Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 30. janúar 1990 - DAGUR - í
ieildarmeistaratitlinum:
er ÍS lagði KA
að knýja fram sigur
baráttu og var jafnt á flestum tölurn.
Svo fór að KA náði að vinna hrinuna
17:15. ÍS snéri dæminu við í fjórðu
hrinu og sigraði með sömu stigatölu
17:15.
Þegar hér var komið sögu var stað-
an 2:2 og þurfti því oddahrinu.
Spennan í hénni var ólýsanleg og
höfðu KA-menn lengst af frumkvæð-
ið. Staðan var 16:16 og þurfti aðeins
eitt stig til að skera úr um hver færi
með sigur af hólmi. Stigið lenti ÍS-
megin og sigurinn þcirra.
„Þetta var alls ekki nógu gott.
Okkur gekk mjög illa í blokkinni,
vorum alltof seinir. Einbeitingin var
ekki nógu góð og þá voru taugarnar
ekki í lagi. Ég vil leyfa mér að nota
tækifærið og þakka fjölmörgum
áhorfendum fyrir stuðninginn. Það
var verst að úrslitin skyldu vera þessi.
En þetta er ekki búið. Nú setjum við
stefnuna á keppni fjögurra liða um
íslandsmeistaratitilinn og bikarinn,"
sagði Haukur Valtýsson, fyrirliði
KA. óþh
James Lee.
Tindastóll:
James Lee er
mættur til leiks
- verður löglegur fyrir leikinn gegn Þór
Körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls hefur gengiö frá samningi
við bandarískan lcikmann
Jamcs Lee, um aö leika með
félaginu til loka þessa tímabils.
James Lee er 26 ára mið/fram-
herji. Hann er um 2 metrar á
hæð. vegur 106 kíló og er frá
Miami í Flórída og hefur leikiö
nteð liðum í Kólumbíu, Portúgal,
Mexikó, Svíþjóö og Argentínu.
Hann er dökkur á hörund, giftur
og á eitt barn. Hann kom þó ein-
samall til landsins og mun dvelja
til loka þessa tímabils. Svo gæti
farið að Lee leiki nteð Stólunum
næsta tímabil líka ef hann og
forráðamenn körfuknattleiks-
deildarinnar hafa áhuga á.
Stefnt er að því að Lee verði
löglegur með Tindastóli er þeir
mæta Þórsurum í seinni leik lið-
anna í Bikarkeppni KKÍ. Ekki
mun veita af liðveislu hans því
Stólarnir þurfa að vinna upp 30
stiga forskot Þórsara úr fyrri
leiknum. kj
ynd: KL
Bikarkeppni KKÍ:
Þór rúlladi yflr Tindastól
- ótrúlegir yfirburðir heimamanna
„Ég átti alls ekki von á þessum
stóra sigri. Góð vörn og mikil
barátta skóp þcnnan sigur en
við eigum seinni leikinn eftir á
Sauðárkróki þannig að það er
langt því frá að við séum
komnir áfram í keppninni,“
sagði Konráð Oskarsson
körfuknattleikskappi í Þór eft-
ir að lið hans hafði valtað yfir
Tindastólsmenn, 85:55, í Bik-
arkeppninni í körfuknattleik.
Þórsarar gáfu tóninn í leiknum
strax í byrjun. Þeir hófu stórsókn
og áður en gestirnir höfðu áttað
sig voru heimamenn komnir með
16 stiga forskot, 25:9.
En þá hristu Tindastólsmenn
af sér slenið og söxuðu smám
saman á forskot Þórsara. Hittni
heimapilta var slök á þessu tíma-
bili og áður en varði var forskotið
komið niður í 5 stig, 29:24.
Þá tóku þeir rauðklæddu sig
örlítið santan í andlitinu og juku
forskotið á nýjan leik í 9 stig,
38:29. Þannig var staðan er geng-
ið var til búningsherbergja í leik-
hléi.
í síðari hálfleik sögðu varnar-
menn Þórs „lok, lok og læs og allt
töfraformúlu. Á sama tíma fóru
þeir Jón Örn Guðmundsson og
Konráð Óskarsson á kosturn í
sókninni og var frábært að sjá
hve Jón Örn mataði félaga sína á
frábærum sendingum.
Það sló þögn á fjölmarga aö-
dáaendur Tindastóís sent fylgt
höfðu liðinu frá Sauðárkróki
enda léku þeirra rnenn afspyrnu
illa í síðari hálflcik. Engu Ííkara
var en enginn þeirra þyrði að
taka af skarið og skjóta nema
e.t.v. Valur Ingimundarson, en
hittni hans var þó frekar slök.
Afleiðingin varö sú að Þórsarar
skoruðu 30 stig á meðan Stólarnir
settu ekki nema 8 stig niður.
Sá munur jókst jafnt og þctt
þar til hann var orðinn 31 stig,
75:44. Þá tóku Stólarnir smá
sprett og tókst að halda í við
Þórsarana. En lokatölur urðu
sem sagt, 85:55, eins og áður
sagði.
Þórsliðið átti mjög góðan leik
að þessu sinni. Fremstir meðal
jafningja voru bakverðirnir
Konráð Óskarsson og Jón Örn
Guðmundsson. Jóhann Sigurðs-
son stóð sig vel í vörninni og
hafði góðar gætur á Val Ingi-
mundarsyni. Guðmundur Björns-
son barðist vel bæði í vörn og
sókn og dreif félaga sína áfram á
kraftinum. Dan Kennard var
seigur að vanda en hittnin var
ekkert sérstök hjá honum að
þessu sinni.
Tindastólsliðið vill sjálfsagt
gleyma þessum leik sem fyrst.
Það var helst Valur Ingimundar-
son sem sýndi einhverja takta en
hefur þó oft leikiö betur. Það
verður erfitt verk fyrir Sauð-
krækingana að vinna upp 30 stiga
mun en Bandaríkjamaðurinn nýi
og hinn sterki heimavöllur Tinda-
stóls gæti gert gæfumuninn.
Dómarar voru þeir Leifur
Garðsson og Kristinn Albertsson
og höfðu þeir góö tök á leiknum.
Stig l’órs: Konráö Óskarsson 28, Jón
Örn Guðmundsson 22, Dan Kcnnard 17.
Eiríkur Sigurösson 6. Guðmundur
Björnsson 6, Jóhann Sigurðsson 4, Björn
Svcinsson 2.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson
18, Svcrrir Sverrrisson 11, Sturla Örlygs-
son 10, Ólafur Adolfsson 6, Stefán Pct-
ursson 4, Pctur V. Sigurðsson 3 og Björn
Sigtryggsson 3.
Jóhann Sigurðsson Pórsari skorar hér glæsilega körfu með sveilluskoti án
þess að Valur Inginiiindarson komi nokkrum vörnum við. Mynd: kl
í stáli," líkt og Ómar Ragnars-
son forðum, og áttu Sauðkræk-
ingarnir ekkert svar við þeirri
Baráttuandann
skorti hjá KA
IS-stúIkur fóru að dæmi ÍS-
piltanna og sigruðu stöllur sín-
ar í KA í Iþróttahöllinni á
Akureyri sl. laugardag 3:2.
KA byrjaði leikinn á laugardag
mjög vel og sigraði í 1. hrinu
15:10. KA-stúlkurnar voru mun
ákveðnari og betri aðilinn. ÍS
náði að snúa við blaðinu í annarri
og þriðju hrinu með 16:14 og
15:12.
í fjórðu hrinu komu KA-stúlk-
ur mun ákveðnari til leiks. ÍS
hafði raunar frumkvæðið og
komst í 7:6 en KA breytti stöð-
unni í 10:7 og sigraði síðan 15:11.
í oddahrinu var jafnt á flestum
tölum en úthaldið skorti hjá KA-
stúlkum þegar staðan var 11:11
og ÍS gekk á lagið og sigraði
15:12.
Herslumuninn vantaði hjá KA
til að sigra í þessum leik. Svo
virtist sem baráttuandann vant-
aði og því fór sem fór. í KA-
liðnu eru góðir blakarar og ljóst
að mikið býr í liðinu. óþh
íslandsmótið í innanhúsknattspyrnu:
Kári fór illa með Norðanflðin
- Tindastóll og TBA upp um deild en Leiftur féll - Fram og Valur meistarar
íslandsmótiö í innanhúss-
knattspyrnu, 1., 4. og 1. deild
kvenna, fór fram í Laugar-
dalshöll um helgina. Framar-
ar urðu íslandsmeistarar í 1.
deild karla en Valsstúlkur í 1.
deild kvenna. Veðriö setti
strik í reikninginn hjá mörg-
um utanbæjarliðum, líkt og í
fyrra, og komust m.a. ekki öll
Norðanliðin til leiks. Þar má
t.d. nefna kvennalið KA og
lið UMSE og Æskunnar.
Leiftur féll niður í 2. deild en
Tindstóll og TBA unnu sig
upp í 3. deild.
Mótið hófst á föstudagskvöld
með kcppni í 1. deild kvenna.
Þar sem gjörsamlega var ófært á
flesta staði á landinu komst liö
KA ekki til leiks. Liö Breiða-
bliks, KR, Vals og ÍA komust í
undanúrslit. Þar sigraði Breiöa-
blik liö KR 3:2 og Valur vann
ÍA 4:1. í úrslitaleiknum vann
Valur síðan Blikastúlkurnar
1:0.
í 4. deild komust UMSE og
Æskan ekki suður en Magna-
menn fóru beint úr flugvélinni
og léku tvo leiki í röð. Grenvík-
ingarnir unnu Erni frá Selfossi
örugglega 5:1 en töpuðu síðan
st'ðari leiknum fyrir Baldri fiá
Hvolsvélli 3:1.
Tindstóll vann öruggan sigur
í C-riðli. Tindastóll vann Dal-
vík 5:2, Auslra 4:2 og geröi síð-
an jafntefli við Létti 6:6. Dalvík
vann Austra 5:2 og Létti 3:2 og
lenti í öðt u sæti í riðlinum.
I D-riöli sigraöi lið TBA frá
Akureyri nokkuð örugglega.
Meða! leikmanna liösins voru
Stefán Jóhannsson fyrrverandi
markvöröur KR. Skapti Hall-
grímsson og Jóhann „Donni"
Jakobsson. Liðið vann Ægi frá
Þorlákshöfn 4:0 og Hrafnkel
Freysgoða frá Breiðdalsvík 6:1
en hikstaði örlítiö gcgn Hugin
frá Seyðisfirði og gerði jafnterli
4:4.
Það voru sem sagt lið Tinda-
stóls, TBA, Baldurs og Stokks-
eyrar sem fóru upp cn ekki ligg-
ur Ijóst fvrir hv.iðii lið lalla nið-
Jóhann „Donni“ Jakobsson spil-
aði með TBA og stóð sig vel.
ur í 5. deild vegna þcss að Æsk-
an og UMSE komust ekki til
leiks. Þó má gera ráð fyrir því
aö Hrafnkell og Léttir fari
niður.
I I. deildinni fengu Leífturs-
menn frekar slæma útreið gegn
Fram og töpuðu 11:1. Síðan
töpuðu þeir nauint gegn ÍA 4:3
og gerðu jafntefli viö IK 3:3 cn
það dugði ekki til og Ólafsfirð-
ingar leika því í 2. deild að ári.
Það voru lið Fram. KR,
Stjörnunnar, ÍA, ÍR, Fylkis,
Selfoss og ÍBV sem komust
áfram. í 4-liða úrslitum léku
Fylkir og KR og Fram og
Stjarnan. Framarar unnu örugg-
an sigur 5:1 á Stjörnunni og
Fylkir vann óvæntan sigur á
Reykjavíkurmeisturum KR 2:1.
í úrslitaleiknum virtust Fylk-
ismenn hafa farið rneð allt púst-
iö í leikinn gegn KR og hinir
snöggu Framarar gengu á lagið
og sigruðu örugglega 8:4.