Dagur - 26.05.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 26. maí 1990
fréttir
Mikill viðbúnaðar í útvarpi og sjónvarpi vegna sveitarstjórnarkosninganna:
Talnaflóð og léttmeti fram undir morgun
Mikil viðbúnaður er hjá
Ríkisútvarpinu, Ríkissjón-
yarpinu og Stöð 2 vegna kosn-
inganna í dag. Fréttasending-
ar verða tíðar í dag og á öllum
þessum miðlum verða kosn-
ingavökur í kvöld og langt
fram eftir nóttu.
Ríkisútvarpið tekur púlsinn á
kosningunum í allan dag og í
hádegisfréttum verða ítarlegar
fréttir af kjörsókn í öllum stærri
sveitarfélögum um allt land.
Eiginlegt kosningaútvarp hefst
kl. 22 í kvöld á Rás 1 Ríkis-
útvarpsins. Fréttastofan verður
vel mönnuð í kvöld og sendir út
beint frá talningarstöðum í
kaupstöðum landsins. Þá verða
einnig lesin upp úrslit í öllum
kauptúnum og sveitahreppum
jafnóðum og úrslit berast. Rás 2
sendir út svokallað Kosninga-
popp frá kl. 23 í kvöld og sam-
tengist Rás 1 þegar úrslit taka
að berast. Auk talnaupplýsinga
verða send út viðtöl við fram-
bjóðendur víða um land þegar
línur skýrast.
Fastlega er búist við að kosn-
ingaútvarpið standi fram undir
morgun og strax að afloknum
hádegisfréttum á morgun hefst
ítarleg dagskrá um niðurstöður
kosninganna. Þátt í henni taka
meðal annars stjórnmála-
leiðtogar og frambjóðendur.
Þessi dagskrá mun væntanlega
standa fram til kl. 16.
Ríkissjónvarpið verður með
stutt fréttainnskot í dag kl.
15.45, þar sem farið verður yfir
gang mála í þeim sex stöðum á
landinu, sem sent verður beint
frá Akureyri, Akranesi, Hafn-
arfirði, Reykjavík, Kópavogi
og Selfossi.
Kosningasjónvarp hefst kl.
22.30 í kvöld og er fyrstu talna
úr stærsta sveitarfélagi landsins,
Reykjavík, að vænta rúmlega
hálfri klukkustund síðar. Auk
kosningaúrslita og hefðbund-
inna upplýsinga um kosningarn-
ar verða borin á borð ýmis
skemmtiatriði fyrir áhorfendur.
Þar má fyrsta og fræga telja
Spaugstofuna og hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
Stöð 2 verður með stuttar
fréttir í hádeginu í dag og aftur
kl. 14. Órugluð kosningadag-
skrá Stöðvar 2 hefst kl. 22. Sent
verður út beint frá talningarstað
í Reykjavík, Austurbæjar-
skólanum, og frá Akureyri. Þá
veröur fréttastofa Stöðvarinnar
í sambandi við fréttaritara út
um allt land. Af skemmtiatrið-
um í kosningasjónvarpi Stöðvar
2 má nefna Ríó tríóið. óþh
Hér er unnið við að skipta um jarðveg og undirbúa malbikun.
Samningur um Héraðsnefnd Eyjafjarðar
Fimm maima Héraðs-
ráð stofnsett
Bæjarstjórn Akureyrar sain-
þykkti á síðasta fundi samning
milli 15 sveitarfélaga við
Eyjafjörð um Héraðsnefnd
Eyjafjarðar. Sigfús Jónsson,
bæjarstjóri, segir að merkum
áfanga hafí verið náð í sam-
starfí sveitarfélaga við
fjörðinn.
Sigfús sagði að úr hópi fulltrúa
í Héraðsnefnd Eyjafjarðar verði
kosið sérstakt Héraðsráð. í því
munu eiga sæti fimm fulltrúar,
einn frá hverju þéttbýlissveitar-
félagi við Eyjafjörð og tveir full-
trúar dreifbýlissveitarfélaga.
Oddviti Hérðaðsráðs skal ætíð
vera fulltrúi dreifbýlissveitar-
félags, en formaður ráðsins skal
vera fulltrúi Akureyrar.
Samningurinn um Héraðs-
nefnd Eyjafjarðar er nú til
umfjöllunar hjá viðkomandi
sveitarstjórnum. Stefnt er að því
að nefndin taki til starfa sam-
kvæmt þessum samningi 1. júlí
n.k.
Ekki er vitað nákvæmlega
hversu margir fulltrúar verða í
sjálfri Héraðsnefndinni, því m.a.
er ekki ljóst hvort Svalbarðs-
strandarhreppur tekur þátt í
þessu samstarfi, Tillögurnar gera
ráð fyrir 5 fulltrúum frá Ákur-
eyri, 2 frá Dalvík og jafnmörgum
frá Ólafsfirði. Önnur sveitarfélög
fái einn fulltrúa hvert. EHB
Q an Á a t’Vt'H Vn f •
Sumarstörf hafín af fulliim krafti
- malbikun veigamesta framkvæmdin
Sumarstörf eru sem óðast að
hefjast hjá bæjarfélögum víða
um land. I blíðviðrinu á Sauð-
árkróki eru framkvæmdir á
vegum bæjarins hafnar af full-
um krafti. Til að forvitnast um
hvaða framkvæmdir væru efst
á baugi sló Dagur á þráðinn til
Snorra Björns Sigurðssonar
bæjarstjóra.
„Við erum að skipta um jarð-
veg við sundlaugina. Seinna
verður lögð hitalögn í planið og
það malbikað. Veigamestu fram-
kvæmdirnar eru malbikun í
Túnahverfi. Allar íbúðargötur í
hverfinu verða malbikaðar í
, sumar.
Á Skagfirðingabraut verða
gerð útskot við Gagnfræðaskól-
ann. Sú framkvæmd auðveldar
umferð þegar foreldrar eru að
hleypa börnum sínum út við
skólann." Að sögn bæjarstjóra
verður töluvert unnið við opin
svæði í sumar. Haldið verður
áfram með framkvæmdir í Sauð-
árgili og einnig í Hlíðahverfi. Við
Gagnfræðaskólann verður plant-
að trjám og þökur lagðar.
Athafnasvæði hafnarinnar verður
malbikað. Við það mun öll
vinnuaðstaða við höfnina breyt-
ast til hins betra. kg
Akureyri:
Aukin aðsókn að sýningar-
sal Náttúrafræðistofhunar
Aðsókn að sýningarsal Náttúru-
fræðistofnunar Norðurlands
hefur stóraukist sl. tvö ár.
Fjöldi sýningargesta árið 1989
var 4480 og hefur aldrei verið
meiri. Aukningin er meira en
20% frá árinu 1988, en það ár
var fjölgun gesta 30% frá árinu
áður.
Aukningin stafar mest af auk-
inni aðsókn erlendra ferða-
manna. Sjötíu og fimm prósent
sýningargesta árið 1989 komu í
júlí og ágúst og er öll fjölgun
gesta á því tímabili. Aðsókn
Islendinga breytist lítið frá ári til
árs, þó hefur aðsókn skólahópa
heldur farið vaxandi vor og
haust. Einkum eru það skólar af
Norðurlandi sem sækja safnið,
allt frá Blönduósi austur á
Þórshöfn. Þjónustan við skólana
er þeim að kostnaðarlausu.
Þrengsli í sýningarsal yfir
;sumarmánuðina verður vaxandi
vandamál, með auknum straumi
ferðamanna. Það vantar ekki
aðeins rúm fyrir betri og stærri
sýningar, heldur ekki síður aukið
rými fyrir gestina, svo að þeir geti
notið í friðið þeirrar stundar, sem
þeir dvelja á safninu. í bygg-
ingarsjóði eru nú rúmar 2 millj-
ónir króna.
Frá 1. júní nk. verður sýning-
arsalurinn opinn daglega kl. 13-
16 nema laugardaga.
(Fréttatilkynning frá
Náttúrufræðistofnun Norðurlands)
Kaupfélag N.-Pingeyinga:
Gjaldþrotabeiðiii er
enn óafgreidd
Beiðni um gjaldþrotaskipti
Kaupfélags Norður-Þingey-
inga hefur ekki verið afgreidd
hjá bæjarfógetanum á Húsa-
vík. Beiðnin verður væntan-
lega afgreidd eftir helgi.
Ósk um gjalþrotaskipti barst
bæjarfógetaembættinu fyrr í vi
unni. Að sögn Halldórs Kristir
sonar, sýslumanns, skorti gögn
að afgreiða málið og hefur vei
óskað eftir þeim. Halldór sagð
gera ráð fyrir að beiðnin yr
afgreidd strax að fengnum þe;
um gögnum. JÓ
Bókasöfn um allt land
Vikuna 28. maí til 2. júní
verður svokölluð sektalaus
vika hjá bókasöfnum í öllu
landinu. Þá verður hægt að
skila vanskilabókum og öðr-
um gögnum í bókasöfnin án
þess að þurfa að greiða
sektir. Hægt er að skila gögn-
um í næsta safn þótt þau til-
heyri safni annarsstaðar á
landinu. Söfnin sjá svo um að
koma þeim til réttra eigenda.
í fréttatilkynningu frá bóka-
söfnunum segir að fólk sé hvatt
til að nota þetta tækifæri og losa
sig við gamlar syndir. „Þessa
viku verður einskis spurt en
aðeins tekið við öllum vanskila-
gögnum með þökkum. Leitið
því í skápum, löskum kössum
og kirnum að bókum cða öðr-
um gögnum merktum bóka-
söfnum og komið þeim til skila í
næsta safn,“ segir orðrétt í
fréttatilkynningunni.
Akureyri:
Iistaverkið „Farið“
afhjúpað 3. júní n.k.
Þann 3. júní n.k. verður lista-
verkið „Farið“ afhjúpað við
Strandgötu á Akureyri.
Höfundur listaverksins er
Pétur Bjarnason, en hann
vann samkeppni Flugleiða hf.
um gerð listaverksins.
Að undanförnu hefur verið
unnið að gerð stöpuls undir
listaverkið „Farið“, en lista-
verkið er mjög stórt um sig,
rúmir fjórir metrar á hæð og
fimm metrar á breidd. Flugleið-
ir hf. gáfu listaverkið vegna
fimmtíu ára flugsögu íslands og
stofnunar fyrsta flugfélagsins,
Flugfélags Akureyrar hf.
Listaverkinu er fundinn
staður þar sem gamla flugplanið
var, hvar sjóflugvélarnar voru
teknar upp í bernsku flugs á
Akureyri. ój
Ólafur í
Ólafur Jón Arnbjörnsson, að-
stoðarskólameistari við Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki,
mun í haust fara til Boston í
Bandaríkjunum til að Ijúka við
ritgerð sina til magisterprófs í
uppeldisfræði. Ólafur mun
einnig kynna sér fullorðins-
fræðslu þroskaheftra, þar sem
ársleyfi
hann hefur verið tiinefndur af
starfshópi á vegum mennta-
málaráðuneytisins sem verkefn-
isstjóri yfir tveggja ára verkefni
við Fjölbrautaskólann er varðar
framhaldsnám þroskaheftra.
Ólafur kemur aftur til starfa
sem aðstoðarskólameistari vor-
ið 1991. SBG