Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 30. janúar 1990 Háskólinn á Akureyri: Siðfræðifyrirlestur Páls fékk metaðsókn Páll Skúlason, prófessor í heinispeki við Háskóla ís- lands, hélt fyrirlestur í Há- skólanum á Akureyri sl. laug- ardag og var hann ákaflega vel sóttur. Þrátt fyrir leiðindaveð- ur, slæma færð, og íþróttavið- burði sem voru í gangi á sama tíma þá sóttu um 150 manns fyrirlesturinn og var fullt út úr dyrum. Fyrirlesturinn var haldinn í kennslustofu í Háskólanum og virtust aðstandendur ekki hafa búist við svo mikilli aðsókn. Á síðustu stundu voru menn á hlaupum um skólann til að ná í stóla handa gestum og tókst að koma öllum fyrir að lokum. Það voru Félag áhugafólks um heimspeki á Akureyri og Háskól- inn á Akureyri sem stóðu fyrir fyrirlestrinum. Yfirskrift hans var: Verkefni siðfræðinnar - rétt- lætið, ástin og frelsið. Páll fjallaði um siðferðið í Ijósi þriggja spurn- inga: Hvað er okkur skylt að gera? Hvers konar líf er þess virði að því sé lifað? Hvernig eig- um við að standa á eigin fótum og takast á við spillingu ntannanna? Eflaust hefur umræða um sið- ferði og spillingu í þjóðfélaginu ýtt undir áhuga manna á fyrir- Iestrinum og einnig má benda á þátttöku Páls í sjónvarpsumræð- um um lífsgæðakapphlaupið ný- verið. Dagur mun greina ítarlega frá fyrirlestri Páls Skúlasonar í næsta helgarblaði. SS fréttir Mikill fjöldi fólks sótti fyrirlcstur Páls Skúlasunar, heimspekings, sl. laugardag. Áætlað er að um 150 manns hafí hlýtt á boðskap Páls. Mynd: KL Húsavík: Tólf íbúðir afhentar Búseti fær fyrstu íbúðirnar Tólf íbúðir í fjölbýlishúsi að Grundargarði 4 á Húsavík, voru afhentar sl. föstudag. Sjö íbúðanna eru verkamanna- bústaðir en fimm voru byggðar sem leiguíbúðir á vegum Húsa- víkurbæjar, húsnæðissam- vinnufyrirtækið Búseti fékk heimild til yfirtaka þær og eru þetta fyrstu íbúðirnar sem Bú- seti ráðstafar á Húsavík. Framkvæmdir við bygginguna hófust um haustið 1988 og stenst afhending hússins nokkurn veg- inn áætlun. Aðalverktaki við bygginguna var Fjalar hf. Að sögn Bjarna Þórs Einarssonar, bæjarstjóra, gengu bygginga- framkvæmdirnar snurðulaust og engin vandamál komu upp. enda er að skapast nokkur reynsla af slíkum framkvæmdum hjá verk- tökunum. IM Alþýðubandalagið á Akureyri: Efnt til skoðanakönnunar Alþýðubandalagið á Akureyri hefur ákveðið að efna til skoð- anakönnunar meðal flokks- manna vegna bæjarstjórnar- kosninganna í vor. Heimir Ingimarsson, bæjarfull- trúi, segir að Alþýðubandalags- fólk á Akureyri hafi kosið undir- búningsnefnd vegna kosning- anna. Nefndin hefur það hlut- verk að láta fara fram skoðana- könnun innan félagsins um fram- bjóðendur. „Listinn á að vera tilbúinn fyrir fyrstu helgi marsmánaðar," segir Heintir, en ákvörðun um þetta var tekin á fundi á fimmtudags- kvöld í síðustu viku. EHB '/....... Félagsmenn ath! Munið árshátíðina Upplýsingar í símum 21940 og 25534. FÉLAG MÁLMIÐNAÐARMANNA AKUREYRI Fundarboð Félag Málmiðnaðarmanna Akureyri heidur félagsfund miðvikudaginn 31. þessa mánað- ar kl. 17.00 í Alþýðuhúsinu. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Kjaramál. 3. Önnur mál. Stjórnin. Akureyri: Steingrímur og Svavar á fundi í Alþýðuhúsinu „Kaupmáttur þorra launa- manna er orðinn óviðunandi lágur,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra, á opnum fundi á Akureyri sl. sunnu- dag. Ráöherra vék í máli sínu að kjaramálunum og sagði það auðvitað alveg Ijóst að kaup- máttur launafólks hefði lækkað umtalsvert á síðasta ári og á næstu vikum og mánuðum yröi það eitt af meginverkefnurn stjórnvalda að snúa bessari þróun viö. Steingrímur sagði kjarasamningaviöræöu" aðila vinnumarkaðarins allrar athygli verðar og menn geröu sér vonir um að ef gengi eftir með hækk- anir á útflutningsvörum lands- manna myndu þær koma t'ram sem kaupmáttaraukning til launafólks. Merkir kjarasamningar Menntamálaráðherra ræddi einnig um kjaramálin og sagði að ef yfirstandandi kjarasamn- ingaviðræður leiddu til samn- ings yröi það að teljast með merkustu kjarasamningum sem hafi verið gerðir. Svavar sagði ríkiskassann ekki þola að punga út 1000 milljónum til að greiða fyrir samningum en hann sagði þó að ýmislegu væri til fórnandi til að samningar tækjust á þeim nót- um sem nú væru ræddar. Svavar sagði að ef ríkissjóður legði fram einhverja fjármuni til að greiða fyrir samningum teldi hann að þeir kæmu láglauna- fólki að mestum notum í forrni húsnæðis- og húsaleigubóta. Á að bjóda SÞ Keflavíkurstöðina Steinrímur J. sagði að atburðir síðustu vikna og mánaða í Austur-Evrópu undirstrikuðu þær miklu breytingar sem nú ættu sér stað með heimsmynd- ina. í ljósi þessara breytinga varp- aði hann þeirri hugmynd fram að bjóða Sameinuðu þjóðunum afnot af Keflavíkurstöðinni fyr- ir eftirlitsstöð í norðurhöfum. Vinstri stjórn eftir kosningar Svavar Gestsson ræddi um ríkisstjórnarsamstarfið og sagði það mjög gott, ekki síst ef tillit væri tekið til þess að í stjórninni væru að minnsta kosti fjórir og hálfur flokkur. Menntamálaráðherra bar lof á forsætisráðherra fyrir samn- ingalipurð og sagði mikilsvert að með stjórnarsamstarfinu tækist að halda íhaldinu frá stjórn landsins. Samstarfinu yrði að halda áfram eftir næstu kosningar og þá væri lull ástæða til að biðla til kvenna. Með áframhaldandi vinstri stjórn yrði brotið blað í sögu íslenska lýðveldisins, íhaldinu yrði hald- ið frá tveimur ríkisstjórnum í röð. Ógnvekjandi byggðaþróun Menntamálaráðherra sagði spár um fólksflutninga af lands- byggðinni til höfuðborgar- svæðisins ógnvekjandi og við þeirri þróun yrði að sporna með markvissuni hætti. Hann sagöi að menn skyldu hafa í huga að auðn lands- byggðarinnar þýddi að þar yrðu eftir milljarða ónýttar fjárfest- ingar. Sem dæmi nefndi hann skólabyggingar vítt og breitt um land. Fram kom í máli ráðherra að nú þegar væri skólinn að Torfastöðum í Vopnafirði auð- ur og menn gætu þurft að horfa upp á svipaða niðurstöðu víðar, t.d. í Bárðardal. Vestmannaeyjaferja í skoðun Samgönguráðherra sagði að ekkert lægi fyrir með smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju, þau mál væru öll í skoðun. Hann sagðist ítreka þá skoð- un sína að tilboð íslenskra aðila mættu vera talsvert hærri en erlendra aðila til að borgaði sig að smíða ferjuna innanlands. Menn hefðu slegið fram tölunni 7-8% en ugglausl mætti færa rök fyrir að kostnaðarmunur mætti nema 10-15%. Langt í land í álmálinu Svavar Gestsson sagði fjarri lagi að niðurstaða í álmálinu svo- kallaða væri handan við hornið eins og menn vildu láta í veðri vaka. Þvert á móti sagði Svavar að samningar við hina erlendu aðila væru mjög skammt á veg komnir og Ijóst væri að ekki næðist lending í þessu niáli fyrr en ríkið gerðist aðili að nýrri álbræðslú hér á landi. Svavar sagðist telja að þó að uppi væru mismunandi sjón- armið ríkisstjórnarflokkanna varðandi ýmsa þætti álmálsins, t.d. staðsetningu, eignaraðild og mengunarbúnað,myndiekki hrikta í stoðum stjórnarinnar út af því vegna þess að málið kæmi vart til afgreiðslu fyrr en að afloknu þessu kjörtímabili. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.