Dagur - 26.09.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 26.09.1990, Blaðsíða 12
Verslunarhúsnæði KEA á Hauganesi: Leigt þremur konum Þijár konur á Hauganesi, Soffía Ragnarsdóttir, Softía Jóns- dóttir og Björk Brjánsdóttir, hafa tekið verslunarhúsnæði Kaupfélags Eyfírðinga á Hauganesi á leigu til eins árs frá 1. október að telja. Frá þessu var gengið í gær. Fyrr í sumar var tekin um það ákvörðun að hætta matvöruversl- un undir merki Kaupfélags Ey- firðinga í verslun þess á Hauga- nesi og í kjörbúð KEA í Höepfn- er á Akureyri og var jafnframt ákveðið að selja eða leigja versl- anirnar. Jón Víkingsson hefur þegar tekið verslunina í Höepfner á leigu og þær stöllur á Hauga- nesi tóku síðan verslunina þar á leigu í gær. Húsnæði verslunar KEA á Hauganesi er á einni hæð, 210 fermetrar að gólffleti, og kjallari er undir því að hluta. Leigutakar kaupa ekki lager verslunarinnar. Eins og áður segir gerir leigu- samningurinn ráð fyrir leigu til eins árs frá fyrsta næsta mánaðar að telja. Að þeim tíma liðnum geta aðilar framlengt samninginn ef áhugi og vilji er fyrir því. óþh MA settur á sunnudag: Skólasetning fer fram í Glerárkirkju Menntaskólinn á Akureyri verður settur í Glerárkirkju nk. sunnudag, 30. september, klukkan 14.00. Þetta er í fyrsta sinn í sögu skólans sem skóla- setning fer fram annars staðar en á Sal gamla skólahússins. Tryggvi Gíslason, skólameist- ari, segir að ástæðan sé sú að „Salur“ sé fyrir löngu orðinn of lítill. Ekki var unnt að hafa skólasetningarathöfn í Akureyr- arkirkju, því þar standa yfir við- gerðir. Þrjú til fjögur hundruð manns hafa komið á skólasetningar Menntaskólans á Akureyri undanfarin ár, en þeir sem til þekkja vita að húsrými á Sal er alltof lítið til að rúma þann fjölda, Þar sem Akureyrarkirkja er lokuð vegna viðgerða og fram- kvæmdir hafa tafist, var leitað til Glerárkirkju. Samkvæmt upplýsingum frá skólameistara eru 190 nemendur skráðir í 1. bekk M.A. í haust. í 2. bekk verða 159 nemendur, í 3. bekk 128 og í 4. bekk 113 nemendur. Alls setjast því 590 nemendur á skólabekk um mán- aðamótin; 351 stúlka og 239 piltar. Hlutfall kynjanna skiptist því þannig að stúlkur eru 59, en piltar 41 af hundraði. „Þetta hef- ur haldist svipað nú í allnokkur ár, stúlkur hafa verið íleiri piltum. Hlutfallið hefur verið í kringum 60 á móti 40. Þessi þró- un hófst þegar upp úr 1970,“ seg- ir Tryggvi Gíslason. í fyrrahaust voru nemendur við Menntaskólann á Akureyri 585 talsins. EHB Gæðingurinn skrúbbaður í skrjáfandi blíðunni. Mynd: Golli Hækkun á olíuverði um 30-40%: „Dökkt útlit hjá útvegsmömuim, sjómömuim og þjóðiimi aM“ segir Sverrir Leósson, form. Útvegsmannafélags Norðurlands Rétt er að rætt er um að verður. Það eina sem getur hjálp- olíuverð hækki á bilinu 30- að okkur er að deilan við Persa- er um að bilinu 30- 40%. Slík hækkun þýðir ekk- ert annað en dökkar hliðar hjá útvegsmönnum, sjómönnum og þjóðinni allri,“ sagði Sverr- ir Leósson, formaður Útvegs- mannafélags Norðurlands. í kjarasamningum milli útvegsmanna og sjómanna eru reglur um að skiptaprósenta hreyfist eftir olíuverðinu og ljóst er að ef verður af þessari miklu olíuverðshækkun, þá verður kaupskerðing sjómanna á bilinu 8-10%. „Erfitt er að vera með alhæf- ingu um kaupskerðingu sjó- manna, þegar ekki er vitað nákvæmlega hver hækkun olíu flóann leysist sem fyrst. Spurn- ingin er hvort ráðamenn vilja taka þá áhættu að keyra þessa verðhækkun strax í botn. Ef deil- an leysist þá lækkar olíuverðið strax aftur. Ég held að ekki sé hægt að fara fram á að ríkið greiði þessa hækkun niður, það myndi þýða meiri og þyngri skatta á þjóðina. Mitt álit er að ekki eigi að taka verðhækkunarskrefið svona stórt strax, allar forsendur geta breyst á tiltölulega stuttum tíma. Vissu- lega er erfitt að taka á þessu máli, mönnum er orðið svo tamt að vitna í þjóðarsáttina, en ljóst er að stóralvarlegt er, ef þetta nýja olíuverð helst í lengri tíma. Fyrir eyland sem Island, sem þarf að koma öllum aðföngum til og frá landinu með flutningatækjum sem eru knúin af olíu og á allt sitt undir flotanum og sjávarfanginu, þá vigtar olían stórt,“ sagði Sverrir Leósson. ój Staða sveitarstjóra Hvammstangahrepps: Fimmtán umsóknir bárust Bæjarlistamaður Akureyrar fékk ekki inngöngu í Félag íslenskra myndlistarmanna: 99 «6 segir Kristjana F. Arndal, myndlistarkona Bæjarlistaiiiaðui Akureyrar. Kristjana F. Arndal, fékk í vor synjun um inngöngu í Félag íslenskra myndlistar- manna skömmu áður en hún var útnefnd til bæjarlista- manns. „Mér sýnist á öllu að gengið sé út frá strangri úti- lokunarstefnu þegar fjallað er um aðild að Félagi íslenskra myndlistarmanna og afar undarlega sé unnið að öllum málum þar að lútandi,“ sagði Kristjana. Að sögn Kristjönu fékk hún neitun um aðild að Félagi íslenskra myndlistarmanna, en á fundinum voru aðeins 13 félagar. „Sýningarnefnd FÍM bað mig um að senda inn umsókn og eftir neitun bað hún mig um að senda inn ítrekun fyrri umsóknar. Þetta mun ég gera, umsókn vcrður send. Nú vinn ég að minni myndlist, það er allt sem skiptir máli, ég verð með sýningu 1991. Forsendur fyrir neitun hef ég ekki fengið fram. FÍM er hagsmunaféiag mynd- listarmanna á íslandi sern sjálf- sagt er að vera í, en vegna þess að svona fór, þá hef ég snúið mér til ntíns fagfélags í Svíþjóð, KRO, en þar starfaði ég að myndlist og að ntálefnum myndlistar um árabil. Ég er ntjög forviða á þessari neitun FÍM, því að þau félaga- samtök myndlistarmanna sem ég er í. í Svíþjóð, eiga að veita sjálfkrafa aðild að FÍM, þurfi listamaður að hafa aðseturs- skipti einhverra hluta vegna þ.e flytja miili landa. Mér hefur virst sem einangrunarstefna ríki hér hjá myndlistarmönnum á fleiri sviðum. Þar sem ég hef verið í skólurn erlendis, þá er það hefð að kennarar eru fengnir að utan til að veita nýj- um straumum inn í skólana, hcr er heist lokað fyrir slíkt og þá er ég sérstaklega að fjalla um Myndlistarskólann á Akureyri, sem ekki hefur viljað nýta menntun mína og kunnáttu. Hvað viðkentur starfslaunum Akureyrarbæjar tii listamanns finnst mér að ekki skuli rugla sarnan starfslaunum og heiðurs- launum. Það er tvennt ólíkt hvort listamaður nýtur starfs- launa eða heiðurslauna,1' sagði Kristjana F. Arndal ój Fimmtán höfðu í gær sent inn umsókn um stöðu sveitarstjóra Hvammstangahrepps, en frest- ur til að sækja um stöðuna rann út í gær. Guðmundur Haukur Sigurðs- son, oddviti hreppsnefndar Hvammstangahrepps, sagði í gær að þessi tala ætti trúlega eftir að hækka, því líkur væru á að ein- hverjar umsóknir væru í pósti. Guðmundur sagðist ekki geta gefið upp nöfn umsækjenda, rétt væri að hreppsnefndarmenn fengju að kynna sér umsóknirnar áður en umsækjenda væri getið í fjölmiðlum. Hann sagðist reikna með að hreppsnefnd kynnti sér umsóknirnar í næstu viku og reynt yrði að hraða ráðningu nýs sveit- arstjóra í stað Þórðar Skúíasonar, sem eins og kunnugt er hefur ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. óþh Akureyri: Töluvert um hraöakstur Lögreglan á Akureyri stöðvaði fímm ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur, bæði innan bæjarmarkanna og utan þeirra. Að sögn varðstjóra var enginn ökumannanna á ofsa- hraða en hann sagði þó óþarf- lega mikið um akstur yfír há- markshraða. Slökkviliðið á Akureyri var ræst út í gær. Þar var um að ræða brunaboða á Fjórðungssjúkra- húsinu sem hafði farið í gang án tilefnis og enginn eldsvoði þar á ferðinni. Mörg fyrirtæki eru með eldvarnakerfi tengd inn á slökkvistöð og fara þau oft í gang af ýmsum ástæðum. Lögreglan hefur líka þurft að sinna mörgum útköllum vegna þess að viðvörunarkerfi í bönkum, stofnunum og fyrirtækj- um fara í gang án þess að um inn- brot sé að ræða. I þessum tilfell- urn þarf þó að sjálfsögðu að grennslast fyrir um hvað gangi á. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.