Dagur - 15.03.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmfudagur 15. mars 1990
Akureyringar
og nágrannar!
Dagana 14. og 15. mars heldur
Bókabúðin EDDA sýningu á skrif-
stofutækjum á Hótel KEA.
Þar er ætlunin að kynna m.a. nýja Ijósritunarvél
frá MINOLTA, sem Ijósritar allt að þrjá liti í einni
umferð, netbúnað frá NOVELL og AST, VICTOR
tölvur og flest það sem viðkemur rekstri fyrir-
tækja nútímans.
Q BARGATE A S T
Canon
IIHIHilWinilllllllllllllllllilllII MINOLTA
fujitsu OLYMPIA
■■■■
ATH. Einnig verður kynnt tilboð til
bænda á VICTOR tölvum og prentur-
um.
' VICT0R
Opus
i I
fréttir
Bokabuðin Edda a Akureyri stendur fyrir sýningu a skrifstofutækjum a Hotel KEA. Sýningin hofst ■ gær og henni
lýkur í dag kl. 18. Sýningin er haldin í samvinnu við Einar J. Skúlason, Magnús Kjaran og Sameind hf. í Reykjavík.
Þarna eru kynntar ýmsar nýjungar í skrifstoftækni, svo sem Ijósritunarvélar, netteingingar og fleira. Einnig er kynnt
nánar tilboð til bænda í tölvubúnað og fleira sein þeim viðkemur. Mynd: kl
Kvóti íslenskra fiskiskipa 1990:
Örvar hefur úr meiru að moða
Þtögeriðbetri
matarkaup
ÍKEANEÚO
Dilkakjöt í hálfum skrokkum 417
Nautahakk 659
Nautahamborgarar5310 stk. í pk.
Flóru kakó 200 g 97
Flóru kakó kvikk 500 g 181
Flóru kókosmjöl 200 g 36
Bragakaffi Columbia Va kg 102
Bragakaffi America V\ kg 91
Athugið opið virka daga frá kl. 13.00-18.30.
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00.
KynnSst NETTÓ-vGrði
KEANETTÓ
en aðrir norðlenskir togarar
Alls er 633 fiskiskipum yfir 10
brúttólestir að stærð úthlutað
veiðikvóta á þessu ári og er
það 25 skipum færra en í fyrra.
Skip á aflamarki eru 407 talsins
en 226 á sóknarmarki. Þá fá
245 skip úthafsrækjukvóta og
fá 39 loðnubátar hver um 155
tonn í sinn hlut að meðaltali.
Fyrr í þessum mánuði birtu
Fiskifréttir kvóta allra skipa og
ætlum við að glugga í þær upp-
lýsingar.
ísfisktogarinn Guðbjörg ÍS er
með mesta kvóta allra fiskiskipa,
2.552 tonn af þorski og alls 4.241
þorskígildi. Ef við lítum á nokkra
norðlenska ísfisktogara þá er
Kaldbakur EA með 3.054 þorsk-
ígildi, Harðbakur 2.610, Sval-
bakur 2.555, Hrímbakur og Sól-
bakur eru á sóknarmarki en
reiknað aflamark Hrímbaks er
1.789 þorskígildi og Sólbaks
1.634.
Björgúlfur EA er með 2.019
þorskígildi, Björgvin 1.860, Þor-
steinn 1.367 og Súlnafell 1.048
auk 150 tonna rækjukvóta. Kol-
beinsey Í»H er með 2.046 þorsk-
ígildi, Júlíus Havsteen 1.197 og
150 tonna rækjukvóta, Rauði-
núpur er á sóknarmarki en reikn-
að aflamark er 1.662 þorskígildi.
Lítum á þorskígildi hjá fleiri
togurum, reiknað aflamark er í
sviga: Sólberg ÓF 2.234, Ólafur
Bekkur (1793), Stálvík S1
(1.725), Sigluvík (1.633), Hegra-
nes SK (1.988), Skagfirðingur
(1.949), Drangey (1.874), Skafti
(1.819) og Arnar HU 2.399.
Af frystitogurum er Örvar HU
langefstur á blaði með 2.356 tonn
af þorski og alls 4.125 þorsk-
ígildi. Akureyrin EA er með
.3.383, þorskígildi, Sléttbakur
2.431, Sigurbjörg ÓF 2.368, Sigl-
-firðingur SI 1.904 og Stapavík
1.839 auk 100 tonnarækjukvöta.
Reiknað aflamark eftirtalinna
frystitogara sem eru á sóknar-
marki er í þorskígildum: Mána-
berg ÓF 2.118, Stakfell ÞH
2.075, Margrét EA 2.030 og 196
tonn af rækju og Hjalteyrin 1.514
og 148 tonn af rækju. SS
Gagnrýni á skattlagningu flotvinnugalla:
Skattfijálsir ef útgerðin kaupir
„Flotgallar eða flotvinnugallar
eru ekki lögbundnir. Þeir eru
öryggisbúningar sem sjómenn
nota við vinnu sína um borð,
fyrst og fremst á opnum
skipum, til dæmis loðnuflotan-
um. Kaupi útgerðin slíkan
búnað handa áhöfnum sínum
er um rekstrarvöru að ræða.
Framsóknarmenn á Húsavík
hafa ákeðið að halda skoðana-
könnun til leiðbeiningar um
val frambjóðenda á lista
flokksins fyrir komandi bæjar-
stjórnarkosningar. Auk félaga
í Framsóknarfélagi Húsavíkur
er stuðningsmönnum flokksins
heimil þátttaka í könnuninni.
Framkæmd skoðanakönnunar-
innar var ákveðin á fundi stjórnar
félagsins og uppstillinganefndar á
þriðjudag. Að sögn Egils Ol-
geirssonar, sem starfar í uppstill-
ingarnefnd, var ákveðið að leita
eftir uppástungum og hugmynd-
Virðisaukaskattur leggst ekki
á, vegna þess að útgerðirnar
draga þá virðisaukaskattinn frá
sem innskatt vegna aðfangs í
reglulegum skattuppgjörum
sínum,“ segir í minnisblaði um
flot- og vinnugalla sem fjár-
málaráðuneytið hefur sent frá
sér vegna gagnrýni frá konum
um um skipan sex efstu sæta
listans. Með niðurstöður könn-
unarinnar verður farið sem trún-
aðarmál og þær einungis notaðar
til leiðbeiningar við gerð tillögu
að uppstillingu á lista. Skráðum
félögum í flokknum hafa verið
send bréf og kjörgögn en aðrir
stuðningsmenn flokksins geta
vitjað gagna á Skrifstofu flokks-
ins að Garðarsbraut 5 og er hún
opin frá kl. 18-19, í dag og á
morgun. Á sunnudag ber öllum
þátttakendum að skila atkvæða-
seðlum og er skrifstofan þá opin
frá kl. 16-19, en þá lýkur könnun-
inni. IM
sjómanna í Vestamannaeyjum
á skattlagninu þessara bún-
inga.
Fram kemur í upplýsingum
ráðuneytisins að björgunargallar
eru lögbundin öryggistæki á sjó,
notaðir við sjóslys. Ekki er unnið
í björgunargöllum. Á þessa galla
leggst ekki virðisaukaskattur þar
sem um er að ræða rekstrarvörur
útgerðanna.
Flotgallarnir eiga sér liins veg-
ar ekki langa hefð en hafa engu
að síður náð útbreiðslu í flotan-
um og nýleg atvik sýna að þeir
geta komið að veruleg gagni. Séu
þeir notaðir að staðaldri þarf tvo
til þrjá á ári. Siglingamálaráð
hefur nýlega viðurkennt þrjár
gerðir af flotgöllum en hins vegar
hefur þessi búnaður ekki verið
lögbundinn á íslenskum fiskiskip-
um enn.
„Virðisaukaskattur leggst á
flotgalla eins og aðra verslunar-
vöru. Ljóst er að ef slíkur bún-
aður yrði lögbundinn öryggisbún-
aður væri enginn skattur greiddur
af göllunum. Eins og áður sagði
er einnig ljóst að enginn skattur
leggst á flotgalla ef einstök
útgerðarfyrirtæki kaupa þá fyrir
áhafnir sínar,“ segir ennfremur í
tilkynningu fjármálaráðuneytis-
ins. JÓH
Framsóknarmenn á Húsavík:
Skoðanakönnun um helgina