Dagur - 15.03.1990, Side 11
Fimmtudagur 15. mars 1990 - DAGUR - 11
íþróttir
„Aldrei að segja aldrei
- Eiríkur Sigurðsson í stuttu spjalli en hann leikur
sinn síðasta leik með Þór gegn Víkverja á laugardag
Eiríkur í baráttu í einum af þeim 329 leikjum sem hann hefur spilað með
meistaraflokki Þórs.
Eiríkur Sigurðsson, gamla
kempan í körfuknattleiksliði
Þórs, leikur að öllum líkindum
sinn síðasta leik þegar Þórsar-
ar mæta Víkverja í aukaleik
um Úrvalsdeildarsæti í íþrótta-
skemmunni á Akureyri kl. 16 á
laugardag. Eiríkur hefur lcikið
körfuknattleik í 20 ár en hyggst
David Barnwell, golfkennari
hjá GA, er nú að fara af stað
með golfkennslu fyrir börn og
unglinga, 18 ára og yngri.
Kennslan mun fara fram í
Golfskálanum á Akureyri á
hverjum sunnudegi næstu vik-
ur frá kl. 14-17 og er hún ætluð
öllum, jafnt byrjendum sem
lengra komnum.
Kennslan hefst næsta sunnu-
dag. Mega krakkarnir mæta hve-
nær sem er á þessum tíma og
þurfa þau ekkert að hafa með sér
þar sem allur útbúnaður verður á
staðnum. Farið verður í alla þætti
golfsins og verður kennslan
Þórsarar gerðu sér lítið fyrir og
lögðu topplið Fram í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik
á þriðjudagskvöldið. Leikur-
inn fór fram í íþróttahöllinni á
Akureyri og urðu lokatölurnar
22:21 eftir æsispennandi loka-
mínútur. Leikurinn var reynd-
ar jafn og spennandi allan tím-
ann en þegar á heildina er litið
verður sigur Þórs sennilega að
tcljast verðskuldaður.
Framarar voru heldur sterkari
í byrjun og voru skrefinu á undan
nú leggja skóna á hilluna. Þess
má geta að Eiríkur leikur sinn
330. leik með meistaraflokki á
laugardaginn. „Auövitað á
maður aldrei að segja aldrei en
í dag tel ég útilokað að ég hafi
mig af stað næsta haust,“ segir
Eiríkur en hann átti stutt spjall
við blaðið í tilefni þessara
ókeypis.
David tekur einnig að sér
kennslu fyrir einstaklinga, hópa
og fyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Tímar eru þá eftir samkomulagi
og veitir David upplýsingar í
Golfskálanum alla daga í síma
22974.
Þar sem barna- og unglinga-
starf er sífellt að verða stærri
þáttur í starfi Golfklúbbs Akur-
eyrar hafa kviknað hugmyndir
um að stofna foreldraráð innan
klúbbsins. Er því beint til for-
eldra sem áhuga háfa á að taka
þátt í slíku starfi að mæta á stutt-
an fund í Golfskálanum að Jaðri
kl. 17 á sunnudaginn kemur.
fyrstu mínúturnar. Þeir náðu þó
aldrei meira en tveggja marka
forystu og þegar 15 mínútur voru
liðnar höfðu Þórsarar náð að
jafna 6:6. Leikurinn var síðan í
járnum um stund, jafnt á öllum
tölum en staðan í hléi var 12:11
Þórsurum í vil.
Þórsarar voru mun ákveðnari
framan af síðari hálfleik en gekk
illa að hrista Framarana af sér.
Þegar staðan var 14:13 og 15:14
fengu Þórsarar mörg tækifæri til
að auka forskotið þegar Framar-
ar virtust vera að brotna. En þeir
tímamóta.
„Eg álpaðist á fyrstu æfinguna
1970 og hafði þá ekki einu sinni
séð boltann áður. Ég var þá á
sldra ári í 3. flokki en árið eftir
byrjaði ég að æfa og leika með
meistaraflokki, fyrst og fremst
vegna manneklu. Liðið var þá í
1. deild sem var efsta deildin á
þeim tíma en við féllum reyndar í
2. deild þetta ár. Við vorum síð-
an að berjast í efri hluta 2. deild-
ar þar til veturinn '76-77 en þá
komumst við í 1. deild aftur. '77-
18 var Úrvalsdeildin stofnuð og
við tryggðum okkur sæti í henni
eftir aukaleik. Við spiluðum í
Úrvalsdeildinni veturinn '78-79
og féllum þá í fyrstu deild. Senni-
lega var þetta mitt besta tímabil,
ég var 13. stigahæsti maður deild-
arinnar og í 13. sæti í einkunna-
gjöf Morgunblaðsins. Þá var ég
valinn til æfinga með landsliðinu
en gaf ekki kost á mér af persónu-
legum ástæðum. Árið eftir
meiddist ég á hné og átti í þeim
meiðslum fram á yor 1984. en þá
fór ég í aðgerð og gat af þeim
sökum ekkert leikið með á tíma-
bilinu '84-85. Ég kom síðan inn á
næsta tímabili og hef-vefið með
óslitið síðan. Við endurheirirtúm
síðan sætið í Úrvalsdeild 1987 og
höfum hangið í henni síðan.
fóru illa með upplögð færi og
Framarar náðu sér aftur á strik,
skoruðu á skömmum tíma 4
mörk í röð og breyttu stöðunni í
15:18.
Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi. Þórsarar jöfnuðu og
náðu tveggja marka forystu,
21:19, en þá skoruðu Framarar
tvö mörk í röð. Þórsarar bættu
við marki og Framarar reyndu í
örvæntingu að jafna. Eftir mik-
inn darraðardans fengu Framarar
aukakast þegar leiktíminn var
útrunninn og dansaði boltinn á
milli stanga Þórsmarksins en vildi
ekki inn og Þórsarar fögnuðu
sigri.
Það var fyrst og fremst barátta
sem skóp þennan sigur Þórsara.
Liðið hafði áhuga á því sem það
var að gera og það gerði gæfu-
muninn. Ólafur Hilnrarsson átti
góðan leik fyrir Þór, barðist vel í
vörninni og gerði marga laglega
hluti í sókninni en var hins vegar
oft of bráður. Páll Gíslason dreif
liðið áfram á mikilvægum augna-
blikum og Hermann Karlsson
varði á köflunr stórvel.
Hjá Frömurum var markvörð-
urinn Guðmundur A. Jónsson
yfirburðamaður en hann varði 18
skot í leiknum. Þá var Jason
Ólafsson nokkuð skæður.
Dómarar voru Stefán Arnalds-
son og Guðmundur Lárusson og
þegar á heildina er litið dæmdu
þeir ágætlega en stundum vottaði
fyrir óöryggi hjá þeim.
Mörk Pórs: Rúnar Sigtryggsson 6/1,
Páll Gíslason 6/3, Ólafur Hilmarsson 4,
Ingólfur Samúelsson 2, Sævar Árnason 1,
Jóhann Jóhannsson 1, Hörður Harðar-
son 1 og Kristinn Hreinsson 1.
Mörk Fram: Jason Ólafsson 5, Gunnar
Andrésson 4, Hermann Björnsson 3,
Björn Eiríksson 2, Gunnar Kvaran 2,
Páll Pórólfsson 2/1, Andri Sigurðsson 2/2
og Brynjar Stefánsson 1.
- Hefur þetta verið skemmti-
legt tímabil?
„Það hafa skipst á skih og skúr-
ir en auðvitað hefur þetta verið
skemmtilegt, annars væri maður
löngu hættur. Körfuknattleikur-
inn hefur átt undir högg að sækja
hér í bænutn, sérstaklega framan
af, en, vonandi á það eftir -að
lagast. Það þarf að leggja meiri
rækt við yngri flokkana með
markvissara starfi, t.d. með því
að stofna öflugt foreldraráð. Síð-
an mætti gera stjórnina styrkari
með því að kjósa hana til lengri
tíma en ekki eins árs í senn eins
og nú er og þannig mætti lyfta
grettistaki svipað og gert hefur
verið í öðrum greinum.“
- Hvað með tímabilið í vetur?
„Ég er ekki ánægður með það.
Ég tel að liðið, eins og það er
skipað um þessar mundir, sé eitt
alsterkasta lið sem Þór hefur teflt
fram, a'.m.k. síðan ég byrjaði f
þessu, og að mínu viti hefði verið
hægt að ná meiru út úr þessum
mannskap með markvissari
þjálfun. Éitt atriði sem greinilega
er ábótavant er úthaldið en við
höfurn tapað hverjum leiknum á
fætur öðrum á síðustu mínútum
leiksins."
- Eru einhver atvik öðrum
minnistæðari?
„Já, ég minnist sérstaklega eins
sem gerðist í leik gegn Fram '74-
'15 en Framarar unnu einmitt
deildina það ár. I síðari hálfleik
voru þeir að taka seinna vítaskot
þegar skipt var urri’ mann hjá
okkur. Jóhann Gunnarsson,
gamall skólabróðir og félagi,
kom inn á og stillti sér upp sem
innri maður í vítauppstillingu. í
þann mund sem Framarinn tekur
vítið segi ég við Jóhann: „Vertu
svo harður Jói og taktu frákast-
ið.“ Það skipti engum togum að
Jóhann rauk upp, hirti frákastið
og skoraði síðan í okkar körfu.
Það sló dauðaþögri á skemmuna
og Jóhann hljóp rogginn í vörn-
ina en uppgötvaði mistök sín
þegar allt sprakk úr hlátri. Við
unnum síðan leikinn 58:57 og
Þröstur Guðjónsson skoraði
sigurstigin úr vítaskotum á síð-
ustu sekúndunum.“
- Að lokum er rétt að spyrja
hvernig þér lítist á leikinn á laug-
ardag?
„Hann leggst í sjálfu sér ágæt-
lega í mig en hann er ekki unninn
fyrirfram. Þetta eru gamlir jaxlar
með mikla reynslu og þeir gætu
orðið erfiðir. En það kemur ekki
til greina annað en að enda á
sigurleik.“
Ingólfur Samúelsson tryggði Þórsurum sigur á Frömurum með því að skora
síðasta mark leiksins. Á síðustu sekúndunum lagði hann síðan sitt af mörk-
um í vörninni og hlaut rautt spjald fyrir vikið. Mynd: kl
Kynning
fimmtudag og föstudag
frá kl. 14-18
á vínarpylsum,
hvítlaukspylsum,
og salsborgarpylsum
frá Kjarnafæði
Egilscfjús með dælu
frá Ölumboðinu
Kynningarverð
Opið föstudaga til kl. 19.00
og laugardaga til kl. 14.00.
Veríð velkomin
HAGKAUP
Akureyri
, Golfklúbbur Akureyrar:
Okeypis golfkennsla
- fyrir 18 ára og yngri