Dagur - 10.05.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 10.05.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 10. maí 1990 - DAGUR - 3 fréttir Fólkið í landinu nk. laugardagskvöld: Öra Ingi ræðir viðElfu dýralækni I þættinuni Fólkið í landinu sem er á dagskrá Sjónvarps- ins nk. laugardagskvöld ræðir Örn Ingi við Elfu Ágústsdóttur, dýralækni, sem nýverið missti hús sitt og allt innbú í aurskriðu. Atburðurinn þegar Aðal- stræti 18 gjöreyðilagðist eftir að aurskriða féll á húsið verð- ur skiljanlega ofarlega á baugi í þættinum. Sýndar verða fréttamyndir af vettvangi og sést þar glöggt hvað aðkoman hefur verið hörmuleg fyrir Elfu. Örn Ingi fylgist með Elfu einn sólríkan dag á Akureyri. Hann fer með henni í vitjanir á fjóra bæi og verkefni dýra- læknisins eru m.a. að draga tönn úr hrúti og aðstoða við erfiða kálfsfæðingu. „Ég held að þetta sé ansi magnaður þáttur. Myndatak- an er mjög skemmtileg og það er ekki oft sem svona ferskt efni er grípið inn í þessa þátta- röð,“ sagði umsjónarmaður- inn, Örn Ingi, í samtali við Dag. SS Vegleg göf til Samvinnuháskólans: „Stórkostleg hvatning“ Nýlega færði Viihjálmur Jónsson forstjóri, fyrir hönd Olíustöðvarinnar í Hval- ílrði, Samvinnuháskólanum á Bifröst stórkostlega gjöf þ.e.þriðjung allra fasteigna á skólasetrinu. Olíustöðin í Hvalfirði átti þriðjung allra fasteigna á skólasetrinu á Bifröst á móti eignarhlutum Sambandsins og Samvinnutrygginga. Nú er þessi þriðjungur í eigu Sam- vinnuháskólans sem fyrr segir. „Þetta er stórkostleg hvatn- ing og ómetanlcgur stuðning- ur. Hér er um að ræða eign sem nemur hátt á annan tug milljóna króna. og nteð þessu er grundvöllur Samvinnuhá- skólans tryggður varanlega á skólasetrinu hér á Bifröst. Við færum stjórn Olíustöðvar- innar og forstjóra innilegar þakkir Samvinnuháskólans," sagði Jón Sigurðsson rektor. ój Dalvík: Malbik á fjórar götur í sumar Töluvert verður um fram- kvæmdir í gatnagerð á Dal- vík í sumar. Að sögn Svein- björns Steingrímssonar, bæjartæknifræðings, verða að venju nokkrar götur mal- bikaðar og gengið frá gang- stéttum. Nokkrar götur verða lagðar bundnu slitlagi. Þetta eru Bárugata, Ægisgata, Brim- nesbraut og hluti Karlsrauða- torgs. Sveinbjörn segir að í surnar verði maibikað á bilinu 5-6000 fermetrar og flötur frágeng- inna gangstétta í ár veröi um 4000 fermetrar. óþh HBí Viðræður um nýjan búvörusamning hafnar: Áhersla lögð á mörg ný atriði Viðræður fulltrúa Stéttar- sambands bænda og ríkisvalds- ins um nýjan búvörusamning eru hafnar og hafa báðir aðilar lagt fram fyrstu hugmyndir, sem lagðar verða til grundvall- ar frekari viðræðna um miðjan þennan mánuð. Að sögn Hákons Sigurgríms- sonar, framkvæmdastjóra Stétt- arsambandsins, er við það miðað að leggja fram drög að nýjum búvörusamningi fyrir aðalfund Stéttarsambandsins í haust. Hákon segir að Stéttarsam- bandið leggi áherslu á að koma með nokkur ný atriði inn í búvörusamninginn að viðbættum ákvæðum um verðábyrgð fyrir ákveðið magn af mjólk og kjöti. Hann nefndi í því sambandi heimild til að flýta töku ellilauna, leiðir til að afskrifa eða frysta lán af byggingum sem tekin verða úr notkun, fasteignaskattur verði felldur niður eða endurgreiddur af útihúsum sem falla úr notkun, Jarðasjóður fái aukið fé, samið verði um fast fjármagn til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til eflingar nýrra búgreina, að ríkið leggi fram fé til að jafna námsaðstöðu nemenda í dreifbýli til framhaldsnáms, að tryggt verði fjármagn til að skapa atvinnu fyrir konur í dreifbýli, fjármagn verði útvegað til koma á fót afleysingaþjónustu vegna töku orlofs og frídaga, gerðar verði menntunarkröfur til þeirra sem hefja búskap og gerð verði úttekt á núverandi kerfi niður- greiðslu og útflutningsbóta með tilliti til þess hvort hagkvæmt sé að greiða niður vöruverð á frumstigi eða greiða beint til bænda. Hákon segir að gert sé ráð fyrir að mjólkurframleiðslan verði að rnagni til svipuð og nú, enda hafi náðst nokkuð gott jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. „Það má segja að hugmyndir manna um framleiðslumagn miði í ríkari mæli að markaðstengingu en ver- ið hefur,“ sagði Hákon. Óljósara er með framleiðsluna á kindakjötinu. Skoðanir eru nokkuð skiptar um neyslu þess á næstu árum, en sumir telja líklegt að samið verði um verðábyrgð um 9000 tonna. óþh Vinsælasta kjötid á Islandi... Um áratugaskeið hefur lambakjöt verið langmest keypta kjöttegundin á íslandi enda afbragðskjöt. Nú kostar það 417 ■%. ef þú kaupir poka af lambakjöti á lágmarksverði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.