Dagur - 22.06.1990, Side 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 22. júní 1990
117. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdasgurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Tjaldsvæðið á Akureyri:
Útíendingar
ennsemkomiðer
Afnot ferðamanna af tjald-
stæðunum við Þórunnarstræti
virðast vera svipuð það sem af
er sumri og var á sama tíma í
fyrra.
Að sögn ívars Sigmundssonar
umsjónarmanns tjaldsvæðanna
eru það aðallega útlendingar sem
gist hafa í tjöldum enn sem kom-
ið er, enda fari íslendingar ekki
almennt ekki að nota tjaldsvæðið
fyrr en kominn er júlí á dagatal-
inu, og eins ráði veðrátta miklu
meiru um það hvar þeir tjaldi
heldur en hjá erlendum tjaldbú-
um.
Engar framkvæmdir eða breyt-
ingar eru fyrirhugaðar á tjald-
svæðinu, enda eru uppi hug-
myndir að færa tjaldsvæðið, og
hefur þá svæðið vestan Verk-
menntaskólans á Eyrarlandsholti
einna helst komið til álita.
Þessa dagana gista þýskir nátt-
úruskoðendur í svefnpokum á
Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli og
hafa aðgang að eldhúsinu, en
mjög lítið er um það að gist sé á
Skíðahótelinu. Möguleiki er á
því að panta svefnpokapláss fyrir
stærri hópa þar ef það er gert
með einhverjum fyrirvara. GG
Norrænn heimilisiðnaður í Amtsbókasafninu
í gær var opnuð í Amtsbókasafninu á Akureyri norræn heimilisiðnaðarsýning. Það er Heimilisiðnaðar-
félag íslands sem stendur fyrir sýningunni og naut aðstoðar Menningarmálanefndar Akureyrar. Sýning-
in er farandsýning og verður sett upp á öllum Norðurlöndunum í tengslum við Norrænt heimilisiðnað-
arþing sem haldið er á þriggja ára fresti. Sýningin í Amtsbókasafninu er opin á opnunartíma safnsins
og stendur fram í byrjun júlí. Á myndinni að ofan má sjá ístenska básinn á sýningunni og á innfelldu
myndinni er Hildur Sigurðardóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélags íslands. -bjb/Myndir: KL
Tveir mánuðir eftir
af framleiðsluári
mjólkurbænda:
Misjöfii
kvótastaða hjá
eyfirskum
bændum
„Staðan hjá mjólkurbændum
er mjög misjöfn en líklegast fer
að líöa að því að þeir fyrstu
fylli upp í framleiðsluréttinn,“
segir Guðmundur Steindórs-
son hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar aðspurður um
stöðu frámleiðslumála hjá
mjólkurbændum á svæðinu nú
þegar röskir tveir mánuðir eru
eftir af verðlagsárinu.
Guðmundur segir að um síð-
ustu mánaðamót hafi framleiðsl-
an verið lítilsháttar meiri en hún
var á sama tíma á síðasta verð-
lagsári. Því geti nokkru fleiri
bændur orðið aðþrengdir með
fullvirðisrétt þegar á líður sumar-
ið en á móti kemur að bændum er
nú heimilt að framleiða upp í allt
að 15% af fullvirðisrétti næsta
árs. Þetta reglugerðarákvæði var
Mikil þorskhrota fyrir austan land:
Kolbeinsey fékk 100 tonn á tveimur dögum
Togarar frá höfnum á Norður-
landi hafa undanfarið fengið
dágóðan þoskafla á miðum fyr-
ir austan land. Þorskurinn er
stór og fallegur, mun betri en
fengist hefur um alllangt skeið.
Togararnir hafa flestir fengið
mikinn afla á skömmum tíma,
en í gær var farið að draga úr
þessari aflahrotu fyrir austan
og komin bræla á miðunum.
Svalbakur landaði 123 t hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa á
þriðjudaginn, af því voru 93 t
þorskur, góður og stór. Hrím-
bakur landaði daginn eftir 105 t,
þar af 93 t af þorski. Bæði skipin
voru fyrir austan land. Ekki var
vitað í gær hvort Kaldbakur eða
Harðbakur yrði fyrri til að landa
hjá Ú.A. eftir helgina.
Björgvin EA landaði 157 t á
Dalvík á miðvikudag, uppistaða
aflans var góður þorskur af Aust-
fjarðamiðum. Björgúlfur er
væntanlegur á mánudaginn, en
hann missti af mestu aflahrot-
unm.
er
Hjá Þormóði ramma hf.
mikið að gera í frystingunni, eins
og á Dalvík. Á laugardaginn á að
byrja vinnu kl. 4 um nóttina og
vinna fram að hádegi. Birtingur
NK landaði 110 t á mánudaginn,
Sigluvík landaði á miðvikudag
140 t, í gær komu Þórshamar ÞH
með 25 t og Húnaröst HU 601 til
Siglufjarðar. Stálvíkin landar á
mánudag.
Kolbeinsey ÞH landaði 150 t
hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur á
þriðjudaginn, uppistaða aflans
var stór þorskur. Áf þessum 1501
fengust 100 t á tveimur sólar-
hringum fyrir austan land. Kol-
beinsey hélt aftur til veiða á mið-
vikudagskvöld. Togarinn er
væntanlegur aftur til Húsavíkur á
fimmtudag eða föstudag í næstu
viku, en þangað til verður unninn
afli úr bátum.
Hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar er það að frétta að Ólafur
Bekkur ÓF kom með 110 t af
grálúðu og ufsa, sem fékkst djúpt
út af Vestfjörðum. Eftir þessa
löndun fer í hönd mánaðar uppi-
hald í veiðum togarans, sem er á
sóknarmarki. Lítið hefur borist
af þorski til frystihússins, en þó
er einn bátur, Snorri ÓF, á línu-
veiðum, en hann hefur veitt
ágætlega og landað tveimur og
hálfu til þremur tonnum daglega.
Um 9. júlí verður Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar lokað vegna sumar-
leyfa í fjórar vikur. EHB
sett á í vetur en áður var aðeins
heimilt að framleiða upp í 5% af
fullvirðisrétti næsta árs.
„Já, ég held að menn notfæri
sér þennan möguleika þegar þeir
verða komnir með framleiðslu
sem ekkert fæst fyrir nema á
þennan hátt. Að vísu gæti svo
farið að eitthvað verði greitt fyrir
umframframleiðsluna en hvort
það verður gert kemur ekki í ljós
fyrr en verðlagsárið verður gert
upp,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur sagði að einnig sé
fyrirsjáanlegt að nokkrir fram-
leiðendur nái ekki að fylla upp í
kvóta sinn og þá geti þeir, nú sem
áður, fært allt að 5% af fullvirðis-
rétti sínum fram til næsta árs og
framleitt upp í hann þá. JÓH
Erfitt með hráefni hjá Dögun á Sauðárkróki:
Við fórum okkur hægt með
lækkandi heimsmarkaðsverði
segir Ómar Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Ekki gengur vel að fá báta til
að leggja upp hjá Rækjuvinnsl-
unni Dögun á Sauðárkróki, en
fyrirtækið missti í vor tvo báta
úr viðskiptum, þá Erling og
Rauðsey, nær fyrirvaralaust.
Að sögn Ómars Þórs Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra,
hefur tekist að halda uppi
vinnslu fímm daga vikunnar
með rækju frá Hilmi öðrum og
Særúnu á Blönduósi.
Núna eru það Hilmir annar og
Jökull sem leggja upp hjá
Dögun, en von er á Haferninum
fljótlega og vonandi verður þá
nóg hráefni.
Það lítið hráefni hefur verið
lagt upp hjá Dögun undanfarnar
vikur að í síðustu viku var fengin
rækja frá Særúnu á Blönduósi til
vinnslu. í þessari viku komu síð-
an sex tonn frá Særúnu til að
hægt væri að halda uppi vinnu.
„Þetta er mikill munur frá því í
fyrra þegar unnið var allt að því
dag og nótt. Með lækkandi verði
á rækju á heimsmarkaði förum
við okkur hægt í samningum við
útgerðaraðila í sambandi við
löndun á rækju hjá Dögun,“
sagði Ómar í gær.
SBG
Bflainnflutningur:
Biðröð eftir nýjum bílum
Lítið er til af mest seldu bif-
reiðategundunum í landinu
um þessar mundir. Bifreiða-
innflytjendur gerðu almennt
ekki ráð fyrir þeirri miklu
eftirspurn eftir nýjum bílum
sem hefur verið á árinu, og
töldu flestir að um samdrátt
yrði að ræða á markaðinum.
Annað hefur komið á daginn.
Fram hefur komið að mikið
seldir bílar, t.d. Mitsubishi og
Toyota, eru alveg á þrotum hjá
umboðunum. Hjá Heklu hf. eru
Lancer, Colt, L300 og Pajero
uppseldir, og aðeins til nokkrir
Galant-bílar. Ekki er von á
nýrri sendingu fyrr en í haust,
að sögn sölumanns í Reykjavík,
og rnargt fólk á biðlistum. Hjá
Toyota umboðinu, P. Samúels-
son & Co. hf., fengust þær upp-
lýsingar að bílasendingar næstu
tveggja mánaða væru þegar
seldar eða fyrirfrain pantaðar,
en þó gætu þeir afgreitt einn og
einn bíl þegar kaupendur hætta
við. En ástandiö er þannig að
t.d. Land Cruiser er allt að því
ófáanlegur.
Hjá Ingvari Helgasyni hf. er
ástandið þannig að allir bílar
sem fyrirtækið fær á næstunni
eru þegar seldir. Ekki einn ein-
asti nýr Subaru eða Nissan er
t.d. til sölu á Akureyri, þeir síð-
ustu fóru fyrir viku og langir
biðlistar eru eftir bæði fólksbíl-
um og jcppum. Svo virðist sem
eins konar kaupæði hafi allt að
því gripið um sig, og umboðið
hefur ekki haft undan.
Júlíus Vífill Ingvarsson,
framkvæmdastjóri, segir að í
janúar, þegar innflytjendur
voru að panta, hafi þeir staðið
frammi fyrir óvissu í efnahags-
máium, samningar hafi verið
lausir og margir jafnvel óttast
vinnustöðvanir. Því hafi verið
farið varlega í að panta, en eng-
inn hafi gert ráð fyrir þeirri
miklu sölu og eftirspurn sem
varð. „Við getum afgreitt Niss-
an í næsta rnánuði, en Subaru
Legacy ekki fyrr en í ágúst.
Nissan Patrol er líka uppseldur.
Fernra dyra Pathfinder selst
mikið í Bandarikjunum og það
hefur áhrif á íslandi, því hér
fylgjast menn svo Vel með bíla-
markaðinunt vestra,“ segir Júlí-
us Vífill. EHB