Dagur


Dagur - 30.01.1990, Qupperneq 10

Dagur - 30.01.1990, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 30. janúar 1990 íþróftir Enska knattspyrnan: Aston Villa fór á kostum sigraði Port Vale 6:0 - Chelsea steinlá í Bristol Mark Bright skoraði tvö af mörkum Crystal Palace gegn Huddersfíeld. Það voru leikirnir í 4. umferð FA-bikarsins sem allra augu beindust að um helgina á Eng- landi. Fyrr í vikunni fóru fram leikir í 5. umferð Deildarbik- arsins, en þar hefur reynst erf- itt að fá fram úrslit. Þorvaldur Örlygsson og félagar í Notting- ham For. eru þó komnir í undanúrslit keppninnar og nú blasir úrslitaleikur á Wembley við Todda strax í upphafi ferils hans á Englandi. En þá er það FA-bikarinn á laugardag. Við fengum að sjá í sjónvarp- inu óvæntustu úrslit dagsins er Gordon Cowans átti stórleik fyrir Aston Villa gegn Port Vale. Staðan 1. deild Liverpool 24 13- 7- 4 48:22 46 Aston Villa 23 14- 4- 5 40:22 46 Arscnul 23 13- 3- 7 38:24 42 Nott.Forest. 23 10- 6- 7 33:22 36 Southuinpton 23 9- 8- 6 45:38 35 Chciseu 23 9- 8- 6 36:32 35 Everton 23 10- 5-8 31:28 35 Norwich 23 9- 7- 7 28:23 34 Tottenhum 23 9- 6- 8 32:30 33 Derby 23 9- 5-10 29:22 32 Coventry 23 9- 4-10 18:29 31 Wimbledon 23 7-10- 6 26:25 31 QPR 23 7- 9- 7 25:23 30 Mun.City 23 7- 5-11 27:37 26 Crystul Paluce 23 7- 5-11 26:45 26 Shcff.Wed. 24 6- 7-11 20:34 25 Man.Utd. 23 6- 6-11 27:33 24 Millwall 23 5- 8-10 29:34 23 Luton 23 4-10- 9 25:33 22 Charlton 23 3- 7-13 18:34 16 2. deild Leeds Utd. 27 16- 7- 4 46:26 55 ShelT.Utd. 27 14- 8- 4 42:29 51 Swindon 27 12- 7- 8 49:37 43 Sunderland 27 11-10- 6 45:41 43 Oldham 27 11-10- 6 38:32 43 Ipswich 26 11- 8- 7 39:36 41 Newcastle 26 11- 8- 7 47:36 41 Blackburn 27 9-12- 6 50:42 39 W'olves 2710- 9- 8 43:38 39 Port Vale 27 9-10- 8 39:35 37 Oxford 27 10- 7-10 38:37 37 Bournemouth 27 10- 6-11 43:45 36 West Ham 27 9- 8-10 38:34 35 Watford 27 9- 7-11 36:34 34 Leicester 27 9- 7-11 38:45 34 Plymouth 26 8- 7-11 41:37 31 Portsmouth 27 6-11-10 37:41 31 Middlesbr. 27 8- 7-12 33:40 30 W.B.A. 27 7- 9-11 45:45 30 Brijjhton 27 8- 5-14 33:40 29 Hull 26 641- 9 31:38 29 Bradford 27 6-10-11 32:38 28 Barnsley 27 7- 7-13 29:50 28 Stoke 27 4-10-13 23:42 22 Bristol City úr 3. deild sló I. deildarlið Chelsea úr keppninni 3:1 og voru þau úrslit sanngjörn. Dave Beasant markvörður Chelsea átti mestan þátt í sigri Wimbledon í FA-bikarnum um árið, en á 4. mín. leiksins missti hann frá sér skot Andy Llewellyn og fyrrum félagi hans hjá Wimble- don Rob Turner skoraði. Turner bætti öðru marki við á 10. mín. síðari hálfleiks, en Kevin Wilson lagaði stöðuna með skalla er langt var liðið á leikinn. 3. deild- arliðið tryggði sér þó öruggan sig- ur skömmu síðar er Mark Gavin skoraði eftir að Turner hafði ver- ið nærri að bæta þriðja marki sínu við. En hetja Bristol City var markvörðurinn Ronnie Sincl- air sem liðið fékk frá varaliði Leeds Utd. Rochdale skoraði þrjú mörk í síðari hálfleik gegn Northampton eftir hnífjafnan fyrri hálfleik. Steve O'Shaughnessy skoraði úr aukaspyrnu á 5. inín. síðari hálfleiks og 17 mín. síðar hafði Jason Dawson bætt öðru marki við. Tvívegis eftir það bjargaði Rochdale á línu, 8 mín. fyrir leikslok tryggði Wayne Goodison þó Rochdale sigurinn með marki úr vítaspyrnu. John Taylor tryggði 4. deildar- liði Cambridge aukaleik gegn 1. deildarliði Millwall er hann snemma í síðari hálfleik kastaði sér fram og skallaði inn jöfnunar- mark liðsins. Tony Cascarino hafði komið heimamönnum yfir rétt fyrir hlé, en liðinu tókst aldrei að ná tökum á leiknum og þrátt fyrir þunga sókn í lokin voru úrslitin sanngjörn, þó óvænt væru. Q.P.R. gerði vel að ná mark- lausu jafntefli gegn Arsenal á úti- velli og Don Howe framkvæmda- stjóri liðsins, sem lengi var þjálf- ari og stjóri hjá Arsenal fór ekki dult með ánægju sína. Leikurinn var þó slakur og fátt um mark- tækifæri. Alan Smith fékk besta færi Arsenal um miðjan fyrri hálfleik, en skalli hans var glæsi- lega varinn af David Seaman. Snemma í síðari hálfleik fékk Paul Parker boltann í opnu færi fyrir Q.P.R., en skallaði framhjá. Lee Dixon bakvörður Á sunnudaginn fóru fram þrír síöustu leikirnir í 4. umferd FA-bikarsins. Það voru leikir sem margir biðu eftir því stór- lið Liverpool, Everton og Manchester Utd. áttu þar hlut að máli. Ekki fékkst niðurstaða í slag Norwich á heimavelli gegn Liv- erpool, leiknum lauk með markalausu jafntefli og liðin verða því að leika aftur og þá á Anfield. Leikmenn Norwich áttu aðeins eitt skot sem hitti innan rammans hjá Liverpool allan leikinn, en Robert Rosario átti þó skalla sem hafnaði ofan á þverslánni hjá Liverpool og Dale Gordon átti tvö góð skot rétt framhjá. Liverpool lék af öryggi í leiknum og svo virtist sem leik- menn liðsins gætu alltaf bætt við sig ef þess gerðist þörf, það þurfti þó ekki til að halda jöfnu og í lokin munaði minnstu að John Barnes tryggði iiðinu sigur er hann reyndi að lyfta yfir Bryan Gunn markvörð Norwich af Arsenal var besti maður vallarins í leiknum. Meiðsli dómara réðu ef til vill úrslitum í leik Reading gegn Newcastle. Bætt var við leiktím- ann og þrem mín. eftir venjuleg- an leiktíma slapp Michael Gilkes innfyrir vörn Newcastle og jafn- aði 3:3 fyrir Reading. Mick Quinn og Mark McGhee höfðu tvívegis komið Newcastle yfir, en þeir Linden Jones og Trevor Senior jöfnuðu fyrir Reading. Þegar McGhee síðan skoraði annað mark sitt 19 mín. fyrir leikslok þótti flestum fokið í öll löngu færi. Norman Whiteside tryggði Everton áframhaldandi þátttöku í keppninni er hann af miklu harðfylgi skoraði bæði mörk liðs- ins gegn Sheffield Wed. á úti- velli. Fyrra mark hans kom á 9. mín., Chris Turner í marki Shef- field sló þá skot Graeme Sharp af stuttu færi í slá og Whiteside var fyrstu í boltann og sendi hann í netið. Aðeins ,tveim mín. síðar jafnaði Sheffield er Neville Southall markvörður Everton hálfvarði skot Dalian Atkinson og David Hirst fylgdi vel á eftir og jafnaði. Úrslitamarkið kom síðan um miðjan fyrri hálfleik er Peter Shirtliff miðverði Sheffield mistókst að skalla úr vítateign- um, Sharp skaut í varnarvegginn, en Whiteside náði boltanum og þrumaði honum í netið. 4. deildar lið Hereford mætti Manchester Utd. á heimavelli sínum og lék stíft til sigurs í leiknum. Eftir að Utd. hafði var- ið fyrri hálfleiknum til að verjast, skjól fyrir Reading, en jafnteflið var sanngjörn úrslit. Aston Villa fór heldur létt með 2. deildarlið Port Vale og sigraði 6:0. Gordon Cowans átti stórleik á miðjunni hjá Villa og 4 af mörkum liðsins komu eftir auka- spyrnur hans. Stuart Gray skor- aði tvö af þeim og þeir David Platt og Paul Birch afgreiddu hinar. Birch og Ian Olney skor- uðu hin mörkin tvö sem Cowans lagði ekki upp. Huddersfield lék vel gegn Crystal Palace, en átti þó aldrei möguleika þrátt fyrir að Ian tókst liðinu að skora eina mark leiksins seint í síðari hálfleik og tryggja þannig Alex Ferguson áframhaldandi vinnu enn um sinn. Pað voru aðeins 5 mín. til leiksloka er mark Hughes renndi fram hægri vænginn til Mike Duxbury sem sendi fyrir á Clayton Blackmore fyrir opnu marki og hann lét tækifærið sér ekki úr greipum ganga. Pað merkilega við þetta er að ef Utd. hefði leikið með fullt lið hefðu hvorki Duxbury né Blackmore leikið með liðinu. Að loknum þessum leikjum var dregið til 5. umferðar og fór drátturinn þannig: Reading/Newcastle-Manchester Utd. Bristol City-Millwall/Cambridge Norwich/Liverpool-Southampton Oldham-Everton Blackpool-Arsenal/Q. P.R. W.B.A.-Aston Villa Crystal Palace-Rochdale Sheffield Utd./Watford-Barnsley Leikið verður 17. febrúar. Þ.L.A. Wright vantaði f lið Palace. Jeff Hopkins kom Palace á sporið með skoti í stöng og inn, síðan fylgdu mörk frá Mark Bright sem skoraði tvö og John Salako. Barnsley vann góðan sigur á heimavelli gegn Ipswich, Garry Taggart og Steve Cooper skor- uðu mörkin fyrir Barnsley í fyrri hálfleik. Blackpool komst áfram eftir að hafa sigrað lið Torquay með marki Gordon Owen í fyrri hálf- leik. Mark Barham náði forystu fyr- ir Brighton á útivelli gegn Oldham, en það dugði ekki til, því þeir Scott McGarvey og Andy Ritchie svöruöu fyrir Oldham. Sheffield Utd. komst yfir gegn Watford á sjálfsmarki Barry Ashby í fyrri hálfleik. Watford lét þó ekki deigan síga og Gary Penrice jafnaði rétt fyrir leikslok. Miðvörðurinn Neil Ruddock skallaði inn sigurmark Southamp- ton gegn Oxford á 58. mín. eftir hornspyrnu frá Matthew Le Tiss- ier. Oxford hafði misnotað tvö dauðafæri í fyrri hálfleik, Mark Stein og Philip Heath sökudólg- arnir að þeim mistökum. 2. deildarlið W.B.A. gerði bikardrauma Charlton úr 1. deild að engu. Tony Ford skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik fyr- irW.B.A. Þ.L.A. Úrslit FA-bikarinn 4. umferð Arsenal-Q.P.R. 0:0 Aston Villa-Port Vale 6:0 Barnsley-Ipswich 2:0 Blackpool-Torquay 1:0 Bristol City-Chelsca 3:1 Crystal Paíace-Huddersficld 4:0 Hereford-Manchester Utd. 0:1 Millwall-Cambridge 1:1 Norwich-Liverpool 0:0 Oldhum-Brighton 2:1 Reading-Newcastle 3:3 Rochdale-Northampton 3:0 Sheffield Utd.-Watford 1:1 Sheffield Wed.-Everton 1:2 Sout hampton-Oxford 1:0 W.B.A.-Charlton 1:0 2. deild Blackburn-Stoke City 3:0 3. deild Birmingham-Shrewsbury 0:1 llristol Rovers-Bolton 1:1 Bury-Brentford 0:2 Chester-Swansca 1:0 Fulham-Crewe 1:1 Leyton-Orient 1:1 Rotherham-Tramnere 0:0 4. deild Gillingham-Hartlepool 0:0 Grimsby-Carlisle 1:0 Halifax-Wrexham 4:2 Peterborough-Doncaster 2:1 Scurborough-Scunthorpc 0:0 Southend-Aldershot 5:0 Stockport-Maidstone 1:2 York City-Colchester 3:1 í vikunni: Deildarbikarinn 5. umferð Southampton-Oldham 2:2 Endurteknir jafntefiisleikir úr 5. umferð. Covcntry-Sunderland 5:0 Derby-West Ham 0:0 Tottenham-Nottingham For. 2:3 Ekkert stjömuhrap á sumiudag - jafntefli hjá Liverpool - naumur sigur Utd.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.