Dagur - 25.01.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 25. janúar 1990 - DAGUR - 11
íþróttir
Karfa:
Sanngjam sigur UMFG
Grindvíkingar unnu sann-
gjarnan sigur á Tindstælingum
í Urvaisdeildinni á þriðjudag-
inn. Lokatölurnar urðu 55:62
gestunum í vil eftir aö staöan í
hálfleik var 19:31
Grindvíkingar byrjuðu betur í
fyrri hálfleik og náðu strax um tíu
stiga forystu. Engu líkara var en
heimamenn bæru mikla virðingu
fyrir gestunum því undir körfuna
stigu þeir varla niður fæti og náðu
þeir ekki miklu af fráköstum.
Vörnin var hinsvegar mjög góð á
köflunr en þó skoruðu gestirnir
auðveldar körfur inn á milli þar
Hvernig á
að Qármagna
Knattspyrnusamband Islands
stendur fyrir ráðstefnu á Holi-
day Inn hótelinu á sunnudag-
inn um fjármögnum íþróttafé-
laga. Aðalfyrirlesarar á ráð-
stefnunni verða Tony Stephens
og knattspyrnumaðurinn
góðkunni, Cyrij Regis. Aðal-
þema ráðstefnunnar er fjár-
mögnun knattspyrnufélaga
utan aðgangseyris.
Tony Stephens er talinn einn
færasti fjáraflamaðurinn er starf-
að het'ur í ensku knattspyrnunni.
Hann hefur unnið hjá BBC.
Aston Villa. Wembley-leikvang-
inum en rekur nú eigið ráðgjafa-
■fyrirtæki.
Cyril Regis er þekktur leik-
maður og lék á sínum tíma með
WBA. Hann leikur nú með
Coventry og mun hann kynna
hvernig leikmenn koma inn í
þessi fjáröflunardænti hjá
félögunum.
Ráðstefnan er sem sagt á Holi-
day Inn á sunnudaginn stendur
yfir frá kl. 11.00-15.00 og er þátt-
tökugjald 1500 krónur og er
hverju félagi heimilt að senda tvo
fulltrúa. Þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist til skrifstofu
KSÍ fyrir hádegi á föstudag.
sem hjálparvörn vantaði. En
staðan sem sagt 19:31 í hálfleik,
sem þykir nú ekki liátt skor.
í seinni háltleik vantaði oft
ekki nema herslumuninn á að
Stólunum tækist að rétta sinn
hlut. Næst komust þeir í 49:52 en
þá náðu Suðurnesjamennirnir að
laga stöðuna frckar og gáfu ekk-
ert eftir á lokamínútunum.
Mikil breidd er í Grindavíkur-
liðinu og kom það vel fram í
þessum leik.
Bestir heimamanna voru Valur
og Sverrir setn barðist eins og
Ijón. Þá áttu Björn og Sturla
ágæta kafla.
Hjálmar Hallgrímsson og Ron
Davis voru bestir gestanna og
Guðmundur Braga átti ágætan
leik.
Stig UMFT: Valur 15, Sturla 14. Björn
10, Sverrir 6. Stefán 5. Ólafur 4 og Pétur
1.
Stig UMFG: Ron Davis 17, Guðmund-
ur 16, Hjálmar 10, Rúnar 9, Marel 6,
Bergur 3 og Guðlaugur 1. kj
Valur Inginiundarson lék að nýju með Tindastólsinönnuni en það dugði ckki
til. Myml: Kl.
Knattspyrna:
Ömólfur þjálfar Einherja
Þór-Heynir
í kvöld
Þór og Reynir mætast í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik á
Akureyri í kvöld, fimmtudag,
kl. 19.30. Reynismenn eru
neðstir í deildinni og hafa ein-
ungis sigrað í einum leik til
þessa. Þórsarar ættu þó ekki
að vanmeta Sandgerðingana
því það gerðu Valsmenn og
lilutu slæman skell fyrir vikið.
Annars beinist hugur Þórsura
mest að leik Tindastóls og Þórs í
Bikarkeppni KKÍ sem fram fer á
Akureyri á sunnudaginn kl.
16.00. Bæði lið eiga ekki mögu-
leika á því að komast t úrslit og
má því búast við allt verði lagt í
sölurnar í Bikarnum. Síðari leik-
ur liðanna fer síðttn fram á Sauð-
árkróki fimmtudaginn 1. febrúar.
Örnólfur Oddsson frá Isafirði
hefur verið ráðinn þjálfari Ein-
herjamanna frá Vopnafirði í 3.
deildinni í knattspyrnu. Hann
þjálfaði og lék með Isfirðing-
um í fyrra en hefur þar að auki
leikið 48 1. deildarleiki með
ÍBÍ, Víkingi og KR og skoraði
3 mörk. Örnólfur er 31 árs
gamall.
Nokkurra breytinga er að
vænta hjá Einherjaliðinu og eru
þeir Þrándur Sigurðsson, Jón
Gíslason og Njáll Eiðsson farnir
frá félaginu. Þrándur mun lcika
með sínu gamla félagi, Sindra frá
Hornafirði, Jón er farinn aftur í
Ármann og Njáll Eiðsson þjálfar
nú ÍR í 2. deildinni.
Að sögn Aðalbjörns Björnsson-
ar formanns félagsins er hugur í
þeim Vopnfirðingum að standa
Viðar áfram
með HSÞ-b
Viðar Sigurjónsson hefur
verið endurráðinn þjálfari
hjá HSÞ-b í knattspyrnunni.
Hann þjálfaði liðið í 4.
deildinni í fyrra og varð þá
markahæsti leikmaður ís-
landsmótsins með 28 mörk.
Nú er það einnig endanlega
ákveðið að bræðurnir Jónas og
Skúli Hallgrímssynir munu
leika með félaginu næsta
sumar.
Eins og kunnugt er stóð til
að Hörður Benonýsson myndi
þjálfa lið HSÞ-b en liann
ákvað að ganga til liðs við
Ólafsfirðinga í 2. deildinni.
Ekki er frágengið hvort Stefán
Guðmundsson leikur áfram
með HSÞ-b en viðræður
standa yfir við hann um að
taka að sér þjálfun einhverra
yngri flokka félagsins.
Af öðrum fréttum í 4. deild-
inni má nefna að Hríseyingar
hafa tilkynnt lið í 4. deildina
næsta sumar enda komnir með
þennan fína grasvöll til að
spila á. Þá verða a.m.k. tvö ný
lið á Norðurlandi, Þrymur á
Sauðárkróki og Narfi í Hrísey.
Viðar Sigurjónsson hefur verið
endurráðinn þjálfari HSÞ-b.
Aðalbjörn Björnsson forinaður Ein-
herja.
sig þrátt fyrir að frekar fámennt
sé í herbúðum þeirra um þessar
mundir. „Viö crum á höttunum
eftir nýjum leikmönnum enda
hópurinn frekar lítill um þessar
mundir," sagði formaðurinn.
Staðan
í körfunni
A-riðill: ■
ÍBK 19 14- 5 18911:1587 28
Grindavík 20 12- 8 1657:1482 24
IK 20 7-13 1547:1687 14
Valur 21 7-13 1677:1761 14
Reynir 20 1-19 1358:1878 2
B-riðill:
KR 21 19- 2 11662:1427 36
UMFN 19 16- 3 1735:1541 32
Haukar 20 10-10 1776:1633 20
uwn 20 9-11 1642:1563 18
Þór 19 4-15 1574:1772 8
Handknattleikur:
Stefán og Rögnvaldur
til rékkóslóvakíu
Stefán Arnaldsson handknatt-
leiksdóinari fcr út uni helgina
til Tékkóslóvakíu, ásanit fé-
laga sínum Rögnvaldi Erlings-
syni, til að dæma í 6-landa-
keppni í kvennahandknattleik.
Þar taka þátt flest sterkustu
kvcnnaliö liciins og er mótið
hugsað sem undirbúningur
undir A-heimsmeistarakeppni
kvenna sem fram fer í Kóreu í
desember á þessu ári.
Á mótinu í Tékkóslóvakíu
taka þátt lið frá Vestur og Aust-
ur-Þýskalandi, Rúmeníu, .lúgó-
slóvakíu, Sovétríkjunum og svo
auðvitað frá Tékkóslóvakíu.
Krafthopp 1990:
Flosi stökk lengst
- bein útsending á laugardaginn
Á móti í langstökki án atrennu
sl. laugardag setti hinn kunni
kraftlyftinga- og frjálsíþrótta-
maður, Flosi Jónsson, nýtt
íslandsmct í langstökki án
atrennu í flokki öldunga, 35-40
ára. Hann stökk 3,21 og bætti
þar með met Eyfírðingsins
Aðalsteins Bernharðssonar.
Þessi árangur náðist á móti í
íþróttahöllinni sem bar yfirskrift-
ina Krafthopp 1990. Það var
Kristinn Kristinsson úr UMSE
sem var aðalskipuleggjandi móts-
ins og voru keppendur átta
talsins.
Allir keppendurnir voru kraft-
lyftinga-, júdó og lyftingamenn.
Að Flosa undanskildum, sem
sigrað hefur á síðustu þremur
síðustu íslandsmótum í þessari
grein, voru allir að keppa í fyrsta
sinn á svona móti.
Þeir þóttu þó standa sig vel og
voru það einkum Kári Elíson,
með sinn sérstæða stökkstíl,
Tryggvi Heimisson, Snorri Ótt-
arsson og Helgi Jónsson sem
þóttu bera af.
Þess má geta að n.k. laugardag
verður íslandsmótið í atrennu-
lausum stökkum haldið í beinni
útsendingu í sjónvarpssal. Þar
verður Flosi meðal keppenda og
hefur hann titil að verja fyrir
hönd Norðlendinga.
Þegar Flosi setti íslandsmetið,
sem hér var áður getið, varð ein-
um félaga hans að orði: Að krafti
Flosa kveður rammt, karlinn
stökk og tætti, aldraður en ungur
samt öldungametið bætti.
En lítum á árangur einstakra
Flosi Jónsson.
manna á þessu móti: m
Flosi Jónsson 3,21
Kári Elíson 2,80
Tryggvi Heimisson 2,69
Snorri Óttarsson 2,67
Jón G. Sigurjónsson 2,66
Guðlaugur Halldórsson 2,63
Helgi Jónsson 2,61
Þorsteinn Leifsson 2,61