Dagur - 25.01.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 25. janúar 1990
fréttir
Ahrif virðisaukaskattsins hækka rekstrarkostnað
díselbifreiða annarra en vöruflutningabifreiða
- gasolía til bifreiða hækkaði í verði en bensínið lækkaði
Gasolía frá söludælum olíu-
félaganna hækkaði um ára-
mótin vegna virðisaukaskatts-
ins. Flutningabifreiðastjórar fá
VSK-hækkunina á eldsneytinu
endurgreidda á tveggja mán-
aða fresti en leigubifreiðastjór-
ar ekki, þar sem þeir síðar-
nefndu innheimta ekki VSK af
sinni þjónustu.
Virðisaukaskatturinn nær til
gasolíu sem áður var undanþegin
söluskatti. Þó leggst VSK ekki á
gasolíu til húshitunar frekar en
aðra orku til kyndingar mann-
virkja. Hákon Aðalsteinsson,
umboðsmaður OLÍS á Akureyri,
segir að gasolía hafi hækkað
óháð VSK úr kr. 14,90 í kr. 15,66
um áramótin, en eftir að búið er
að leggja skattinn á kostar hver
lítri kr. 19,50 til véla og bíla, en
frá söludælum bensínstöðva kost-
ar lítrinn kr. 22,50.
Útgerðir skipa og eigendur
vöruflutningabifreiða kaupa gas-
olíu með VSK en fá endurgreitt
við framvísun reikninga á tveggja
mánaða fresti hjá viðkomandi
bæj arfógetaembættum.
Leigubifreiðastjórar hafa af
því nokkrar áhyggjur að virðis-
aukaskatturinn auki rekstrarút-
gjöld þeirra bifreiða sem búnar
eru díselhreyfli. Samkvæmt upp-
lýsingum frá BSO verður þunga-
skatturinn af dísel-leigubifreið-
um 113 þúsund krónur fyrir árið í
ár, en af díselbifreiðum til einka-
nota greiðist lægri upphæð, 87
þúsund krónur. Vilji menn held-
ur nota akstursmæli greiðast kr.
4,67 pr. ekinn kílómeter. Eigandi
einkabifreiðar með díselhreyfli
verður því að aka meira en
18.629 kílómetra á ári til að það
borgi sig að greiða þungaskatt,
frekar en að velja þann kost að
greiða eftir mælisálestri.
Til samanburðar kostar hver
lítri af 98 okt. bensíni kr. 53,60.
Áður kostaði lítrinn kr. 54,10 en
verðlækkun varð um áramótin
sem stafar af því að VSK var tek-
in upp á bensíni í stað söluskatts,
sem var hærri. „Fyrir einkaaðila
og þá sem ekki fá endurgreitt er
hér um mikla hækkun að ræða,
ekki síst miðað við bensínið sem
lækkaði aðeins í verði á sama
tíma,“ segir Hákon Aðalsteins-
son. EHB
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í vor:
Kosið verður 26. maí og
hugsanlega einnig 9. júní
- framboðsfrestur rennur út flórum vikum fyrir kjördag
Kosið verður til bæjar- og
sveitarstjórna laugardaginn 26.
maí nk. Reyndar er hugsanlegt
að kjördagar verði tveir, sá
seinni 9. júní. Frestur til að
skila framboðum til viðkom-
andi kjörstjórnar rennur út
fjórum vikum fyrir kjördag,
26. apríl.
Reglur um kjör til sveitar-
stjórna byggja á lögum nr. 8 frá
1986 og nr. 14 frá 1987.
Dalvík:
Umiið við nýtt deiliskipulag
fyrir svæði sunnan Brinmesár
Finnur Birgisson, arkitekt,
vinnur nú að tillögu að deili-
skipulagi á nýju íbúðarhverfi
sunnan Brimnesár á Dalvík.
Hann hefur þegar unnið eina
tillögu sem gerir ráð fyrir ein-
Yelkomin í
íþróttahöllina
Komið og spáið
Vélsleðasýning -
Y élsleðamarkaður
Sýning á vélsleðum, útbúnaði og útilífsvör-
um í IþróttahöIIinni á Akureyri 27. og 28.
janúar nk. kl. 13-18 Iaugardag og kl. 11-16
sunnudag
Sjáið allar ’90 árgerðirnar af: Arctic Cat, Polaris, Ski-doo
og Yamaha.
Komið og ræðið við umboðsmenn og sölumenn.
Fáið verðlista.
Úrval af notuðum sleðum og hjólum til sýnis og sölu á úti-
svæði.
Komið með gamla sleðan á útimarkaðinn strax á föstudag
og reynið að skipta í nýrri eða selja.
Aftanísleðar, vélsleðaícerrur, kuldafatnaður, kuldaskór.
Hjálmar og alls konar aukabúnaður til sýnis og sölu.
Bílasímar, lórantæki, varahlutir, olíur, áttavitar.
Arshátíð LIV
verður haldin í Sjallanum kl. 19.30 á laugar-
dagskvöld.
Borðhald - skemmtiatriði - dans - aðeins kr. 2.500.
Ællir velkomnir.
Félagar í LÍV og allt áhugafólk um útilíf er hvatt til
að fjölmenna. Hringið og látið skrá ykkur á árshátíð-
ina í símum: 96-21509, 96-21715, 96-21825. Líy
býlis- og raðhúsum á svæðinu
og er nú að hefja vinnu við
aðra tillögu sem gerir ráð fyrir
einbýlis-, rað- og fjölbýlishús-
um.
Umrætt svæði er um fjórir
hektarar og er milli Brimnesár og
vegar upp í Böggvisstaðafjall.
Fyrir liggur aðalskipulag sem
gerir ráð fyrir íbúðabyggð á
þessu svæði en næsta skref er
frekari útfærsla á því í formi deili-
skipulags.
Helsta byggingasvæði undan-
farin ár á Dalvfk er austan við
umrætt svæði og vestan Böggv-
isbrautar.
Kosningadagur er ákveðinn
síðasti laugardagur fyrir hvíta-
sunnu sem í ár er 26. maí. Hugs-
anlegt er að kjördagar verði
tveir, sá seinni annar laugardagur
í júní. í lögum segir: „Heimilt er
að ósk sveitarstjórna að fresta
kosningum í sveitarfélögum þar
sem færri en 3/4 hlutar íbúanna
eru búsettir í kauptúni til annars
laugardags í júní.“
Að sögn Þórhildar Líndal hjá
Félagsmálaráðuneytinu ber við-
komandi sveitarstjórn að snúa
sér til ráðuneytisins fyrir 1. apríl
með ósk um að kosið verði annan
laugardag í júní. í síðustu sveit-
arstjórnarkosningum árið 1986
voru tveir kjördagar, 31. maí og
14. júní.
Frestur til að skila framboðum
til kjörstjórna rennur út fjórum
vikum fyrir kjördag. Framboðum
skal skilað skriflega.
í lögum segir að í hreppum
með fleiri en 300 íbúa skuli fara
frarn hlutbundnar kosningar en í
öðrum sveitarfélögum skuli þær
vera óhlutbundnar, m.ö.o. allir í
kjöri. Á þessu eru þó ýmsar
undantekningar, m.a. sú að hlut-
bundin kosning fari fram ef í það
minnsta 20 kjósendur eða /w
hluti kjósenda krefjast þess
óþh bréfi til oddvita kjörstjórna. óþh
Siglufjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ íþróttabandalag Siglufjarð-
ar hefur mcð bréfi til bæjar-
ráðs, tilkynnt að stjórn IBS
hafi ákveðið að ganga að til-
boði bæjarráðs, að rekstr-
arfé ársins 1990 verði kr.
3.850.000.-. þó með vissum
fyrirvara, sem nánari grein er
gerð fyrir í drögum að „verk-
samningi" sem bréfi ÍBS
fylgdi. Bæjarráð fól bæjar-
stjóra að taka upp viðræður
við stjórnarmenn IBS um til-
teknar breytingar á samnings-
drögum ÍBS.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá norrænafélaginu í Suður-
Slesvík í Danmqrku, þar sem
boðið er á vinabæjamót í
Húsby dagana 5.-9. júlí 1990.
Bæjarráð hefur samþykkt að
taka þátt í þessu vinabæjamóti
en mun síðar tilkynna hverjir
verði fulltrúar kaupstaðarins.
■ Kvöldskólanefnd hefur ráð-
ið Skarphéðinn Guðmunds-
son kennara, umsjónarmann
Kvöld-skólans.
■ Kvöldskólanefnd heíur
ákveðið, miðað við fjölda
umsækjenda (nemenda) í
Kvöldskólann, vcrði hægt aö
kcnna tveimur hópum ensku
og cinum íslensku. Þar sem
þátttaka var ekki næg í aðrar
greinar. verður ekki kennt í
þeim að sinni en áfram vérður
haldið með þá hópa sem voru
fyrir áramót.
É Bæjarstjórn bar upp og
samþykkti samhljóða fyrir
skömmu eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Siglufjarðar
skorar á ríkisstjórnina aö beita
sér fyrir að lagaheimild fáist til
handa fjármálaráðherra til að
undanþiggja sveitarfélög virð-
isaukaskatti af snjómokstri.“
■ Bæjarráð hefur í framhaldi
af erindi frá Leikfélagi Siglu-
fjarðar um fjárstuðning, sam-
þykkt að styrkur Leikfélags
Siglufjarðar skuli vcra
óbreyttur frá því sem tilgreint
er á fjárhagsáætlun 1989. þ.e.
kr. 206.000.-.
-í
skák
F
Alþjóðleg skákstig:
Sjö norðlenskir skákmenn á flsta
Kasparov er langefstur á
alþjóðlega skákstigalistanum
með 2800 stig. Tölulega séð,
en kannski ekki tölfræðilega,
hefur hann því slegið met
Fischers. Helgi Ólafsson er
efstur íslendinga með 2575
stig, Margeir Pétursson kemur
næstur með 2555 stig en Jóhann
Hjartarson hefur hrapað niður
í 2505 stig.
Sjö norðlenskir skákmenn eru
á þessum alþjóðlega lista, sex frá
Skákfélagi Ákureyrar og einn frá
Taflfélagi Sauðárkróks. Efstur er
Jón Garðar Viðarsson með 2290
stig en annars er röðin þessi:
Tómas Hermannsson 2260,
Áskell Örn Kárason 2250, Arnar son 2215 og Bragi Halldórsson,
Þorsteinsson 2245, Rúnar Sigur- Taflfélagi Sauðárkróks, einnig
pálsson 2220, Ólafur Kristjáns- með 2215 stig. SS
Skákfélag Akureyrar:
Gylfi sigraði
í hraðskáJdnni
Þór Valtýsson sigraði á 10
mínútna móti hjá Skákfélagi
Akureyrar nýverið en Gylfi
Þórhallsson bar hins vegar sig-
ur úr býtum í hraðskákmóti
Skákfélag Akureyrar:
15 mínútna mót
Skákfélag Akureyrar heldur 15
mínútna mót í félagsheimili
sínu við Þingvallastræti næst-
komandi föstudagskvöld, 26.
janúar. Mótið hefst væntan-
lega kl. 20.
Uppskeruhátíð Skákfélagsins
fór fram á dögunum og tókst vel.
Þar voru afhent verðlaun fyrir
efstu sæti á mótum félagsins síð-
astliðið hálft ár. SS
sem var sögulegt fyrir þær sak-
ir hvað það var hnífjafnt og
spennandi. Gylfi og Þór urðu
efstir en Gylfir sigrað í bráða-
bana.
Aðeins /2 vinningur skildi að
efsta mann og þann sem lenti í
fimmta sæti. Úrslitin réðustu í
síðustu skákinni. Gylfi og Þór
fengu 15/2 vinning af 20 mögu-
legum en í 3.-5. sæti urðu þeir
Jón Björgvinsson, Sigurjón Sig-
urbjörnsson og Þórleifur Karls-
son með 15 vinninga. Jón og Sig-
urjón voru efstir fyrir síðustu
skákirnar. SS