Dagur - 21.08.1990, Síða 13
Þriðjudagur 21. ágúst 1990 - DAGUR - 13
þvottinn, þvoði hún hann þá fyrir
mig og gekk frá honum að öllu
leyti.
Þannig var Kristín, kærleiks-
rík, hjálpsöm og greiðvikin.
Foreldrum mínum reyndist
hún ætíð sem góð dóttir og vinur
í raun, þau síðustu ár sem þau
lifðu í Garði.
Kristín gekk ekki heil til skóg-
ar hin síðari ár en sjúkleika sinn
bar hún alltaf með sama hetju-
skap, hún kvartaði aldrei. Alltaf
bar hún þetta hlýja bros á andlit-
inu, sem yljaði öðrum sem vissu
og skildu hvað hún hlaut að líða
af þeim sjúkdómi sem þjáði hana
svo að hún studdist við tvær
hækjur.
En þú lést aldrei bugast, Kristín
mín, þú stóðst af þér alla storma
lífsins eins og hetja. Þú ert nú
komin yfir landamærin miklu og
við söknum þín. En við látum
orð Guðs hugga okkur.
I. Þessalonikubréf 4: 13-14-18.
„Ekki viljum við bræður láta
yður vera ókunnugt um þá, sem
sofnaðir eru, til þess að þér séuð
ekki hryggir eins og þeir, sem
ekki hafa von. Því að ef við trú-
um því, að Jesús sé dáinn og upp-
risinn, þá mun Guð sömuleiðis
fyrir Jesúm leiða fram ásamt hon-
um þá sem sofnaðir eru. - Hugg-
ið því hver annan með þessum
orðum.“
Við kveöjum þig Kristín mín
og þökkum þér fyrir allt.
Isól Karlsdóttir.
Pústþjónusta
Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða.
Pakkningar, klemmur, upphengjur.
Fast verð fyrir pústkerfaskipti.
Höfum fullkomna beygjuvél.
Ryðvarnarstöðin sf.
Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri.
tMinning:
Guðbjörg Benidikta Kristinsdóttir
Fædd 24. september 1938 - Dáin 12. ágúst 1990
Mig setti hljóða þegar ég frétti lát
Guggu vinnkonu niinnar. Hún
hafði hringt í mig daginn áður og
var þá stödd á Sauðárkróki, en
þar lést hún réttum sólarhring
síðar.
Ég kynntist Guggu fyrir tveim
árum þegar þau hjónin gengu í
Félag húsbílaeigenda. Þau urðu
strax virkir félagar og fóru í allar
ferðir eftir það.
Kynni okkar Guggu voru ekki
löng, en það voru góð kynni.
Alltaf var hún hress og kát og
boðin og búin að rétta öðrum
hjálparhönd. Ég minnist sérstak-
lega síðustu ferðarinnar sem við
fórum saman. Það var ferð til
Egilsstaða um verslunarmanna-
helgina. Við vorum samferða
austur og daginn eftir var farið í
Mjóafjörðinn. Þegar komið var
aftur til Egilsstaða hafði Gugga
orð á því að nú væri hún farin að
sjóast og hefði ekkert verið
smeyk að fara þctta þó að vegur-
inn væri bæði brattur og krókótt-
ur.
Það var aldrei lognmolla þar
sem Gugga var. Hún sá alltaf
björtu hliðarnar á iífinu.
Við Bragi kveðjum vinkonu og
frænku með þakklæti og sendum
aldraðri móður, Gylfa og börn-
um samúðarkveójur.
Bebba og Bragi.
Þjóðhagsstofnun:
Úttekt á afkomu fyrir-
tækja árin 1988 og 1989
Þjóðhagsstofnun hefur nú lokið
við úrvinnslu úr ársreikningum
709 fyrirtækja úr flestum atvinnu-
greinum fyrir árið 1989. Til
samanburðar eru birtar niður-
stöður sömu fyrirtækja fyrir árið
1988. Helstu niðurstöður eru þær
að hagnaður af reglulegri starf-
semi fyrirtækjanna í heild, sem
hlutfall af tekjum, hefur aukist
um 1,1% frá árinu 1988 eða frá
því að vera enginn 1988 í 1,1%
1989. Eiginfjárhlutfall fyrirtækj-
anna í heild er óbreytt milli ára
eða 13%. Án banka- og trygg-
ingastarfsemi er eiginfjárhlutfall í
árslok 1989 24% og hefur lækkað
úr 25% í árslok 1988.
Ferðamálaráð:
Ræður forstöðu-
mann New York-
skrifstofú
Ferðamálaráð íslands hefur ráðið
Einar Gustavsson í starf for-
stöðumanns skrifstofu ráðsins í
New York. Einar mun hefja störf
1. september nk. Einar Gustavs-
son var um margra ára skeið
sölustjóri Loftleiða og síðar Flug-
leiða í Bandaríkjunum. Undan-
farin 2 ár hefur hann verið for-
stöðumaður sölusviðs Flugleiða.
Skrifstofa Ferðamálaráðs í
New York er starfrækt í náinni
samvinnu við ferðamálaráð hinna
Norðurlandanna.
Samfara þessari breytingu
verður einnig sú breyting að auk
ferðamálaráðs munu fyrirtæki og
hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu
leggja fram fjármagn til markaðs-
starfseminnar í Bandaríkjunum.
Flugleiðir, Reykjavíkurborg og
SVG hafa þegar ákveðið að taka
þátt í þessu átaki á næstu árum.
Afkoma hefur breyst nokkuð
mismunandi. Afkoma fyrirtækja
í almennum iðnaði, byggingar-
iðnaði og samgöngum hefur
versnað. Afkoma fyrirtækja í
sjávarútvegi, verslun, banka- og
tryggingastarfsemi og þjónustu
og veitingastarfsemi hefur hins
vegar batnað. Hafa verður í huga
að hér eru atvinnugreinar mikið
dregnar saman. Þjóðhagsstofnun
mun síðar á árinu gefa úr árs-
reikningaskýrslu þar sem nánar
verður fjallað um afkomubreyt-
ingu milli áranna 1988 og 1989.
Þar verða bæði fleiri fyrirtæki í
úrtaki og nánari sundurliðun eftir
—
atvinnugreinum. í mars á þessu
ári gaf Þjóðhagsstofnun út
skýrslu um ársreikninga fyrir-
tækja 1987 og 1988 þar sem fjall-
að var um afkomubreytingu 1180
fyrirtækja.
DAGUR
Akurcyri
S96-21M
Norölenskt dagblað
A
Dagblaöið Dagur og
Fiðlarinn/Bláhvammur efna til
Tvímenningskeppni
í bridge
í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. ágúst.
Áætlað er að keppni hefjist kl. 9.00.
Spilaður verður barómeter, 2 spil á milli para.
Þátttökugjald kr. 3.000,- á par.
Léttar veitingar verða á boðstólum allan daginn
og veitt verðlaun fyrir 3 efstu sæti.
Hámarksþátttaka er 32 pör og því vissara
að tryggja sér spilarétt sem fyrst,
en mótið er öllum opið.
Þátttaka tilkynnist til:
Jakobs í síma 24171 á kvöldin,
Frímanns í síma 21830 á kvöldin, 24222 á daginn
eða Gunnars í síma 21503 á kvöldin, 26337 á daginn.
Viijum ráða
laghentan mann
eða mann vanan hjólbarðaviðgerðum.
Uppl gefur verkstjóri í síma 26776.
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
Staðarskáli
óskar að ráða starfskrafta.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefa Bára eða Magnús í síma 95-
11150, Staðarskáli.
Atvinna á Húsavík
Starfsmann vantar að íþróttahúsinu á Flúsavík frá 1.
sept. nk. til áramóta.
Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 23. þessa
mánaðar og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstof-
una á Húsavík á eyðublöðum sem þar fást.
Bæjarstjórinn á Húsavík.
STEFÁN JÓHANNESSON,
andaðist þriðjudaginn 14. ágúst að Hjúkrunarheimilinu Hlíð.
Jarðaförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 23. ágúst
kl. 13.30.
Börnin.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
LEIFUR ÁSGEIRSSON,
prófessor,
lést á Borgarspítalanum 18. ágúst.
Hrefna Kolbeinsdóttir,
Kristín Leifsdóttir,
Hrefna Indriöadóttir, Einar Indriðason,
Ásgeir Leifsson, Helga Ólafsdóttir,
Leifur H. Ásgeirsson, Ylfa S. Ásgeirsdóttir.
Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför,
GESTS KRISTJÁNSSONAR,
bónda frá Múla.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Húsa-
víkur.
Guð blessi ykkur.
Heiðveig Sörensdóttir
og vandamenn.
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem með
samhryggð og vinarhug studdu okkur á einn eða annan hátt
við andlát og útför,
KRISTÍNAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Skarðshlíð 4d, Akureyri.
Öllu starfsfólki Lyfjadeildar FSA sendum við alúðarþakkir fyrir
einlæg störf og hjartahlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Nývarð Jónsson,
Hreinn Bernharðsson, Guðrún Þorvaldsdóttir,
Kári Ólfjörð, Sigrún Ingólfsdóttir,
Guðfinna Nývarðsdóttir, Óli Þór Ástvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.