Dagur - 01.09.1990, Qupperneq 20
Hlutafjárútboð í Útgerðarfélag Akureyringa:
Akureyrarbær nýtir
helming forkaupsréttar
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
í fyrradag að notfæra sér for-
kaupsrétt á helmingi þess
hlutafjár sem bærinn hefur rétt
á í hlutafjárútboði sem nú fer í
hönd. Þetta útboð er 50
milljónir að nafnverði og þar
sem bærinn á um 70% í fyrir-
tækinu hefur hann forkaups-
rétt að um 35 milljónum.
Pær 50 milljónir króna í liluta-
fé sem nú eru boðnar út er fyrri
helmingur hlutafjáraukningar
sem samþykkt var á aðalfundi í
Útgerðarfélagi Akureyringa í
apríl sl. Hluthafar í fyrirtækinu
þurftu að svara fyrir daginn í dag
hvort þeir ætluðu að nýta sér
forkaupsrétt samkvæmt hluta-
fjáreign sinni í fyrirtækinu.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs, segir að sam-
kvæmt þessari ákvörðun bæjar-
ráðs muni Akureyrarbær kaupa
hlutabréf fyrir um 17 milljónir
króna að nafnvirði. Hlutabréfin í
Útgerðarfélaginu eru á genginu
2,4 þannig að fyrir þessi bréf
borgar bærinn um 40 milljónir
króna. Samkvæmt þessari ákvörð-
un mun því eignarhlutur bæjarins
í fyrirtækinu minnka.
Akureyrarbær hefur með þess-
ari ákvörðun gefið Akureyring-
um og öðrum kost á að fjárfesta í
Útgerðarfélagi Akureyringa og
væntanlega verður ljóst innan
tíðar hversu mikið af sínum for-
kaupsrétti aðrir eigendur í fyrir-
tækinu nýta sér.
Sigurður segist vænta þess að
seinna útboð á hlutafé í ÚA verði
í beinu framhaldi af þessu
útboði. Aðspurður um hvenær
vænta megi hlutabréfa í ÚA á
almennan markað segir hann að
reiknað hafi verið með því um
miðjan september. JÓH
Heimir Ingimarsson, formaður Búseta á Akureyri, tók í gær fyrstu skóflustunguna að byggingu tíu Búseta-íbúða í
Giljahverfi á Akureyri. Gengið hefur verið frá samningum við verktakafyrirtækið SS-Byggi um byggingu íbúðanna.
Gert er ráð fyrir að hefjast strax handa við framkvæmdir. Mvnd: Goiii
Hefur álveri verið valinn staður á Keilisnesi?
„Ætla þessum möimmn ekki að
draga málsaðila á asnaeyrunmn“
- segir Halldór Jónsson og vísar til nýafstaðins fundar
forstjóra Atlantal-fyrirtækjanna með verkalýðsforingjum
Kartöíluupptaka
hefst senn:
Uppskeran
stefiiir í
meðallag
- spáir Bergvin Jóhanns-
son, bóndi á Áshóli
„Kartöfluupptakan cr ekki
byrjuð en undirbúningur er
kominn á fullan skrið. Upp-
skeran virðist ætla að vera í
meðallagi góð en veðurfarið
næstu daga mun ráða miklu
um hana,“ sagði Bcrgvin
Jóhannsson, kartöflubóndi
á Áshóli í Grýtubakka-
hreppi.
Bergvin segir að kartöflu-
bændur í Höfðahverfi hafi
ekki hafið kartöfluupptöku en
víðast hvar hefjist menn
handa á næstu dögum. Sprett-
an hjá bændum er misjafnlega
langt á veg komin þar seirt
nokkrir bændur þurftu að bíða
langt fram á vor eftir því að
garðar yrðu nægilega þurrir til
vinnslu. f’annig segir Bergvin
að margir bændur hafi þurft að
bíða frarn í júní eftir því að
geta sett niður og þeir geti að
sama skapi ekki tekið snemma
upp.
Bergvin segist ekki hafa trú
á að framundan sé stríð á
kartöflumarkaðinum. „Menn
fóru eitthvað geyst af stað en
síðan hafa fréttir borist af því
úr Þykkvabænunt og víðar að
kartöflusprettan er ekki sú
sem af var látið. Ég held því
að kaupmennirnir hafi ein-
göngu æst þetta kartöflustríð
upp að ástæðulausu. Á kartöfl-
um er til skráð verð eins og á
mjólk og kindakjöti og fari
menn niður fyrir þetta verð er
um lögbrot að ræða. Ég held
því að það sé engin forsenda
fyrir því að halda uppi ein-
hverju kartöfluverðstríði í
landinu," sagði Bergvin. JÓH
„Ég veit ekki hvaðan þessar
fréttir koma um að staðsetning
álvers hafi verið ákveðin á
Keilisnesi. Ég veit ekki betur
en að forstjórar Atlantal-fyrir-
tækjanna séu rétt búnir að
funda með forystumönnum
verkalýðshreyfingarinnar og
ég ætla þessum mönnum ekki
að draga málsaðila á asnaeyr-
unum,“ segir Halldór Jónsson
bæjarstjóri á Akureyri og for-
maður Héraðsnefndar Eyja-
fjarðar.
í fréttum útvarps- og sjón-
varpsstöðva í fyrrakvöld var sagt
að öruggar heimildir væru fyrir
því að þegar væri búið að velja
álveri stað og þá á Keilisnesi.
Ástæðurnar voru sagðar hag-
kvæmnissjónarmið auk þess sem
hinir erlendu aðilar vildu ekki
byggja álver í Eyjafirði eða ann-
ars staðar þar sem andstaða
heimamanna væri mikil.
Halldór Jónsson segist ekkert
hafa heyrt eða séð sem bendi til
þess að þessi ákvörðun liggi fyrir.
„Ég hvorki vil né get trúað því. Á
meðan við fáum ekki yfirlýsingar
frá þessum aðilum um að ákvörð-
un liggi fyrir eða meiri líkur séu á
að álver verði á einum stað frekar
en öðrum, þá vinn ég að þessu
máli,“ segir Halldór.
Aðspurður um það hvort hann
telji að andstaða heimamanna
geti haft úrslitaáhrif á ákvörðun
segir Halldór að hinir erlendu
aðilar hafi vissulega lýst því yfir
að þeir vilji vera þar sem þeir
mæta ekki andstöðu. „Ég held
hins vegar að það sé alveg sama
hvar þeir koma, það verður alltaf
einhver andstaða meðal ein-
hverra. Ég hef ekki ástæðu til að
ætla að þessi andstaða hér sé
mikil, en það versta er að hún
byggist að miklu leyti á upplýs-
ingaskorti," segir Halldór.
Sigurður P. Signtundsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar sat síðastliðinn mið-
vikudag fund sem forstjórar
Atlantal-fyrirtækjanna héldu
með forráðamönnunt verkalýðs-
hreyfingarinnar. Sigurður segir
að þar hafi forstjórarnir talað um
þau atriði sem þyrfti að athuga
betur varðandi alla þrjá staðina.
Einn þessara þátta er samskipti
Skrifað verður undir kaup-
samning ríkissjóðs og Ingi-
mundar hf. nk. þriðjudag á
„Ég gæti trúað því að atvinnu-
ástandið hérna yrði ekki verra
í vetur, en verið hefur og trú-
lega eitthvað skárra. Eftir að
Fiskiðja Sauðárkróks tók
Hraðfrystihúsið á leigu hefur
verið nægur afli til að vinna og
verður væntanlega áfram,“
segir Agnes Gamalíasdóttir,
formaður Verkalýðsfélagsins
Ársæls.
Á Hofsósi er það fiskvinnslan
sem aðalatvinnan er við og fyrir
skömmu tók Fiskiðja Sauðár-
króks eignir Hraðfrystihússins hf.
á leigu. Með samningnum er
reiknað með því að ekki komi
minni afli til vinnslu á Hofsósi
við verkalýðsfélög en einnig voru
ræddir þættir eins og stofnkostn-
aður, rekstrarkostnaður og um-
hverfisáhrif. Sigurður segir for-
stjórana einnig hafa ítrekað að
þeir vildu vera í friði við heima-
menn. „Hins vegar sögðu þeir
okkur að þetta væri ekki afger-
andi þáttur," segir Sigurður.
I áðurnefndum fréttum var því
haldið fram að ef ríkisstjórnin
hyggðist hafa einhver áhrif á þá
niðurstöðu Atlantal-manna að
setja álver á Keilisnesi þá myndi
Siglufirði vegna kaupa á Sigló
hf. Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, mun sjálfur
heldur en verið hefur.
Að sögn Agnesar er töluvert
um það að fólk úr sveitunum í
kring sæki vinnu á staðinn og
m.a. sagði hún að í sumar hefðu
unnið á Hofsósi konur úr sveit-
inni sem ekki hefðu sótt vinnu
þangað lengi.
„Við áttum von á jólunum í
september áður en þessi leigu-
samningur var gerður vegna þess
að kvótinn okkar var það lítill.
Nú ætti þetta minnsta kosti að
endast fram í október og vonandi
lengur svo að atvinnuleysið verð-
ur augljóslega minna hér á Hofs-
ósi í vetur heldur en síðasta
vetur,“ sagði Agnes Gamalías-
dóttir. SBG
það fresta ákvarðanatöku í mál-
inu um langan tíma. „Ég hef bara
aldrei heyrt á þetta minnst,“ segir
Sigurður.
En er verið að draga menn á
asnaeyrunum? „Ég get ekki
ímyndað mér að sjálfir forstjór-
arnir færu að eyða tíma í slíkan
skollaleik. Ég er eins og ég segi
nýbúinn að ræða við þessa menn
í trúnaði og þar kom ekkert fram
sem benti til þess að þessi
ákvörðun lægi fyrir,“ segir
Sigurður P. Sigmundsson. ET
undirrita samninginn fyrir
hönd ríkisins, og fyrir hönd
Ingimundar hf. mun Ármann
Ármannsson, framkvæmda-
stjóri, dýfa penna í blek.
Ármann sagði í samtali við
blaðið að verksmiðja Sigló verði
afhent nýjum eigendum í dag,
laugardag, og á mánudag verður
byrjað að pilla rækju. Rækjubát-
ar Ingimundar munu landa afla
sínum á Siglufirði á mánudag og
þriðjudag. Starfsfólki Sigló hf.
voru tilkynntar þessar ráðagerðir
í gær, en Ari Guðmundsson, sem
mun taka við rekstrinum á Siglu-
firði, er mættur norður til Siglu-
fjarðar.
Drög að kaupsamningnum
liggja fyrir og sagðist Ármann
vera þokkalega ánægður með
kaupin. Ríkið mun kaupa eignir
Ingimundar hf. í Reykjavík
þannig að nokkurs konar maka-
skipti verða á eignum samnings-
aðila. -bjb
Kaup Ingimundar hf. á Sigló:
Ólafiir skrifar undir á Siglufirði
Hofsós:
„Minna atvinnuleysi“