Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 30. janúar 1990 20. tölublað
Utsala
Utsala
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Útgerðarfélag Akureyringa:
Verður Stakfellið ÞH
selt til Akureyrar?
Eins og kunnugt er stendur
togaraútgerð á Þórshöfn höll-
um fæti og vantar hundruð
milljóna króna til að rétta sjáv-
arútveginn á staðnum við. í
Ijósi þessarar staðreyndar hef-
ur því heyrst íleygt að margir
hafí áhuga á að kaupa frysti-
togarann Stakfell ÞH.
Stakfellið er talið mjög gott
skip, búið fullkomnum tækjum
til frystingar um borð, auk þess
Egilsstaðir:
Ekið á hest
Á föstudagskvöld var ekið á
hest á Völlum við Egilsstaði,
rétt fyrir iniðnætti. Aflífa
þurfti hcstinn. Annars var
helgin óhappalaus á Egils-
stöðum, að sögn lögreglu. Á
Húsavík og nágrenni gekk
umferðin óhappalaust fyrir
sig, og sæmilega að sögn lög-
reglu, þrátt fyrir leiðindafærð
og slæmt veður með köflum.
Þorrablót voru haldin um
helgina í Skjólbrckku, Skúla-
garði og að Ýdölum og fóru þau
vel l'ram samkvæmt vcnju að
sögn löggæslumanna. Fyrir
austan voru haldin þorrablót í
Fellabæ, að Skjöldólfsstöðum
og Iöavöllum og fóru þau vel
fram í alla staðí, að sögn lög-
reglu. IM
Akureyri:
Fáir á ferli
- sjö árekstrar
Rólegt var hjá lögreglunni á
Akureyri um helgina. Fólk
hélt sig að mestu heima við
og því fáir á ferli í bænum.
Sjö árekstrar uröu um helg-
ina og má að sögn lögreglu
tengja þá slæmum aksturs-
skilyrðum í bænum, hálku og
háum ruðningum.
í gær var einn árekstur á
Akureyri en aö öðru leyti gekk
umferðin vel fyrir sig í bænum.
óþh
sem togarinn hefur góðan kvóta.
Heimildir blaðsins hafa fyrir satt
að forráðamenn Útgerðarfélags
Akureyringa hf. hafi hugleitt
þann möguleika að festa kaup á
Stakfellinu, þótt ekkert hafi verið
ákveðið í því efni, enda um stóra
fjárfestingu að ræða.
Þetta var borið undir Gunnar
Ragnars, framkvæmdastjóra
Ú.A. Gunnar vildi hvorki játa
því né neita að um þetta hefði
verið rætt, og vildi ekki láta hafa
annað eftir sér en að það væri
alkunna að forráðamenn Útgerð-
arfélagsins leituðu sífellt lciða til
að auka kvóta togara félagsins og
endurnýja skipin.
Stakfellið er á ísfiskveiðum
sem stendur. Greiðslustöðvun
Útgerðarfélags Noröur-Þingey-
inga rennur út um mánaðamótin,
en búist er við að hún verði fram-
lengd um tvo mánuði. EHB
Stúlkurnar sjö sem keppa um sæmdarheitið Ungfrú Norðurland 1990 æfa sig
nú af kappi fyrir stóru stundina, útnefningu fegurstu konu Norðurlands
1990, sem fram fer í Sjallanum á Akureyri þann 16. febrúar nk. Dagur mun
síðar kynna stúlkurnar. Mynd: ki.
Byggðastofnun, Landsbanki og ríkisstjórn reyna að
liðka fyrir sölu raðsmíðaskips Slippstöðvarinnar:
Raðsmídaskipið á borði stjómar
Byggðastofiiunar í dag
Stjórn Byggðastofnunar mun á
fundi í dag fjalla um sölu á
raösmíöaskipi Slippstöðvar-
innar á Akureyri til Meleyrar á
Hvammstanga. Á þessum
fundi skýrist væntanlcga hvort
Byggöastofnun kcmur inn í
þessa sölu með einhverjum
Húnavatnssýslur:
Skólahaldi víða aflýst
- íþróttadegi frestað í Reykjaskóla
Skólahaldi var aflýst á nokkr-
um stöðum í Húnavatnssýslum
í gær. Ekki er lengra síðan en á
föstudag að skólum var frestað
síðast.
Á Skagaströnd var hvasst og
skafrenningur gerði skólabörnum
lífið leitt og því var ákveðið að
fella niður skóla eftir hádegi. Á
Hvammstanga var slæmt veður
milli sjö og níu í gærmorgun en
síðan gerði blíðuveður jafnskjótt
og búið var að lesa tilkynningu í
útvarpi þess efnis að skólahald
félli niður í gær.
í Reykjaskóla átti að vcra
árlegur íþróttadagur þar sem
skólar úr V-Húnavatnssýslu
koma saman og keppa í íþrótt-
um. Vegna ófærðar var þessari
skemmtun frestað um óákveðinn
tíma. kj
hætti en síðustu vikur hafa
staðið yfír viöræður milli stofn-
unarinnar, Landsbanka ís-
lands og fulltrúa ríkisstjórnar-
innar um hvernig koma megi
inn í þann þátt samningsins
sem sneri að Fiskvciöasjóöi og
hafnað var í stjórn sjóðsins fyrr
t vetur.
„Við munum ræða þetta ntál í
stjórn Byggðastofnunar í dag og
það er rétt að hér er um að ræða
hverjir geti orðið stofnlánveit-
endur í stað' Fiskveiðasjóðs. Eg
skal ekkert segja um hvort niður-
staða fæst í þetta mál í dag en
hvað varðar stjórn Byggðastofn-
unar vona ég að einhverjar
ákvarðanir verði teknar á þessum
fundi," sagði Guömundur Malm-
quist, forstjóri Byggðastofnunar,
í samtali við Dag í gær.
Þorvaldur íþrótta-
maöur Norðurlands
Þorvaldur Örlygsson knatt-
spyrnumaður var valinn
íþróttamaður Norðurlands fyr-
ir árið 1989. Þetta var tilkynnt
í hófí sem Dagur hélt á Hótel
KEA á sunnudagskvöldiö. í
næstu sætum komu Haukur
Valtýsson blakmaður, Eyjólf-
ur Sverrisson knattspyrnumað-
ur frá Sauöárkróki, Erlingur
Kristjánsson knattspyrnu og
handknattleiksmaður og Þóra
Einarsdóttir frjálsíþróttakona
frá Dalvík.
Þorvaldur kom heim í stutt frí
nú um helgina og gat því verið
viðstaddur afhendinguna. Hann
lýsti yfir ánægju með kjörið og
kvaðst vera hreykinn yfir því
trausti sem lesendur Dags sýndu
honum með því að velja hann
íþróttamann Norðurlands. Sjá
nánar um kjörið á íþróttasíðu og
viðtal við Þorvald í blaðinu á
morgun.
Á opnum fundi Steingríms J.
Sigfússonar, samgönguráðherra,
og Svavars Gestssonar, mennta-
málaráðherra, á Akurcyri í fyrra-
kvöld komu málefni Slippstöðv-
arinnar lítillega til umræðu og
ræddi samgönguráöherra í því
sambandi um mögulega smíði
Vestmannaeyjaferju. Sigurður
Ringsted, forstjóri Slippstöðvar-
innar, segir að menn verði að
gera sér grein fyrir að raðsmíða-
skip stöðvarinnar sé staðreynd og
þetta skip verði stöðin umfram
allt að selja. „Þessi ferja cr hins
vegar hugsanlegur samningur í
framtíðinni en núna þurfum við
að selja þetta skip. En cf við eig-
um að kafsigla okkur á þessu
raðsmíðaskipi þá smíðum við
enga ferju, það er ljóst,“ segir
Sigurður. JÖH
Norðanátt alla vikuna:
Ofan gefur
snjó á snjó
Búist er við noröaustanátt um
norðanvert landiö að minnsta
kosti fram á fímintudag. Þá
er gert ráö fyrir snjókoniu og
éljagangi og hitinn verður í
kringum frostmark.
Eyjólfur Þorbjörnsson,
veöurfræöingur. segir að þessu
valdi víðáttumikiö háþrýsti-
svæði yfir Grænlandi og suður í
hafi sé mjög kropp lægð á leið
norðaustur.
„Það verður nokkuð hvasst
um yestanvert Norðurlandið cn
eitthvað hægari austar," sagði
Eyjólfur.
„Það ætti að bæta áfram á fyr-
ir noröan. Er það ekki það sem
vantar í Hlíðarfjall?" óþh
ÓlafsQörður:
Sigurfari fór í
mjólkursiglingu
Ólafsfírðingar fengu mjólkur-
vörur, brauömcti og annað
góðgæti sjólciöina í gær. Það
var Olafsfjarðarbáturinn
Sigurfari ÓF-30 sem fór til
Dalvíkur og sótti vörurnar.
Sigurfari fór í gærmorgun inn
á Dalvfk og vörurnar voru
komnar í verslanir í Ólafsfiröi
síðdcgis í gær. Mjólkurlaust var
með öllu í bænum enda hafði
flutningabíll ekki komist með
mjólk fyrir Múlann síðan á mið-
vikudag.
Ólafsfjaröarmúli er kolófær
og ruðningstæki ekki hreyfð á
mcðan veðurfræðingar Veöur-
stofu spá áframhaldandi stífri
norðanátt. Þá sagði lögreglan í
Ólafsfirði í gær að mikil
snjóflóðahætta væri í Múlanum.
óþh
SigluQörður:
Skáluðu þrátt
fyrirfaimfergi
Mikill snjór er á Siglufírði og
kepptust bæjarstarfsmenn í
gær við að hreinsa hæinn.
Verkið sóttist heldur scint
enda mikill snjór á götum
bæjarins.
Leiðin inn í Fljót var hreins-
uð í gærmorgun og síðast þegar
fréttist var Siglufjarðarvegur
enn fær.
Að sögn lögreglu á Siglufirði
létu heimamenn noröanveöur
og snjókomu ckkert á sig fá og
skemmtu sér scm aldrei fyrr um
helgina, bæði á föstudagskvöld
og laugardagskvöld. Lögrcglu-
þjónn á vakt sagði að veður
þyrfti að vera sérstaklega vont
til að halda aftur af skemmtana-
gleði Siglfirðinga. óþh