Dagur - 01.09.1990, Page 5

Dagur - 01.09.1990, Page 5
Laugardagur 1. september 1990 - DAGUR - 5 Grímsejjarævintýri - heljarátök við heimskautsbaug Kraftlyftingafélag Akureyrar stóð fyrir því merkilega framtaki í samráði við Kraftlyftingasamband íslands að halda bekkpressumót í Grímsey, laugardaginn 25. ágúst sl. - Þetta er fyrsta og eina íþróttamótið sem fram hefur farið í eynni frá því byggð hófst þar fyrir þúsund árum. 10 litlir negrastrákar Hugmyndin að þessu ævintýri kviknaði aðeins 2-3 vikum áður en það varð að veruleika. Van- trúarsvipur færðist yfir furðu lost- in andlit manna fyrst þegar þetta var rætt við þá. Engu að síður var vel tekið í þetta og fjöldi manns lofaði sér í förina. Margir hættu þó við á síðustu stundu sökum skorts á fórnfýsi og djarfleika auk ímyndaðrar hræðslu við ferða- kostnað, sem var aðeins um 2.500 kr. á mann. Munaði þar mest um góðan samning við Flugfélag Norðurlands og auglýs- ingastyrk frá Jöfri hf. vegna heimsmets Njáls Torfa „Vest- fjarðaskelfis" er hann dró 4 Skóda bíla með einum fingri. Þegar upp var staðið var ljóst að hópurinn yrði 10 manns. Frá Akureyri komu: Rúnar Friðriks- son, Kári Elíson, Helgi Jónsson, Jóhann Guðmannsson, Kristján Falsson, Jóhann Sigurðsson og Inga Harðardóttir heitmey Rúnars. Frá Reykjavík komu þeir Baldvin Skúlason, Ármann Birgisson og Njáll Torfason. óþreyjufullir ungliðar, þeir Helgi „magri“ og Jóarnir tveir höfðu haldið af stað með ferjunni frá Dalvík daginn áður sökum mis- skilnings. Þegar eyjarskeggjar sáu þessa þrjá á föstudeginum ráku þeir upp stór augu því þeim fannst strákarnir ekkert sérstak- lega hrikalegir útlits og veltu því fyrir sér hvort hinir ókomnu væru svipaðir í sjón... Hressilegur hreppstjóri Þegar við lentum í Grímsey eftir hálftíma flug tók á móti okkur yfirsakarvald Grímseyjarhrepps, Bjarni Magnússon hreppstjóri Árekstur í óbyggðum Undirritaður sem staddur var í Davíðs-borg slóst í för ineð Reykvíkingunum á föstudegin- um, en lagt var af stað norður kl. tvö e.h. á Toyota tryllitæki í eigu Ármanns. Ökuferðin gerðist nú heldur tíðindalítil uns við kom- um í V.-Húnavatnssýslu. Þar er nýleg og nægjusöm brú yfir Víði- dalsá. Þar mættum við á brúnni meinleysislegum smábíl. - Gall- inn var bara sá að brúin var ekki gerð fyrir herðabreiða menn... og skyndilega varð árekstur óum- flýjanlegur... - CRASH! - Það meiddist enginn en skemmdir urður nokkrar m.a. fór bretti af bíl andstæðinganna í small og „skelfirinn" reif það alveg af með tveim fingrum og fleygði því út í á. Til Akureyrar komum við seint um kvöldið og gistum þar. Ekki nógu hrikalegir Kl. 9 morguninn eftir flugum við í frábæru veðri áleiðis til Gríms- eyjar, eyju norðursins... Reynd- ar vorum við aðeins sjö, því þrír sem við fljótlega nefndum ein- faldlega bara „hreppa" sökurn alþýðlegrar og hressilegrar fram- komu hans. Hann var mættur á flugvöllinn á 12,5% bílaflota eyjarinnar eða einum gjörvileg- um vörubíl, en bílar í Grímsey eru víst 8 fyrir utan nokkrar dráttarvélar. Við hentum farangrinum upp á pallinn og hristumst á þessu farartæki til fél- agsheimilisins þar sem lífæð þessa 120 manna samfélags liggur. „Hreppi" sagði okkur t.d. eina sögu af einunt vörubíl eyjar- skeggja fyrr á öldinni. Sá bíll var oft erfiður í gang en eitt Gríms- eyjartröllið þess tíma dró þá vörubílinn upp brekku og ýtti honum svo í gang niður brekk- una aftur... Erum engar eldhúsmellur í félagsheimilinu Múla var okkur tekið með kostum og kynjum. F.v.: Helgi Jónsson, Jóhann Sigurðsson, Ármann Birgisson, Njáll Torfason, Rúnar Friðriksson, Baldvin Skúlason og Jóhann Guðmann. Kristján Falsson, yfirdómari, situr og snýr hægri síðunni að myndavélinni. Ármann Birgisson (saklaus áhorfandi), Baldvin Skúlason (með sleggjuna) og Njáll „Vestfjarðaskclfir“ Torfason (fórnarlambið). í Grímsey liggja vegir til allra átta. Frá vinstri: Kristján, Kári, Njáll, Ármann, Baldvin og Rúnar. Ljósmyndir: inga Björk Rúnar Friðriksson sýnir hvað í honum býr. Tvær dávænar dömur (reyndar úr landi) svokallaðar „Dalvíkur- draumar" sáu alfarið um allan viðurgcrning okkar í „Féló". Þær byrjuðu á því að elda handa lið- inu klassa-máltíð sem var eins- konar vörumerki þeirra meðan á dvöl okkar stóð. - Kári villtist um þetta leyti inn í eldhús og sagði við þær: „Þið eruð bara hörku eldhúsmellur!" - Og svarið kom um hæl: „Við erum engar eldhús- mellur, við erum pottapíkur!" Eftir mat fengu sumir sér létt- an göngutúr unt næsta nágrenni þar sem m.a. höfnin var skoðuð. Það kom okkur á óvart hversu miklar framkvæmdir voru í eynni, t.d. við flugvöllinn og það var verið að stækka og breyta höfninni. Eitt sinn nötraði Féló svo hrikalega að við héldunt að Kristján yfirdómari-„Daddi diet" sem vegur 122 kg hefði dottið úr rúmi, en þá var það aðeins eyjarskjálfti af sprengingarvöld- um í höfninni... Lyft yfír íslandsmetum Kl. 15 á laugardeginum setti Bjarni hreppstjóri mótið í Múla með léttum ræðustúf. Náðist strax góð stemmning meðal áhorfenda sem voru um 60 talsins og verður að teljast góð aðsókn norður á heimskautsslóð, þar sem lítið rúm gefst fyrir tóm- stundir og íþróttaiðkan. Gegnum aldirnar hafa þó innfæddir gripið í glímu og já, ísknattleik þar sem öflugasti eyjarskegginn notaði girðingarstaur sem kylfu á meðan aðrir notuðu venjuleg prik. Lyft var uppi á senu í þessu skemmtilega félagsheimili og náðist góður árangur í keppn- inni. Jóhann Sigurðsson eða „double joe“ 14 ára snáði setti íslandsmet drengja í bekknum 62,5 kg í 110 kg flokki. „Engi- sprettan" fielgi Jónsson „magri" bætti elsta íslandsmetið, 17 ára gamalt met Kára í 56 kg flokki 85 kg í 85,5 kg. Kári datt ekki af baki við þetta en lyfti 175,5 kg eða hálfu kílói yfir eigin íslands- meti í 75 kg flokki. Rúnar „fjósa- frömuður" jafnaði Akureyrarmet unglinga í 82,5 kg flokki og Jói Guðmanns og „Ármennið" Ár- mann Birgiss. settu persónulegt met. Baldvin „bekkur" lokaði síðan mótinu með glæsilegri 200 kg lyftu........ Úrslitin í Grímseyjar- bekkpressu 1990 Stigkeppni fulloróinna: Iþ. bekkur stig 1. Kári Elíson. AK. 74.95 175.5 116.61 2. Baldvin Skúlason. Rvk. 1(19.80 200.00 107.34 3. ÁrmannBirgiss., Rvk. 88.70 157.5 93,00 4. Njáll Torfason, Rvk. 87,00 125.0 74.72 Stigakeppni unglinga: 1. RúnarFriðriksson. AK. 78.90 120.0 76,72 2. Helgi Jónsson, AK. 55,40 85,5 75.69 3. Jóhann Guðmannss., AK. 71,30 95.0 65.76 4. Jóhann Sigurðsson, AK. 108,70 62,5 33.63 Mótinu var síðan slitið með há- tíðlegri athöfn þar sem innfædd fegurðardís afhenti verðlauna- gripi. Fjárlög íslands fengu út- reið Að móti loknu voru sýndar forn- ar aflraunir með endurbættu sniði „Vestfjarðaskelfisins" Njáls Torfa. „Skelfirinn" hitaði upp á því að rífa símaskrá í tætlur á örskömmum tíma, síðan þreif hann upp voldugan doðrant: Fjárlög Islands 1990 og reif þau snarlega í sundur og henti útgjöldunum en hélt tekjunum eftir - umhugsunarverð aðferð fyrir fjármálaráðherra... Að lok- um vopnvæddist Baldvin stærstu sleggjunni sem fyrir fannst á staðnum og braut nteð heljar- höggi tvær gangstéttarhellur sem lagðar höfðu verið á brjóst Njáls. Þegar „skelfirinn" skreiddist ómeiddur á lappir öskruðu Grímseyingar af hrifningu. í Grímseyjarfrumskógi Um kvöldið lék fyrir dansi hin öfluga hljómsveit Three Amigos frá Dalvík en áður en haldið var á ballið mætti Bjarni „hreppi“ í Féló og dró liðið í gönguíerð þar sern hann sýndi ókkur fyrsta alvöruátakið í trjárækt eyjarinn- ar frá aldaöðli. „Hreppi" og frú hans hafá nýlega gróðursett yfir 150 trjáplöntur vestanvert á eynni og þarna um kvöldið var þessu átr.ki gefið nafnið: Grírns- eyjarfrumskógur. Á hádegi á sunnudag var ætl- unin að fljúga heim á leið en þá brugðu veðurguðirnir á leik og allt varö ófært. Á mánudeginum komumst við þó á braut og gekk heimleiðin áfallalaust fyrir sig. Þar með var lokið þessari óvenju- legu íþróttaför sem gleymist seint þeint sem þátt tóku og enn einn merkiskaflinn hefur verið skrifaður í Grímseyjarsögu íslandsbyggðar. Kári Elíson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.