Dagur - 10.05.1990, Blaðsíða 15
I
Fimmtudagur 10. maí 1990 - DAGUR - 15
íþróffir
íslandsmótið í handknattleik:
Grunnskólamótið í borðtennis:
Verður 1. og 2. deildar-
félögum fjölgað úr 10 í 12?
- „líst ekki vel á slíkar hugmyndir,“
segir formaður handknattleiksdeildar KA
Ákveðnar hugmyndir eru nú
uppi um að fjölga liðum í 1.
deild Islandsmótsins í hand-
knattleik úr 10 í 12 og má gera
ráð fyrir að mótanefnd HSÍ
leggi fram tillögu þar að lút-
andi á næsta ársþingi sam-
bandsins sem fram fer í júní.
Guðjón Guðmundsson hjá
HSI scgir að þessar hugmyndir
hafi verið til athugunar í nokk-
urn tíma en markmiðið með
þeim sé fyrst og fremst að
fjölga leikjum í deildinni. Segir
hann nokkuð Ijóst að slík til-
laga verði lögð fram á ársþing-
inu. Ekki eru allir jafn hrifnir
af þessum áformum og m.a.
hefur formaður handknatt-
leiksdeildar KA lýst yfir and-
stöðu sinni við þau.
„Það er bráðnauðsynlegt að
auka leikjafjöldann enda hefur
þróunin víðast hvar verið sú síð-
ustu ár. Leikmenn í 1. deild
verða að leika lágmark 30 deild-
arleiki á tímabili til að geta verið
samkeppnisfærir við leikmenn í
öðrum löndum. Væntanlega yrði
þá leikið tvisvar í viku að jafnaði,
tvöföld umferð og síðan myndu 6
efstu liðin leika til úrslita um titil-
inn en 6 neðstu um fallið," sagði
Guðjón Guðmundsson.
„Mér líst ekki vel á þessar hug-
myndir," sagði Einar Jóhanns-
son, formaður handknattleiks-
deildar KA. „Við teljum að þetta
muni m.a. koma mjög harkalega
niður á 2. deildinni þar sem við
eigum ekki 24 lið sem eru nægi-
lega sterk til að leika í þessum
tveimur deildum. Það hefur kom-
ið fram hugmynd um að hafa
áfram 10 lið í deildinni en auka
leikjafjöldann á sama hátt og gert
er ráð fyrir í fjölgunartillögunni.
Ég á frekar von á að við myndum
styðja slíka tillögusagði Einar
Jóhannsson.
Fleira hefur verið rætt varð-
andi breytingar á Islandsmótinu.
M.a. mun einnig standa til að
fjölga 2. deildarliðunum í 12 auk
þess sem rætt er um að láta b-lið
félaganna leika í sérstakri deild.
Ekkert af þessu verður þó ákveð-
ið fVrr en á ársþingi HSÍ.
Margrét Stefánsdóttir var ein hinna sigursælu Grenvíkinga seni gerðu garð-
inn frægan á Grunnskólamótinu i borðtennis. Mynd: KL
Tvöfalt hjá Grenvfldngum
í stúlknaflokknum
- Grenivíkurskóli „besti borðtennisskóli landsins“
Stúlkur úr Grenivíkurskóla
voru í sviösljósinu á Grunn-
skólamótinu í borötennis sem
haldið var í Laugardalshöll sl.
sunnudag. Keppt var í tveimur
stúlknaflokkum og sigruðu
Grenvíkingar í þeim báðum og
tryggöu þannig Grenivíkur-
skóla titilinn „besti borðtenn-
isskóli Iandsins.“
Þetta er annað árið í röð sem
Borðtennissamband íslands
gengst fyrir móti af þessu tagi.
Undankeppnir hafa staðið yfir í
vetur og var landinu skipt niður í
átta kjördæmi. Keppt var í
tveimur flokkum drengja og
stúlkna, í öðrum voru keppendur
úr 4.-6. bekk og í hinum úr 7.-9.
bekk. Bestu skólar landsins
leiddu síðan saman hesta sína í
úrslitakeppni um síðustu helgi.
Stúlkurnar sem skipuðu sveit-
irnar frá Grenivík eru Hólmfríð-
ur Björnsdóttir, Elín Þorsteins-
dóttir, Elva Helgadóttir og Erla
Valdís Jónsdóttir í eldri flokkn-
um og Margrét Ósk Hermanns-
Knattspyrna:
Enn bætist Leifturs-
mönnum liðsstyrkur
Knattspyrnuliði Leifturs frá
Ólafsfirði bættist nýlega liðs-
styrkur þegar Jón Sigurður
Helgason gekk til liðs við
félagið. Jón er 21 árs miðvall-
arleikmaður og kemur úr her-
búðum Vals.
Rúnar Guðlaugsson, formaður
knattspyrnudeildar Leifturs,
sagðist vera nokkuð bjartsýnn
fyrir sumarið. Leiftursmenn tóku
á dögunum þátt í Tactic-mótinu á
Akureyri og stóðu sig vel. Liðið
tapaði ekki leik á mótinu, gerði
jafntefli við 1. deildarlið KA og
Þórs og endaði í öðru sæti á eftir
íslandsmeisturunum. Rúnar
sagðist vera ánægður með þenn-
an árangur. „Þetta kom kannski
ekki á óvart en okkur fannst
þetta ekkert leiðinlegt. Liðið lék
alveg þokkalega, eiginlega
hvorki verr né betur en maður
bjóst við á þessum tíma,“ sagði
Rúnar. „Sumarið leggst svona
sæmilega í okkur. Við vitum að
við þurfum að berjast fyrir tilveru
okkar í deildinni því hún verður
ntjög jöfn. En það þýðir ekkert
annað en að vera bjartsýnn,"
sagði Rúnar Guðlaugsson.
| dóttir, Berglind Bergvinsdóttir,
Margrét Ösp Stefánsdóttir,
Hjördís Sunna Skírnisdóttir,
Anna Birna Björnsdóttir og
Sveinlaug Friðriksdóttir í þeim
yngri. Þess má geta að Grenivík-
urskóli hlaut að launum borð-
tennisborð frá BTÍ og á það
eflaust eftir að koma sér vel þar
sem aðeins tvö slík voru fyrir í
skólanum.
Níu Grenvíkingar voru fyrir
nokkru valdir í unglingalandslið-
ið í borðtennis og þar af voru
fjórar af stúlkunum sem þátt
tóku í Grunnskólamótinu, þær
Hólmfríður Björnsdóttir, Élín
Þorsteinsdóttir, Elva Helgadóttir
og Margrét Ósk Hermannsdóttir.
Þær fara með liðinu til Skotlands
í lok júní og æfa þar með skoska
landsliðinu áður en þær taka þátt
í bresku skólamóti á eynni Mön.
Úrslit á Grunnskólamótinu í
borðtennis urðu þessi:
Stúlkur 7.-9. bekkur
1. Grenivíkurskóli (Norðurl. eystra).
2. Seljaskóli (Reykjavík).
3. Hlíðaskóli (Reykjavík).
Drengir 7.-9. bekkur
1. Seljaskóli (Reykjavík).
2. Breiðholtsskóli (Reykjavík).
3. Heiðarskóli (Vesturland).
Stúlkur 4.-6. bekkur
1. Grenivíkurskóli (Norðurl. eystra).
2. Ölduselsskóli (Reykjavík).
3. Njálsbúðarskóli (Suðurland).
Drengir 4.-6. bekkur
1. Ölduselsskóli (Reykjavík).
2. Breiðagerðisskóli (Reykjavík).
3. Brautarholtsskóli (Suðurland).
Firmakeppni Þórs í körfuknattleik fór fram fyrir nokkru. Fyrirkomulag
keppninnar er þannig að hver leikmaður Þórs spilar fyrir eitt fyrirtæki, fyrst
þrír í liði og síðan einn gegn einum. Guðmundur Björnsson bar sigur úr liýt-
um en hann lék fyrir Akureyrarhöfn. Myndin var tekin þegar Guðmundur
Björnsson, t.v., afhenti Guðmundi Sigurbjörnssyni, hafnarstjóra, sigurlaun-
in til varðveislu. Mynd: kl
Enski tennisleikarinn Dare Miley kom til Akureyrar á þriðjudag. Hann hélt
námskeið fyrir áhugafólk og sýningu fyrir skólafólk í íþróttahöllinni. Mynd-
in var tekin þegar hann var að sýna réttu tökin á námskeiðinu. Mynd: kl