Dagur - 01.06.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 1. júní 1990
103. tölublað
Stúdentastjörnur
14 kt. gull
Einnig stúdentarammar
fjölbreytt úrval
annarra studentagjafa
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
/ plötuhugleiðingum í göngugötu.
Mynd: KL
Veðurathuganir fyrir
hugsanlegt álver í Eyjafirði:
36 metra mastur reist á
Dysnesi í næstu viku
í næstu viku verður reist 36
metra hátt mastur á Dysnesi
fyrir veðurathuganir. Mastrið
verður reist til að mæla ýmsa
veðurfarsþætti með tilliti til
byggingar álvers á Dysnesi.
Það er markaðsskrifstofa iðn-
aðarráðuneytisins sem stendur
fyrir veðurathugununum.
Ætlunin er að mastrið verði
uppi í um ár og þannig fáist skýr-
ar mælingar á t.d. vindstefnu,
hitastigi og fleiru. Það sem menn
beina fyrst og fremst sjónum að
eru áhrif byggingar álvers á
Dysnesi inn í Hörgárdal. Ekki
þykja liggja fyrir nógu nákvæmar
mælingar á vindstrengjum frá
Segir
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri:
enga hættu á að héraðsnefndin
verði pólitískur vígvöllur
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, segir að engin hætta
sé á að Héraðsnefnd Eyja-
fjarðar muni verða vanhæf til
að gegna hlutverki sínu í fram-
tíðinni. Eiríkur Sigfússon á
Sílastöðum, oddviti Glæsibæj-
arhrepps, hefur lýst því yfir að
núverandi fyrirkomulag hér-
aðsnefndarinnar sé síst til þess
fallið að hún geti gegnt hlut-
verki sínu, ekki síst hvað snert-
ir hagsmuni smærri sveitarfé-
„Það kom skýrt fram hjá Eiríki
um daginn að hann væri mótfall-
inn þessu fyrirkomulagi, en nú er
verið að leggja samninginn fyrir
sveitarstjórnir. Á fundinum, þar
sem voru fulltrúar allra sveitar-
félaganna sem aðild eiga að
nefndinni, samþykktu allir þetta
nema hvað Eiríkur á Sílastöðum
gerði fyrirvara ásamt oddvitanum
í Öxnadal," segir Sigfús
Sigfús var spurður að því hvort
honum fyndist líklegt að hér-
aðsnefndin yrði vettvangur póli-
tískra átaka og flokkadrátta,
vegna fjölda fulltrúa þéttbýlis-
sveitarfélaga. Hann sagðist alls
ekki óttast slíkt, slík hugmynd
væri úr takt við raunveruleikann.
Akureyringar hefðu um fjórðung
fulltrúa í nefndinni, og myndu
því ekki verða stefnumótandi
pólitískt afl, ef menn væru að
ræða um slíkt.
„Menn geta spurt á móti hvort
eðlilegra væri að Akureyri hefði
einn fulltrúa en Öxnadalur, sem
er með 60 íbúa, hefði líka einn.
Slíkt fyrirkomulag þekkist hvergi
á landinu. Einnig mætti spyrja
hvort dreifbýlissveitarfélögin ætli
að borga jafnan hlut á móti fjöl-
mennari sveitarfélögum. Akur-
eyri borgar 70 af hundraði við
kostnaðinn af héraðsnefndinni
þegar hún verður komin af stað,
en hefur fimm fulltrúa af rúmlega
tuttugu. Kaupstaðirnir þrír ná
ekki einu sinni meirihluta saman
í héraðsnefnd þótt þeir leggi
saman,“ segir Sigfús Jónsson.
EHB
hugsanlegri lóð álvers á Dysnesi
inn Hörgárdalinn.
Að hálfum mánuði liðnum
verða einnig sett upp nákvæm
veðurathugunartæki nærri lóð
þeirri á Árskógsströnd sem nefnd
hefur verið til sögunnar fyrir
hugsanlcgt álvcr. Veðurmælingar
þar verða trúlega einnig í um eitt
ár.
í fyrradag var staddur í Eyja-
firði Meemo Trepp sænskur verk-
fræðingur frá sænska fyrirtækinu
'Graanges, sem er eitt þriggja
fyrirtækja í Atlantál-hópnum.
Trepp kannaði aðstæður á þeim
tveim stöðum í Eyjafirði, á Dys-
nesi og úti á Árskógsströnd, sem
nefndir hafa verið fyrir byggingu
álvers. Trep lcit á aðstæður á
Reyðarfirði í gær og áður hafði
hann skoðað Keilisnes á Reykja-
nesi.
Samkvæmt upplýsingum Dags
er Dysnes áfram kostur númer
eitt á Eyjafjarðarsvæðinu verði
álver á annað borð byggt þar.
Árskógsströnd kemur þar næst
og er horft til lóðar norðan við
veginn niður á Árskógssand. Um
er að ræða lóð sem er í eigu
Árskógshrepps og landeigenda á
Hellu og í Árskógi. Höfn yrði
hins vegar að reisa fyrir sunnan
Þorvaldsdalsá. óþh
Skógræktarátak 1990 á Melgerðismelum:
Fyrsti áfangi um helgina
Fyrsti áfangi skógræktarátaks-
ins 1990 í Eyjafirði verður um
helgina á Melgerðismelum í
Eyjafírði. Reyndar átti það að
hefjast af krafti sl. miðviku-
dagskvöld, en þá komu mun
færri sjálfboðaliðar fram á
Melgerðismela en vænst hafði
verið til að pota plöntunum
niður.
Ætlunin að planta 80 þúsund
plöntum á Melgerðismelum í
sumar. Þar af verður 60 þúsund
plöntum komið í jörðina um
helgina og síðar í júní. Um hvíta-
sunnuhelgina er ætlunin að
planta 20 þúsund lerkiplöntum á
Melgerðismelum, dagana 12. til
16. júní verður 10 þúsund lerki-
plöntum og 10 þúsund birkiplönt-
um plantað þar fremra og 19. til
24. júní nk. verður 20 þúsund
birkiplöntum komið niður.
Að sögn forsvarsmanna skóg-
ræktarátaksins eru allir sjálf-
boðaliðar hvattir til að mæta
fram á Melgerðismela um hvíta-
sunnuhelgina og Ieggja sitt af
mörkum við trjáræktina. Heppi-
legast er þó að fólk taki sig
saman, 5-10 manns í hóp, og láti
skrá sig til leiks í síma Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga, 24047. óþh
Meirihlutaviðræður D- og G-lista á Akureyri:
I íklegt er að til
tíðinda dragi í dag
Bæjarfulltrúar sjálfstæðis-
manna og Alþýðubandalags
héldu áfram viðræðum um
myndun meirihluta í Bæjar-
stjórn Akureyrar í gær. Tveir
fundir voru haldnir.
Á almennum félagsfundi í
Alþýðubandalaginu á miðviku-
dagskvöld var samþykkt að
veita bæjarfulltrúum flokksins
fullt umboð til meirihlutavið-
ræðna.
„Þessum viðræðum verður
haldið áfram, þær hafa að
minnsta kosti ekki siglt í strand
ennþá. Við erum enn í
bróðerni, ekki er hægt að segja
annað. Ég held að meira sé ekki
hægt að segja á þessu stigi
málsins,“ sagði Heimir Ingi-
marsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í gær.
Að sögn Heimis er líklegt að
í dag verði ljóst hvort þessar
viðræður hafi það í för með sér
sem að er stefnt, meirihluta-
samstarf Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks í Bæjarstjórn
Akureyrar á kjörtímabilinu.
EHB
Frjósemin í góðu lagi á Norðurlandi:
Mun fleiri böm fæðst á FSA
en á sama tíma í fyrra
Miðað við fjölda fæðinga á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri það sem af er þessu
ári má ætla að á þessu ári fæð-
ist þar mun fleiri börn en í
fyrra. Síðastliðinn miðvikudag
höfðu fæðst þar 193 börn, þar
af tvennir tvíburar, samanbor-
ið við 158 börn 30. maí árið
1989. Að sögn yfirljósmóður
var von á þriðju tvíburunum í
þessari viku og trúlega þeim
fjórðu í næstu viku.
Allt árið í fyrra voru 398 fæð-
ingar á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og fæddust 407 börn.
Að sögn Júlíu Lindu Ómarsdótt-
ur, yfirljósmóður á fæðingardeild
FSA, eru 40 konur skrifaðar inn
bæði í júní og júlí. Þarna er ein-
ungis um að ræða konur sem eru
á skrá hjá Heilsugæslustöðinni á
Akureyri og Dalvík. Því má ætla
að þessi tala eigi eftir að hækka
og samkvæmt því stefnir í að um
mánaðamótin júlí-ágúst verði
fæðingar orðnar um 300 á FSA.
óþh
Blönduvirkjun:
Stálsmíðaverk veitt
Landsvirkjun hefur tekið til-
boði Eiríks Óskarssonar frá
Akranesi í stálsntíði við undir-
stöður fyrir Blöndulínu.
Tilboð Eiríks hljóðaði upp á
2.305.055 krónur. Blöndulína er
tengilína frá Blönduvirkjun að
byggðalínunni skammt frá
Löngumýri. Verkinu á að skila í
júlí í sumar. Sjálf möstrin og lína
verða ekki byggð fyrr en á næsta
sumri en undirstöðurnar á að
klára í sumar.
kg