Dagur - 15.03.1990, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - Fimmtudagur 15. mars 1990
Fimmtudagur 15. mars 1990 - DAGUR - 7
í dag verður merkum áfanga náð við gerð jarðganganna í Ólafsfjarðarmúla:
Björn Harðarson, staðarverkfræðingur Vegagerðarinnar:
Góður undirbúningur hefur skilað sér
„Ég tel að þessi framkvæmd
hafí þegar á heildina er litið
gengið vel. Gangagerðin sjálf
er og hefur verið nánast allan
tímann á áæthin,“ sagði Björn
Harðarson, staðarverkfræð-
ingur Vegagerðar ríkisins, sem
hefur fyrir hennar hönd haft
eftirlit og umsjón með verk-
inu.
„Jú, það má segja að vatns-
streymið inn í göngin á sl. hausti
hafi komið mönnum nokkuð á
óvart,“ sagði Björn þegar hann
var spurður um hvort ekkert hafi
komið að óvörum við sprenging-
arnar. „Við vissum af sprungun-
um í fjallinu en höfðum ekki
reiknað með svo miklu vatns-
magni. Vatnsstreymið var mjög
mikið og með því mesta sem
þekkist í jarðgöngum af þessari
stærðargráðu í Evrópu. Þegar
mest var streymdu um 60 sekúndu-
lítrar af vatni úr bergstálinu í
enda ganganna,“ sagði Björn.
Björn sagði að vatnsflaumur-
inn hafi verið langmestur til að
byrja með og síðan hafi dregið
verulega úr honum. „Það er erfitt
að segja, en ég reikna með að í
heildina muni allt að 70 sekúndu-
lítrar af vatni renna út úr göngun-
um til frambúðar,“ bætti hann
við.
Berg og aðrar aðstæður í jarð-
göngunum hafa hins vegar reynst
„eftir bókinni“, að sögn Björns.
Þrátt fyrir að verktakinn hafi
nú náð þeim áfanga að sprengja
rúmlega þriggja kílómetra leið í
gegnum fjallið er ekki nema ríf-
lega hálf sagan sögð. Nú tekur
við ýmisskonar frágangur, vega-
gerð og bygging vegskála Dalvík-
urmegin.
„Fyrst eftir að komið er í gegn
er byrjað í austurenda ganganna
við endanlega styrkingu bergs-
ins,“ sagði Björn. „Settir eru upp
bergboltar til að sauma bergið
betur saman og síðan sprautað á
það steypulagi. Að þessari vinnu
lokinni verður vatnslögnum kom-
ið fyrir í gólfinu og ennfremur
settir upp skermar úr gerviefni til
að bægja vatninu frá. Þá verður
gengið frá gólfi ganganna og það
malbikað, og loks komið fyrir
lýsingu í göngunum. Að þessu
búnu má segja að þau séu
nothæf. Líklega verða settar upp
sjálfvirkar hurðir sitt hvoru meg-
in við gangaopin og er gert ráð
fyrir að þær verði inn í veg-
skálunum. Ef nauðsynlegt reynist
verður og sett upp loftræsting
inni í göngunum."
Björn telur að sú reynsla og
vitneskja sem menn hafi aflað sér
við gerð Ólafsfjarðarganganna
muni koma sér vel í áframhald-
andi borun í gegnum hérlend
fjöll.
„Strax í upphafi var tekin um
það ákvörðun hjá Vegagerðinni
að safna sem mestum og bestum
gögnum um gang þessarar fram-
kvæmdar. Það má orða það svo
að þessi göng séu þau fyrstu af
„nýrri jarðgangakynslóð“, en fyr-
ir eru Strákagöng og Oddsskarð,
þar sem vinnubrögðin voru held-
ur frumstæðari en hér.
Við höfum komið okkur upp
stórum tölvugagnabanka um
Múlagöngin og teljum að hann
geti nýst vel við gerð næstu jarð-
ganga hér á landi.
Reynslan sem fengist hefur við
þetta verk er að langmestu leyti
jákvæð, bæði hvað varðar fram-
kvæmdina sjálfa og kostnaðar-
hliðina.
Undirbúningur fyrir jarð-
gangagerðina var mjög góður, en
það er eitt af lykilatriðunum að
öll gögn séu sem nákvæmust til
að verk- og kostnaðaráætiun
verði eins nákvæm og unnt er.
Kostnaður hefur að flestu leyti
verið innan áætlana og af því sést
að seint má vanmeta undirbún-
ingsþáttinn.“
Björn segist fastlega reikna
með að næstu jarðgöng hér á
landi verði á Vestfjörðum, sem
tengi saman Súgandafjörð,
Skutulsfjörð og Önundafjörð og
þá megi jafnveí búast við jarð-
gangagerð á höfuðborgarsvæðinu
í því skyni að taka nýja Foss-
vogsbraut inn í Kópavogshæðina.
Síðar telur Björn að Austfjarða-
göng verði á dagskrá og þá megi
ekki gleyma Hvalfjarðargöngum
og jarðgöngum í tengslum við
vatnsaflsvirkjanir. „Það er vissu-
lega erfitt að spá í þetta. Hér er
Björn Harðarson.
um dýr mannvirki að ræða og
gerð þeirra fer eftir forgangsröð í
samgöngumálum og þeim fjár-
munum sem til eru á hverjum
tíma,“ sagði Björn Harðarson.
óþh
Tryggi Jónsson, staðarstjóri Krafttaks sf:
Verkinu hefur miðað í takt
við það sem við áttum von á
„Verkinu hefur miðað mjög í
takt við það sem við áttum von
á nema hvað vatnsaginn hefur
verið meiri en reiknað var
með,“ sagði Tryggvi Jónsson
staðarstjóri verktakafyrir-
tækisins Krafttaks sf. við gerð
Jón Konráðsson, lögreglumaður:
Sé ekki fyrir mér
stökkbreytingu
í fólksflölgun
„Tilkoma jarðganganna hlýtur
að verða gjörbreyting fyrir
byggðarlagið. Göngin koma til
með að breyta miklu fyrir lög-
regluna og slysavarnasveitir
hér á staðnum því ósjaldan
höfum við þurft að aðstoða
fólk í ófærð upp í Múla,“ sagði
Jón Konráðsson, lögreglumað-
ur í Ólafsfirði.
„Ég geri ráð fyrir mikilli
umferð í Múlanum í sumar og ég
veit um þó nokkuð marga
aðkomumenn sem hafa í hyggju
að keyra hann í sumar.
Ég fer ekki fyrir Múlann í
slæmu veðri, nema ég nauðsyn-
lega þurfi þess. Að öðru leyti finn
ég ekki svo mikið fyrir því að
keyra þennan veg.
Ég er ekki í neinum vafa um að
jarðgöngin stuðla að auknum
samskiptum við Dalvík á mörg-
um sviðum, s.s. varðandi íþróttir
og menningarmál.
Hins vegar sé ég ekki fyrir mér
stökkbreytingar í fólksfjölgun í
Jón Konráösson.
Ólafsfirði eftir að jarðgöngin
verða tekin í notkun. Til þess að
það megi gerast verður að auka
til muna fjölbreytni í atvinnulífi á
staðnum." óþh
Múlaganganna. Tryggvi tók
við stjórninni 1. janúar sl. af
Norðmanninum Stig Framm-
arsvik, sem var staðarstjóri frá
fyrstu sprengingu haustið
1988.
„Vatnsflaumurinn hefur gert
okkur nokkuð erfitt fyrir. Óneit-
anlega hefur verið erfiðleikum
bundið að bora og sprengja og fá
allt að 60 sekúndulítra af vatni
yfir mannskapinn. Að öðru leyti
hefur bergið verið nokkurnveg-
inn í samræmi við jarðfræðikort-
lagninguna,“ sagði Tryggvi.
Hann sagðist þakka það fyrst
og fremst góðum starfsmönnum
hve vel verkinu hafi miðað. Þá
hafi samstarf Norðmannanna og
íslendinganna, sem standa að
Krafttaki sf., gengið mjög vel.
Tryggvi sagði að nú, þegar
búið væri að sprengja í gegn um
fjallið, væri kostnaðurinn réttu
megin við strikið. „Verkinu er
síður en svo lokið þó búið sé að
sprengja í gegn, frágangurinn er
eftir. Við svona jarðgangavinnu
vita menn aldrei á hverju þeir
eiga von. Upp geta komið alls-
konar erfiðleikar eins og við höf-
um lent í eftir áramótin. Ég hygg
að við höfum tapað hátt í viku
vegna veðurs. Þá gekk verkið
hægar en ella í eina viku vegna
bilunar í hjólaskóflu og bergið
hefur reynst fremur erfitt viður-
eignar. Verkinu hefur því miðað
hægar á síðustu vikunum en búist
hafði verið við.“
Að sögn Tryggva liggur ekki
fyrir hver endanlegur kostnaður
verður við jarðgöngin, en tilboð
Krafttaks sf. á verðlagi maí 1988
var tæplega 540 milljónir króna.
Tryggvi segir að hver metri í
jarðgöngum sé vissulega dýr mið-
að við vegagerð almennt, en vert
sé að hafa í huga að kostnaður
við Ólafsfjarðargöngin sé ekki
Tryggvi Jónsson.
ósvipaður og verð eins frysti-
togara. Þá segir hann að til
samanburðar sé oft talað um að
kostnaður við þau sé álíka og
aflaverðmæti Ólafsfjarðartogara
á sl. ári. óþh
Auður Benediktsdóttir, fiskvinnslukona:
Verð guðs lifandi fegin
að losna við Múlaveginn
„Jarðgöngin hafa mikið að
segja fyrir Ólafsfjörð. Með
þeim opnast sá möguleiki fyrir
fólk búsett hér að sækja vinnu
inn fyrir Múlann. Ég sé jafnvel
fyrir mér eitt samfellt atvinnu-
svæði til Akureyrar, því vega-
lengdirnar eru ekki mikið
lengri en á Reykjavíkursvæð-
inu,“ sagði Auður Benedikts-
dóttir, fiskvinnslukona hjá
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf.
„Áhrifa jarðganganna á eftir
að gæta á mörgum sviðum. Yfir
sumarið hlýtur að aukast ferða-
mannastraumur hingað til Ólafs-
fjarðar. Ég tel mjög mikið atriði í
framhaldi jarðganga að byggja
upp veg í vestur yfir Lágheiði,
því þá fyrst koma göngin að full-
um notum.
Ég hef mikla reynslu af Múla-
veginum og verð guðs lifandi feg-
in að losna við hann, að minnsta
kosti að vetri til,“ sagði Auður.
Hún sagði ekki nokkurn vafa á
því að göngin hvettu til aukinnar
samvinnu Ólafsfjarðar við ná-
grannasveitarfélögin. „Það hlýtur
að gerast. Eftir því sem samvinn-
an eykst og meiri fjöldi verður að
baki mun reynast auðveldara að
ná meiru fram fyrir byggðarlag-
ið.“ óþh
Dagurínn í dag, fímmtudag-
urinn 15. mars verður
skráður með stóru feitu letri í
samgöngusögu Ólafsfjarðar.
Síðdegis verður síðasta
sgrengingin í jarðgöngunum í
Ólafsfjarðarmúla, en verkið
hófst á haustdögum 1988. En
þar með er ekki öll sagan
sögð. Eftir er frágangur gang-
anna, vegagerð beggja megin
við Múlann og bygging veg-
skála Dalvíkurmegin. Aætlan-
ir gera ráð fyrir að göngin verði
o_ o o
formlega opnuð fyrir umferð í
haust. Á þessum thnamótum
átti Dagur spjall við tvo menn,
sem verið hafa í eldlínunni við
sjálfa jarðgangagerðina, og
fímm heimamenn.
Svava Friðþjófsdóttir, fiskvinnslukona:
Hlýtur að vera þungu
fargi létt af fólki
„Ég held að göngin hljóti að
breyta miklu fyrir Ólafsfjörð.
Ætli fólk flytji ekki hingað?
AHa vega verðum við kjur, hér
er ágætt að búa,“ sagði Svava
Friðþjófsdóttir, fískvinnslu-
kona hjá Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf.
„Það hlýtur að vera þungu
fargi Iétt af fólki," sagði Svava,
en bætti við að henni væri
Auður Benediktsdóttir.
Svava Friðþjófsdóttir.
persónulega ekki illa við að fara
fyrir Múlann. „Enda fer ég ekki
nema þegar ég veit að ég kemst
fram og til baka,“ sagði hún.
Svava sagðist búast við aukinni
samvinnu Ólafsfirðinga og ná-
grannanna austan við Múlann.
„Það er nú þegar samvinna með
sorpeyðinguna og ekki ólíklegt
að fleira fylgi í kjölfarið.“
„Maður vonar bara að fólk
hópist hingað og atvinnutækifær-
um fjölgi í kjölfar jarðganganna.
Atvinnulíf hér er einhæft og
nauðsynlegt að auka fjölbreytn-
ina,“ sagði Svava. óþh
Óskar Þór Sigurbjörnsson, skólastjóri
Gagnfræðaskóla Ólafsíjarðar:
Múlagöngiii eru táknrænt mótvægis-
verkefhi fyrir landsbyggðina
„Öryggi hins almenna vegfar-
anda er í mínum huga númer
eitt, aö við getum farið til ná-
grannabyggða án þess að eiga
á hættu að fara fram af vegin-
um eða fá yfír okkur snjó eða
grjót. Annað eru hin efnahags-
legu áhrif af Múlagöngunum,
sem raunar eru þegar farin að
sýna sig í auknu samstarfí
Olafsfjarðar við sveitarfélög á
Eyjafjarðarsvæðinu,“ sagði
Óskar Þór Sigurbjörnsson,
skólastjóri Gagnfræðaskólans í
Ólafsfírði og forseti bæjar-
stjórnar Ólafsfjarðar.
„Það fyrsta áþreifanlega um
aukna samvinnu var sameiginleg
sorphirða norðan Dalvíkur og
við sjáum fram á aukin samskipti
Ólafsfjarðar, Dalvíkur og sveit-
anna í kring. Markaðssvæðið
stækkar, bæði á sviði þjónustu og
viðskipta og að sama skapi
stækkar atvinnusvæðið.
Hingað til hefur Ólafsfjörður
verið endastöð í hugum margra.
Ef hins vegar er horft til þessa
áfanga og væntanlegra samgöngu-
bóta til vesturs, er ljóst að þegar
fram í sækir verður bærinn ekki
endastöð, þvert á móti viðkomu-
stöð í þjóðbraut," sagði Óskar.
Hann sagði það mikinn ávinn-
ing fyrir Ölafsfjörð að stækka
atvinnusvæðið. „Oft á tíðum hef-
ur fólk hér ekki getað skipt um
vinnu nema því aðeins að flytja
burt. Nú sér maður möguleika á
því að fólk geti leitað sér að
vinnu innan svæðis í sömu grein.
Ætla má að eignir fólks hér
verði meira virði og það geti
hugsað sér að byggja í Olafsfirði
Óskar Þór Sigurbjörnsson.
án þess að eiga á hættu að standa
uppi með verðlitlar fasteignir."
Óskar óttast ekki að bættar
samgöngur við Ólafsfjörð leiði
þegar til lengri tfma er litið til
þess að fólk sæki þjónustu í
auknum mæli til nágrannabyggð-
arlaga, einkum Akureyrar. Hann
telur þvert á móti að þjónustu-
aðilar í Ólafsfirði muni aðlaga sig
breyttum aðstæðum og haldi
þjónustunni heima í héraði.
Margir Ólafsfirðingar orða það
svo að þeir hafi lært að lifa við
ógn Múlans og fari ekki fyrir
hann þegar búast megi við snjó-
flóðum eða grjóthruni. Óskar
tekur undir þetta sjónarmið og
segir að vegna þessa hafi slysa-
tíðni í Múlanum verið minni en
búast mætti við.
Óskar segist oft benda því fólki
á það, sem telur að jarðgöng í
gegnum Múlann séu þjóðarbúinu
of dýr, að kostnaður við þau sé
álíka og atlaverðmæti Ólafsfjarð-
artogara á einu ári. „Menn mega
heldur ekki gleyma því að göngin
eru stór þáttur í þvf að efla það
svæði sem helsta möguleika hefur
til þess að verða sjálfstætt efna-
hags- og menningarsvæði utan
Reykjavíkur.
Forystumenn sveitarfélaganna
allt frá Árskógshreppi til Ólafs-
fjarðar hafa haft með sér óform-
legt samstarf og fundi á síðustu
árum. Tvímælalaust er verið að
skapa öflugt mótvægi við höfuð-
borgarsvæðið og Múlagöngin eru
tákræn fyrir það. Raunar eru þau
ekki einasta tákræn fyrir okkur,
heldur sem mótvægisverkefni fyr-
ir landsbyggðina.
Velgengnin við þessa fram-
kvæmd gefur fólki á Austjörðum
og Vestfjörðum nýja von og hún
hefur örugglega breytt hugsun
þess til framtíðarinnar. Jarðgöng
á þessum svæðurn munu gera þau
að stærri markaðseiningum, sem
leiðir til að fólk unir sér þar betur
efnahags-, menningar-, og félags-
lega.“
Að sögn Óskars hefur afla-
miðlun færst í vöxt milli byggðar-
laga við Eyjafjörð. Fiskurinn er
fluttur landleiðina milli staða
með það að markmiði að tryggja
nóg hráefni á öllum stöðunum.
Vegna erfiðleika með samgöngur
á landi við Ólafsfjörð segir Óskar
að aflamiðlun hafi oft á tíðum
reynst erfið, en með jarðgöngun-
um verði þar gjörbreyting á. Hins
vegar verði þessi mál fyrst komin
í gott horf þegar búið verði að
byggja upp veg yfir Lágheiði og
um leið opna leið fyrir aflamiðlun
við t.d. Siglufjörð. óþh
Jóhannes Jóhannesson, verkamaður:
Ólafsflörður ekki lengur
einangrað byggðarlag
„Með tilkomu Múlaganganna
verður Ólafsfjörður ekki leng-
ur einangrað byggðarlag,“
sagði Jóhannes Jóhannesson,
verkamaður hjá Sæunni Axels.
hf í Ólafsfírði.
„Frá því að þessi framkvæmd
hófst finnst mér að sé léttara yfir
fólki hér,“ sagði Jóhannes.
Hann sagðist telja Múlagöngin
vera jafn mikla samgöngubót fyr-
ir Ólafsfjörð og veginn fyrir
Ólafsfjarðarmúla á sínum tírna,
en þegar til lengri tíma væri litið
myndu göngin skipta jafnvel enn
meira máli fyrir byggðarlagið.
„Það er ekki nokkur vafi á því
að okkur mun haldast betur á
Jóhannes Jóhanncssun.
unga fólkinu eftir að göngin
verða tekin í notkun. Við vitum
að ungt fólk vill setjast að þar
sem það er fætt og uppalið,"
sagði Jóhannes.
Hann kvaðst sannfærður um
að Múlagöngin yrðu mikilvægur
hlekkur í að rétta við atvinnulíf í
Ólafsfirði, sem hefði átt í erfið-
leikum á undanförnum misser-
um.
„Ég er sannfærður um það að
eftir þá jákvæðu reynslu sem
fengist hefur af gerð þessara jarð-
ganga verði nánast ein samfelld
jarðgangagerð hér á landi næstu
tuttugu árin,“ sagði Jóhannes
Jóhannesson. óþh