Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 22.05.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. maí 1990 - DAGUR - 7 Hörpudeildin: Titilvörn KA-manna hófst með ósigri - FH sigraði meistarana 1:0 í Hafnarfirði á sunnudag íslandsmeistarar KA byrjuðu titilvörn sína í Hörpudeildinni með tapi gegn FH í Hafnarfirði á sunnudag. FH-ingar sigruðu 1:0 í frekar döprum leik og mega KA-menn þakka fyrir að sá sigur varð ekki stærri. Vissulega fengu norðanmenn sín færi í leiknum en þau voru fá í samanburði við fjölmörg dauðafæri Hafnfirðinganna. Hefði Hörður Magnússon, markarskorarinn mikli í liði FH, verið á skotskónum í leiknum hefðu KA-menn að öllu líkindum fengið stóran skell því Hörður fékk hvert tækifærið á fætur öðru en öll fóru þau forgörðum. Það var hins vegar Ólafur Kristjánsson sem skoraði sigurmark FH þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum. Fyrstu 15 mínútur leiksins voru daufar og liðin þreifuðu varfærn- islega fyrir sér. Fyrstu færin komu í hlut FH-inga en þau voru hættulítil og fyrsta raunverulega hættan skapaðist við FH-markið á 20. mínútu. Jón Grétar Jónsson komst þá í gott færi eftir vel útfærða sókn en náði ekki að nýta það. FH-ingar skoruðu eina mark leiksins á 32. mínútu. Andri Mar- teinsson slapp þá upp kantinn og átti fast skot að KA-markinu. Haukur Bragason varði en knötturinn barst út í teig þar sem Ólafur Kristjánsson kom á fleygi- ferð og þrumaði boltanum í netið. Eftir þetta mark færðist aukinn þungi í sókn FH-inga og þeir fengu nokkur upplögð færi. Haukur varði tvívegis mjög vel frá Herði Magnússyni sem var á auðum sjó. KA-menn voru gersamlega heillum horfnir á þessu tímabili og máttu þakka fyrir að staðan var ekki verri en raun bar vitni í leikhléi. í upphafi síðari hálfleiks átti Jón Grétar gott skot að FH- markinu en Þorsteinn Bjarnason varði vel. Skömmu síðar skapað- ist aftur hætta við FH-markið eft- ir skalla Hafsteins Jakobssonar en Jón Grétar náði ekki að nýta sér þröngt færi. Þá var aftur komið að Herði Magnússyni og FH-ingum. Hann fékk nokkur ákjósanleg færi, það hættulegasta þegar liann komst einn inn fyrir KA-vörnina og lék á Hauk en skot hans á autt mark- ið var of laust og Steingrímur Birgisson bjargaði á línu. Má segja að þetta hafi verið besta færi leiksins. Undir lok leiksins lifnuðu KA- menn aðeins við og sóttu nokkuð en árangurs. FH-ingar vörðust vel og uppskáru sigur. Leikurinn var í heild sinni frekar daufur. Nokkuð var um færi en liðunum gekk illa að nýta þau og bæði lið hafa leikið betri knattspyrnu. KA-menn söknuðu greinilega Kjartans Einarssonar í framlínunni sem var fremur bit- laus og vörnin, sem var aðall liðs- ins í leiknum gegn Fram á dögun- um, virkaði óörugg. Bjarni Jóns- son lék ágætlega á miðjunni, Haukur bjargaði oft vel í mark- inu en aðrir voru langt frá sínu besta. Ólafur Kristjánsson var spræk- ur hjá FH-ingum en annars var liðið fremur jafnt. -bjb/JHB Lið FH: Þorsteinn Bjarnason, Björn Jónsson, Birgir Skúlason, Guðmundur Jón Grétar Jónsson fékk tækifæri til að skora í Hafnarfirði en tókst ekki að nýta það. Mynd: KL Hilmarsson, Ólafur H. Kristjánsson, Þórhallur Víkingsson, Guðmundur Val- ur Sigurðsson, Andri Marteinsson, Kristján Hilmarsson (Kristján Gíslason á 77. mín.), Hörður Magnússon (Hall- steinn Arnarson á 83. mín.) og Pálmi Jónsson. Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur Kristjánsson, Steingrímur Birgisson, Halldór Halldórsson, Gauti Laxdal (Þórður Guðjónsson á 58. mín.), Orntarr Örlygsson, Bjarni Jónsson, Hafsteinn Jakobsson, Heimir Guðjónsson, Jón Grétar Jónsson og Örn Viðar Arnarson (Arnar Bjarnason á 80. mín.). Dómari: Eyjólfur Ólafsson og da mdi hann vel. Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Sæmundur Víglundsson. Bjami Sveinbjörnsson fékk ekki mikið svigrúm í leikanum gegn Stjörnunni. Mynd: KL Hörpudeildin: Dapurt hjá Þórsurum - sem töpuðu 0:2 fyrir Stjörnunni í 1. umferð „Ég held að það hafi ráðið úr- slitum að ég vissi meira um andstæðingana en þeir um okkur. Við spiluðum inn á vissa veikleika og það gekk upp. Við komum ekki hingað til að spila neinn „samba- bolta,“ ég vissi að við yrðum að vera ofaná baráttulega séð til að eiga möguleika og ég held að okkur hafi a.m.k. tek- ist að standa jafnfætis í þeim málum. Þetta var ekki áferð- arfalleg knattspyrna en að mínu viti áttum við skilið að sigra,“ sagði Jóhannes Atla- son, þjálfari Stjörnunnar úr Garðabæ, eftir að lið hans sigr- aði Þór 2:0 í fyrstu umferð Hörpudeildarinnar á laugar- dag. Það var Árni Sveinsson, gamli jaxlinn í liði Stjörnunn- ar, sem skoraði bæði mörkin í síðari hálfleik og tryggði liðinu sigur í fyrsta leik þess í 1. deild. Þórsarar virtust öllu sprækari framan af leiknum og náðu fljót- lega yfirhöndinni á miðjunni. Á 16. mínútu átti Valdimar Pálsson skalla inn fyrir vörn Stjörnunnar og þar kom Bjarni Sveinbjörns- son á ferðinni en skot hans fór framhjá markinu. Lengra komust Þórsarar ekki gegn sterkri vörn Stjörnumanna og smátt og smátt komust gestirnir meira inn í leik- inn. Á 32. mínútu átti Ingólfur Ingólfsson gott skot naumlega framhjá Þórsmarkinu og 5 rnínút- um fyrir leikhlé skapaðist hætta við mark Stjörnunnar eftir þrumuskot Þorsteins Jónssonar en Jón Otti Jónsson, markvörður Stjörnunnar, náði að hirða knött- inn af Bjarna Sveinbjörnssyni. Fleiri urðu færin ekki fyrir hlé. Stjörnumenn virkuðu öllu sprækari í síðari hálfleiknum og eftir að þeir höfðu átt eitt skot að Þórsmarkinu og hættulega skyndisókn náðu þeir forystunni á 67. mínútu. Lárus Guðmunds- son var þá felldur við hægra víta- teigshorn Þórsara og Árni Sveinsson skoraði beint úr auka- spyrnunni með föstu skoti efst í markhornið. Óneitanlega glæsi- legt mark en manni virtist sem Friðrik ætti möguleika á að verja skotið. 11 mínútum síðar bættu Stjörnumenn öðru marki við. Luca Kostic braut þá á Valdimari Kristóferssyni innan teigs og dómarinn dæmdi Stjörnumönn- um víti sem Árni Sveinsson skor- aði úr. Aðeins mínútu síðar munaði litlu að Stjarnan bætti þriðja markinu við. Árni var þá enn á ferðinni og sendi háan bolta fyrir markið. Golan bar boltann upp að markinu og Friðrik sló hann í þverslána og þaðan barst hann til Lárusar Guðmundssonar sem var í dauðafæri en Friðrik varði vel slakt skot hans. Þórsarar sóttu aðeins í sig veðrið í lokin en sóknarmenn liðsins máttu sín lítils og færin létu á sér standa og niðurstaðan því sanngjarn sigur Stjörnunnar. Leikur þessi fór fram á möl og bar þess nokkur merki. Baráttan var í fyrirrúmi og lítið var um spil þrátt fyrir ágætar tilraunir beggja liða. Stjörnuliðið skapaði sér fleiri færi og nýtti þau og sigur liðsins hlýtur því að teljast sanngjarn. Valdimar Kristófers- son var frískur og ógnandi í fram- línunni, Ragnar Gíslason góður á miðjunni og Árni Sveinsson vann mjög vel fyrir liðið þrátt fyrir að hann væri ekkert sérlega áber- andi lengi vel. Þórsliðið átti slakan dag þrátt fyrir að liðið leggði sig bersýni- lega fram um að spila fótbolta. Sóknarleikurinn er greinilega höfuðverkur liðsins og gæti hann valdið vandræðum í sumar. Þor- steinn Jónsson var frískur á vængnum og Nói Björnsson var traustur í vörninni en aðrir voru í slakara lagi. Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Nói Björnsson, Luca Kostic, Sigurður Lárus- son, Ólafur Þorbergsson (Þórir Áskels- son á 75. mín.), Þorsteinn Jónsson, Valdimar Pálsson, Hlynur Birgisson, Sig- uróli Kristjánsson, Árni Þór Arnason og Bjarni Sveinbjörnsson (Sævar Árnason á 67. mín.). Lið Stjörnunnar: Jón Otti Jónsson, Magnús Bergs, Sigurður Bjarnason, Birgir Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Eyþór Sigurðsson, Lárus Guðmundsson, Ingólfur lngólfsson, Árni Sveinsson, Ragnar Gíslason og Valdimar Kristófers- son. Gult spjald: Sigurður Bjarnason, Stjörnunni. Dómari: Egill Már Markússon og stóð hann fyllilega fyrir sínu þrátt fyrir að hann hefði e.t.v. mátt byrja að veifa spjöldunum fyrr. Línuverðir: Bragi V. Bergmann og Marinó Þorsteinsson. Hörpudeild Staðan Úrslit í 1. umferð urðu þessi: IBV-Fram 0:4 Þór-Stjarnan 0:2 KR-Víkingur 2:1 FH-KA 1:0 Valur-ÍA 1:0 Staðan Fram 1 1-0-0 4:0 3 Stjarnan 1 1-0-0 2:0 3 KR 1 1-0-0 2:1 3 FH 1 1-0-0 1:0 3 Valur 1 1-0-0 1:0 3 Víkingur 1 0-0-1 1:2 0 ÍA 1 0-0-1 0:1 0 KA 1 0-0-1 0:1 0 Þór 1 0-0-1 0:2 0 ÍBV 1 0-0-1 0:4 0

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.