Dagur - 15.02.1990, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. febrúar 1990
Stórviðburður í Sjallanum á Akureyri annað kvöld:
Hver verður Fegurðardrottning
Norðurlands í ár?
- sjö stúlkur keppa um titilinn að þessu sinni
Annað kvöld fæst svar við því í Sjallanum á
Akureyri hvaða stúlka hlýtur titilinn Feg-
urðardrottning Norðurlands 1990. Að þessu
sinni eru það sjö stúlkur sem taka þátt í
keppninni og hafa þær verið í stöðugum
æfingum síðustu vikurnar. Keppnin í Sjall-
anum er að vanda glæsileg og nær hámarki
þegar úrslit verða tilkynnt en Fegurðar-
drottningu Norðurlands 1990 krýnir Stein-
unn Geirsdóttir, sigurvegari í keppninni í
fyrra en hún verður jafnframt heiðursgest-
ur kvöldsins.
Stúlkurnar sjö sem taka þátt í
keppninni annað kvöld eru:
Hrafnhildur Björg Erlendsdóttir,
Lena Rós Matthíasdóttir, Bald-
vina Guðrún Jónsdóttir, Hulda
Björk Grímsdóttir, Ásdís Birgis-
dóttir, Guðrún Tinna Thorlacíus
og Sólrún Smáradóttir. Ein þess-
ara stúlkna verður krýnd Fegurð-
ardrottning Norðurlands annað
kvöld og það kemur í hennar hlut
að vera fulltrúi Norðlendinga í
keppninni um titilinn Fegurðar-
drottning íslands sem fram fer í
Reykjavík í vor.
Valið úr stórum hópi
Sem fyrr segir hefur undirbúning-
ur fyrir keppnina annað kvöld
verið í fullum gangi síðustu vik-
urnar, eða allt frá því stúlkurnar
voru valdar. En hvernig var stað-
ið að vali stúlknanna? Pví svarar
Sigurður Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Sjallans.
„Við fengum ábendingar um
stúlkur og síðan auglýstum við í
Degi eftir keppendum. Með
þessu fengum við hóp um 30
stúlkna til að velja úr og þessar
sjö stúlkur voru þær sem valdar
voru úr en auk mín stóð Alice
Jóhanns, danskennari, að þessu
vali,“ segir Sigurður.
Stúlkurnar hafa verið í æfing-
um í dansstúdíói Alice frá ára-
mótum og nú síðustu dagana fyr-
ir keppnina hafa verið æfingar í
Sjallanum. Þessu til viðbótar
hafa stúlkurnar sótt ljósatíma í
Nudd- og gufubaðsstofunni við
Tungusíðu á Akureyri þannig að
mikill tími hefur farið í undirbún-
inginn.
Kvartett, tískusýning og
söngdagská
Dagskráin í Sjallanum hefst kl.
19 annað kvöld. Þá verður for-
drykkur en síðan borðhald en
undir borðhaldinu leikur kvart-
ettinn „Undir rós“. Þá koma
keppendur fram á baðfötum en
að því loknu verður tískusýn-
ing frá versluninni Perfect á
Akureyri. Meðal þess sem þar
verður sýnt er glæsilegur kvöld-
kjóll sem sigurvegarinn í keppn-
inni hlýtur í verðlaun. Að lokinni
þessari sýningu. koma stúlkurnar
fram á kvöldkjólum og á meðan
dómnefnd lýkur störfum sínum
ætla söngvararnir Pálmi Gunn-
arsson og Erna Gunnarsdóttir að
flytja lög úr nýrri söngskemmtun
sem frumflutt verður í Sjallanum
á laugardagskvöldið. Að þessari
skemmtun lokinni verða úrslitin
kynnt og þá tilkynnt hver var
kosin ljósmyndafyrirsæta kvölds-
ins og hverja stúlkurnar sjálfar
völdu sem vinsælustu stúlkuna.
Þá verður loks komið að stóru
stundinni, krýningu Fegurðar-
drottningar Norðurlands.
Fimm manna dómnefnd
Dómnefnd kvöldsins er skipuð
valinkunnu fólki. Formaður
nefndarinnar er Ólafur Laufdal,
veitingamaður, en með honum í
nefndinni eru Erla Haraldsdóttir
danskennari, Sigtryggur Sig-
tryggsson blaðamaður á Morgun-
blaðinu, Margrét Blöndal dag-
skrárgerðarmaður hjá Ríkisút-
varpinu á Akureyri og Kristján
Jóhannesson framkvæmdastjóri
DNG á Akureyri.
Kynnir kvöldsins verður út-
varpsmaðurinn Gunnlaugur
Helgason.
Og fyrir þá sem áhuga hafa á
að vita hver matseðill kvöldsins
verður í Sjallanum þá er á honum
Kavíarterrin á spínatbotni í
forrétt, eldsteiktar nautalundir
„Richelicu" með koníakspipar-
sósu í aðalrétt og fylllt möndlu-
skál með glóaldinsósu í eftirrétt.
Að þessu loknu verður kaffi og
konfekt.
Glæsileg verðlaun
Verðlaunin sem sigurvegari
kvöldsins fær eru glæsileg. Þau
eru: Sólarlandaferð frá Orval-
Útsýn, kvöldkjóll frá versluninni
Perfect, módelgullhringur frá
gullsmíðastofunni Skart, úr af
gerðinni Raymond Weil frá Úr-
smíðaverkstæði Halldórs Ólafs-
sonar, skór frá Skótískunni,
hárblásari frá versluninni Radíó-
naust, gjafakort frá Bautanum og
Smiðjunni, snyrtivörur frá Vöru-
sölunni og gallerímynd frá AB-
búðinni.
Þá eru ótaldar þær viðurkenn-
ingar sem veittar verða öllum
stúlkunum en þær eru: Undirfatn-
aður frá Amaro, skór frá Skó-
verksmiðjunni Strikinu, snyrti-
vörur frá KEA, konfekt frá
Lindu, sundbolir frá Dansstúdíói
Alice og ljósatímar frá Nudd- og
gufubaðsstofunni Tungusíðu 6.
Hvert fer titillinn?
Og þá er ekki annað eftir en bíða
og sjá hver hlýtur titilinn góða.
Verða það Eyfirðingar sem
endurheimta titilinn eða fá Ólafs-
firðingar Fegurðardrottningu
Norðurlands þetta árið eða verð-
ur arftaki Steinunnar Geirsdóttur
frá Akureyri. Þetta kemur allt í
ljós í Sjallanum á Akureyri þegar
nálgast fer miðnætti annað kvöld.
JÓH
Hrafnhildur Björg Erlcndsdóttir.
Hrafnhildur er fædd árið 1972 og
er uppalin í Kópavogi en er flutt
til Akureyrar. Hún er afgreiðslu-
stúlka og hennar helstu áhugamál
eru dýr og það sem viðkemur
matseld. Hrafnhildur hefur hug á
námi tengdu matseld í framtíð-
inni en hún hefur ennfremur
áhuga á íþróttum, ferðalögum og
förðun.
Stcinunn Geirsdóttir var krýnd fegurðardrottning Norðurlands fyrir tæpu
ári. Hver verður arftaki hennar ■ Sjallanum á morgun?
Stofnfundur Félags norðlenskra steinasafnara í kvöld:
„Fagrir steinar víða 1 Exjafirði“
- segir Halldór G. Pétursson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Norðurlands
Fimmtudaginn 15. febrúar
verður haldinn stofnfundur
Félags norðlenskra steinasafn-
ara. Stofnun félags af þessum
toga hefur verið í bígerð um
margra ára skeið og nú á að
stíga skrefið til fulls. Fundur-
inn verður haldinn að Möðru-
völlum, húsi Menntaskólans á
Akureyri, og hefst hann kl. 20.
Til að forvitnast um þennan
væntanlega félagsskap hitti
Dagur aðalhvatamennina að
máli.
Halldór G. Pétursson, jarð-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un Norðuríands, og Þorsteinn
Arnórsson, áhugamaður um
steinasöfnun, hafa ásamt fieiri
áhugamönnum unnið að stofnun
Félags norðlenskra steinasafn-
ara. Hugmyndina má reyndar
rekja aftur til ársins 1970 en í
marsmánuði það ár var haldin
steinasýning á vegum Náttúru-
gripasafnsins á Akureyri. Á sýn-
ingunni lá frammi undirskrifta-
listi fyrir áhugasama safnara en
sá listi er löngu týndur og tröllum
gefinn.
Að sögn Halldórs var hug-
myndin endurvakin vorið 1989 á
nokkurs konar könnunarfundi og
þá skrifuðu 15 manns nöfn sín á
lista. Halldór dvaldi um tíma í
Reykjavík og kynnti sér steina-
söfnun og greiningu í Náttúru-
fræðistofnun Islands.
Steinasafn á stefnuskrá
Markmið félagsins eru m.a. þau
að stuðla að kynnum áhugamanna
um steinasöfnun (mineralogíu)
og efla samstarf og samvinnu
milli þeirra. Að safna og skrá
sem fyllstar upplýsingar um
steinafræði, sem að gagni geta
komið fyrir félagsmenn og við
rannsóknir á jarðfræði íslands,
að stuðla að fræðslu á sviði
steinafræðinnar, svo sem
myndun, söfnun, greiningu og
skráningu steina og koma upp
steinasafni í samvinnu við Nátt-
úrugripasafnið á Akureyri. Safn-
ið skal vera í ábyrgð og vörslu
Náttúrugripasafnsins, en félögum
skal tryggður aðgangur að því.
„Eftir fundinn síðastliðið vor
fór ég ásamt fleirum að kanna
þessi mál og huga að húsnæðis-
málum. Það sem við höfum fyrst
og fremst hugsað okkur er að
koma upp safni með vel greind-
um steintegundum, þanrrig að
meðlimir Félags norðlenskra
steinasafnara geti gengið í það og
borið saman við sín eigin eintök.
Við myndum þá að einhverju
leyti reyna að greina steina í sam-
einingu því það eru náttúrlega til
margar tegundir af steinum og
það getur verið flókið að greina
þá. Þetta yrði vísindalegt safn,“
sagði Halldór.
Hann sagði það ennfremur í
athugun hvort ekki væri hægt að
koma til móts við þá sem vinna úr
steinum, í sambandi við tæki til
vinnslunnar.
Blanda af vísindamcnnsku
og áhugamennsku
„Það er steinasafn hérna á Nátt-
úrugripasafninu og má þar finna
nokkra skrautsteina, en það er
þó aðallega til sýninga. Þetta
félag myndi frekar starfa sem
klúbbur og fyrirhugað húsnæði
yrði geymsla og safn, en ekki sýn-
ingarsalur," sagði Halidór.
Steintegundir eru flokkaðar
niður eftir mismunandi efnasam-
setningu, formi og myndun. Hall-
dór sagði að markmiðið væri að
byggja safnið á vísindalegri
flokkun og raða steinunum eftir
henni. Eitthvað yrði greint í sam-
vinnu við Náttúrufræðistofnun í
Reykjavík því þar væru menn
komnir lengra á veg í greiningu
og hefðu greiðan aðgang að
tækjum.
- Er einhverja fallega steina
að finna á Norðurlandi? Eru þeir
ekki aðallega á Austfjörðum?
„Fallegustu eintökin eru þar en