Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. janúar 1990 - DAGUR - 3
-4
fréttir
Nægur skíðasnjór um allt Norðurland:
Veðrið setti þó strik í reikningimi hjá skíðafólki
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var
opnað formlega sl. laugardag.
Að sögn ívars Sigmundssonar
var aðsóknin alveg þolanleg
um helgina og þá sérstaklega á
sunnudaginn en veðrið var
ekki með besta móti og setti
það strik í reikninginn.
„Ég er nú á því að hér hefði
ekki verið nokkur maður á laug-
ardaginn, ef ekki hefði verið um
fyrsta opnunardag vetrarins að
ræða. Veðrið var þá mjög leiðin-
legt og endirinn varð sá að aðeins
nýja lyftan var í gangi. Á laugar-
daginn voru hér nær einungis
skíðakrakkar úr SRA en á
sunnudaginn rættist heidur úr
þessu og þá voru hér um 400
manns.“
ívar sagði að nægur snjór væri í
Hlíðarfjalli og yrði svæðið opið
eins og aðstæður leyfðu. I dag og
næstu tvo daga verður opið frá
kl. 13-20.45, á föstudaginn frá kl.
13-19 og um helgina frá kl. 10-17.
Húsavík
Til stóð að opna toglyftuna í
Melnum í gær og er meiningin að
hafa aðeins þá lyftu í gangi í
vetur. Húsvískir skíðaáhuga-
menn eru frekar óhressir þessa
dagana, þar sem þeim finnst
bæjaryfirvöld ekki sýna þessari
íþróttagrein mikinn áhuga. Að
sögn Vigfúsar Guðmundssonar
formanns æskulýðs- og íþrótta-
nefndar, er ástandið frekar aumt
í bænum. Skíðaráðið sagði af sér
í haust, enginn skíðaþjálfari hef-
ur verið ráðinn, snjótroðarinn er
svo til ónýtur, lyftan í Stöllunum
biluð og á síðustu 5 árum hafa
skíðamannvirkin á staðnum
hreinlega verið að grotna niður.
Ólafsfjörður
„Það er víst nægur snjór hér í
Ólafsfirði en það hefur ekki verið
Sláturhúsið á Dalvík:
Beðið er stjómarfundar KEA
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
mun á fundi sem áætlaður er
um næstu mánaðamót meðal
annars ræða fyrirkomulag
slátrunar á Dalvík. Þar hefur
verið lögð niður sauðfjárslátr-
un en bændur í Svarfaðardal,
Dalvík og Arskógsströnd
leggja á það mikla áherslu að
þar verði áfram stórgripaslátr-
un.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
gert KEA tilboð um úreldingu
hússins á Dalvík gegn 18 milljón
jcróna greiðslu úr úreldingar-
isjóði. Verði tilboðinu tekið
leggst af öll slátrun á Dalvík.
Bændur á svæðinu telja það óvið-
unandi og hafa safnað 108 undir-
skriftum til stjórnar KEA þar
sent þess er óskað að allra leiða
verði leitað til að halda áfram
nautgripaslátrun á Dalvík.
Á fundi Rögnvaldar Skíða
Friðbjörnssonar, útibússtjóra á
Dalvík, Magnúsar Gauta Gauta-
sonar, kaupfélagsstjóra, og Óla
Valdemarssonar, sláturhússtjóra
á Akureyri, með sveitarstjórn-
armönnum, deildarstjórnum
KEA og formönnum búnaðarfé-
laga á Dalvík, Árskógsströnd og
Svarfaðardal í liðinni viku kom
fram sú hugmynd að úrelda slát-
urhúsið á Dalvík að hluta til og
lagfæra þaö í húsinu sent þarl' til
að það fái löggildingu fyrir stór-
gripaslátrun. Áætlað er að sá
kostnaður nemi unt þremum millj-
ónunt króna. Dýrasti hluti lag-
færingarinnar lýtur að kælingu á
kjötinu.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörns-
son sagðist í samtali við Dag í
gær gera ráð fyrir að í dag yrði
lokið við gerð tillagna um þetta
mál til stjórnar KEA. Hann sagð-
ist búast við að línur tækju að
skýrast í því að afloknum stjórn-
arfundinum. óþh
Páfl Þór Armann
ráðiirn stjómandi
Vöruhúss KEA
Páll Þór Ármann nýráðinn
stjórnandi Vöruhúss KEA,
hóf störf á sínum nýja vinnu-
stað í gær. Páll Pór er stúdent
frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi, hann varð viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla íslands 1986
og lauk fyrir skömmu prófi í
rekstrarhagfræði við Verslun-
arháskólann í Kaupmanna-
höfn. Páll Þór er fæddur 1962.
Eiginkona hans er Hulda
Björnsdóttir kennari.
Páll Þór Ármann á sínum nýja vinnustað í gær.
Mynd: KL
hægt að opna skíðalyftuna ennþá
vegna veðurs," sagði Björn Þór
Ólafsson formaður OÍÓ í samtali
við Dag. Til stóð að opna skíða-
svæðið í Tindaöxl í gær og sagði
Björn Þór að svæðið yrði að öll-
um líkindum opið frá kl. 14-19
alla daga vikunnar og svo
kannski eitthvað á kvöldin.
Nýji skíðaþjálfari þeirra Ólafs-
firðinga, Viktoria Westberg frá
Svíþjóð, kom til bæjarins á
sunnudaginn og hefur þegar tek-
ið til starfa.
Siglufjörður
Til stóð að opna skíöasvæði Sigl-
firðinga í Skarðsdal á sunnudag-
inn en vegna veðurs var horfið
frá því. Birgir Sigmundsson
framkvæmdastjóri ÍBS, sagði í
samtali við Dag, að rcynt yröi að
opna svæðið í dag þriðjudag, svo
framarlega sem aðstæður leyfðu.
Til að byrja með verður skíða-
svæðið opið þriðjudaga-föstu-
daga frá kl. 16-18 og um helgar
frá kl. 10.30-16.
Dalvík
Skíðasvæði Dalvíkinga í Böggv-
isstaðafjalli var opnað í fyrsta
skipti í vetur, mánudaginn 22.
janúar. Skíðasvæðið var lokað sl.
laugardag vegna veðurs og aðeins
var hægt að hafa opið í tvo tíma á
sunnudaginn. Að sögn Óskars
Óskarssonar starfsmanns skt'ða-
svæðisins, stóð til að opna svæðið
í gær og hafa opið frá kl. 16-20.
„Það verður opið hjá okkur virka
daga, allt frá kl. 14-20 en það fer
þó eftir því hvernig æfingum
verður háttað. Unt helgar verður
fyrst um sinn opiö frá kl. 13-17 en
þegar líður á veturinn. verður
opnunartíminn lengdur," sagöi
Óskar.
Eins og annars staðar á
Norðurlandi er kominn nægur
snjór á Dalvík og því er bara að
vona að veðurguðirnir verði skíða-
mönnum hliðhollir og gefi þeirn
kost á að stunda þessa skemmti-
iegu íþrótt af krafti í vetur. -KK
BÆNDUR!
Ef ykkur vantar vinnukraft í sumar
hafið þá samband við NORDJOBB í
Reykjavík s: 91-19670 eða Norrænu
upplýsingaskrifstofuna á Akureyri s:
96-27599.
Breyttur
opnunartími
Frá 1. febrúar verður opið sem hér segir:
Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9.15-16.
Föstudaga frá kl. 9.15-17.
n
Sparisjóður
Glæsibæjarhrepps
Brekkugötu 9 • Sími 21590.
eiífuftu*11
gangj
Gráv0rSmU35"