Dagur - 28.05.1990, Qupperneq 12
Akureyri, mánudagur 28. maí 1990
Skógræktarfélag Eyfirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama
Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-17.
Leitið upplýsinga
siniuin
24047 og 24599.
★ Póstsendum
um allt land.
Hofsósingur
á þrítugsaldri
í gæsluvarðhaldi
- grunaður um að hafa
misnotað Qögurra ára
dóttur sína
Hofsósingur á þrítugsaldri sit-
ur nú í vörslu Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í Kópavogi.
Hann var handtekinn þann 18.
þessa mánaðar grunaður um
misnotkun á fjögurra ára gam-
alli dóttur sinni. Héraðsdómari
í Skagafjarðarsýslu kvað upp
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
manninum og rennur hann út á
mánudag, líklegt má telja að
úrskurðurinn verði framlengd-
ur.
Maðurinn sat viku í gæsluvarð-
haldi á Sauðárkróki. Menn frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins
aðstoðuðu við yfirheyrslur á
manninum en á laugardag fór
RLR fram á að maðurinn yrði
sendur suður. Málið er því nú í
höndum RLR í Kópavogi.
Fíkniefni munu tengjast mál-
inu eitthvað en ekki er vitað
hversu mikið umfang þess er.
Grunur um kynferðislega mis-
notkun kviknaði þegar barnið
kom í læknisskoðun eftir ítrekað-
ar kvartanir þess. kg/SBG
Akureyri:
Verkmenntaskólanum slitið
Sjötta starfsári Verkmenntaskólans á Akureyri lauk með hátíðlegri athöfn í Akureyrarkirkju sl. laug-
ardag. Þar voru 162 nemendur brautskráðir, þar af um 90 stúdentar af öllum sviðum, flestir þó af við-
skiptasviði. Auk þeirra vor útskrifaðir sjókokkar, sjúkraliðar, vélstjórar af L, 2. og 3. stigi, tækniteikn-
arar, bíla- og húsamálarar, vélvirkjar og stálskipasmiðir.
„í dag er hátíð, hátíð ungs fólks sem stendur á mótum tveggja tíma. Að baki eru æsku- og unglingsár,
framundan er líf hins fullþroska manns. Við skulum gleðjast með þessum vinum okkar, taka þátt í
fölskvalausri hamingju þeirra, fylgja þeim á brautu, senda þau frá okkur með þeirri bæn og í þeirri von,
að þau afli sér einskis frekar en góðs mannorðs.“ Þannig fórust Bernharð Haraldssyni, skólameistara
Verkmenntaskólans m.a. orð í skólaslitaræðu sinni. Víst er að ekki skyggði veðrið á gleðina, því það
var með eindæmum gott.
Sjá nánar bls. 4-5
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna:
Bilið milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðarinnar breikkar
Ef horft er til landsins alls eru
úrslit sveitarstjórnarkosning-
anna um margt merkileg. Ljóst
er að ekki er hægt að heimfæra
þau að öllu leyti upp á lands-
málapólitíkina, en hins vegar
gefa þau ákveðna vísbendingu
um fylgi stjórnmálaflokkanna
á landsvísu.
Úrslitin virðast staðfesta að
bilið milli höfuðborgarsvæðisins
og landsbyggðarinnar er að
breikka í pólitísku tilliti. Sjálf-
stæðisflokkurinn vann mjög góð-
an sigur í kaupstöðum á suðvest-
urhorninu, að Hafnarfirði undan-
skildum. Áberandi er að þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafði
hreinan meirihluta bætti hann
stöðu sína. Þetta gildir t.d. um
Reykjavík, Garðabæ, Mosfells-
bæ og Seltjarnarnes. Hins vegar
er eftirtektarvert að mjög víða út
um land gerði Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki betur en að halda sinni
fyrri stöðu og í suinum tilfellum
tapaði hann fylgi. Góð dæmi um
það eru Akureyri og ísafjörður.
Þorkell Helgason, hjá Reikni-
stofnun Háskólans, sagði í Ríkis-
útvarpinu í gær að ætla mætti að
sjálfstæðismenn hefðu bætt við
sig um 3,3% fylgi á landinu öllu
miðað við kosningarnar 1986.
Gengi Alþýðuflokksins var
upp og niður í þessum kosning-
um. Stórsigur krata í Hafnarfirði
vekur mikla athygli, en þar bættu
þeir við sig einum manni og
fengu hreinan meirihluta. Meiri-
hluti þeirra tapaðist í Keflavík,
en Alþýðuflokkur er þó enn
stærstur flokka þar. í Kópavogi
heldu kratar þrem mönnum en á
Akureyri fengu þeir stóran skell
og töpuðu tveim mönnum.
Þegar á heildina er litið hélt
Framsóknarflokkurinn sínum
hlut og vel það. Þvert ofan í spár
hélt flokkurinn fulltrúa sínum í
Reykjavík og fulltrúi hans í
Kópavogi er í oddaaðstöðu við
myndun meirihluta þar í bæ.
Óhætt er að fullyrða að á
Norðurlandi hafi Framsóknar-
flokkurinn unnið stórsigur. Hann
bætti við sig tveimur mönnum á
Húsavík og Akureyri og einum
manni á Siglufirði. Þá bætti
Framsóknarflokkurinn við sig á
Sauðárkróki.
Alþýðubandalagið tapaði um-
talsverðu fylgi í þessum kosning-
um. Þar munar mest um fylgis-
hrun í höfuðborginni, en þar
fékk flokkurinn einn mann í stað
þriggja áður. Hafa ber í huga að
fjöldi alþýðubandalagsfólks gekk
til liðs við Nýjan vettvang, sem
fékk tvo borgarfulltrúa í Reykja-
vík.
En það var ekki bara svart-
nætti hjá Alþýðubandalaginu.
Flokkurinn hélt enn velli á Nes-
kaupstað og jók þar fylgi sitt.
Útkoman á Akureyri var einnig
góð, en þar hélt Alþýðubanda-
lagið tveimur mönnum. Sama má
segja um Húsavík.
Kvennalistinn tapaði líka tölu-
verðu fylgi frá kosningunum
1986. Hann bauð fram sér fram-
boðslista á fimm stöðum á land-
inu, en kom einungis inn einum
fulltrúa í Reykjavík. óþh
Áfengisútsölur:
Já á Húsavík
og Blönduósi,
nei á Dalvík
í þremur bæjarfélögum á
Norðurlandi, Blönduósi, Dal-
vík og Húsavík var kosið um
opnun áfcngisútsölu samhliða
bæjarstjórnarkosningunum.
Niðurstöður sýna að Blöndu-
ósbúar og Húsvíkingar vilja
fá til sín áfengisútsölu ÁTVR
en Dalvíkingar eru því mót-
fallnir.
Á Blönduósi greiddu 585
atkvæði um opnun áfengisútsölu.
Já sögðu 405, nei sögðu 164.
Auðir og ógildir voru 16 kjör-
seðlar.
í fjórðu tilraun samþykktu
Húsvíkingar' opnun áfengis-
útsölu. Já sögðu 907, nei sögðu
415.
Yfirgnæfandi andstaða reynd-
ist við opnun áfengisútsölu á
Dalvík. Þar voru 299 hlynntir
áfengisútsölu en 508 á móti.
óþh
en
Auðir seðlar voru 22.
Akureyri:
Slys í tor-
færukeppni
27 ára kona, keppandi í tor-
færuakstri, slasaðist í gær í tor-
færukeppni í malargryfjunum í
Glerárdal.
Slysið bar að þegar aðstoðar-
maður var að færa jeppa konunn-
ar til á keppnisstað. Aðstoðar-
maðurinn var að koma farartæk-
inu fyrir við rásmarkið og bakk-
aði. Konan, sem átti að keppa á
jeppanum, leit aftur fyrir sig um
leið, en þá lenti eitt hjólið á
vinstra fæti hennar, með þeim
afleiðingum að hún fótbrotnaði.
Ingimar Skjóldal, lögreglu-
varðstjóri á Akureyri, segir að
eitt óhapp enn hafi hent í gær.
Ekið var aftan á bíl á Hlíðarbraut
laust eftir hádegi. Bíllinn sem
ekið var á kastaðist á annan bíl,
sem þarna var. Einn farþegi var
fluttur á slysadeild vegna meiðsla.
EHB
Hrepparnir sunnan Akureyrar:
Meirihlutinn kýs sameiningu
Yfirgnæfandi meirihluti íbúa í
Hrafnagilshreppi, Saurbæjar-
hreppi og Öngulsstaðahreppi
vill að unnið verði að samein-
ingu hreppanna. í skoðana-
könnun sem fór fram samhliða
kosningum til sveitarstjórna
voru 323 fylgjandi sameining-
arhugmyndum, 65 voru and-
Grímsey:
Slys í bjargsigi
Maður frá Húsavík slasaðist sl.
laugardagskvöld í Grímsey
þegar hann var að síga þar í
bjarg eftir eggjum.
Maðurinn var í bjarginu með
félögum sínum úr slysavarnasveit
frá Húsavík þegar hrundi úr því
og yfir hann. Hann missti meðvit-
und um tíma, en hafði náð henni
aftur þegar flugvél frá Flugfélagi
Norðurlands sótti hann til Gríms-
eyjar á laugardagskvöldið.
Ekki fengust upplýsingar um
líðan mannsins í gær, en sam-
kvæmt upplýsingum Dags var
hann úr lífshættu. óþh
vígir og 17 seðlar voru ógildir,
en alls tóku 402 þátt í könnun-
inni.
í Saurbæjarhreppi greiddu 112
atkvæði í skoðanakönnuninni,
fylgjandi reyndust 96, andvígir 13
og 3 seðlar voru auðir. Þetta þýð-
ir að 83,5% þeirra sem tóku þátt
í könnuninni vilja sameiningu.
f Öngulsstaðahreppi féllu
atkvæðin 168 þannig að 126 voru
fylgjandi, 31 á móti, auðir og
ógildir 11. Sameiningin hefur því
75% stuðning.
Útkoman í Hrafnagilshreppi
varð sú að 122 greiddu atkvæði,
101 vill sameiningu, 21 reyndist
andvígur og 3 seðlar voru auðir
eða ógildir, þannig að 82,8%
styðja sameininguna.
„Eg held að þessi úrslit sýni
glöggt að íbúar hreppanna veita
okkur heimild til að halda áfram
undirbúningi að sameiningu,"
sagði Birgir Þórðarson, oddviti
Öngulsstaðahrepps,
Dag í gær.
samtali við
SS
Árskógsströnd:
Maðurbeiðbana
Tuttugu og tveggja ára
Akureyringur beiö bana aö
morgni sl. laugardags þegar
sendiferðabíll, sem hann ók,
fór út af veginum við brúna
yfir Þorvaldsdalsá á
Árskógsströnd og ofan í
ána.
Farþegi í bílnum, tvítugur
piltur, komst lífs af og var
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Hann er ekki í
lífshættu.
Lögreglan á Dalvík fékk til-
kynningu um slysið um kl. 9 á
laugardagsmorgun. Ökumað-
ur var látinn þegar að var
komið. óþh