Dagur - 22.06.1990, Page 7
Föstudagur 22. júní 1990 - DAGUR - 7
5 í brennidepli
Ég rek mig alls staðar á, ég
þekki ekki lengur neitt í þessu
vatni.
Að orsökin geti verið nokkur
önnur en breytt byggðaþróun og
atvinnuþróun er útilokað. Ég er
sannfærður um, að ef þessu held-
ur áfram, þá er lífríki Mývatns
búið að vera.
Efnaiðnaður, þorpsmyndun og
ferðamannastraumur er valdur
þessa alls.
Ég vil taka fram að Kísiliðjan,
þessi bölvaldur lífríkisins, má
aldrei fá ný svæði til að dæla upp
úr. Kísiliðjan má aldrei fá rétt-
indi til vinnslu fyrir sunnan
Teigasund.
Helgi Jóhannesson, náttúru-
fræðingur, sem rannsakað hefur
setlagaflutninga í Mývatni hefur
komist að þeirri niðurstöðu, að
öll lífríkisleðjan hefur skriðið af
stórum svæðum ofan í skurðina,
sem myndast hafa við dælinguna
og eftir stendur eyðimörk,
sandur og aska. Óvíst er hversu
langur tími líður þar til þessi
svæði verða einhvers virði fyrir
lífríkið. Örugglega nokkur ár-
hundruð þar til svæðin verða
nýtileg fugli.
Við skulum athuga eitt. Það
fólk, sem vinnur við Kísiliðjuna
og hefur afkomu sína af henni,
rengir allt það sem við gömlu
reyndu mennirnir segjum og
raunar einnig það sem líffræðing-
arnir segja. Líffræðingarnir hafa
aldrei fengið að starfa eðlilega,
heldur eru þeir bakbitnir og
rægðir, því þeir hafa ekki getað
neitað því, að þeir hafa komist að
uggvænlegum hlutum,“ sagði
Starri í Garði. ój
Sigurður Rúnar Ragnarsson: „Ég er sannfærður um að lífríkið mun rísa aftur.“
Þorgrímur Starri Björgvinsson: „Ef þessu heldur áfram þá er lífríki Mývatns
búið að vera.“
kölluð veiðileysisár fyrr á öldum,
myndu kallast blómaár nú.“
Eg þekki ekki lengur neitt
í þessu vatni
„Sama er með fuglinn. Á árum
áður var margfalt magn af fugli á
Mývatni, en nú hefur hátterni
hans breyst á síðari árum. Varp-
stöðvarnar hafa flust frá Mý-
vatni norður að Sandvatni og
varpið hér suður um er svo til
ekkert. Ég hef fylgst með þessu.
Hér sést ekki einu sinni kría. Hér
er ekkert varp og enginn fugl,
sem tekur að nefna.
Tíminn læknar öll sár
„Fuglatalningar eru nýafstaðnar
og nú er fuglinn sestur upp í
varpið. Á þessum tíma er hann
ekki áberandi á vatninu, en fyrst
á vorin er hann mjög áberandi,
þegar bæði kynin eru í fæðuleit.
Hinsvegar þykir mér ekkert
óeðlilegt að fuglinn sé ekki mjög
þéttur, þrátt fyrir mikið æti, því
viðkoman hefur verið svo léleg
síðustu árin. Tíminn læknar þessi
sár sem önnur.
Við sáum í vor að fuglinn kom
á vatnið um mánaðamótin apríl-
maí. A nokkrum dögum fylltust
eyðurnar af fugli. Þá var einna
stærsta eyðan eða vökin á Ytri-
Flóa á því svæði sem dælt hefur
verið úr og fuglinn var mest úti á
því svæði, sem lengst er síðan að
dælt var úr. Þar var hann að kafa
og afla sér fæðu, enda er þetta
svæði ekki djúpt samkvæmt
mælingum, því meðaldýpt er 267
cm á öllu því svæði sem unnið
hefur verið á síðastliðin tuttugu
ár. Þetta kippir stoðunum undan
því að í kjölfar dælingar fylgi
djúpt vatn og gróðurlaus botn. í
fyrsta lagi er þetta ekki djúpt
vatn og í öðru lagi verðum við
varir við að gróður er að nema
land í stórum stíl á þeim svæðum
sem eru elst. Landnám er í gangi
á dældu svæðunum. Vatnaplönt-
ur í Mývatni sá sér með fræjum,
ekki með rótarskoti.
Veiði í vetur var þokkaleg
undir ís miðað við undanfarna
vetur, ekki sambærileg við það
sem er best. Mikill snjór var á
ísnum í allan vetur og við þær
aðstæður hefur ætíð gengið illa
að veiða í net.
Nú þegar vorstoppinu lauk, þá
fór að veiðast aftur og ekki hefur
verið betri veiði í vatninu en á
þeim svæðum sem dælingin hefur
farið fram á.
Þessi barátta um lífríki
Mývatns er bardagi um almenn-
ingsálitið. Ég ætla að leiða hana
hjá mér, en ég er sannfærður um
að lífríkið mun rísa aftur úr þeirri
lægð sem það er í. Ég vona að
menn geti þá litið á málið í heild
og horft víðar en að beina
kröftunum að finna einn söku-
dólg. Það þarf víðsýni til að
stunda rannsóknir á flókinni líf-
keðju og ég trúi og treysti að þeir
sem hafa valist til þessara rann-
sókna sem hér fara fram hafi þá
víðsýni og færni sem til þarf,“
sagði Sigurður Rúnar. ój
A VERi
Höldur - sölude
^^aíurinn Tryggv
Comby Camp
tjaldvagnar
Sólhúsgögn
Sjáið þau uppsett
í salnum.
____________________y
Coleman
fellihýsi,
vönduð með
innbyggðri
miðstöð.
Góðir greiðsluskilmálar,
bestu kaupin
í dag kr.
390 þús.
jijSi? S ÍÍÍIÍÍÍ j|iif
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 23. júní
STYRMING
ásamt Herði G. Ólafssyni
sjá um sveifluna
fram eftir nóttu
Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200.
SULNABERG
í sumar er opið frá kl. 08.00 til kl. 22.00.
★
HÖFÐABERG
veitingasalur II. hæð.
NÝ SÉRRÉTTASEÐILL
mm
ii
Hótel KEA
fyrir ve/ heppnaöa veislu
J