Dagur - 22.06.1990, Síða 9
Föstudagur 22. júní 1990 - DAGUR - 9
Minning:
X Stefán Kr. Snælaugsson
Fæddur 27. júní 1916 - Dáinn 19. maí 1990
Góður vinur minn, Stefán Snæ-
laugsson, er farinn í sína hinstu
för. Hann lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri þann 19. maí
sl. , þrotinn að kröftum eftir lang-
varandi veikindi.
Með Stefáni er genginn einn sá
besti drengur sem ég hef kynnst.
Pað er stundum sagt að allir séu
góðir þegar þeir hafa kvatt þenn-
an heim, en um Stefán Snælaugs-
son verður aldrei annað sagt, en
að hann hafi verið góður maður
allt sitt líf. Hann var sérstakt
prúðmenni, hæglátur, hógvær og
stilltur. Alltaf svo einlægur og
glaðlegur, andlit hans geislaði
ævinlega af alúð og hjartahlýju
og hann bar með sér innri ró og
góðvild. Mótlæti og erfiðum
veikindum sínum tók hann með
æðruleysi og stillingu og hann
heyrðist ekki kvarta, þótt augsýni-
lega væri hann þjáður, það var
alltaf einhver annar sem hafði
meiri þörf fyrir meðaumkun og
aðhlynningu en hann.
Stefán starfaði að málum Góð-
templarareglunnar og var æðsti-
templar í stúkunni Akurliljan á
Akureyri. Einkunnarorð regl-
unnar „í trú, von og kærleika",
gátu allt eins verið hans eigin. Ég
starfaði í mörg ár með Stefáni í
Reglu Musterisriddara og þar
kynntist ég honum vel. Hann var
okkur yngri bræðrunum fyrir-
mynd hvað varðar trúmennsku,
heiðarleika og mannkærleika.
Það er gott dæmi um áhrif sterks
persónuleika hans, að sonur hans
og tveir tengdasynir gengu í
Regluna og störfuðu þar við hlið
hans í þeim góða anda sem hon-
um var svo eðlislægur.
Stefán var kvæntur Ólafíu
Halldórsdóttur, mikilli ágætis-
konu, sem alla tíð stóð við hlið
hans eins og klettur og bar með
honum byrðarnar fram til hinstu
stundar. Hún er ekki fyrirferð-
armikil kona hún Ólafía, en
prúðmennska hennar og mann-
gildi vekur athygli hvar sem er.
Hún ól manni sínum 7 börn, sem
öll eru komin vel til manns og
þau bera þess glögglega merki,
að vera alin upp í ástríki og kær-
leika og bera þau foreldrum sín-
um gott vitni. Þau hjónin gengu
hljóðlátum skrefum eftir ævistíg-
um sínum og bárust ekki á, en
þau vöktu athygli hvar sem þau
voru, einmitt fyrir þær sakir.
Stefán stundaði sjóinn mestan
hluta starfsævi sinnar, en síðustu
árin var hann húsvörður í Hús-
mæðraskólanum á Akureyri, eða
þar til aldur og heilsuleysi stöðv-
uðu hann. Það var stór hópur
ættingja og vina þeirra hjóna,
sem kvaddi Stefán Snælaugsson í
Akureyrarkirkju mánudaginn 28.
maí sl. og mátti af því sjá, að það
voru fleiri en ég sem þótti vænt
um þennan góða dreng og mátu
hann að verðleikum.
Megi minning hans lifa og vera
okkur hinum áminning um, að
það er hið innra gildi sem gefur
hamingjuna. Árni Valur.
tMinning:
Sigurrós Finnbogadóttir
Kópaskeri
Fædd 22. október 1918 - Dáin 15. júní 1990
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Sömuleiðis sendum við hjónin
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
biðjum Guð að styrkja ykkur í
sorg ykkar. Bogi Pétursson,
Ástjörn.
Þegar ég með mínum fátæku orð-
um sest niður til að minnast Rósu
sem við á Ástjörn kölluðum
ávallt Rósu ráðskonu þá kemur
fyrst í huga minn að það var í
Lækjargötu 3 sem ég fyrst kynnt-
ist Rósu og Halldóri þar sem for-
eldrar mínir keyptu efri hæð
hússins en Halldór og Rósa neðri
hæðina. Það er ekki vandalaust
að búa svona í stóru timburhúsi.
En í dag hugsa ég um það að ég á
aðeins góðar minningar um þá
sambúð.
Það var einmitt á þessum árum
sem Rósa vann mikið á sjúkra-
húsinu og minntist ég þess að hún
vakti mikið og var eftirsótt til að
vaka yfir þeim sem þjáðir voru og
ég veit að þar hafa kærleikshend-
ur hennar hlúð vel að þeim sem
háðu sína síðustu baráttu. í mín-
um huga var Rósa sérstök gæða-
kona. Það má því segja að það
hafi verið éitt hið mesta happ
sem henti okkur Ástirninga þeg-
ar hún kom til okkar sem ráðs-
kona. Þau 11 ár sem við fengum
að njóta þess að hafa hana hér að
Ástjörn verða ógleymanleg. Sá
kærleikur sem við öll fengum að
reyna og njóta mun ávallt verma
hug okkar og hjarta og sú mynd
sem við geymum er dýrmætari en
gull og gersemar.
Rósa var sérlega lagin að
hjálpa þeim drengjum sem áttu
við ýmis vandamál að stríða og
margir drengjanna hugsa með
miklu þakklæti til hennar fyrir
allt bæði smátt og stórt.
Við hjónin höfum margs að
minnast og alltaf var jafn nota-
legt að koma til Rósu og Dóra,
þessar stundir eru nú dýrmæt
minning.
Síðari árin hafa verið erfið fyr-
ir Rósu, hún bar allt með hreysti
og þolinmæði uns yfir lauk. Rósa
er horfin sjónum okkar en
minningin um góða konu sem gaf
okkur svo mikið er geymd og
gleymist ekki þó árin líði.
Við Ástirningar minnumst
hennar með þökk og virðingu og
sendum öllum sem sárt sakna,
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Arnarsíðu 12b, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinn Æ. Stefánsson, mið-
vikud. 27. júní 1990 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Björn Jósef Arnviðarson hdl.,
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnés hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl.
og Benedikt Ólafsson hdl.
Borgarhlíð 6a, Akureyri, þingl. eig-
andi Jakob Jóhannesson, miðvikud.
27. júní 1990 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Guðjón
Ármann Jónsson hdl. og innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Fögrusíðu 13b, Akureyri, þingl. eig-
andi Stjórn verkamannabústaða,
miðvikud. 27. júní 1990 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Glerárgötu 14, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eigandi Tryggvi R. Guðjóns-
son o.fI., miðvikud. 27. júní 1990 kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnes hrl., Guðmundur Kristjáns-
son hdl., innheimtumaður ríkis-
sjóðs, Hróbjartur Jónatansson hdl.
og Benedikt Ólafsson hdl.
Hafnarstræti 29, efri hæð, Akureyri,
talinn eigandi Vilhjálmur Halldórs-
son, miðvikud. 27. júní 1990 kl.
14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnes hrl. og Ólafur Birgir Árnason
hdl.
Hrísalundi 16d, Akureyri, talinn eig-
andi Guðni Jónsson, miðvikud. 27.
júní 1990 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Kaupangi v/Mýrarveg, o-hl., Akur-
eyri, talinn eigandi Tryggvi Rúnar
Guðjónsson, miðvikud. 27. júní
1990 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Björn
Jósef Arnviðarson hdl., Gjaldskil sf.,
Guðmundur Kristjánsson hdl.,
Gunnar Sólnes hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Hróbjartur Jónatans-
son hdl., Benedikt Ólafsson hdl. og
Ólafur Gústafsson hrl.
Klettagerði 4, Akureyri, þingl. eig-
andi Erlingur Þorsteinsson, mið-
vikud. 27. júní 1990 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Guðjón
Ármann Jónsson hdl., Gunnar Sól-
nes hrl. og Björn Jósef Arnviðarson
hdl.
Mið-Samtúni, Glæsibæjarhr., þingl.
eigandi Ingi Guðlaugsson, mið-
vikud. 27. júní 1990 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Ólafur
Birgir Árnason hdl. og Stofnlána-
deild landbúnaðarins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Karlsbraut 17, Dalvík, þingl. eigandi
Sverrir Sigurðsson, fimmtud. 28.
júní 1990 kl. 14.00
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs og
Gunnar Sólnes hrl.
Sæbóli, Dalvík, þingl. eigandi Hauk-
ur Tryggvason, fimmtud. 28. júní
1990 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Eggert B. Ólafsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
Furuvöllum 13 600 Akureyri Sími 96-24655.
Kennsluráðgjafi
Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra
vill ráða sérkennara í kennslufræðilega ráðgjöf.
Um er að ræða tvær hálfar stöður önnur á Fræðslu-
skrifstofunni á Akureyri en hin á Húsavík.
Varðandi starfið á Húsavík er æskilegt að viðkom-
andi kenndi jafnframt hálft starf við grunnskóla
Húsavíkur.
Upplýsingar gefur fræðslustjóri í síma 96-24655.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra,
Furuvöllum 13, 600 Akureyri fyrir 15. júlí 1990.
Frá fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra.
Lausar stöður
við grunnskóla
Umsóknarfrestur til 13. júlí.
Kennarastaða við Starfsdeild Löngumýri 15.
Kennarastöður við Bröttuhlíðarskóla.
Umsóknir um eftirtaidar áður auglýstar stöður framlengist
til 1. júlí.
GRUNNSKÓLAR AKUREYRAR: Almennar kennarastöð-
ur, sérkennsla, vélritun, smíðar, myndmennt, tónmennt.
HÚSABAKKASKÓLI: Almenn kennarastaöa.
GRUNNSKÓLI SVALBARÐSSTRANDARHR.: Almenn
kennsla, handmennt, heimilisfræði.
HAFRALÆKJARSKÓLI: Almenn kennarastaða, líffræði,
handmennt.
GRUNNSKÓLINN ÞÓRSHÖFN: Almenn kennsla, raun-
greinar, tölvur.
GRUNNSKÓLI SVALBARÐSHREPPS: Staða skólastjóra,
almenn kennsla
GRUNNSKÓLINN RAUFARHÖFN: Almenn kennsla,
íþróttir, tónmennt.
BARNASKÓLI ÓLAFSFJARÐAR: Almenn kennsla,
tónmennt, hannyrðir, myndmennt.
GRENIVÍKURSKÓLI: Almenn kennsla, enska,
handmennt, íþróttir.
BARNASKÓLI HÚSAVIKUR: Almenn kennsla.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
Skrifstofustarf
Fyrirtæki á Akureyri óskar eftir að ráða vanan
starfskraft í heilsdagsstarf við almenn skrifstofustörf
s.s. bókhaldsvinnu á tölvu, launaútreikninga, síma-
vörslu, innheimtur og fleira.
Vinnutími frá 8-16 eða 9-17 eftir samkomulagi.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn upplýsingar á af-
greiðslu Dags merktar „Skrifstofustarf" sem fyrst.
Grunnskólinn á Þórshöfn
íþróttakennarar -
Grunnskólakennarar
íþróttakennara og einn grunnskólakennara vantar
að Grunnskólanum á Þórshöfn.
Góðir kostir í boði um íbúðarhúsnæði og búslóða-
flutninga.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra, sími 96-81153.
Skólanefnd.
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps er laust
til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist oddvita Vopnafjarðarhrepps Lónabraut
41, sími 97-31108.
Oddviti Vopnafjarðarhrepps.