Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 6
6^—JDAGUR - Þriðjudagur 30. janúar 1990
Firmakeppni
Knattspyrnudeildar Þórs
í innanhússknattspyrnu verður haldin dagana
17. og 24. febrúar og hefst kl. 15.00 báða dagana.
Leikið verður samkvæmt gömlu reglunum þ.e. án
markvarðar.
Þátttaka tilkynnist í síma 22381, þriðjudaga og
fimmtudaga milli kl. 17.00 og 18.00 fyrir 14. febrúar
nk.
Þátttökugjald kr. 9.000,- og kr. 7.000,- fyrir lið nr. 2,
frá sama firma.
Knattspyrnudeild Þórs.
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 1. febrúar 1990 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Jón Kr. Sólnes og Sigríður Stef-
ánsdóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjórnar,
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Tvímenningur
Bridge
Ungmennafélagið Gaman og alvara og Sparisjóður Kinnunga
halda tvímenningsmót í bridge í Ljósvetningabúð laugardag-
inn 3. febrúar kl. 10.00 fyrir hádegi.
Spilaðar verða tvær umferðir eftir Michell-fyrirkomulagi.
Þátttökugjald er kr. 2.000,- á mann, innifalið er hádegismatur
og kaffi að vild meðan spilað er.
Spilað verður um silfurstig og auk þess verða verðlaun veitt fyr-
ir efstu sætin, bikarar sem Sparisjóður Kinnunga veitir auk
bókaverðlauna.
Skráning fer fram á staðnum og eru keppendur beðnir að mæta
tímanlega.
Nánari upplýsingar gefur Þorgeir í síma 43241.
Öllu spilafólki er heimil þátttaka.
Laugardaginn 20. janúar sl.
luku 16 nemendur skrifstofu-
tækninámi hjá Tölvufræðsl-
unni Akureyri hf. Skrifstofu-
tækninámskeið Tölvufræðsl-
unnar er 256 klukkustundir
að lengd og skiptist í tölvu- og
viðskiptagreinar. Hópurinn
sem útskrifaðist nú stundaði
námið á kvöldin frá því í sept-
ember.
Á myndinni eru (efri röð, tal-
ið frá vinstri): Svavar Laxdal,
Vignir Jónasson, Jökull Guð-
mundsson, Soffía Jóhannes-
dóttir, Anna Gunnlaugsdóttir,
Gunnhildur Helgadóttir, Geir
Óskarsson, Eiður Eiðsson,
Ásgrímur Hilmisson og Jón
Ólafsson. Fremri röð, talið frá
vinstri: Fríða D. Vignisdóttir,
Herdís Hauksdóttir, Gréta
Kristjánsdóttir, Helgi Kristins-
son, framkvæmdastjóri Tölvu-
fræðslunnar Akureyri; Ingi-
björg Ingólfsdóttir, Jóhanna B.
Bjarnadóttir og Jóna S. Sigurð-
ardóttir.
Skálafell afliendir fyrsta Cherokee-jeppann
Á föstudaginn afhenti Skála-
fell hf. á Akureyri fyrsta
Cherokee-jeppann sem selst
á Akureyri eftir að Jöfur hf.
yfirtók Jeep- umboðið af Agli
Vilhjálmssyni hf.
Eins og bílaáhugamenn vita
keypti Chrysler bílasamsteypan
Jeep Corporation á síðasta ári.
Sú sala hafði þau áhrif að Jöfur
hf., umboðsaðili Chrysler á ís-
landi, fékk Jeep umboðið.
Það var Ragnar Sverrisson,
kaupmaður í JMJ á Akureyri,
sem fékk afhentan splunkunýj-
an Cherokee Limited á föstu-
daginn. Páll Sigurgeirsson hjá
Skálafelli segir að verð jeppans
sé um þrjár milljónir króna.
Jeppinn er „einn með öllu,“
eins og sagt er, aflmikilli 6 cyl.
vél með beinni innspýtingu,
fjögurra þrepa sjálfskiptingu og
sæg af aukabúnaði. „Þetta er
Frá afhendingu jeppans á föstudag, f.v.: Ragnar Sverrisson, Sigurgeir
Sigurpálsson og Páll Sigurgeirsson. Mynd: kl
jeppi sem hefur fengið frábæra
dóma bæði í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Mikið er spurt eftir
þessum jeppum og öðrum frá
Jeep,“ segir Páll Sigurgeirsson.
EHB
óskar eftir að ráða fólk til starfa til að skrifa
fasta þætti í blaðið. Tilskilin er góð íslensku- og
vélritunarkunnátta og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða, auk þess
sem ábendingar um fleiri eru vel þegnar:
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki til að skrifa
fasta þætti um sjálfvalið efni.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.
Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda:
Fjölmennur
verkstjórafundur
Um 120 manns sátu verkstjóra-
fund Sölusambands ísl. fiskfram-
leiðenda sem haldinn var dagana
18. og 19. janúar sl. á Holidav
Inn hótelinu í Reykjavík. A
fundinum var m.a. rætt um
stöðuna á mörkuðum í dag,
framleiðslu á vertíðinni, flutt
erindi um betri hráefnisnýtingu
og umræðuhópar störfuðu.
Þá var farið í heimsókn til
Grindavíkur þar sem Gunnar
Tómasson verkstjóri hjá Þorbirni
hf. skýrði frá reynslu þeirra af
sprautusöltun og flokkunarkerfi
og Sigurður Bogason hjá rann-
sókna- og þróunardeild SÍF
ræddi um rannsóknir og sprautu-
söltun. Síðari fundardaginn
hlýddu verkstjórar einnig á erindi
um gæði og markað og um gæða-
stjórnun. I umræðuhópum voru
tekin fyrir ýmis efni svo sem
gæðastýring og verðmætasköpun
í vinnslunni, tækninýjungar og
hlutverk verkstjóra í nútíð og
framtíð’. Dagbjartur Einarsson er
stjórnarformaður SÍF en Magnús
Gunnarsson framkvæmdastjóri.
J
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.