Dagur - 25.01.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 25. janúar 1990 - DAGUR - 9
_ Minning:
X Sigrun Jóhannesdóttir
í Höfða
Fædd 18. júlí 1892 - Dáin 7. desember 1989.
Mig langar tíl að minnast Sigrún-
ar tengdamóður minnar. Hún
fæddist á Melum í Fnjóskadal 18.
júlí 1892. Foreldrar hennar voru
Jóhannes Sigurðsson og Sigríður
Rósa Sigurðardóttir. Sigrún eign-
aðist 10 systkini og 1 hálfbróður,
aðeins einn bróðir hennar er á
lífi, Gestur Jóhannesson, en
hann dvelur nú á Dvalarheinril-
inu Hlíð á Akureyri.
Sigrún ólst upp í Vestari-Krók-
um á Flateyjardal, frá þriggja ára
aldri en þegar hún var 14 ára
flutti fjölskyldan að Ytra-Hóli í
Fnjóskadal, og þar bjuggu for-
eldrar hennar til æviloka.
Sigrún gekk til spurninga í 4
vetur hjá sr. Ásmundi Gíslasyni á
Hálsi. Hann taldi hún meistara-
legan fræðara, því auk kristin-
dómsfræðslunnar, sagði hann
þeim frá mannlífi annarra þjóða
og lýsti fjarlægum löndum á lif-
andi hátt. Þá vaknaði löngun
hennar til að komast til ísrael en
hún rættist löngu seinna. Vorið
1915 þegar hún var 22 ára, réðist
hún sem kaupakona að Miðvík í
Grýtubakkahreppi. Þar kynntist
hún mannsefni sínu, Kristni Ind-
riðasyni en hann var fæddur 7.
apríl 1890, yngstur þriggja
bræðra. Þau giftu sig 5. mars
1916. Þá var mikið fannfergi en
þrátt fyrir það var slegið upp
veislu á Ytra-Hóli og dansað
fram eftir nóttu. Kristinn stund-
aði sjó, jafnframt því sem hann
var í ráðsmennsku í Garðsvík á
Svalbarðsströnd. Fyrsta barn
þeirra, Jóhannes Steinþór, fædd-
ist 1917. Árið eftir fluttu þau að
Vatnsleysu í Fnjóskadal og þar
fæddust Ragnheiður 1918 og
Kristmann 1920. Árið 1921 fluttu
þau yfir Fnjóskána í Végeirsstaði
og bjuggu þar í 5 ár og þar bætt-
ust 4 börn við, Valdimar Gestur
1921, Sigríður Rósa 1923, Indriði
1924 og Sigurður Árni 1926. Vor-
ið 1926 fengu þau ábúð í
Hringsdal á Látraströnd. Þangað
hafði Sigrún aldrei komið og vissi
ekki hvað beið hennar. Þegar
komið var heim að Hringsdals-
bænum eftir langa ferð, leist
henni ekki á, ávöl brekka niður
undan bænum fram á þrítugt
bjarg. Snjó hafði að mestu verið
mokað út úr húsakynnunum, en
þó voru skaflar á stöku stað,
þetta var sannarlega ekki glæsileg
aðkoma með 7 börn það elsta 9
ára og yngsta mánaðargamalt. í
sex ár bjuggu þau þarna, hver
rigningardropi sem kom úr loft-
inu kom beina leið inn, og eitt
sinn gekk svo langt, að Kristinn
tók hleðslu úr bæjardyraþrösk-
uldinum og fossaði þá eins og
meðal bæjarlækur út á hlaðið.
Oft sagði hún mér frá veru sinni í
Hringsdal og var þá gjarnan að
bera saman þægindin nú til dags.
Konur væru að kvarta, með 1-2
börn, og allt færi úr skorðum ef
þvottavélin bilaði, ég tala nú ekki
um ef rafmagnið færi. Já, hún
hafði sannarlega lifað tímana
tvenna, allt frá því að búa í
torfbæ og til nýtískulegra húsa-
kynna. Iðulega sagði hún þegar
hún var háttuð að hún vildi óska
að öllum liði eins vel og sér.
Kristinn hafði stundað sjó þau ár
sem ekki fæddust börn en eftir
komuna í Hringsdal var það
ógerlegt. Þar bættust 4 börn í
hópinn: Ásmundur Hreiðar
1927, Flosi 1929, María Soffía
1930 og Anna Kristbjörg 1931.
En árið 1932 varð heldur betur
breyting á högum þeirra, þá tóku
þau Höfða í Höfðahverfi á leigu,
flutningunum gleymdi hún
aldrei. Það var haft eftir ein-
hverjum að svo var Kristinn
barnmargur að þegar fyrsta barn-
ið kom í hlaðið í Höfða, fór það
síðasta úr Hringsdal.
4 árum seinna keyptu þau jörð-
ina. Það voru mikil umskipti að
mega hefja ræktun og uppbygg-
ingu á eigin landi og hlúa að
æðarvarpi en það hafði ekki fylgt
með, meðan þau leigðu. Og enn
bættust við börn, Jón Ingvi 1933,
Jóhannes 1934, Ásgeir 1935 og
Haraldur Kristófer 1938.
En sorgin hafði líka knúið
dyra, elsti sonur þeirra lést árið
1934, þrjá syni missti hún full-
orðna: Indriða (1974), Krist-
mann (1977), Valdemar Gest
(1984).
Kristinn lagði mikið á sig til
þess að sýna staðnum sóma en
hann andaðist skyndilega 16.
nóvember 1953. Sigrún taldi allt-
af að bestu ár ævi sinnar hefðu
verið hér í Höfða. „Hér er svo
fallegt útsýni, upp Dalsmynnið,
inn fjörðinn til Akureyrar, og
Kaldbakur er hvergi fallegri en
hérna af hlaðinu í Höfða,“ sagði
hún oft, þegar hún var að sýna
gestum útsýnið. Hún hafði mikið
yndi af ferðalögunr, fór oft í
bændaferðir og orlofsferðir með
þingeysku fólki. Þegar hún varð
75 ára, gáfu börnin hennar, henni
ferð til ísrael. Það hafði alltaf
verið draumur hennar eins og
áður er frá greint. Sú ferð varð
öllu lengri en áætlað var, því
hópurinn lenti í 6 daga stríðinu.
Mikið lof bar hún ævinlega á far-
arstjórann sr. Frank M. Hall-
dórsson og ferðafélagana sem
hún hélt mikilli tryggð við. Einn-
ig fór hún til Portúgal og Kaup-
mannahafnar þegar hún varð 80
ára og seinasta ferðin út, var til
Kanada 1975. Þar hitti hún
marga sem hún átti frændsemi
við. Einnig var henni minnisstætt
ferðalag í kringum landið, sem
hún fór 1980. Þá kom luin til
frændfólks og vina í flestum
sýslum.
Þegar ég kom hér í Höfða árið
1970, tók hún vel á móti mér, og
bjuggum við hér saman þar til sl.
sumar, þegar hún veiktist og
þurfti að fara á sjúkrahús. Okkur
kom bara vel saman en oft sagði
hún þegar við vorum ekki sam-
mála að það væri nú ekki nema
von, þar sem um 60 ára aldurs-
munur væri með okkur. Hún tók
þátt í bústörfum með okkur,
hreinsaði t.d. dúninn. Sauðburði
hafði hún sérlega gaman af og
þegar hún treysti sér ekki til að
ganga í fjárhúsin, fékk hún ein-
hvern til að aka sér svo hún gæti
séð lömbin og heyrt jarminn.
Hún lifði fyrir börn sín og afkom-
endur þeirra, en þegar hún lést
átti hún 151 afkomanda, síðan
hafa tveir bæst við.
1976 var haldið hér ættarmót
og síðan á 4 ára fresti og mikið
gladdist hún yfir að sjá allt fólkið
og börnin sem uxu svo fljótt. Síð-
ast í sumar hélt hún upp á 97 ára
afmælið sitt heima, en þá var
mátturinn þrotinn og þörf fyrir
sjúkrahúsvist. Mér er mjög fninn-
isstæð sú stund í vor, þegar hún
var viðstödd fermingu eldri dótt-
ur okkar í Grenivíkurkirkju, í
hinu versta veðri, en hún lét það
ekki á sig fá, meira að segja fór
hún upp að altarinu og kraup þar
nreð fermingarbörnunum og fjöl-
skyldum þeirra. Seinna sagði hún
mér, að sér hefði ekki dottið í
hug að hún myndi komast í
kirkju þegar hún Ásta Fönn yrði
fermd og þetta yrði sjálfsagt í síð-
asta sinn, sem hún færi þangað,
sem og rættist.
Dætur mínar Ásta Fönn og
Inga Hrönn þakka ömmu sinni
allar góðu stundirnar sem þær
áttu með henni, hún kenndi þeim
svo margt, gætti þeirra þegar þær
voru litlar og þær studdu svo
ömmu sína þegar hún þurfti á því
að halda, seinni árin. 24. júlí fór
hún á sjúkrahúsið á Akureyri og í
ágúst var hún flutt á Hjúkrunar-
heimilið Sel. Þar var hún til
dauðadags. Þar hresstist hún svo
og var svo ánægð, meira að segja
var hún farin að grípa í prjónana
aftur, en hún andaðist þar 7. des-
ember sl. Hún var jarðsungin frá
Grenivíkurkirkju, sunnudaginn
17. desember að viðstöddu fjöl-
menni. Ég bið guð að blessa
hana.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafþú þökk fyrir allt og allt.
Þórdís Þórhallsdóttir.
Menntamálaráðuneytið:
Stjóra endurbótasjóðs
menmngarbygginga skipuð
Samkvæmt lögum sem samþykkt
voru á Alþingi sl. vor skal mynd-
aður sjóður sem varið skal til að
standa straum af kostnaði við
endurbætur á húsakosti menning-
arstofnana, stuðla að verndun
gamalla bygginga í eigu ríkisins
og bygginga sem vernda þarf að
mati Þjóðminjasafnsins og sam-
kvæmt tillögum þess. Þá skal og
verja sjóðnum til þess að ljúka
byggingu Þjóðarbókhlöðunnar.
í stjórninni eiga sæti:
Kjörin af sameinuðu Alþingi:
Hólmfríður R. Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri; Jón Helgason, al-
þingismaður; Sighvatur Björg-
vinsson, alþingismaður.
Skipaðir af menntamálaráð-
herra: Þorleifur Pálsson, skrif-
stofustjóri skipaður samkvæmt
tilnefningu dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins; Gunnlaugur Har-
aldsson, safnvörður; og Örlygur
Geirsson, skrifstofustjóri,
skipaðir án tilnefningar. Örlygur
Geirsson hefur verið skipaður
formaður sjóðsstjórnarinnar.
Samkvæmt fjárlögum fyrir árið
1990 er gert ráð fyrir, að endur-
bótasjóðurinn hafi alls 567 þús.
kr. til ráðstöfunar í ár, þar af
lánsfé 300 þús. kr.
DAGUR
óskar eftir að ráða
íþróttafréttamann
í fullt starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
20. febrúar nk.
Góð íslensku- og vélritunarkunnátta og góð
almenn menntun áskilin.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.
Saumastörf
Óskum eftir að ráða vant fólk til saumastarfa
allan daginn (jakkasaumur).
Hlutastörf koma til greina.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900
(220).
/
*
Alafoss hf., Akureyri
Vantar blaðbera
strax í Vallargerði og í einbýlishús í Gerðahverfi 2.
óskar eftir að ráða fólk til starfa til að skrifa
fasta þætti í blaðið. Tilskilin er góð íslensku- og
vélritunarkunnátta og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða, auk þess
sem ábendingar um fleiri eru vel þegnar:
★ Unglingar
★ Tónlist
★ Tómstundir
★ Neytendamál
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki til að skrifa
fasta þætti um sjálfvalið efni.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR,
frá Múla.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og heimilisfólks í Hvammi og
starfsfólks á sjúkrahúsi Húsavíkur.
Jónatan Ásvaldsson, Sigurlaug Guðvarðardóttir,
Kristján Ásvaldsson, Fríða Jóhannesdóttir,
Sigurveig Ásvaldsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.