Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 20. október 1990 spurning vikunnar Ferðu í Kári Sigurðsson: „Nei, ég fer aldrei í rjúpur og borða ekki rjúpur. Ég hef enga sérstaka ánægju af skotvopn- um. Reyndar skaut ég nokkrum sinnum áður en ég fékk byssu- leyfi en aldrei eftir það og ég veit ekki einu sinni hvort leyfið er enn í gildi.“ Jón Stefán Baldursson: „Nei, það geri ég aldrei. Þetta eru svo fallegir fuglar að það er ástæðulaust að vera að drepa þá. Reyndar er þetta sæmileg- asti matur." # rjúpur? Sverrir Leósson: „Nei, ég get bara ekki hugsað mér að vera með byssu. Eg er enginn skotveiðimaður og verð aldrei. Ég borða heldur aldrei rjúpur." Jón Pétur Karlsson: „Nei, ég hef aldrei verið neitt fyrir slíkt og á ekki byssu. Ég er voðalega lítið fyrir að elta dýr og ég hef aldrei borðað rjúpu." Friðbjörn Baldursson: „Já. Eg fór í rjúpur á miðviku- daginn og náði fjórum í Sauð- dal. Sjálfur hef ég aldrei borðað rjúpur en ég hef selt þær og gefið þær vinum og vanda- mönnum." Kvikmyndasíðan UUJLftAUUUUJUAULAAAJLU Jón Hjaltasor Rob Lowe - ennþá í skugga myndbandsins? Það er rökkvað. Mennirnir tveir skiptast á um að þjónusta kon- una. Kvikmyndatakan er léleg, það eina sem sést af kvenmannin- um eru hnjákollarnir, á milli þeirra stirnir á afturenda karl- mannsins. Fólkið þreytist án þess þó að fá nokkra fróun. Að lokum hættir líkamstjáningin og umræð- ur hefjast. Það er rætt um frí, St. Tropez og Grace Jones. Þannig lýkur fyrsta hluta myndarinnar og annar byrjar. Annar mann- anna tveggja úr fyrsta þættinum sýnir íþróttahæfileika sína, ræðir við fréttamenn og ferðast í lyftu. Engum er misboðið. Þriðji og seinast þáttur mynd- arinnar varir í 6 mínútur. Nakinn kvenmaður er í myndramman- um, annar bætist við. Þær láta vel hvor að annarri. Karlmannsrödd heyrist hvetja þær áfram. Af og til kemur karlmannshönd inn í myndina og gælir við stúlkurnar. Að lokum stendur önnur þeirra upp og beinir upptökuvélinni að karlmanninum, þeim sama og hinir tveir hlutar myndarinnar sýna. Þessi lélega og klámfengna myndbandsspóla hefur verið á hvers manns vörum í Hollywood allt frá því að hún komst í dags- ljósið í maí í fyrra. Ástæðan er einföld; aðalleikarinn er Rob Lowe. „Loksins hefur Rob Lowe tekist að gera kvikmynd sem allir vilja sjá,“ lét Arsenio Hall hafa eftir sér og Gróurnar kættust. En það var ekki aðeins söguburður- inn sem gerði Lowe lífið leitt í framhaldinu því að önnur stúlkn- anna í þriðja þættinum var undir lögaldri. Leikarinn hefur því mátt sæta málaferlum og allskyns leiðindum undanfarna mánuði. Og nú spyrja menn hvort þetta hliðarspor Lowes marki endalok kvikmyndaferils hans, ferils sem hefur gert hann frægan og ríkan. Að sögn var hann í þann veginn að rjúfa 100 milljóna króna launa- múrinn fyrir'mynd þegar túskild- ings myndbandsspólan komst í hámæli. Hann á að baki kvik- myndir eins og Class, Oxford Blues og Square Dance. Kannski á allt umtalið eftir að verða Rob Lowe til framdráttar þó að nýjasta mynd hans bendi óneitanlega til annars. í mars síð- astliðnum byrjuðu bíóhúsin vest- an hafs að sýna Bad Influence en tökur á henni hófust rétt eftir að holskeflan skall yfir Rob Lowe. Það er svolítið kaldhæðnislegt að í Bad Influence leikur Lowe skítseiði sem dundar sér við að mynda kynmök og njósna um náungann. Því miður eru engar líkur á því að við fáum að sjá þessa kvikmynd í íslensku bíóhúsi því að ekki löngu eftir útkomu hennar var hún sett á myndbandamarkaðinn. Efmarka má kvikmyndadóm starfsbróður míns hjá Ámerican Fjlm virðist Bad Influence engu að sfður hafa margt sér til ágætis og segir hann það hreinan „scandal“ hversu fljótt myndin var tekin úr bíóhús- um. Eitt er víst; Bad Influence hefur ekki tekið af tvímæli um framtíð Rob Lowes sem Holly- woodleikara. Að svo komnu máli verður því ekki svarað hvort hann á sér þar framabraut eða hvort hann neyðist til að leggja út á aðrar brautir. Uppreisnarseggurinn - Willem Dafoe ílýgur yfir Hanoi Willem Dafoe hefur fyrir nokkru lokið við að leika undir handar- jaðri leikstjórans John Milius í Flight of the Intruder. Myndin it True Colors: Andi rómantíkur og svolítið sárr- ar lífsreynslu svífur yfir vötnum. Ástarþríhyrningurinn alræmdi er hér kominn upp á dekk undir leikstjórn Herberts Ross. John Cusack og James Spader leika lögfræðinema og vini er báðir fella hugi til sömu konunnar (Imogen Stubbs). Ross bregður upp á hvíta tjaldið tíu árum úr lífi þeirra félaganna. Paramount, haustið 1990. # Scenes From A Mall: Paul Mazursky bregður á leik; hann er í senn framleiðandi, höfundur og leikstjóri. Helstu hlutverk eru heldur ekki í hönd- um neinna óþekktra, Woody All- byggir á metsölubók Stephen Coonts og gerist í Víetnam árið 1972. Atburðarásin snýst í kring- um þrjá flugliða, harðskeyttan en leikur eiginmann en Bette Midler eiginkonu. Þau hafa verið gift í 15 ár þegar stund sannleik- ans rennur allt í einu upp og þau játa ótrúmennsku sína fyrir hin- um aðilanum. Touchstone gefur út en útkomutími er áætlaður um jóla- leytið. if A Kiss Before Dying: Matt Dillon bregður sér í gervi metnaðarfulls geðsjúklings (hvernig skyldi slíkur hugsa?) sem flækist inn í morð á hröðu klifri sínu upp þjóðfélagsstigann. James Dresden er höfundur handrits og einnig lcikstjóri. Universal, undir árslok 1990. flokksforingja, sem Danny Glov- er leikur, og tvo bestu stríðs- menn hans í gervi Brad Johnsons og Willems Dafoe. Dafoe ákveð- ur að gera sprengjuárás á Hanoi og Johnson sprengjuvarpari ákveður að slást í för með honum. Ferðin er farin í óþökk bandarískra hernaðaryfirvalda. Þegar Dafoe er spurður eftir ástæðu þess að hann tók að sér hlutverkið nefnir hann flugið sem höfuðorsökina. Um persónuna sem hann leikur vill Dafoe hafa sem fæst orð. „Það lætur mér illa að tala um persónugerðir," segir hann, „og yfirleitt enda ég á því að segja frá röð atburða. Það er raunar svo að stundum skemmir það fyrir mér að reyna að negla niður ákveðna skapgerðareigin- leika persónanna er ég tek að mér að túlka. Auðvitað er það bíófarans að lesa í söguhetjurn- ar. Þá ábyrgð vil ég ekki taka á mig því að ég held að það setji leikaranum skorður. Hann byrjar að hugsa of rökrétt og of sál- fræðilega sem kemur í veg fyrir allt létt meiningarlaust daður leikarans við persónuna sem hon- um er ætlað að skilja og að lokum - að verða. Um leið verður ill- mögulegt fyrir leikarann að upp- götva nýjar hliðar á persónunni. Ég held að eitt hið versta sem geti komið fyrir leikara sé að hann svo að segja fari fram úr sjálfum sér á þennan hátt.“ Rauði þráður Intruderer sam- band þeirra Dafoes og Johnsons og afleiðingar athafna þeirra. „Fyrir þeim félögum vakir að gera eitthvað uppbyggilegt,“ seg- ir Dafoe um tvímenningana, „sem er auðvitað mjög kaldhæð- ið því að markmið þeirra er að varpa sprengjum á fólk.“ Willem Dafoe sem flugmaðurinn Virgil „Tiger“ Cole í Flight of the Intruder. Kvikmyndir í burðarliðnum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.