Dagur - 12.04.1990, Síða 21
noo*-
3 fim<*
Gl if\An
Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 21
jy poppsíðon ' H
Umsjón: Magnús Geir Guömundsson
Svipmyndir af Grammy verðlaununum
Þann 21. febrúar síöastliöinn
voru Grammy verölaunin afhent í
Los Angeles meö pompi og
pragt. Eru þessi verðlaun ein-
hvers konar Oscarsverðlaun
tónlistarfólks og því ekki síður
mikið um dýröir hjá því fólki en
hjá Hollywoodgenginu. Rétt eins
og við afhendingu Oscarsverð-
launanna eru stjörnurnar hver
um aðra þvera, ýmist mættar til
að taka við viðurkenningunum
eða afhenda þær. Til verðlaun-
anna eru eins og gengur margir
kallaðir en fáir útvaldir og ekki all-
ir jafn hamingjusamir að afhend-
ingu lokinni. Svo minnst sé á
nokkra þá sem viðurkenningu
hlutu, þá var Michael Bolton
útnefndur besti poppsöngvari
ársins eins og ég hef reyndar
áður skýrt frá, besti rokksöngvari
var kjörinn Don Henley og besti
nýi listamaðurinn Milli Vanilli.
Besti poppdúett var kjörinn Linda
Ronstadt og Aaron Neville fyrir
lagið Don’t Know Much, þau
Rickie Lee Jones og Dr. John
fengu jazzverðlaunin í sama
flokki og gamli bítillinn Paul
McCartney var heiðraður sér-
staklega fyrir sinn langa og
glæsta feril. Þá er loks aö geta
skærustu stjörnu kvöldsins en
það var söngkonan fjölhæfa
Bonnie Raitt en henni hlotnuðust
hvorki fleiri né færri en fern verð-
laun.
Bonnie Raitt brosandi út að eyrum
með verðlaunin sín.
Ekkert orðinn gamall ennþá en
samt heiðraður fyrir ævistarfið hann
Paul McCartney.
Dr. John og Rickie Lee Jones á góðri stund.
Hitt og þetta
Bon Jovi líklega búinn að leggja upp laupana.
Bon Jovi:
Þær stórfregnir berast nú að stór-
rokksveitin frá New Jersey Bon
Jovi sé við það að leggja upp
laupana. Svo virðist áð slest
hafi allharkalega upp á vinskap-
inn hjá aðalmönnum sveitarinnar
þeim Jon Bon Jovi söngvara og
Richie Sambora gítarleikara og
það leitt til þess að þeir hafi
ákveðið að slíta samstarfinu.
Hljómsveitin sem starfað hefur í
um átta ára skeið hefur notið gíf-
urlegra vinsælda hin síðari ár og
hafa tvær síðustu plötur hennar,
Slippery When Wet og New Jersey
selst í milljónum eintaka. Reynd-
ar hafa þessar fregnir ekki ennþá
verið staðfestar opinberlega, en
eins og mál hafa þróast lítur ekki
út fyrir annað en að tvöföld tón-
leikaplata sem boðuð hefur veriö
seinna á þessu ári verði það síð-
asta sem kemur frá herbúðum
Bon Jovi. Leitt en satt.
Stiv Bators:
Stiv Bators fyrrum söngvari hinn-
ar bráðskemmtilegu sveitar Lords
ot the New Church hefur stofnað
nýja hljómsveit ásamt þeim þre-
menningum Dee Dee Ramone fyrr-
um bassaleikara Ramones, Kris
Dollimore áður gítarleikara The
Godfathers og Vom fyrrum trommu-
leikara í Doctor And The Medics.
Ber sveitin til bráðabirgða nafnið
The New Lords of The New Church
og eru nú þegar hafnar upptökur
á fyrstu plötu hennar. Fyrst nafn
Ramones var nefnt hér á undan er
allt í lagi að geta þess að söngv-
ari hennar og aðalmaður Joey
Ramone fótbraut sig fyrir nokkru
en hefur nú jafnað sig og er nú
hljómsveitin lögð af stað f mikla
hljómleikaferð um Bandaríkin
sem vonast er til að veki mikla
lukku.
Kiss:
Hljómsveitin fræga Kiss sem
heimsótti okkur íslendinga fyrir
nokkrum árum og troöfyllti Reið-
höllina, hefur ákveðið að taka aft-
ur upp þann sið að vera með
andlitsmálningu. Þó mun aðeins
vera um það að ræða að þeir
tveir upprunalegu meðlimir sveit-
arinnar sem eftir eru, þeir Paul
Stanley og Gene Simmons muni
mála sig og þá einungis í auka-
lögum á tónleikum.
Plata til styrktar
baráttunni
gegn Aids:
Popparar hafa sýnt það í gegn-
um tíðina að þeim er fátt aumt
óviðkomandi og hafa verið dug-
legir við að leggja hinum ýmsu
málum lið þegar á hefur þurft að
halda. Nú er í bígerð plata þar
sem mikill fjöldi tónlistarmanna
leggur baráttunni gegn Aids lið
og mun hún væntanlega koma út
í haust. Meðal þeirra tónlistar-
manna sem koma fram á plöt-
unni eru U2, Sinead O’Connor, Tom
Waits og The Pogues sem flytja
lög eftir sönglagaskáldið fræga
Cole Porter og auk þeirra Billy
Idol, David Bowie, Annie Lennox og
Fine Young Cannibals m.a. Er plat-
an sem enn hefur ekki hlotið
nafn, hluti af stærra átaki þar
sem m.a. verður gerð kvikmynd í
áróðursskyni.
Plötupunktar:
- Marianne Faithfull söngkonan
með hrjúfu röddina, er á ferðinni
með nýja hljómleikaplötu nú í
apríl. Ber hún heitið Blazing Away
og var efnið á hana tekið upp af
tónleikum í New York í nóvem-
ber sl.
- Út er komin safnplata með
bestu lögum Van Morrison hinum
írska. Kallast hún einfaldlega The
Best of Van Morrison og spanna
lögin á henni yfir 25 ár eða allt frá
1964 til dagsins í dag.
- Kvennarokksveitin Vixen sem
sló rækilega í gegn með fyrstu
David Bowie með í baráttunni gegn
alnæmi.
plötu sinni, „Vixen', er nú aö
vinna að gerð nýrrar plötu. Ber
hún vinnuheitið Rev it Up og er
áætlað að hún komi út í maí.
Big Country:
Þeir félagar í Big Country eru nú
komnir úr góðu fríi og hyggja á
tónleikaferðalag um Bretland í
maí n.k. Sú breyting hefur orðiö
á hljómsveitinni að trommuleikar-
inn Mark Brzezicki er hættur og í
hans stað er kominn maður að
nafni Paul Ahera. Að því best er
vitað er ekki von á nýrri plötu frá
Big Country í bráðina, en samfara
tónleikaferðinni verður gefin út
safnplata með vinsælustu lögum
sveitarinnar.
Nick Cave:
Tvö ár eru liðin siðan söngvarinn
sérstaki Nick Cave sendi frá sér
plötuna Tender Prey. Á þessu
tveggja ára tímabili hefur herm
þó ekki setið aðgerðarlaus því
auk þess að koma fram í tveimur
kvikmyndum skrifaði hann eina
skáldsögu og gaf út bók með
textum sínum. Þá hefur Cave
tekist að vinna bug á langvarandi
eiturlyfjaneyslu sinni sem var á
góðri leið með að leggja hann í
gröfina. Hress og endurnærður
hefur hann nú sent frá sér nýja
plötu og kallast hún The GoodSon.
WUmmm
BÍIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
MMC Galant GTi 16v, árg. '89,
litur beige, ek. 9 þús. km, verð
1.550.000,-
MMC Colt 1500 GLX, 5 gíra,
árg. '89, litur rauður, ek. 23 þús.
km, verð 830.000,-
MMC Tredia 1800 GLS 4x4, árg.
'87, litur hvítur, ek. 55 þús. km,
verð 750.000,-
Ch. Monsa Sl/e, 5 gíra, árg. '87,
litur brúnn, ek. 40 þús. km, verð
MMC Galant GLS 2000, 5 gíra,
digital, árg. '85, litur blár, ek. 80
þús. km, verð 600.000,-
Subaru station 1800 GL 4x4,
árg. '85, litur blár, ek. 78 þús.
km, verð 670.000,-
Fiat Uno 55s, 5
litur blár, ek. 70 þús.
250.000,-
★
Greiðslukjör
við ailra hæfi
BÍUSAlfHH
Möldursf.
bíiasaia
við Hvannavélii.
Símar 24119 og 24170.