Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 20. október 1990 A " J ■ f /é y Eigi verður svo rœtt um myndlist og mólefni myndlistarmanna á Akur- eyri, að ekki beri natn Guðmundar Ármanns, myndlistarmanns, á góma. í þau tuttugu ár sem myndlistarmenn bœjarins hafa barist áfram af hugsjón og harðfylgi fyrir málefnum sem lúta að myndlist- argyðjunni, hefur Guðmundur stigið þann dans með heimamönn- um, ráðhollur og þrunginn hugsjón. Með heimamönnum segi ég. Vissulega er Guðmundur orðinn heimamaður fyrir löngu, það lengi hefur hann búið á Akureyri. Guðmundur fluttist til Akureyrar þá er Myndlistar- félag Akureyrar vantaði kennara til að leiðbeina og kenna öllu því unga fólki sem hafði áhuga á teiknun og málun en var afrœkt. Akureyri hefur verið starfs- vettvangur Guðmundar, þrátt fyrir að honum hafi boðist glœst tœkifœri í list sinni á erlendri grundu. Á Akureyri urðu straumhvörf í lífi Guðmundar, hann hitti lífsförunaut sinn á Akureyri, Hildi Petersen, og þau hjón eiga fimm mannvœnleg börn. En hver er myndlistar- og hugsjónamaðurinn Guðmund- ur Ármann? Við gefum Guðmundi orðið. Á flakki um höfuðstaðinn „Ég er fæddur í henni Reykjavík í Vesturbæn- um, árið 1944, á Ránargötunni í svokölluðu Doktorshúsi, sem nú er búið að rífa fyrir löngu. Ég er eitt átta barna Sigurjóns Björnssonar, fv. póstmeistara í Kópavogi, og konu hans Þorbjarg- ar Pálsdóttur. Ungur flutti ég af Ránargötunni, aðeins þriggja ára, í Langholtið, að Langholts- vegi 104, en þar reisti pabbi sænskt hús, stórt og mikið. Þar vorum við þar til ég varð 12 ára. Sem gefur að skilja varð ég aldrei KR-ingur, en ég var og er Valsari í hjarta og hugsun. 1956 fluttum við á Miklubrautina og þar áttum við heima í 2 til 3 ár, en þá var flutt á Flókagötuna og síðan út á Ægissíðu. Á Ægissíðunni bjuggum við aðeins í eitt ár og þá tók stórfjölskyldan sig upp enn á ný og við fluttum í Kópavoginn. Pabbi varð póst- meistari í Kópavogi og gegndi því starfi þar til hann fór á eftirlaun. Móðir mín er nú látin, en faðir minn býr nú í lítilli íbúð á elliheimili og unir hag sínum vel. Já, bernsku- og unglingsárin fóru í að þeytast milli bæjarhluta sem og hjá mörgum í Reykjavík á þessum árum. Petta var góður tími í stórum systkina- og vinahópi og ekki skemmdi að ég var í Val. Ég lék með öllum yngri flokkunum í knatt- spyrnunni og tók þátt í frjálsum íþróttum. Á þessum árum kom ég til Akureyrar til að keppa í boltanum og ekki grunaði mig þá að ég ætti eftir að eyða starfsævi minni í höfuðstað Norðurlands. Frami minn í heimi fótboltans varð að vísu ekki mikill. Ég hætti þessum leik, því myndlistargyðj- an heltók mig, en fyrstu sýninguna mína hélt ég á Mokka aðeins 17 ára gamall^ þá án allrar menntunar í teikningu og málun. Ég hafði keypt mér pennasett og heillaðist svo af þeim marg- breytilegu línum og áferð sem hægt var að skapa þannig að úr varð sýning í anda abstraktmálar- anna. Petta voru ströng og ákveðin form. Sýning- in fékk góða dóma og brautin var ráðin.“ Námsárin og til Svíþjóðar „Sem gefur að skilja gekk ég í nokkra skóla, þar sem fjölskyldan fluttist svo ört milli hverfa. Barnaskólanámið hóf ég í Laugarnesskólanum en fór síðan í Langholtsskólann, hann var byggð- ur á þessum árum. Par lauk ég barnaskólanám- inu. Að barnaskólanum loknum fór ég í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar og þaðan í Gagnfræða- skóla verknáms. Er námi lauk þar fór ég í Iðn- skólann og útskrifaðist sem sveinn í prentmynda- gerð á vordögum 1963. Ég vann aldrei við iðnina, því meðan ég var við nám í prentmyndagerðinni var ég byrjaður að sækja Myndlista- og handíða- skólann. Prentmyndagerðin nýttist mér vel í Myndlistaskólanum og þá sérstaklega í grafík- inni, því prentmyndagerð er ekkert annað en grafík eins og hún var kennd þá. Myndlista- og handíðaskólinn var skemmtileg- ur skóli í alla staði. Gróskan var mikil í skólanum og kennslan góð, en mjög akademísk. Er leið á námið fengum við gestakennara frá París og víðar, sem komu með ný sjónarmið og nýjar víddir, hverjar héldu okkur við efnið. Þannig lentum við inni í nokkuð nýtískulegum kennslu- háttum. Á þessum árum breyttist myndlistin mikið og öll viðhorf til myndlistar. Skólasystkini mín úr Myndlistaskólanum hafa spjarað sig flest vel og nokkur eru þekkt nöfn í myndlistarheim- inum á íslandi og jafnvel í heimslistinni. Ég lauk náminu í Myndlistaskólanum á fjórum árum og hélt strax til Svíþjóðar. Ekki mátti láta staðar numið. Heimsfrægðin beið handan hafsins.“ Úr grjótmulningi til aðstoðarkennara „Að vísu hafði ég sótt um skólavist í Flórída að áeggjan Jóhanns Eyfelds, myndlistarmanns og prófessors. Ég fékk inni, en réð ekki við dæmið. Bandaríkin voru of dýr fyrir fátækan námsmann, sem ekki hafði úr styrkjum að moða. Gautaborg varð fyrir valinu. Ég sigldi með mitt hafurtask og málverk. Ég fékk strax vinnu í grjótmulningsverksmiðju og þegar leið á sumarið sendi ég umsókn inn til Valand listaháskólans. Á haustdögum fékk ég svar. Ég var orðinn nemandi í þessum virta og góða skóla. Ég var heppinn. Mörg hundruð sóttu um, en aðeins tíu voru teknir. Breytingin var mikil og áherslurnar aðrar en heima. Fljótt kom í Ijós að námið að heiman dugði vel. Skólinn var fyrsta árið afar akadem- ískur. Sannkallaður gifshausaskóli. Er á leið kom í ljós að allt nýtt úr heimi myndlistarinnar skilaði sér fljótt og vel inn í skólann með gestakennur- um og öðru fagfólki. Námið var uppbyggjandi og við vorum með fingurna á púlsi heimslistarinnar. íslendingar sem voru við nám við Valand nutu sérstakrar velvildar skólayfirvalda. Pað ásamt góðri kennslu gerði dvöl mína við skólann eftir- minnilega. Ég hugsa til skólans með lotningu og eftirsjá. Árin mín við skólann urðu fimm. Síð- ustu þrjú árin var ég aðstoðarkennari í grafík með náminu. Sjálfsagt stóð ég mig vel og vann mikið. Skólastjóranum Ture Ahnoff, sem er vin-< gjarnlegur og þekktur listmálari, þótti fátækt okkar Islendinganna það mikil að hann vildi hjálpa upp á sakirnar. Pví var ég ráðinn aðstoð- arkennari við grafíkdeildina og Arthur Ólafsson við málaradeildina. Á þessum árum skiluðu námslánin sér seint og illa. Námslánið dugði fyrir húsaleigu í þrjá mán- uði. Kennaralaunin björguðu miklu. Við áttum fyrir brauðskorpu og rauðvínsglasi á góðum degi. Ég vann með skólanum í öllum fríum, gjarnan sem uppvaskari á vertshúsum. Pannig kynntist ég næturlífinu úr eldhúsinu á Resturant Sófus, en það var mjög fínn staður í þá daga. Já, þetta var bóhemlíf. Við vorum ekki að mikla fyrir okkur hlutina. Herbergin sem við stúdentarnir leigðum voru ekki merkileg. Ég man sérstaklega eftir einu í gömlu hverfi sem átti að rífa. Upphitunin var léleg aðeins frá hálf ónýtri eldstó og þá varð maður að eiga eldivið, sem ekki var alltaf. Kamarinn var úti í garði og kalt vatn í krönum. Heitt þekktist ekki. Ungling- arnir í dag myndu trúlega ekki leggja þetta á sig fyrir myndlistina. Ég efa það. Að norpa oft á kvöldin í köldu herbergi í 20 gráðu frosti reyndi á íslendinginn. Sem betur fer er ég hraustur og þetta skemmdi ekki. Við vorum tilbúin til að svelta fyrir listina og væntanlega heimsfrægð. Já, svona hefur þetta verið á öllum tímum. Ég held að þetta þroski fólk. A.m.k. þá sem þoldu vos- búðina. Síðustu tvö árin voru mjög góð. Ég bjó betur og seldi töluvert af myndum. Var kominn á styrk og gat unnið að myndlistinni allt sumarið. Á fjórða ári tókum við okkur saman fimm og gerð- um sýningu um umferðarmál. Sýningin var mjög gagnrýnin og vakti mikla eftirtekt og varð þess valdur að við fimmmenningarnir vorum valdir sem fulltrúar Svía á Norðurlandasýningu. Petta þótti mörgum íslenskum myndlistarmanninum nokkuð hart, að við Arthur færum inn á sýning- una þessa leiðina þ.e. sem Svíar. Oftast er það nú svo að viðurkenningin kemur erlendis frá. Mjög fáir eru spámenn í sínu föðurlandi.“ Róttækur til vinstri „Námsmenn eru oftast mjög opnir og áhrifa- gjarnir. Svo fór að ég drakk í mig fleira en mynd- listina. Ég varð óhemju vinstrisinnaður, enda buðu allar aðstæður upp á slíkt. Það sem gerðist á árunum fyrir 1970 varð þess valdandi, að nánast sprenging varð í öllum skólum og upplausnin varð mikil. Þetta var ekki aðeins í Svíþjóð heldur um allan heim. Upptökin voru í París. Nemendur urðu afar miklir þjóðfélags- sinnar og upp kom í okkar skóla mikil gagnrýni á listina. Að listin væri fyrir listina var litið horn- auga og nemendur efndu til ýmisra mótmæla. Þetta brambolt var smitandi. Á þessum árum kom Víetnamstríðið inn í umræðuna og vakti mikil viðbrögð. Kröfugöngur voru farnar og allt var á suðupunkti. Leshópar voru stofnaðir í sósíal- isma. Við lásum Das Kapital og allt sem hönd á festi um vinstri pólitíkina. Nemendur tóku völdin og heimtuðu að velja sína prófessora sjálfir. Til okkar kom nýr sænskur prófessor, að nafni Peter Dahl. Hann hafði gert fræga myndröð um Víet- namstríðið og tvískinnung sænska þjóðfélagsins gagnvart því. Myndröð sem sænska lögreglan hafði tekið niður af sýningu. Þetta þótti okkur varið í. Þennan mann vildum við fá sem kennara og það var látið eftir okkur. Dahl þótti við nemendur mjög pólitískir. Við vorum alltof grimmir í hans augum. Þannig eru nú öfgarnar. Prófessorinn hefur skrifað bók um þessi umbrotaár og í bókinni sakar hann okkur nemendur um, að við höfum viljað lesa frekar Das Kapital en Iistasöguna. Hann hrósar okkur þó sem góðum nemendum. Ég lauk námi og mín biðu töluvert góð tæki- færi og ýmsar dyr opnar. Skólinn naut álits og þeir nemendur sem útskrifuðust áttu innangegnt á gallerí og annað í þeim dúr. Ég valdi þann kost að fara heim. Ég vildi fara heim.“ Heim og til Akureyrar „Ég hafði alla tíð fundið fyrir heimþrá og mynd- listarheimurinn í útlandinu var harður. Trúlega var ég orðinn þreyttur. Ég hafði þurfti að hafa mikið fyrir lífinu. Nú kom sú löngun upp að miðla landanum af reynslu minni og kunnáttu, jafnframt að vinna að listsköpun í rólegheitum víðsfjarri skarkala stórborganna. Þegar heim var komið fór ég fyrst í stað að vinna sem handlangari hjá trésmiðum í Breið- holtinu til að eignast peninga fyrir mat og litum. Sýning var í undirbúningi. Dag einn fór ég niður í gamla skólann minn til að ræða við Hörð Ágústsson, skólastjóra. Ég leitaði eftir vinnu. Hörður tók mér vel og sagðist myndu hafa samband. í ágúst var Hörður í símanum og segir, að menn frá Akureyri séu að leita að myndlistar- kennara. „Ég held að ég treysti þér til að fara,“ sagði Hörður. Ég hugsaði málið í nokkra daga. Ég var laus og liðugur og svaraði játandi. Þetta var 1974 og hér er ég enn, kvæntur og fimm barna faðir. Já, ég fór norður til Akureyrar í september og hóf kennslu á vegum Námsflokkanna og Mynd- listarfélags Akureyrar í kjallara Iðnskólans. Nemendurnir voru margir og starfið sóttist allvel. Árið eftir hóf ég einnig kennslu í MA. Þannig gegndi ég nú fullri stöðu kennara. Umrótið var mikið á þessum árum og fæðing- arhríðirnar öflugar í myndlistinni á Ákureyri. Árið 1976 hófst ævintýrið mikla með stofnun Myndsmiðjunnar. í gamla Verslunarmannafé- lagshúsinu opnuðum við Myndlistarfélagsmenn sýningarsal og myndlistarskóla sem fékk nafnið Myndsmiðjan. Ég ætla ekki að rekja þá sögu, það er annarra. Þarna var kennt frá morgni til kvölds. Þennan vetur keyrði ég mig hreinlega út í vinnu. Vinnu sem var mjög skemmtileg, krefj- andi og gefandi. Um vorið hætti ég kennslu. Myndsmiðjan var sá vísir sem varð Myndlista- skólinn á Akureyri. Næstu árin vann ég í Slippstöðinni, í Ofna- smiðjunni og víðar, jafnframt sem ég einbeitti mér að kúnstinni og tók þátt í sýningum. Er tím- ar líða stofnaði ég ásamt nemanda mínum, Krist- jáni Steingrími Jónssyni, Teiknihönnun KG. Bæði var að mig langaði að starfa sjálfstætt og eins hitt að ég var kominn með fjölskyldu og þurfti að hafa góðar tekjur. Síðar fór Kristján til náms í myndlist til Reykjavíkur og þaðan til Þýskalands og ég var einn eftir á teiknistofunni. Þegar Ragnar Lár fluttist til Akureyrar hófum við samstarf og stofnuðum Teiknistofuna Stíl og rákum hana saman þar til Ragnar seldi Gunnari Jónssyni sinn hlut. Þegar hér var komið sögu var ég aftur kominn í kennslu. Kenndi á kvöldin í Myndlistaskólanum á Akureyri hjá Helga Vilberg, skólastjóra." Eg var marxisti og lenínisti „Já, ég var marxisti og lenínisti og lá ekki á skoðunum mínum. Sumuin var um og ó, það byltingarkenndur var ég. Pólitíkin varð aldrei til þess að ég yfirgæfi myndlistina. Ég hugsaði alltaf sem svo, að mín pólitíska meðvitund yrði til þess, að ég gerði myndir sem yrðu tengdar verka- lýðnum og baráttunni fyrir betri kjörum. Grafík- myndirnar og málverkin spegluðu þessi viðhorf og sýningin á Kjarvalsstöðum 1981 var af verka- fólki úr Slippstöðinni og af verksmiðjunum. Lit- irnir voru brúnir og gráir og svart var í öndvegi. Sem sagt allt eftir formúlunni. Síðar uppgötvaði ég, að þessi myndgerð full- nægði mér ekki sem myndlistarmanni. Ég var farinn að finna, að boðskapurinn yfirgnæfði myndrænuna. Hugarfarsbreyting og löngun til átaka varð þess valdur að ég fór að skoða lita- skalann og nýta mér þá möguleika sem frjáls hugsun býður upp á. Formið varð frjálst. Ég fór að mála og teikna fugla. Hér varð vendipunktur. Sérhver myndlistarmaður má aldrei gleyma forminu og litunum. Ég var farinn að kenna myndlist á ný við Myndlistaskólann á Akureyri. Alltaf fjölgaði þeim tímum sem ég tók að mér við skólann. Þessi vinna bitnaði á vinnu minni á Stíl. Ég varð að velja á milli annars vegar kennslunnar og mynd- listarstarfsins og hins vegar auglýsingavinnunnar á Stíl. Því seldi ég Gunnari minn lilut og hætti afskiptum mínum á auglýsingamarkaðinum. í dag er ég fastráðinn kennari við Myndlistaskól- ann á Ákureyri. Kenni í dagskólanum og á kvöldin á námskeiðum, en þar kenni ég módel- teikningu og málun. Dvöl mín er orðin nokkuð löng á Akureyri. Hér hef ég kunnað vel við mig. Trúlega á við mig Laugardagur 20. október 1990 - DAGUR - 11 Helgarspjall við Guðmund Ármann Sigurjónsson, myndlistarmann: ,Á Akureyn þarf að vinna upp margra ðra van- rœlcslu" Texti: Óli G. Jóhannsson. Ljósmynd: Kristjón Logason. að vera alltaf í einhverri baráttu. Ég lít á það sem mikla gæfu að hafa fengið að taka þátt í því, sem hefur verið að gerast og gerjast í myndlistinni á Akureyri. Þrátt fyrir mótlæti myndlistarmanna á Akur- eyri, þá hefur margt gerst í myndlistinni og harð- ærið hefur alið af sér góða myndlistarmenn. Þó að talað sé um mótlæti, þá höfum við myndlistar- menn samt hlotið góðar viðtökur þæjarbúa. Áhugi á myndlist er mikill. Fólk sækir sýningar mjög vel. Fólk lætur sig skipta hvað við málar- arnir erum að gera. Full ástæða er hins vegar til að gagnrýna opinbera aðila á Akureyri fyrir sof- andahátt. Það sem hefur verið gert í bænum á sviði myndlistar er að þakka einstaklingum. Bæjarfélagið hefur ekki stutt nægilega við fram- gang myndlistar. Ef ekki hefði notið Sigurðar Óla Brynjólfsson- ar, sem nú er fallinn frá, og Helga Vilbergs, þá hefðum við engan Myndlistaskóla. Fleiri dæmi gæti ég nefnt máli mínu til staðfestu. í dag nýtur Myndlistaskólinn skilnings bæjaryfirvalda og bæjarfélagið á vissar þakkir skilið fyrir að skólinn komst í það húsnæði sem hann er í.“ Ég á mér draum „Aðstaða mín til listsköpunar er fyrsta flokks. Nýja vinnustofan gerir mér mögulegt að einbeita mér í myndlistinni af lífi og sál. Nú er manni ekki neitt til afsökunar að gera ekki góð verk. Breyt- ingin að gerast fastráðinn kennari á eftir að skila sér í auknum afköstum og gæðum. Tíminn sem fer í myndlistina er meiri og sumartíminn nýtist 100 prósent. Ég er farinn að sjá árangur bæði í verkunum og eins í eftirspurninni hér heima og í Svíþjóð. Ég hef aldrei slitið þau bönd sem ég batt á námsárunum mínum í Gautaborg. í sumar sýndi ég í Svíþjóð, í Títaholm. Sýning- in gekk mjög vel og dómar voru góðir. Ur þessari sýningu urðu til aðrar tvær. Galleríeigandi í Esk- ilstuna sá sýninguna og vill fá hana til sín, sem nú er ákveðið. Ég opna í janúar. Áhrifamenn um myndlist í Svíþjóð hafa boðið mér þátttöku í sýn- ingu sem senda á um Norðurlönd með yfirskrift- inni: „Náttúruupplifun í myndlist." Nú er unnið að undirbúningi og fjármögnun þessarar sýning- ar. Ég á rætur í Svíþjóð og hef ræktað minn garð. Svíar hafa ætíð sýnt mér skilning og áhuga frá fyrstu tíð og ég á taugar til þeirra. Ég á minn draum. Að Akureyri breyti mynd sinni á menningarsviðinu. Mynd sem er ekki nægilega björt og tær í dag. Hér á Akureyri hafa alið aldur sinn frábærir myndlistarmenn, sem ekki hafa fengið að njóta sín. Alltaf hefur verið litið á Reykjavtk sem höfuðstöðvarnar, hvar listamennirnir búa. Nú er kominn tími til að snúa þessu við. Við Akureyringar verðum að átta okk- ur á stöðunni. Við höfum skólann. Okkur vantar stóran myndarlegan sýningarsal. Okkur vantar listasafn. Okkur vantar listasmiðju, þar sem fólk getur unnið. Með þessu öllu fáum við erlenda listamenn til starfa með okkur. Ég sé fyrir mér Grófargilið sem menningarmiðstöð, þar sem kunnátta og hugarflug nær að blómstra. Ég verð líka var við, að myndlistarnefnendur sem fara héðan til náms á erlendum vettvangi, og vilja snúa heim, koma ekki til baka. Aðstöðuleysið er þess valdur. Atgervisflóttinn er mikill. Akureyri hefur ekki efni á að missa þetta fólk. í dag finnst mér sem Akureyringar vilji fá aðstöðu fyrir myndlistina. Annað hljóð er í bæjaryfirvöldum. Talað er í alvöru. Nú ríður á að þeir aðilar sem eiga hlut að máli standi saman. Ekki má undir neinum kringumstæðum persónu- gera þetta málefni. Hugmyndina um Listagil er ekki hægt að eigna nokkrum manni. Hún er lang- tíma gerjun margra manna og hópa. Málverk og myndsköpun á Akureyri er ekki lengur vinna á eldhúsborði. Metnaðurinn er stærri og meiri. Við erum á tímamótum og kompásinn verður að rétta af. Á Akureyri þarf að vinna upp margra ára vanrækslu.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.