- stjóra Tanga hf., en hcimilda- menn Dags segja að staða fyrir- tækisins sé afar erfið og Ijóst að hlaupa vcröi enn frekar undir bagga. Fjárfestingar hafa reynst fyrirtækinu dýrar og rekstur loðnubræðslunnar hefur gengið illa. Heimildir Dags herma að á liönu ári hafi orðið verulegt tap hjá Tanga hf. en þaö fékkst ekki staðfest í gær. Að sögn Bjarka licfur ekki ver- ið tekin afstaða til umsóknar Tanga en hann segir að þrátt fyrir aö fyrirtækiö hafi áður fengið fyrirgrciöslu í Atvinnutrygginga- sjóði sé ekki loku fyrir það skolið að Hlutafjársjóöur komi þar einnig lil skjalanna. Gunnar Hilmarsson. stjórnar- formaöur Atvinnutrvgginga- sjóðs, segir að sér vitanlega hafi ekki veriö tekin afstaða til þess hvernig sjóðurinn starfi eftir að hann verði deild innan Byggða- stofnunar um næstu áramót. Gunnar segir að um síöustu ára- mót lutfi Atvinnutryggingasjóöur lokað á frekari umsóknir og allt kapp verði lagt á að afgreiöa fyrirliggjandi umsóknir. Á borði sjóðsins eru umsóknir frá 70-80 aðilum og telur Gunnar að um 20 þeirra fái strax neikvæða af- greiðslu. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.