Dagur - 09.06.1990, Page 7
Laugardagur 9. júní 1990 - DAGUR - 7
HESTAR
Umsjón: Kristín Linda Jónsdóttir
Hestamennska á námsskrá í Hvammshlíðarskóla
í Þjálfunarskóla ríkisins við Hvammshlíð á Akureyri er starf-
rækt fuliorðinsfræðsla fyrir þroskaheft fólk.
Fullorðinsfræðslunni er ætlað að styrkja og þjálfa nemend-
urna til aukins sjálfstæðis svo þeir verði færari um að takast
á við lífíð og njóta þess. í fullorðinsfræðslunni er boðið upp
á ýmiss konar námskeið og nú í vctur var í fyrsta sinn boðið
upp á námskeið í hestamennsku. Þau Áslaug Kristjánsdóttir
og Jónsteinn Aðalsteinsson sem eru kunnir hestamenn störf-
uðu bæði við Hvammshlíðarskóla í fyrravetur. Þá komu þau
þeirri hugmynd á framfæri að bjóða nemendum í fullorðins-
fræðslu upp á námskeið í hestamennsku. Nú í vor varð þessi
hugmynd að veruleika.
Að njóta útivistar og
umgengni við dýr
Höfuðmarkmiðin með námskeið-
inu eru þau að gefa þátttakend-
um tækifæri til að læra að um-
gangast dýr, njóta útivistar og
styrkja jafnvægið. Það er spenn-
andi verkefni sem krefst mikils af
nemendunum, að takast á við og
læra að vinna með lifandi dýri
sem er miklu stærra og sterkara
en maðurinn. Að teyma hrossið
um óslétt land, að hugsa um sjálf-
an sig og hestinn, að tengja hug
og athöfn. Hestamennskan er
örvandi verkefni sem veitir nem-
endunum innri umbun og bætir
hreyfifærni þeirra. Námskeiðin
eru byggð upp á þann hátt að
þátttakendur byrja á að moka út,
gefa hestunum og kemba eins og
aðrir hestamenn. Að því loknu er
svo lagt á gæðingana, stigið á bak
og áseta og stjórnun þjálfuð.
Nemendum er skipt niður í hópa
eftir því hvar þeir eru á vegi
staddir.
Frábært framtak
þroskaheft fólk fær þarna ein-
Stakt tækifæri til að umgangast
dýr, skynja hreyfingar hestsins og
finna hvernig hann lætur að
þeirra eigin stjórn. Eftir að hafa
fengið tækifæri til að fylgjast með
einum hópnum er óhætt að segja
að þarna er um frábært framtak
að ræða. Þátttakendur höfðu náð
ótrúlega góðri stjórn á hestunum
eftir fimm tíma námskeið. Þau
fóru létt með að ríða á „góðri
milliferð", stöðva og snúa hross-
unum. Nemendurnir voru mjög
ánægðir með námskeiðið og gleð-
in ljómaði af andlitum knapanna.
Margir þeirra stunda aðrar
íþróttir svo sem boccia, körfu-
bolta og frjálsar íþróttir og því
skyldu þau ekki fá tækifæri til að
kynnast dýrum og stunda hesta-
mennsku? Eða eins og einn
nemandinn sagði, „þetta er svo
gaman, ég er svo mikill sveita-
maður í mér“.
Ýmis ljón í veginum
Nú þegar hafa borist fyrirspurnir
til Aslaugar og Jónsteins varð-
andi næsta kennsluár. Hins vegar
kom fram í samtali okkar að ýmis
ljón eru í veginum. Hér á Akur-
eyri er engin aðstaða til reið-
kennslu yfir vetrarmánuðina
meðan skólar eru starfandi. Hér
er engin reiðhöll eða reiðskemma
til að stunda útreiðar og kennslu
innan dyra. Eftir veturinn í vetur
ætti öllum að vera ljóst að vegna
snjóþyngsla eru öll mannvirki
hestamanna svo sem tamninga-
gerði og vellir ónothæfir allan
veturinn. Þau eru einfaldlega á
kafi í snjó.
Okkur vantar reiðhöll
eða reiðskemmu
Krafan um byggingu reiðsalar,
-skemmu eða -hallar á Akureyri
hefur sjaldan verið háværari en
nú. Þar kemur ýmislegt til;
undanfarnir vetur hafa verið
óvenju erfiðir til útreiða og áhugi
fyrir hvers konar reiðkennslu fer
ört vaxandi. Má þar nefna að
Unglingaráð hestamannafélags-
ins Léttis á Akureyri hefur óskað
eftir því við skólanefnd Akureyr-
arbæjar að hestamennska verði
tekin upp sem valgrein í 9. bekk.
Nú þegar er hestamennskan val-
grein í mörgum grunnskólum
bæði á Reykjavíkursvæðinu og
úti á landi. Hestaklúbbur hefur
verið starfani við Verkmenntaskól-
anna á Akureyri og námskeiða-
hald hestamannafélagsins Léttis
yrði vissulega með öðru sniði ef
slíkt mannvirki væri til staðar.
Síðast en ekki síst mundi
nemendum Hvammshlíðarskóla
og kennurunum þeirra, þeim
Áslaugu og Jónsteini, opnast nýr
heimur ef þau fengju tækifæri til
að nýta sér reiðhöllina sem verð-
ur að rísa innan skamms.
Frábært framtak hjá þeiin Áslaugu Kristjánsdóttur og Jónsteini Aðalsteins-
syni.
Einbeiting og gleði, knaparnir eru f.h. Sævar, IVIatti og Nanna.
Hestasveit
Börn og unglingar sem hafa áhuga á hestum geta vart hugsað
sér neitt meira spennandi en komast í svokallaða hestasveit.
En hvað er hestasveit? Til að Ieita svara við þeirri spurningu
var haft samband við þau EIsu Stefánsdóttur og Jóhann Frið-
geirsson sem búa ásamt þremur börnum sínum að Hofí á
Höfðaströnd. Þau starfrækja nú í sumar í fjórða sinn sumar-
dvöl fyrir börn og unglinga þar sem hestamennska er númer
eitt, tvö og þrjú.
Tíu daga dvöl
Að sögn Elsu taka þau á móti
átta krökkum í einu og þau
dvelja að Hofi í tíu heila daga.
Krakkarnir eru á aldrinum átta til
þrettán ára. Þau koma víðsvegar
að, yfirleitt úr þéttbýli. í sumar
kemur í fyrsta sinn í hestasveit að
Hofi unglingur erlendis frá, en
það er sænsk stelpa. Það er
greinilega mjög gaman að fara í
hestasveit því að sögn Elsu koma
sömu krakkarnir aftur og aftur. í
sumar kostar tímabilið í hesta-
sveit að Hofi 16 þúsund krónur.
Innifalið í því verði eru sundferð-
ir, skoðunaferðir í Skagafirði,
grillveisla, fæði og húsnæði.
Viðburðaríkir dagar
En hvernig líður svo dagurinn
hjá krökkunum á Hofi?
Strax að loknum morgunverði
hefst reiðnámskeið. Þar læra
krakkarnir undirstöðuatriði í
umhirðu og umgengni hestanna,
ásetu og stjórnun. Námskeiðið
stendur frarn að hádegi. Að lokn-
um hádegisverði er ýmist farið í
reiðtúr eða snúist í kringum hest-
ana eða önnur dýr á Hofi. Krakk-
arnir fara alltaf tvisvar á bak á
dag. Þriðja hvern dag er farið í
sund, ýmist í Sólgarða í Fljótum,
á Hólum, Sauðárkróki eða í
Varmahlíð. Einn daginn er farið
í skoðunarferð í Skagafirði og
eru þá ýmsir merkir sögustaðir
heimsóttir, svo sem Hólar og
Glaumbær. Hápunktur dvalar-
innar er svo jafnan daginn fyrir
heimferð en þá fara krakkarnir í
langan reiðtúr og slegið er upp
grillveislu í ferðinni.
Ein stór fjölskylda
Að sögn Elsu hafa þau haft það
fyrir sið að hvetja krakkana til að
ganga vel um herbergin og í lok
dvalarinnar er veitt viðurkenning
fyrir bestu umgengnina. Krakk-
arnir skiptast líka á tvö og tvö að
aðstoða við uppþvottinn. Á þann
hátt taka þau þátt í heimilishald-
inu og heimilisfólk og dvalargest-
ir eru eins og ein stór fjölskylda.
Að Hofi dvelja jafnan útlending-
ar á sumrin sent aðstoða Elsu,
Jóhann og börn þeirra við heimil-
ishaldið og hrossin.
Hestaleiga og
hestaferðalög
Jóhann og Elsa starfrækja, auk
sumardvalar fyrir börn og ungl-
inga, hestaleigu og hestaferðir. í
sumar dvelja aðeins tveir hópar
krakka í hestasvcit að Hofi en
hingað til hafa þeir verið þrír til
fjórir. Ástæða þess er sú að hjón-
in á Hofi hafa þegar skipulagt
þrjár langar hestaferðir í tengsl-
um við Landsmót hestamanna á
Vindheimamelum. Fyrir lands-
mót leggja þau t.d. upp í sjö daga
ferð með hóp ríðandi manna,
ráðskonu og bíl frá Hofi, og sem
leið liggur yfir Tröllaskaga ofan í
Svarfaðardal og enda ferðina á
Vindheimamelum.
Spennandi verkefni
í hestasveit fá börn og unglingar
tækifæri til að njóta náttúru
landsins, hollrar hreyfingar og
útivistar. Um leið og þau læra að
umgangast íslenska hesta, læra
þau að bera virðingu fyrir lifandi
dýrum. Þau fá tækifæri til að tak-
ast á við spennandi verkefni,
tækifæri til að skynja framfarir,
takt, jafnvægi, mýkt, hraða og
| „frelsi í faxins hvin".
Á Sjómannadaginn
Sendum öllum íslenskum
sjómönnum árnaðaróskir
á hátiðisdegi þeirra.