Dagur - 15.03.1990, Side 3
fréttir
Fimmtudagur 15. mars 1990 - DAGUR - 3
Fyrirtækjamiðstöðin hf.:
Mikil eftirspum eftir fyrirtækjum
en menn telja kreppubotninran náð
„Þetta eru alls konar fyrirtæki,
stór og smá, gömul og ný,“
sagði Baldur Brjánsson hjá
Fyrirtækjamiðstöðinni hf. í
Reykjavík í samtali við Dag en
fyrirtæki hans hefur auglýst
fjöldann allan af fyrirtækjum í
Reykjavík sem og á lands-
byggðinni til sölu. Á skrá hjá
Baldri eru m.a. gistiheimili og
billjardstofa á Akureyri, blikk-
smiðja á Norðurlandi og hótel
á Iandsbyggðinni. í Reykjavík
eru á skrá skemmtistaðir, mat-
vöruverslanir, heildverslanir
og snyrtistofur svo eitthvað sé
nefnt.
Aðspurður um hvort það er
svona erfitt að reka fyrirtæki í
dag sagði Baldur það mjög mis-
jafnt en reyndar væri eftirspurn
eftir fyrirtækjum nú meiri en
framboðið. „Það kom okkur á
óvart þegar við byrjuðum um síð-
ustu áramót að hingað komu
fleiri kaupendur en seljendur
sem var gagnstætt því sem við
höfðum búist við.“
Baldur segist fá nokkuð af
fyrirtækjum af Norðurlandi á
skrá hjá sér og sömuleiðis að þó
nokkuð sé spurt um þau. „Það er
alls staðar eftirspurn eftir fyrir-
tækjum, en ég tel þó að eftir-
spurnin sé hlutfallslega minni úti
á landi en í Reykjavík þó fram-
boðið sé hlutfallslega jafn
mikið."
Að sögn Baldurs eru ástæðurn-
ar fyrir því að fólk selur fyrirtæki
sín margar. „Eins og kunnugt er
hefur kreppuástand ríkt að
undanförnu og ntenn eru að
hugsa sér til hreyfings. Þá vilja
margir breyta til og skipta, eru
orðnir leiðir á þessu gamla og
vilja fara í annan rekstur. Menn
eru þó sammála um að botninum
sé nú náð hvað kreppuna varðar
og að nú sé á ný farið að sjást til
sólar.“
Greiðslukjör við kaup á fyrir-
tæki í dag segir Baldur mismun-
andi en þó mun vera algengt að
hægt sé að semja um mjög lita
peningaútborgun, en greiðslu
með skuldabréfi til 3ja til 5 ára.
Fyrirtækjunum fylgir oft mikill
lager, sérstaklega matvöruversl-
unum sem liggja með vörur að
andvirði milljóna króna.
Starfsfólk Fyrirtækjamiðstöðv-
arinnar hefur því í nógu að snú-
ast þessa dagana. „Flingað er
mikið hringt, en við eru strangir
hérna og gefum ekki upplýsingar
til manna nema þeir geri grein
fyrir sér. Sala á fyrirtæki er við-
kvæmt mál því það getur skaðað
reksturinn ef það spyrst út að
fyrirtæki sé til sölu. Þá eiga sam-
keppnisaðilar það til að vera að
hnýsast án þess að nteina nokkuð
með því.“ VG
Ráðstefna á Húsavík á laugardag um
stefnumörkun varðandi gróðurvernd:
Fjölmargir gestir flytja erindi
- forseti íslands, setur ráðstefnuna
Ráöstefna um stefnumörkun
varðandi gróðurvernd verður
haldin á Hótel Húsavík laugar-
daginn 17. mars n.k. Forseti
Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, setur ráðstefnuna kl.
9.30 en síðan flytur Steingrím-
ur J. Sigfússon landbúnaðar-
ráðherra ávarp. Ráðstefnan er
haldin á vegum Húsgulls, sam-
taka um umhverfismál og
gróðurvernd, sem stofnuð
voru í framhaldi af ráðstefnu á
Húsavík fyrir ári síðan, um
landnýtingu og gróðurvernd.
Að loknu ávarpi landbúnaðar-
ráðherra, verða samtökin Hús-
gull kynnt gestum en því næst
verða flutt erindi. Anna Guðrún
Þórhallsdóttir beitarfræðingur
fjallar um gróðurvernd og Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri
fjallar um hvað er efst á baugi í
gróðurverndarmálum. Jón Lofts-
son skógræktarstjóri fjallar um
hvað er efst á baugi í skógræktar-
starfinu og Tryggvi Jakobsson
fulltrúi námsgagnastofnunar
fjallar unt umhverfismál á íslandi
í alþjóðlegu samhengi. Síðan
verða almennar umræður.
Að loknu matarhléi, verða
flutt nokkur erindi til viðbótar.
Andrés Arnalds gróðurverndar-
fulltrúi fjallar um gróðurvernd
hér og þar og Jón Gunnar Ottós-
son forstöðumaður Rannsóknar-
stöðvar skógræktar ríkisins á
Mógilsá fjallar um skógrækt og
skógvernd, markmið og leiðir.
Böðvar Jónsson bóndi á Gaut-
löndum fjallar um samræmingu
búskapar og gróðurverndar og
Haukur Halldórsson formaður
F reyvangsleikhúsið:
Freyvangsleikhúsið sýnir Dag-
bókina hans Dadda fímmtu-
daginn 15. mars og laugardag-
•inn 17. mars. Sýningarnar hefj-
ast kl. 21 bæði kvöldin.
Sýningar hafa fallið niður að
undanförnu, s.s. vegna veðurs og
vélsleðakeppni, en það skal
áréttað að Daddi er kominn á
fulla ferð á ný, foreldrum sínum
til mikillar hrellingar. SS
Stéttarsambands bænda fjallar um
framleiðslustjórnun og landnýt-
ingu. Jónas Jónasson búnaðar-
málastjóri fjallar um stefnu
bændasamtakanna í gróðurvcrnd-
armálum , og Júlíus Sólneg
umhverfismálaráðherra kynnir
nýtt umhverfismálaráðuneyti.
Ráðstefnunni lýkur með panel-
umræðum en gert er ráð fyrir að
ráðstefnulok verði um kl. 17.00.
Markntið samtakanna Hús-
gulls er að allt Húsavíkurland
Lcikfélag Dalvíkur hefur frá
því um miðjan febrúar æft af
kappi leikritið „Um hið
átakanlega hvarf ungu brúð-
hjónanna Indriða og Sigríðar
daginn eftir brúðkaupið og
leitina að þeim“, eftir þær stöll-
ur Ingibjörgu Hjartardóttur
(frá Tjörn í Svarfaðardal), Sig-
rúnu Oskarsdóttur, Unni
Guttormsdóttur og Hjördísi
Hjartardóttur. Leikstjóri er
Jakob Grétarsson, tónlist eftir
Árna Hjartarson. Stefnt er að
frumsýningu leikritsins í byrj-
un apríl.
„Um hið átakanlega hvarf...“
var skrifað fyrir áhugaleikhópinn
Hugleik í Reykjavík. Slegið er á
létta strengi og brugðið upp grát-
broslegri mynd af íslenskri
sveitarómantík. Heimildir Dags
segja að þeir sem vel til þekkja
geti greint ýmsar svarfdælskar
svipmyndir í verkinu.
Sextán hlutverk eru í leikritinu
en leikendur eru 12-14. Að sögn
Guðlaugar Björnsdóttur, for-
manns leikfélagsins, gekk erfið-
lega að þessu sinni að fá fólk til
að vinna við uppfærslu leikrits-
ins. „Miðað við hvernig gekk að
fá fólk til starfa í ár má segja að
við séum á tímamótum með
þessa starfsemi. Við erum að
reyna að halda uppi einhverju
verði girt og grætt. Samtökin
hafa unnið að ýmsum verkefnum
og má nefna að gróðursettar voru
2000 trjáplöntur á Húsavík,
barnaskólabörn tíndu 20 kg af
birkifræi í FossselSskógi og gróð-
urhús var reist. Lúpínufræi var
dreift úr flugvél í Húsavíkurfjall
og mela og í tenglsum við starf
Húsgulls var lögð 14 km löng
uppgræðslugirðing í nágrenni
Húsavíkur (25 ferkm svæði).
menningarstarfi með væntingar
um að fólk vilji sjá það sem er
sett upp hér heima. Maður hélt
að ekki væri tímaleysi um að
kenna núna, en svo virðist sem
fólk finni eitthvað sem er auð-
veldara að dvelja við,“ sagði
Guðlaug. óþh
Iðnaðarráðherra
skipar starfshóp:
Til að fjalla
um áhrif áliðju
á umhverfið
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra hefur skipað hóp sér-
fræðinga til að vera ráðgefandi
um umhverfísáhrif iðjuvera. í
upphafí er hópnuni sérstaklega
ætlað að fjalla um áhrif áliðju
á umhverfíð.
Skúli Johnsen borgarlæknir fer
fyrir hópnum en aðrir í honum
eru, Friðrik Pálmason lífeðlis-
fræðingur, Guðjón Jónsson efna-
verkfræðingur, Hákon Aðalsteins-
son vatnalífræðingur, Jón Ingi-
marsson byggingarverkfræðing-
ur, Jón Ólafsson haffræðingur og
Magnús Ólafsson veðurfræðing-
ur.
-KK
Leikfélag Dalvíkur:
Hvarfi Indriða og Sigríðar
gerð skil í Ungó í apríl
AKUREYRARB/ÍR
Leikhúsferð
Leiksýning verður fyrir aldraða í Frey-
vangi mánudagskvöldið 19. mars.
Sýnt verður leikritið Dagbokin hans
Dadda.
Farið verður frá Húsi aldraðra kl. 19.30.
Miðinn og ferðin kostar 1.000 kr.
Þátttaka tilkynnist í síma 27930 á skrif-
stofutíma og í Húsi aldraðra e.h. á föstu-
dag.
Félagsstarf aldraðra.
Tilboð
Svínarúllupylsa
Kjörís 0,75 lítrar
Jarðarberja, vanillu, súkkulaði.
Ódýra
lambakjötið
í hálfum skrokkum
Kjörbúd KEA
BreKkuaötu 1
TÖLVU- OG
SKRIFSTOFUTÆKjA-
SÝNING
Á Hótel Norðurlandi i dag
og á morgun frá kl. 10-18
Sýndar verða allar gerðir af HYUNDAI
tölvum. XEROX og KONICA Ijósritunarvélar
og telefaxtæki.
Nýjar gerðir af STAR og FACIT prenturum.
Segulbandsstöðvar fyrir afritunartöku.
Spennujafnarar fyrir tölvukerfi ásamt ýmsum
hugbúnaði.
Komdu og kynntu þér ýmis
tilboð á sýningunni.
töevutæki Kaupvangsstræti 4
BOKVAL sími 26100 Akureyri
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.