Dagur - 25.01.1990, Síða 12

Dagur - 25.01.1990, Síða 12
Akureyri, fimmtudagur 25. janúar 1990 Kodak Express Gædaframköllun ★ Tryggðu filmunni þinni M— Jbesta GPed*6myndir' Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Færeyska skipið sem landaði á Akureyri var að koma í land eftir þriggja og hálfs mánaða útiveru og geri aðrir betur. Mynd: KL Arver hf. á Árskógsströnd: Fékk 130 tonn af rækju firá færeysku ftystiskipi Rækjuverksmiðjan Árver hf. á Árskógsströnd fékk í gær 130 tonn af frystri rækju úr fær- eysku frystiskipi. Rækjunni var landað á Akureyri. Að sögn verkstjóra hjá Árveri er um að ræða stærsta farm sem fyrirtækið hefur fengið frá erlendu frystiskipi. Hann sagði að rækjan væri kærkominn því að lítið hefði verið um hráefni að undanförnu og vinnsluhjólin því gengið hægt. Með þessum farmi ættu hjólin að fara að snúast eðli- lega hjá Árveri á ný og má ætla að hann sjái 15 manns fyrir vinnu alla virka daga næstu vikurnar. Þessi rækja var veitt á Dohrn- banka og norður undir Svalbarða og er stór og falleg og mjög góð til vinnslu. Sæþór, bátur G. Ben. á Ár- skógssandi hefur lagt upp rækju hjá Árveri en hann hefur lagt rækjutrolli um hríð og undirbýr vetrarvertíð. Líkur eru á að lítið hráefni fáist innanlands fyrr en að lokinni loðnuvertíð, þegar Þórshamar GK fer á rækjuveið- ar. óþh Bæjarstjórn Akureyrar: Bæjarstjóri leysir félagsmálastjóra af - með aðstoð skóla- og menningarfulltrúa bæjarins Sigfus Jónsson, bæjarstjóri, hefur tekið að sér starf fram- kvæmdastjóra félags- og fræðslusviðs Akureyrarbæjar á næstunni, en Jón Björnsson félagsmálastjóri er í ársleyfi. Jón mun væntanlega svara því næsta sumar hvort hann mun taka við starfi félagsmálastjóra Akureyrarbæjar á ný þegar leyfinu lýkur. Á fundi Bæjarstjórnar Akur- eyrar á þriðjudag spurðist Úlf- hildur Rögvaldsdóttir fyrir um hvort staða Jóns Björnssonar hefði verið fyllt á meðan hann væri í leyfi. Bæjarstjóri upplýsti að hann hefði tekið að sér að sinna verksviði Jóns næstu mán- uði, með aðstoð Ingólfs Ár- mannssonar, skóla- og menning- arfulltrúa bæjarins, sem tekur að sér þá þætti sem ekki heyra beint undir félagsmálin sjálf. „Það er vilji minn og meirihluta bæjar- ráðs að prófa þetta um sinn. Jón Björnsson er farinn í bili til að sinna öðrum verkefnum," sagði Sigfús. Sigríður Stefánsdóttir gagn- rýndi þetta fyrirkomulag harð- lega og sagði að sér þætti fróðlegt að vita að bæjarstjóri Akureyrar hefði tíma til að sinna svo viða- rniklu verksviði með sínu aðal- starfi. Þá taldi hún afar vítavert hvernig staðið hefði verið að þessu, og réttum aðilum, t.d. Svæðisskipulag EyjaQarðar lagt fram til kynningar í gær: „Er mikflvægt stjómtæki sveitarstjórna“ - Ólafsijörður, Hrísey og Glæsibæjarhreppur eiga ekki aðild að skipulaginu í gær hófst kynning á svæðis- skipulagi Eyjafjarðar 1989- 2009 hjá hlutaðeigandi sveitar- félögum og á skrifstofu Skipu- Iags ríkisins að Glerárgötu 30 á Akureyri. Oll sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu að Hrísey, Ólafsfírði og Glæsibæjar- hreppi undanskildum eiga aðild að svæðisskipulaginu. Þau tvö fyrrnefndu hafa frá upphafi ekki átt aðild að því en vegna ákveðins ágreinings sem upp kom eftir að vinna við skipu- lagið hófst klauf Glæsibæjar- Kaupfélag Vopnfirðinga fær greiðslustöðvun framlengda um tvo mánuði: „Kannskí verðum við neyddir tfl að lýsa okkur gjaldþrota“ - brýnt að koma sláturhúsamálunum á hreint Kaupfélag Vopnfirðinga hefur fengið greiðslustöðvun fram- lengda um tvo mánuði, til 19. mars nk., en þriggja mánaða greiðslustöðvun rann út sl. föstudag. Framlenging greiðslustöðvun- ar byggist á því að enn séu margir lausir endar í endurskipulagn- ingu á rekstri fyrirtækisins. Má þar m.a. nefna sauðfjárslátrun á Vopnafirði, rekstur trésmiðju kaupfélagsins og mjólkursam- lags. Þórður Pálsson kaupfélags- stjóri segir að á þessu stigi sé erf- itt að segja til um hvernig mál þróist. „Kannski verðum við frekar neyddir til þess að lýsa okkur gjaldþrota, þó að við séum það ekki, en að láta kúga okkur til þess að leggja hér niður búskap,“ segir Þórður. Eins og margoft hefur komið fram er mikil óvissa með sauð- fjárslátrun á norðausturhorninu. Vopnafjörður er einn þeirra staða sem kemur til umræðu í því sambandi. Þórður segir að enn virðist standa í mönnum hvar slátra eigi fé frá Vopnafirði. 'Hann segir það liggja fyrir að þessi mál verði að komast á hreint áður en greiðslustöðvunar- tíma lýkur 19. mars. Þórður segir og ýmsar þreifing- ar með rekstur mjólkursamlags- ins. Hann segir að Kaupfélagið hafi áhuga á að losa sig við þá eign en engin niðurstaða sé enn í. sjónmáli. Varðandi trésmiðju kaupfé- lagsins segir Þórður að til skoðunar sé að iðnaðarmenn á Vopnafirði stofni hlutafélag um að leigja hús trésmiðjunnar og kaupi tæki hennar. óþh hreppur sig frá Samvinnunefnd um skipulagsmál Eyjafjarðar og er því ekki aðili að skipulaginu. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, segir það rýra svæðis- skipulagið að áðurnefnd sveitar- félög séu ekki aðilar að svæðis- skipulaginu en hins vegar séu bundnar við það vonir að þau „komi inn“ við lögbundna endur- skoðun þess að fimm árum liðn- um. Vinna við gerð svæð’sskipu- lagsins hefur staðið yfir síðustu fimm ár og er það að vonum mjög viðamikið. Eyjafjörður er þriðja svæðið sem fær staðfest svæðisskipulag, áður hefur það verið samþykkt fyrir Ölfusið og Suðurnes. Að mati Stefáns Thors er svæðisskipulag mikilvægt stjórn- tæki sveitarfélaga og með það í höndunum sé t.d. auðveldara fyr- ir sveitarstjórnir að ákvarða hvar eigi að staðsetja tiltekna atvinnu- starfsemi. Svæðisskipulagið liggur frammi til kynningar til 7. mars nk. og ber að skila skriflegum athugasemdum við það fyrir 21. mars nk. óþh nefndarmönnum og deildarstjór- um félagsmálasviðs bæjarins, ekki tilkynnt um þessa skipan mála eða boðið að ræða hana í tæka tíð. Heimir Ingimarsson tók undir þessa gagnrýni og kvað málsmeð- ferð meirihluta bæjarráðs með ólíkindum. Björn Jósef Arnviðarson vís- aði framkominni gagnrýni á bug og taldi að verið væri að gera mál úr því sem ekkert væri. Málið hefði verið rætt tvisvar í bæjar- ráði. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir þakkaði fyrir framkomnar upp- lýsingar. Hún tók undir þá gagn- rýni sem fram kom og taldi lág- mark að bókað væri í bæjarráði hvernig skipan þessara mála yrði háttaö. EHB Stjórn Hraðfrystihúss ÓlafsQarðar hf.: Jón Eflert og Jón Hlutafjársjóðs Jón Ellert Lárusson, við- skiptafræðingur á Akureyri, og Jón Þórðarson, sjávar- útvegsfræðingur á Akureyri, verða fulltrúar Hlutafjársjóðs í stjórn Hraðfrystihúss Olafs- fjarðar hf. Eins og kunnugt er komu bæði Atvinnutryggingasjóður útflutn- ingsgreina og Hlutafjársjóður að fjárhagslegri endurskipulagningu Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. á síðasta ári. Hlutafjársjóður lagði fram umtalsvert fjármagn og af þeim sökum fær hann tvo menn af fimm í stjórn fyrirtækisins. Jón Ellert Lárusson á ásamt öðrum verslunina Bókval á Akureyri. Nafni hans Þórðarson er forstöðumaður sjávarútvegs- brautar Háskólans á Ákureyri. óþh Rólegt hjá lögreglu - enginn á barinn á Sigló um helgina Dagurinn í gær var heldur tíð- indalítill hjá lögreglunni á svæðinu. Það sem helst var áberandi á öllum vígstöðum var leiðinda færð í bæjum, sér- staklega fyrir gangandi fólk. Á Siglufirði voru klofstígvél öruggasti búnaður fólks og gerðu menn nokkuð af því að hjálpa ökumönnum sem höfðu fest sig í þungum snjónum. Þar ræða menn sömuleiðis nokkuð unt þann viðburð sem átti sér stað um helgina, en þá mætti ekki nokkur maður á barinn á staðnum. Slíkt þykir ttðindum sæta þar sem Siglfirðingar er þekktir fyrir góða ballstemmn- ingu. VG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.