Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 18

Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 20. október 1990 Þórs- peysur í öllum stæröum til sölu á eftirtöldum stööum: Hallarportinu (á laugardögum kl. 11 -16 ), Allir sem 1, íþróttavöruverslun, Strandgötu 6 og hjá öllum deildum Þórs. Þórspeysa er góð og falleg gjöf. Útvegsmenn Norðurlandi Aðalfundur Útvegsmannafélags Norðurlands verður haldinn þriðjudaginn 23. október n.k. kl. 10.00 f.h. að Hótel KEA, Akureyri. Dagskrá:. 1. Venjuieg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kristján Ragnarsson formaður L.Í.Ú. og Jóhann Sig- urjónsson sjávarlíffræðingur koma á fundinn. Stjórnin. Verslunin Þorpið Mikið kjötúrval, frosið og nýtt. Fiskur, nýr, saltaður og reyktur. Silungur, siginn fiskur, saltfiskur. Sprengitilboð á Fanta: 2 lítrar aðeins 104 kr. Tilboð á Coka-Cola 1/2 lítri verð kr. 64. Diet Coke 1/> lítri kr. 64. R.C. Cola 11/2 lítri kr. 99. Hi-spot 11/2 lítri kr. 99. Pepsi Cola 2 lítrar kr. 169. Seven Up 2 lítrar kr. 169. Opið alla daga frá kl. 10.00-22.00 Sunnudaga frá kl. 10.00-14.00. Verslunin Þorpið, MÓASÍÐU 1. Menntamálaráðuneytið. Menntamálaráðuneytið auglýsir styrki úr Þróunarsjóði grunnskóla skólaárið 1991-92. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að nýjungum, tilraunum og nýbreytni í námsefni, kennsluaðferðum, námsmati og skipulagi náms og kennsiu í grunnskólum landsins. Samkvæmt reglum sjóðsins er heimilt annað hvert ár að tiltaka ákveðinn þátt í starfsemi grunnskóla sem hefur forgang það ár. Hefur verið ákveðið að umsóknir um verkefni í list- og verkgreinum njóti að öðru jöfnu forgangs við næstu úthlutun. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1990. Umsóknum skal fylgja ítarleg lýsing á verkefninu og til- gangi þess og áætlun um framkvæmd. Umsóknareyðublöð ásamt reglum sjóðsins og nánari upplýsingum fást á fræðsluskrifstofum og í mennta málaráðuneytinu. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Gránufélagsgata 55, Akureyri, tal- inn eigandi Kathleen Jensen, mið- vikud. 24. okt., '90, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er: Hróbjartur Jónatansson hdl. Keilusiða 9 e, Akureyri, þingl. eig- andi Smári Arnþórsson og Guðrún Rósa Friðjónsdóttir, miðvikud. 24. okt., ’90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ásgeir Thoroddsen hdl., Gunnar Sólnes hrl., Fjárheimtan h.f. og Byggingarsjóður ríkisins. Skarðshlíð 25 a, Akureyri, þingl. eigandi Margrét Sigurðardóttir, mið- vikud. 24. okt., ’90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Islandsbanki h.f. og Reynir Karls- son hdl. Tjarnarlundur 14 j, Akureyri, þingl. eigandi Jóhanna B. Bjarnadóttir, miðvikud. 24. okt., '90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Byggingarsjóður ríkisins og Ólafur Gústafsson hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. í kvikmyndorýni f Umsjón: Jón Hjaltason Feigðarflan á Mianii Alec Baldwin og Jennifer Jason Leigh; smákrimminn og vændiskonan. Borgarbíó sýnir: Feigðarflan á Miami (Miami Blues). Lcikstjóri: George Armitage. Aðaihlutverk: Alec Baldwin, Jennifer Jason Lcigh og Fred Ward. Orion 1990. Alec Baldwin er ágætis leikari en í Feigðarflani á Miami á hann við ramman reip að draga. Baldvin fær að vísu ágæta liðveislu þar sem eru Fred Ward, í gervi lífs- þreytta löggukarlsins, og Jenn'ifer Jason Leigh í hlutverki gálunnar sem ekki reiðir vitið í þverpok- um. Feigðarflanið er sem sagt ágætlega vel leikin kvikmynd en að öðru leyti er hún vel fyrir neð- an meðallag. Feigðarflan á Miami segir frá smákrimmanum Frederick J. Fenger (Baldwin) og hreint út sagt fáránlegum framkvæmdum hans á Miami. Hann er ekki fyrr kominn út úr grjótinu en hann tekur upp fyrri hætti, að lúskra á fólki og ræna saklausa vegfarend- ur jafnt og sekari starfsbræður. Fenger virðist haldinn óslökkv- andi sjálfseyðingarhvöt, ekkert fær stöðvað hann og endalokin má sjá fyrir strax í upphafi. Feigðarflan á Miami er lang- dregin mynd um ljótan veruleika - þó ekki þannig að hér sé um að ræða krufningu þjóðfélagsvanda- máls eða neitt í þeim dúr. Mynd- in er fyrst og fremst um glæpon- inn, sem aðeins hugsar í núinu, og viðleitni lögreglumannsins (Fred Wards) að gera glæponinn óskaðlegan. Samband þeirra er einkennilegt, en um leið yfir- borðslegt; það er rétt eins og persónurnar hafi verið settar upp í lest sem gengur aðeins á einu örstuttu brautarspori og síðan ekkert meir - þær fá ekki að þroskast, verða raunverulegar, eina hlutverk þeirra er að komast á endastöðina. Þar hoppa allir af eftir að hafa lokið því sem þeim var ætlað í upphafi. Vændiskon- an (Jennifer Jason Leigh) er und- ir sömu sökina seld og karlarnir - hún er þriðja strengjabrúðan í safninu. Geðveiki á háu stígi Borgarbíó sýnir: Fantinn (Relcntless). Leikstjóri: William Lustig. Aðalhlutverk: Judd Nelson, Robert Loggia og Meg Foster. Warner Bros. Judd Nelson leikur rannsóknar- lögreglumann í Los Angeles. Hann er nýlega fluttur frá New York yfir á vesturströndina, nýir vinnufélagar taka honum fálega og starfsaðferðir þeirra eru aðrar en Nelson á að venjast. Strax fyrsta daginn fær hann morð að rannsaka og fleiri fylgja í kjölfar- ið, öll framin af sama manninum. Að þessu sögðu þarf enginn að velkjast í neinum vafa um sögu- þráð Fantsins. Þó skal hér ósagt látið um sögulok enda ekki erfitt að geta sér til um þau strax um miðja mynd. Bíófarar hafa séð þó nokkrar útgáfur af Fantinum á Iiðnum árum. Þetta eintak er fráleitt með þeim betri en blóðugra er það en mörg önnur. Það er raunar eftir- tektarvert hvað aðstandendur Fantsins leggja mikið upp úr nákvæmni kvikmyndatökunnar þegar morðin eru framin, allt á að sjást; hryllingnum er klesst f andlit bíófarans, nálinni fylgt inn í holdið og blóðinu skvett. Hafi menn gaman af þvíumlíku get ég mælt með Fantinum, að öðrum kosti hygg ég það gáfulega ráð- stöfun að leiða hann hjá sér. Ráðstefna á Akureyri í dag: Samstarf fyrirtækja Landssamband iðnaðarmanna og Svæðisskrifstofa iðnaðarins á Norðurlandi gangast fyrir ráðstefnu um atvinnumál á Akureyri í dag, laugardaginn 20. okt., undir yfirskriftinni; Samstarf fyrirtækja á Norður- landi. Ráðstefnustjóri er Tóm- as Ingi Olrich. Á ráðstefnunni verður farið ofan í saumana á norðlensku atvinnulífi, hugsanlega framtíð- arþróun og kosti og galla við að reka fyrirtæki á landsbyggðinni. Er fjarlægðin frá höfuðborgar- svæðinu kostur eða hindrun? Ennfremur verður fjallað um möguleika á auknu samstarfi fyrirtækja . (fyrirtækjanet), menntun stjórnenda, hugmyndir Heimahjúknm eftiir til ftmdar með stuðningshópi að- standenda aldraðra Heimahjúkrunin heldur sinn fyrsta fund með stuðningshópi fyrir aðstandendur aldraðra mánu- daginn 22. október kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á 4. hæð Heilsgæslustöðvarinnar. All- ir sem hafa áhuga á að hitta ann- að fólk sem býr við svipaðar aðstæður eru velkomnir. Kaffi verður á könnunni. um skiptingu landsins í þjónustu- og atvinnusvæði, samstarf í bygg- ingariðnaði og möguleika á auknu samstarfi iðnaðar og sjáv- arútvegs við þróun véla og tækni- búnaðar. í lok ráðstefnunnar verða umræður með þátttöku sveitarstjórnarmanna af Norður- landi. Ráðstefnan fer fram í Alþýðu- húsinu Skipagötu 14 4 hæð og stendur frá kl. 8.30 til 17.30. Austurlenskt kvöld á Hótel KEA Slysavarnadeild kvenna á Akureyri og Hótel KEA gang- ast fyjrir austurlensku kvöldi á Hótel KEA í kvöld. Þar verð- ur boðið upp á yfir 20 austur- lenska rétti á hlaðborði en borðhaldið hefst stundvíslega kl. 20.00. Veislustjóri verður séra Pétur Þórarinsson sóknarprestur í Glerárkirkju. Á meðan á borð- haldinu stendur verður boðið upp á skemmtiatriði en að því loknu leikur hljómsveitin Mið- aldamenn fyrir dansi til kl. 03.00. Húsið verður ópnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00. Miðasala hófst í gær á Hótel KEA og verður fram haldið á sama stað í dag frá kl. 14-16. Liðsauki Norðanpilta. Norðanpiltar á Uppanum Nk. mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöld skemmta Norð- anpiltar gestum Uppans. Þeim hefur nú bæst liðsauki, trommu- leikarinn Guðmundur Stefáns- son, sem leikur á bassagítar. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Norðanpiltar leika opinberlega á heimavelli og hefst dagskráin um kl. 22.30. Allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir. Blómaskálinn Vín: Vélsleðasýning um helgina í dag og á morgun verða nýjustu árgerðir Polaris vélsleðanna sýndar í Blómaskálanum Vín við Hrafnagil. Þarna gefst fólki kost- ur á að sjá þá sleða sem nú eru að koma til landsins og fá upplýsing- ar um sleðana. Sýningin verður opin á opnunartíma skálans, þ.e. frá kl. 13 til 19 báða dagana. Jafnframt verður boðið upp á kaffihlaðborð á morgun.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.