Dagur - 30.01.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 30. janúar 1990 - DAGUR - 7
Hvað sögðu
þau um valið?
Haukur Valtýsson
„Ég átti alls ekki von á því að
komast þetta ofarlega í kjörinu.
Reyndar átti ég alls ekki von á
því að neinn blakmaður kæmist
meðal þeirra fimm efstu þannig
að þetta er frábær árangur.
Reyndar lít ég á þetta sem
viðurkenningu til blakdeildar
KA í heild sinni fyrir árangur-
inn á síðasta ári og það er
ánægjulegt að fólk hefur metið
íslandsmeistaratitil okkar strák-
anna að verðleikum. Petta ýtir
undir okkur að halda áfram á
sömu braut þannig að ég þakka
öllum þeim sem veittu mér sitt
atkvæði.“
Erlingur Kristjánsson
„Það kom mér ekki á óvart að
Þorvaldur skyldi verða fyrir val-
inu. Hann hefur sýnt það og
sannað í ensku knattspyrnunni
að það átti enginn annar þenn-
an titil skilið.
í sambandi við mig er erfitt
að segja hvort þetta hafi komiö
mér á óvart. Maður veit aldrei
hverjir senda inn atkvæðaseðla
þannig að valið getur alltaf farið
allavega. Hins vegar er ég stolt-
ur af því að hafa komist inn í
hóp fimm efstu í kjörinu og
þetta ýtir undir metnaðinn að
standa sig í íþróttum."
íþróttamennirnir sem lentu í fimm efstu sætunum í kjörinu um íþróttamann Norðurlands. F.v. Haukur Valtýsson blakmaður í 2. sæti, Erlingur Kristjáns-
son handknattlciks og knattspyrnumaður í 4. sæti, Þorvaldur Órlygsson Íþróttainaður Norðurlands 1989, Þóra Einarsdóttir frjálsíþróttamaður í 5. sæti og
Sigurður Pálsson, sem tók við verðlaunum fyrir Eyjólf Sverrisson knattspyrnu og körfuknattleiksniann.
íþróttamaður Norðurlands 1989:
Þorvaldur varð fyrir valinu
- „er ánægður og stoltur,“ sagði hann eftir að úrslitin voru ljós
Þóra Einarsdóttir
„Ég sá á föstudaginn í Degi að
ég hafði fengið nokkur atkvæði
en bjóst ekki við að komast
þetta ofarlega í kjörinu. Þetta
sýnir að fleiri fylgjast með
frjálsum íþróttum en ég hélt og
það ýtir á mann að standa sig í
framtíðinni.
Þetta hefur vakið nokkra
athygli meðal vina og vanda-
manna og hafa þau tekið þessu
fagnandi.11
Þorvaldur Örlygsson var valin
Iþróttamaður Norðurlands fyr-
ir árið 1989. Það var Dagur og
lesendur blaðsins sem stóðu að
valinu og var Þorvaldur kosinn
með öruggum meirihluta at-
kvæða. Haukur Valtýsson
blakmaður, Eyjólfur Sverris-
son knattspyrnu- og körfu-
knattleiksmaður, Erlingur
Kristjánsson knattspyrnu- og
handknattleiksmaður og Þóra
Einarsdóttir frjálsíþróttakona
voru í næstu sætum.
Það kemur víst fæstum á óvart
að Þorvaldur Örlygsson skyldi
verða fyrir valinu sem íþrótta-
maður Norðurlands. Síðasta ár
var mjög viðburðaríkt hjá Þor-
valdi og má þar nefna Islands-
meistaratitil KA, hann var valinn
besti leikmaður 1. deildarinnar,
kosinn Knattspyrnumaður Akur-
eyrar og síðast en ekki síst gerði
hann atvinnusamning við enska
stórliðið Notthingham Forest.
Sjá nánar í viðtali við Þorvald
neðar síðunni.
Haukur Valtýsson, fyrirliði
KA-liðsins í blaki, lenti í öðru
sæti í kjörinu um íþróttamann
jNorðurlands. Haukur leiddi lið
sitt til sigurs á íslandsmótinu í
[fyrra og var það fyrsti íslands-
meistaratitill KA í meistara-
Iflokki. Haukur hefur lengi verið í
leldlínunni og er margreyndur
landsliðsmaður. Það var því
verðskuldað að hann skyldi lenda
þetta ofarlega í kjörinu en Hauk-
ur er maður hógvær og kvaðst
taka við þessum titli fyrir hönd
félaga sinna í KA-liðinu í blaki.
Eyjólfur Sverrisson knatt-
spyrnu og körfuknattleiksmaður
lenti í þriðja sæti í kjörinu og
kemur það víst ekki á óvart að
hann skyldi vera meðal efstu
manna. Hann var sá eini af
íþróttamönnunum sem ckki
komst á afhendinguna enda er
hann nú staddur í Mið-Ameríku
mcð liði sínu, Stuttgart, á keppn-
isferð.
Eyjólfur sló svo sannarlega í
gegn í sumar með knattspyrnu-
landsliðinu U-21árs þegar hann
skoraði öll mörk íslands í 4:0
sigri gegn Finnum á Akureyrar-
vellinum. Eftir þann frækilega
árangur beindust augu þekktra
liða að Eyjólfi og eftir nokkra
umhugsun ákvað hann taka boði
hins þekkta v-þýska knatt-
spyrnuliðs, Stuttgart. Þar dvelur
hann um þessar mundir og verð-
ur gaman að fylgjast með hvernig
hann stendur sig í hinum harða
slag atvinnuknattspyrnunnar.
Eflingur Kristjánsson knatt-
spyrnu- og handknattleiksmaður
úr KA lenti í 4. sæti. Hann hefur
vcrið fastur maður í topp 5 í
>essu kjöri undanfarin ár og það
kom ekki á óvart að liann var
meðal efstu manna enn eitt árið.
Erlingur var fyrirliði KA-liðsins í
knattspyrnu sem sigraði á ís-
landsmótinu síðastliðið sumar.
Hann er nú þjálfari KA-liðsins í
handknattleik, er markahæsti
maður liðsins og cinn af marka-
hæstu mönnum í 1. deildinni í
handknattleik.
Þóra Einarsdóttir frjálsíþrótta-
kona frá Dalvík lenti í fimmta
sæti í kjörinu. Þóra var yngsti
íþróttamaöurinn sem komst inn á
listann að þessu sinni en árangur
hennar á síðasta ári var mjög
góður. Það er ótrúlegt til þess að
hugsa að fyrir tveimur árum átti
hún best 1,52 í hástökki en í fyrra
stökk hún 1,77 og tryggði sér þar
með sæti í íslenska landsliðinu sem
keppti á Smáþjóðaleikunum á
Möltu. Hún er mjög fjölhæf
íþróttakona og sigraði m.a.
í þrístökki á íslandsmótinu í
atrennulausum stökkum um síð-
ustu helgi.
igar fókíð á götumii
mig er ég stoltur
- segir Þorvaldur Örlygsson
Þorvaldur Örlygsson var
ánægður el'tir að Ijóst var að
hann liafði orðið hlutskarp-
astur í valinu um íþrótta-
mann Norðurlands. „Það er
mér sérstaklega mikils virði
að það er hinn almcnni íþrótta-
ábugamaður sem velur mig
seni íþróttamann Norður-
lands. Eg held að ég geti sagt
með góðri samvisku að þessi
titill og kjöriö um besta leik-
niann 1. deildar í fyrra hafi
verið þær tvær vegtyllur sem
glatt hafa mig mest af öllum
þeim viöurkenningum sein ég
hef lilotið að undunförnu,‘*
sagði knattspyrnumaðurinn
knái.
Þorvaldur kom heim um
helgina í stutt frí en fer aftur til
Englands í dag. Meirihluti leik-
manna liösins fór til Spánar en i
huga Þorvaldar var aldrei nein
spurning að hann kæmi til Ak-
ureyrar. „Þetta er búinn aö vera
erfiður en spennandi timi og
ekki laust við að þreyta sitji í
manni. Það hefur því verið kær-
komið að kom’á heim til Akur-
eyrar í smá afslöppun." sagði
hann.
En það er stutt í að baráttan
hefjist á nýjan leik. Á laugar-
daginn leikur Forest við Crystal
Palace í Nottingham og kvaðst
Þorvaldur búast viö að vera í
liðinu áfram en þó væri aldrei
að vita hvað Brian Clough
framkvæmdastjóri gerði. „Mað-
ur veit aldrei fyrr en klukku-
tíma fyrir leik hverjir byrja inná
og framkvæmdastjórinn er óút-
reiknanlegur. En svona miðað
viö frammistööu mína í undan-
förnum leikjum býst ég viö að
vera í byrjunarliði."
Þorvaldur segist vera búinn
að koma sér þokkalega fyrir í
íbúð skammt frá leikvangi
félagsins. Þar mun hann verða
fram á voriö en Þorvaldur er
farinn að leita sér að varanleg-
um samastað í borginni. í blað-
inu á morgun verður viðtal við
Þorvald þar sem rætt verður um
lífið og tilveruna í kringum
knattspyrnuna í Englandi.