Dagur - 15.05.1990, Page 1

Dagur - 15.05.1990, Page 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 15. maí 1990 90. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir 8\ Jffl HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Húsavík: Kaup á tog- skipi undirbúin Eindreginn vilji til að kaupa skip og auka þar með fiskkvóta Húsvíkinga kom fram á fundi er Atvinnumálanefnd stóð fyr- ir sl. sunnudag. Tilgangur fund- arins var að kynna hugmynd um stofnun almenningshluta- félags til kaupa á togskipi. Um 120 manns mættu á fund- inn og þar urðu töluverðar umræður. Alls tóku 16 manns til máls og sumir oftar en einu sinni. Eindreginn vilji virtist fyrir stofn- un hlutafélagsins og kaupum á skipi, en skoðanir voru eitthvað skiptar um hvernig skip mundi best henta að festa kaup á. Ákveðið var að koma á fót fimm manna nefnd til að undir- búa stofnun almenningshlutafé- lags um skipakaup og er reiknað með að fyrirtæki, bæjarfélagiðog breiður hópur bæjarbúa verði hluthafar. Á fundinum voru fjór- ir menn tilnefndir í nefndina en Atvinnumálanefnd á eftir að til- nefna einn fulltrúa. Peir sem til- nefndir hafa verið eru: Aðalgeir Olgeirsson, útgerðarmaður, Ei- ríkur Sigurðsson, skipstjóri, Kári Arnór Kárason, skrifstofumað- ur og Jakob S. Bjarnason fram- kvæmdastjóri. IM Þetta er sko ís í lagi! Mynd: KL Bæjarstjórnarkosningar á Akureyri: Flöktandi fylgi Samkvæmt niðurstöðum könn unar sem bókhalds- og við- skiptaþjónustan Kjarni á. Akureyri framkvæmdi 10. og 11. maí sl. verða töluverðar breytingar á fylgi llokkanna í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri 26. maí nk. miðað við skipan núverandi bæjar- stjórnar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem fyrir- tækið efndi til í gær. Eftirfarandi spurningu svöruðu 314, þar af tóku 35% aðspurðra ekki afstöðu og 21% af 35% sem ekki tóku afstöðu voru óákveðn- ir: Hvaða lista kýst þú til bæjar- stjórnar, ef kosið er á rnorgun? Til vara var spurt: Hvaða listi er líklegastur til að hljóta atkvæði þitt, ef kosið er á morgun? Niðurstaðan, þegar búið var að leiðrétta vegna kynferðis og aldurs, var sú að Sjálfstæðis- flokkur fengi fjóra fulltrúa, Framsóknarflokkur þrjá, Al- þýðuflokkur einn, Alþýðu- bandalag einn, Kvennalisti einn og Þjóðarflokkur einn. Baráttan um 11. sætið í bæjár- stjórn, samkvæmt könnuninni, stendur milli fjórða manns Fram- sóknarflokks og fyrsta manns Þjóðarflokks. Auk þéssarar spurningar um Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, á fundi á Hótel KEA í gær: Fiimn ára stopp á smíðar fiskiskipa Halldór Asgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, telur nauðsyn- legt að með setningu laga um fiskveiðistjórnun og Hagræð- ingarsjóð verði ekki smíðuð ný skip í íslenska fiskveiðiflótann a.m.k. næstu fimm ár. Þetta kom fram í máli ráðherra á fjölsóttum fundi Útvegsmanna- félags Norðurlands í gær á Hótel KEA, þar sem nýlega samþykkt lög um fiskveiðistjórnun voru meðal annars til umræðu. Halldór sagði að nú þegar væri afkastageta flotans langt umfram það sem hann mætti veiða og því fráleitt að heimila áframhaldandi smíðar fiskiskipa hérlendis eða erlendis. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja hf., kvaðst ekki sammála þessum orðum ráðherra og sagði að hyggilegra væri að smíða ný skip í stað þess að gera endalaust við görnul úr sér gengin skip. Sjávarútvegsráðherra skýrði út meginatriði nýsettra laga um fisk- veiðistjórnun og Hagræðingar- sjóð. Hann sagði Hagræðingar- sjóð hafa verið gagnrýndan, en taldi að sú gagnrýni ætti ekki öll við rök að styðjast. Hann sagði mikilsvert að tekist hefði sam- komulag á þingi um að koma þessu máli í höfn í vor og það hefði tekist án þess að mikilvæg- ustu efnisatriðum frumvarpsins hefði verið fórnað. Kristján Ragnarsson sagðist vera á móti Hagræðingarsjóðn- um og vonandi yrði hann lagður niður sem fyrst. Kristján sagði engan ágreining um að fækka yrði fiskiskipum, en hins vegar væri ágreiningur um leið til þess. Hann sagðist telja frjálst framsal skipa vænlegri leið og ólíklegt væri að menn yrðu fúsir til að selja Hagræðingarsjóði skip sín. óþh Kammerhljómsveit Akureyrar og kórar: My Fair Lady í salt - rétthafar leyfðu ekki hljómsveitaruppfærslu Hætt hefur verið við fyrirhug- aða uppfærslu Kammerhljóm- sveitar Akureyrar með kórum og einsöngvurum á Akureyri á söngleiknum My Fair Lady, en ráðgert var að flytja verkið 27. maí. Þegar haft var samband við rétthafa söngleiksins í Bandaríkjunum kom babb í bátinn og varð að falla frá upp- færslunni af óviðráðanlegum orsökum. Roar Kvam, stjórnandi Kammerhljómsveitarinnar, sagði Flugfélag Norðurlands: í vélar vestan hafs Spáð Sigurður Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Norðurlands, var á ferð í Kan- ada fyrir skömmu í þeim til- gangi að fræðast um flugvéla- tegundir. Hann sagði í samtali við Dag að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um kaup á flugvél, enda hefði tilgangur ferðarinnar ekki verið sá, en FN væri að líta til framtíðar- innar í þessum málum. áhugi fyrir hraðfleygari vél en Twin Otter Kaup á flugvél munu ekki vera á döfinni hjá Flugfélagi Norður- lands alveg á næstunni. Sigurður sagði að vélar félagsins hefðu reynst vel en hins vegar væri áhugi fyrir því að skoða hrað- fleygari vélar en Twin Otter með flug á lengri leiðum í huga. „Það er engin pressa á okkur en það er ekki hægt að neita því að okkur langar í vél sem gæti flogið hraðar á lengstu leiðunum innanlands. Við érum þá t.d. að hugsa um Keflavíkurrútuna og leiguflug til Reykjavíkur," sagði Sigurður. Aðspurður kvað hann það koma til greina að vél með jafn- þrýstibúnaði yrði valin þegar ákvörðun verður tekin um kaup á flugvél, en það væri þó ekki skil- yrði. SS að rétthafar My Fair Lady í Bandaríkjunum hefðu lagt blátt bann við uppfærslu kóra og hljómsveitar. Verkið mátti að- eins flytja í leikhúsuppfærslu og kom ekki til greina að láta hljóm- sveitina fá nótur. „Þessi niðurstaða veldur nnkl- um vonbrigðunt því æfingar voru komnar vel á veg. Eg var búinn að hringja þrisvar út til Banda- ríkjanna en fékk alltaf þvert nei, þannig að við neyddumst til að hætta við uppfærsluna. En síðan kom bréf þar sem fram kom að við gætum fengið leyfi til að flytja My Fair Lady ef við borguðum nógu mikið fyrir nóturnar,“ sagði Roar Kvam. Þegar umrætt bréf kom var búið að fella niður æfingar og aðstandendur uppfærslunnar voru hættir við allt saman. Auk þess hefði það orðið mjög dýrt að fá leyfi fyrir uppfærslunni. Roar er þó ekki búinn að gefa My Fair Lady alveg upp á bátinn en upp- færslunni verður a.m.k. frestað um ótiltekinn tíma. SS fylgi stjórnmálaflokkanna var spurt um afstöðu fólks til álvers, hvaða flokk það kysi í dag ef kos- ið yrði til Alþingis og hvaða íslenskan stjórnmálamann það mæti mest. Fram kom á blaðamanna- fundinum aö ekki lægi fyrir hvar heildarniðurstöður könnunarinn- ar yrðu birtar, leitað yrði tilboða fjölmiðla eða annarra sem áhuga hefðu á þeim. ój Skógræktarfélag Eyfirðinga: Ákvörðun um a húsi í Kjama Á aðalfundi Skógræktarfélags Eyflrðinga síðastliðinn laugar- dag var samþykkt að byggja nýtt gróðurhús í uppeldisstöð- inni í Kjarna sem gefur mögu- leika á að auka verulega fram- leiðslu á skógarplöntum í stöð- inni. Þá voru, á sérstökuni há- tíðarfundi félagsins í tilefni af 60 ára afmælinu, útnefndir þrír heiðursfélagar Skógræktarfé- lagsins. Að sögn Hallgríms Indriðason- ar, framkvæmdastjóra Skógrækt- arfélagsins, verður nýja húsið 4- 500 fm að stærð eða stærra en byggt hefur verið yfir framleiðsl- una í Kjarna fram að þessu. Með tilkomu þessa húss verður liægt að auka framleiðsluna úr 500 þúsund plöntum á ári í 800-1000 plöntur á ári. Hallgrímur segir að framkvæmdir hefjist í sumar og húsið verði tekið í notkun næst- komandi vor. Hallgrímur segir að afkoma fé- lagsins hafi verið góð á árinu'og hagnaður af rekstri uppeldis- stöðvarinnar í Kjarna geri félag- inu kleift að ráðast í fram- kvæmdir. Þeir heiðursfélagar sem út- nefndir voru á hátíðarfundinum á laugardaginn eru Jón Dalmann Ármannsson, Þorsteinn Davíðs- son og Ingibjörg Sveinsdóttir. JÓH Akureyri: Óvæntur dráttur Sveinn Ævar Stefánsson á Akureyri datt heldur betur í lukkupottinn um helgina þegar hann kastaði fyrir fisk á Eimskipafélagsbryggjunni á Akureyri. í stað þess að fá þorsktitt í soðið fyrir köttinn, eins og hann hafði búist við, beit 5 punda lax á. „Nei, kötturinn fékk ekki laxinn. Við náðurn tvcimur þorskunt fyrir hann,“ sagði Sveinn í samtali við Dag. Hann sagði að veiðisér- fræðingar teldu mjög óvenju- legt að fá lax á þessum stað. Ekki Sagðist hann vita hvort um væri að ræða eldislax. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.