Dagur - 30.01.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 30. janúar 1990
íþróttir
Frjálsar íþróttir:
UMSEta
Þýskalands
Frjálsíþróttahópur á vegum
UMSE fer til Kölnar í æfinga-
ferð í aprílmánuði. Áætlað er
að um 20 manns fari í þessa
ferð og tekur ferðin rúman Vi
mánuð.
Flest besta frjálsíþróttafólk
UMSE fer í þessa ferð og verður
hún örugglega góður undirbún-
ingur undir Landsmótið í Mos-
fellsbæ í sumar.
En það er ekki bara verið að
skipuleggja Þýskalandsferð hjá
UMSE. Frjálsíþróttafólkið er að
skipuleggja ferð til Laugarvatns
og er áætlað að æfa þar um eina
helgi. Á þessu sést að það er
kraftur í UMSE-fólki um þessar
mundir.
Nú um helgina tóku Þóra Ein-
arsdóttir og Flosi Jónsson þátt í
íslandsmótinu í atrennulausum
stökkum og var mótið sýnt beint í
íþróttaþætti ríkissjónvarpsins.
Þau stóðu sig vel en nánar er sagt
frá mótinu neðar á síðunni.
Harpa Örvarsdóttir átti stórleik gegn Þrótti og skoraði 17 mörk í tveimur
leikjum. Mynd: KL
Handknattleikur/2, deild kvenna:
Létt hjá Þórsstúlkum
- unnu Þrótt stórt í tveimur leikjum
Þórsarar léku tvo leiki við
Þróttara í 2. deild kvenna um
helgina. Þórsarar náðu sér vel
á strik og unnu báða leikina
mjög örugglega, þann fyrri
23:12 og þann síðari 25:15.
Þórsarar byrjuöu fyrri leikinn
af miklum krafti og komust í 4:0.
Þá var eins og Þróttarstúlkurnar
gæfust hreinlega upp og heima-
stúlkurnar áttu þá léttan leik fyrir
höndum.
í leikhléi var staðan 12:5 og
lokatölur voru 23:12, eins og
áður sagði. Siguröur Pálsson
þjálfari Þórsstúlknanna leyfði öll-
um að spreyta sig þannig að
sigurinn hefði getaö orðið stærri
ef sterkasta liðið hefði leikið all-
an tímann.
Harpa Örvarsdóttir var færð úr
horninu og stóð sig mjög vel í
skyttuhlutverkinu. Einnig átti
María Ingimundardóttir góðan
leik og var hún sínum fyrri félög-
um erfiður ljár í þúfu. Þórunn
Sigurðardóttir meiddist snemma
í leiknum og gat því ekki leikið
meira með. Hún lék ekki heldur
með í síðari leiknum.
Mörk l'órs: María Ingimundardóttir K.
Harpa Örvardóttir 7. Þórdís Siguröar-
dóttir 4. Þórunn Siguröardóttir 3. Eva
Eyþórsdóttir 1.
Markahæstar hjá Prótti: íris Ingvars-
dóttir 3. Anna G. Jónsdóttir 3 og Ágústa
Siguröardóttir 3.
Harpa fór á kostum
Þróttarstúlkurnar voru ekki mikil
fyrirstaða fyrir Þórsarana í síðari
leiknum frekar en í leiknum dag-
inn áður. Reyndar skoraði Þrótt-
ur fyrsta markið cn síöan var
draumurinn búinn fyrir þær rönd-
óttu. Þór komst strax yfir og jók
forystuna jafnt og þétt allt til
leiksloka. Lokatölur voru 25:15
eftir að staðan hafði verið 13:6 í
leikhléi. »
Harpa Örvarsdóttir átti frá-
bæran leik og áttu Þróttarstúlk-
urnar ekkert svar við stórleik
hennar. Hún skoraði 10 mörk í
leiknum í 11 skotum og er það
frábær skotnýting. Þess má geta
að Harpa hafði ekki skorað nema
6 mörk það sem af er vetri en í
þessuni tveimur leikjum gegn
Þrótti skoraði hún 17 mörk.
Mörk Þórs: Harpa Örvarsdóttir 10,
María Ingimundardóttir 7. Þórdís Sig-
uröardóttir 3. Eva Eyþórsdóttir I. Inga
Vala Birgisdóttir 1. Hugrún Fclixdóttir 1.
Anna H. Gunnarsdóttir I og Sigurborg
Daöadóttir I.
Mörk Þróttar: Irís Ingvarsdóttir 4.
Svanhildur Þengilsdóttir 4. Anna G.
Jónsdóttir 3. Ágústa Sigurðardóttir 2 og
Er'na Jónsdóttir 2.
Akureyringar töpuðu d
Hörkuspenna
„Ég er vitaskuld ánægður með
þetta. Það er alltaf erfítt að spila
gegn KA, ekki síst hér á Akureyri.
Hér er ætíð mikil og góð stemmn-
ing,“ sagði Gunnar Svanbergsson,
einn liðsmanna ÍS-liðsins í blaki,
en sl. laugardag tryggði IS sér efsta
sætið í deildarkeppninni í blaki
með 3-2 sigri á KA í íþróttahöll-
inni á Akureyri.
Leikur toppliðanna var æsispenn-
andi en að sama skapi var hann ekki
- oddahrinu þurfti til
mjög vel leikinn. Leikmenn voru
greinilega mjög taugaspenntir, enda
mikið í húfi. Einkum var áberandi
framan af leiknum hve taugar KA-
manna voru strekktar.
ÍS náði góðri forystu í 1. hrinu, 7:1,
og síðar 11:4. Þá vöknuðu KA-menn
til lífsins og náðu að jafna 13:13 og
knýja fram sigur 15:13. Gestirnir
hefndu þessa grimmilega í annarri
hrinu. Þeir komust í 8:0 og sigruðu
15:10.
Þriðja hrina einkenndist af mikilli
Hafsteinn Jakobsson og félagar í KA urðu að bíta í það súra epli að tapa fyrir ÍS og tap
með KA deildarmeistaratitlinum í hendur stúdenta. v
Islandsmótið i
stökkum fór
útsendingu í
laugardag.
íslandsmótið í atrennulausum stökkum:
Góður árangur
Norðlendinga
atrennulausum
fram í beinni
sjónvarpssal á
Norðlendingar
á
voru sigursælir á mótinu og
áttu fjóra sigurvegara, Flosa
Jónsson UMSE í langstökki,
Þorstein Þórsson UMSS í há-
stökki, Helga Sigurðsson
UMSS í þrístökki og Þóru Ein-
arsdóttur í þrístökki. Þar að
auki fékk Þóra silfur í lang-
stökki og Helgi brons í sömu
grein.
Flosi varð öruggur sigurvegari
í karlaflokki í langstökki og stökk
3,35. Hann bætti eigin árangur
um 1 cm og er þetta bæði Eyja-
fjarðarmet og íslandsmct öld-
unga. „Með sama áframhaldi
verð ég búinn að slá íslandsmetið
eftir tíu ár," sagði Flosi og brosti
en það met á Gústaf Agnarsson
lyftingakappi og er það 3,44.
í þrístökki sigraði Þóra Einars-
dóttir með 8,12 og Helgi Sigurðs-
son UMSS sigraði í sömu grein í
karlaflokki með 9,74. Gamla
kempan, Aðalsteinn Bernharðs-
son, lenti í öðru sæti í þrístökk-
inu með 9,64.
í hástökki sigraði Þorsteinn
Þórsson UMSS með 1,63 en
Þuríður Ingvarsdóttir HSK sigraði
í sömu grein í kvennaflokki. En
lítum á einstök úrslit:
Langstökk karlar: metrar
Flosi Jónsson UMSE 3,35
Unnar Garðarsson HSK 3,31
Helgi Sigurðsson UMSS 3,25
Langstökk kvenna: metrar
Guðrún Arnardóttir UMSK 2,83
Þóra Einarsdóttir UMSE 2,71
Halldís Höskuldsd. Árm. 2,68
Hástökk kvenna: metrar
Þuríður Ingvarsd. HSK 1,30
Hrefna Frímannsd. ÍR 1,25
Elín Þórarinsd. FH 1,25
Hástökk karlar: metrar
Þorsteinn Þórsson UMSS 1,63
Stefán Þ. Stefánss. ÍR 1,63
Ólafur Guðmundss. HSK 1,55
Þrístökk karlar: metrar
Helgi Sigurðsson UMSS 9,74
Aðalst. Bernharðs. UMSE 9,64
Þrístökk konur: metrar
Þóra Einarsdóttir UMSE 8,12
Guðrún Arnardóttir UMSK 8.07
Halldís Höskuldsd. Árm. 7,64