Dagur - 01.06.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 01.06.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 1. júní 1990 spurning vikunnar Hvaða flokkar vilt þú að myndi meirihluta i Bæjarstjórn Sturla Örlygsson: Ég er nú nýfluttur í bæinn, þannig aö ég er ekki alveg inni í þessu. Voru Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur síðast? Já, mér myndi lítast best á Við- reisn. Halldóra Ingimarsdóttir: Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur. Akureyrar? Þórður Helgason: Ég veit það nú ekki. Þetta er alltaf eins, mér hefur ekki sýnst að það hafi skipt máli hingað til hverjir stjórnuðu. UggiJónsson: Ætli þetta verði ekki sama rugl- ið einn ganginn enn. Friðmar Pétursson: Alþýðubandalagið og Fram- sókn. Landsmót 1990 á Vindheimamelum Landsmót íslenskra hesta- manna verður haldið á Vind- heimamelum í Skagafirði dag- ana 3. til 7. júlí í sumar. Mikil eftirvænting er ríkjandi meðal hestamanna nú þegar úrtöku- mót fyrir landsmót standa yfir. Gert er ráð fyrir að mótið verði fjölmennasta hesta- mannamót á landinu hingað til og búist er við útlendingum svo þúsundum skiptir. Fjöl- miðlar, jafnt innlendir sem erlendir munu fylgjast með mótinu. Til að kynna sér hvernig undirbúningur mótsins gengi fóru blaðamenn Dags á Vindheimamela og ræddu við Svein Guðmundsson frá Sauð- árkróki og Sigurð Ingimarsson frá Flugumýri en undirbúning- ur mótsins hefur öðrum fremur hvflt á herðum þeirra. Undirbúningur fyrir mótið hef- ur staðið yfir lengi, segja má að uppbygging hafi staðið allar göt- ur síðan 1982, en þá var síðast landsmót á Vindheimamelum. Þrettán hestamannafélög eru rekstraraðilar mótsins. Hesta- mannafélögin Stígandi og Létt- feti hafa mótssvæðið á leigu og hafa umsjón með þeim fram- kvæmdum sem í gangi eru. Þriðji aðilinn, Hestamannafélagið Svaði, er nú að ganga tii liðs við þessi tvö um rekstur svæðisins og mun ganga inn í leigusamning að Vindheimamelum. Undirbúning- urinn hvílir því mest á herðum þessara þriggja féiaga og hafa meðlimir þeirra unnið ómælt starf í sjálfboðavinnu. Átján manna framkvæmda- nefnd er starfandi fyrir mótið og formaður hennar er Sveinn Guðmundsson sem jafnframt er stjórnarformaður Léttfeta. Þeir Sigurður Ingimarsson, stjórnar- maður í Stíganda, og Sveinn hafa borið hita og þunga af undirbún- ingi og skipulagningu mótsins. Uppbygging mótssvæðisins á Vindheimamelum Mikil uppbygging hefur undan- farið verið á mótssvæðinu á Vindheimamelum. Annar hring- völlurinn var lengdur um hundr- að metra og byggður hefur verið völlur sem eingöngu er ætlaður til | sýninga á kynbótahrossum. í vor var reist nýtt stóðhestahús og eru nú til hús fyrir um fimmtíu stóð- hesta. Áhorfendasvæði hefur verið stækkað sem nemur um tvö til þrjú þúsund sætum. Veitingahúsnæði er nú helm- ingi stærra en áður og rúmar nú á sjötta hundrað manns. Ef að lík- um lætur er veitingaplássið nú orðið það stærsta í Skagafirði. Salernisaðstaða er stækkuð um rúman helming og verða nú 36 vatnssalerni á mótssvæðinu. Félagar í hestamannafélögun- um Léttfeta og Stíganda hafa lagt til mikla sjálfboðavinnu við upp- byggingu keppnissvæðisins og fjárhagsáætlun að undirbúningi mótsins hljóðar upp á um níu til tíu milljónir króna. Eitt glæsilegasta mótssvæði landsins Mótssvæðið á Vindheimamelum er að margra áliti nú orðið það glæsilegasta á landinu. Aðstaða keppenda og áhorfenda er mjög til fyrirmyndar. Tjaldstæði eru nánast ótakmörkuð á bökkum Svartór og verður þeim skipt í fjölskyldubúðir og almenn tjald- stæði. Bithagi fyrir ferðahross er alls um eitt hundrað hektarar af vel grónu landi í Borgarey, sem er skammt frá mótssvæðinu, auk annarra svæða. Næg bílastæði eru við tjaldstæðin og keppnis- svæðið og er landsmótsgestum heimilt að nota þau án sérstaks endurgjalds. í sumar verður byggð brú á Svartá við Saurbæ. Með tilkomu hennar mum opnast möguleiki á hringakstri gegnum mótssvæðið sem mun auðvelda umferð til muna. Hreppsnefnd Lýtings- staðahrepps mun fjármagna byggingu brúarinnar. Með tilliti til umfangs mótsins mun ekki veita af góðum samgöngum til og frá svæðinu og er ný Svartárbrú þar kærkomin viðbót. Óhætt er að fullyrða að móts- svæðið á Vindheimamelum er mjög vel í stakk búið til að taka á móti landsmótsgestum í sumar. Umfangsmesta mót hingað til Umfang landsmótsins er gífurlegt og telja menn að það verði ein fjölmennasta útisamkoma sem haldin hefur verið íslandi. Reikn- að er með tíu til tólf þúsund mótsgestum, en í góðu veðri gæti sú tala hæglega hækkað um nokkur þúsund. Það verða ekki einungis íslenskir áhugamenn um hesta sem koma á mótið, því reiknað er með um þrjú þúsund erlendum gestum og mun verða beint millilandaflug til Akureyrar í sambandi við mótið. Fjöldi manns mun trúlega koma ríðandi á mótsstað og að meðtöldum keppnishrossum, sem verða um sjö hundruð, er reiknað með því að hestafjöldi á svæðinu verða á fjórða þúsund. Öryggisgæsla á svæðinu verður í höndum björgunarsveita á Norðurlandi og föggæslu mun lögreglan á Norðurlandi vestra annast. Yfirumsjón með henni hefur Björn Mikaelsson, yfirlög- regluþjónn á Sauðárkróki. Þegar allur þessi fjöldi hrossa og manna verður samankominn á einum stað mun örugglega ekkert veita af þeim 900 til 1000 átta tíma vöktum sem búið er að deila niður á rekstrarfélögin þrettán. Starfsmenn mótsins verða þegar allt er talið á annað þúsund. Þjónusta við landsmótsgesti Þjónusta við mótsgesti á Vind- heimamelum verður viðamikil. Útibú Búnaðarbanka íslands verður til staðar ef bankavið- skipti þurfa að eiga sér stað. Þess má geta að Búnaðarbankinn er aðalstyrktaraðili landmótsins. Póstur og sími mun einnig vera með þjónustu fyrir þá sem þurfa. Nýlenduvöruverslun á vegum Kaupfélags Skagfirðinga verður á mótssvæðinu svo ekki þarf að leita um langan veg eftir nauð- synjavörum. Minjagripaverslun verður einnig starfrækt. Öll veitingasala verður í hönd- um mótsins sjálfs og mun öl, sælgæti og tóbak verða til sölu vítt og breitt um mótssvæðið. Heitar máltíðir verða einnig til sölu fyrir þá sem vilja. Samið var um kaup á öllum matföngum og hreinlætisvörum við við Kaupfé- lag Skagfirðinga. Sanitas hf. á Akureyri mun sjá landsmótsgest- um fyrir gosi og ölföngum. Horft eftir hinni frægu 800 metra braut. Til vinstri sést veitingaskálinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.