Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 15

Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. október 1990 - DAGUR - 15 Auglýsendiu* ■Svpmwuiif a OO'll 'IS JlJ£f JvSuisf\Snv tjuæjs jvjjv vjuvd qv fjv(f qvjqjvSpij l •vjVAJUÚf vSvp vfz qatu vjuvd qv fiv(f )tj So jvSuisÁjSnv ujæjs JVjjy Svpmwuitf v 00'PI ■jq i!) jmsajfvnqs js v(f ‘qvjqjvSpq i vwau ‘SvpnfvS)n juff uujSvp 00'JI '1S 1U Jd vSuisfjSnvvws vqa pppjq v (wa oj) vqjvp vfz tua iuas vSutsfjSnv amsajfvjtyj auglýsingadeild Sími 96-24222 Hvers vegna er nágranni þinn áskrifandi að Heima er bezt Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis. Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir sent heim til þín í hverjum mánuði. Útfylltu þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“. Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti. x-------------------------------------------- Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri. Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að timaritinu „Heimaerbezt". □ Árgjald kr. 2.000,00. □ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990. Nafn: ______________________________________ Heimili:________________________________ Bróðir okkar, SIGURÐUR ÞÓRÐUR GUNNARSSON, frá Brettingsstöðum á Flateyjardal, Holtagötu 12, Akureyri, andaðist miðvikudaginn 17. október. Jarðarförin auglýst síðar. Systkini hins látna. KARLJÓNSSON, frá Breiðadal í Önundarfirði, sem lést þriðjudaginn 16. október á Kristneshæli verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 23. október kl. 13.30. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Ásgeir Jónsson. dagskró fjölmiðla Sam Shepard og Kim Basinger leika aðalhlutverkin i bíómynd Sjónvarpsins í kvöld. Myndin heitir Sjúk í ást og er byggð á samnefndu leikriti Shepards. Sjónvarpið Laugardagur 20. október 15.00 íþróttaþátturinn. 18.00 Alfreð önd (1). 18.25 Kisuleikhúsið (1). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Háskaslóðir (1). (Danger Bay.) 19.30 Hringsjá. 20.10 Fólkið í landinu. Vinstri hönd íslands. Hilmar Oddsson ræðir við Kristján Arason handknattleikskappa. 20.30 Lottó. 20.35 Fyrirmyndarfaðir (4). (The Cosby Show.) 21.00 Uppreisnin á Bounty. (Bounty.) Bandarísk bíómynd frá 1984. Þar segir frá hinni frægu uppreisn áhafn- arinnar á skipinu Bounty gegn Bligh skip- stjóra. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Anthony Hopkins, Laurence OUvier, Edward Fox og Bernard Hill. 23.10 Tina Turner. Upptaka frá tónleikum Tinu Turner í Barcelona 6. október. 01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Sunnudagur 21. október 14.30 íþróttir. Bein útsending frá úrslitaleik Evrópu- bandalagsmótsins í tennis í Antwerpen. 17.40 Sunnudagshugvekja. 17.50 Mikki (3). (Miki.) 18.05 Ungmennafélagið (27). 18.30 Fríða (1). (Frida.) Myndin segir frá Fríðu sem er ellefu ára. Kaisa, eldri systir hennar, er stöðugt ást- fangin en það þykir Fríðu heldur en ekki heimskulegt. í myndinni gerist ýmislegt sem breytir þessari skoðun hennar. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Vistaskipti (20). 19.30 Kastljós. 20.35 Ófriður og örlög (2). (War and Remembrance.) 21.30 í loftinu í 60 ár (1). Upphaf útvarps á íslandi. Hinn 20. desember nk. verða 60 ár liðin frá fyrstu útsendingu Ríkisútvarpsins. Af því tilefni sýnir Sjónvarpið nokkra þætti þar sem saga Ríkisútvarpsins er rifjuð upp og gerð grein fyrir starfsemi Útvarps og Sjónvarps um þessar mundir. 22.05 Ný tungl. Sá sem er dauður. Fjórði þáttur og síðast þátturinn í syrpu sem Sjónvarpið lét gera um dulrænu og alþýðuvísindi. í þættinum er fjallað um dauðann, líf eftir hann og sálnaflakk. 22.35 Yfirheyrslan. (Förhöret.) Ungur yfirmaður í sænska hernum er kall- aður til yfirheyrslu hjá stjórnarskrárnefnd þingsins. Njósnarinn Bergling hefur horf- ið sporlaust í Moskvu og grunur leikur á að sænska leyniþjónustan hafi ráðið hann af dögum. Aðalhlutverk: Stellan Skarsgárd, Helen Söderqvist, Guy de la Berg og Carl-Axel Karlsson. 23.35 Útvarpsfrét.tir í dagskrárlok. Sjónvarpið Mánudagur 22. október 17.50 Tumi (20). (Dommel.) 18.20 Kalli krít (5). 18.35 Svarta músin (5). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær (166). 19.20 Úrskurður kviðdóms (20). 19.50 Dick Tracy. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Almennar stjórnmálaumræður. Bein útsending frá stefnuræðu forsætis- ráðherra og umræðum um hana. Dagskrárlok verða um eða eftir miðnætti. Stöð 2 Laugardagur 20. október 09.00 Með Afa. 10.30 Bibliusögur. 10.55 Táningarnir í Hæðagerði. 11.20 Stórfótur. 11.25 Teiknimyndir. 11.35 Tinna. 12.00 í dýraleit. (Search for the Worlds Most Secret Animals.) 12.30 Fréttaágrip vikunnar. 13.00 Lagt i’ann. 13.30 Veröld - Sagan i sjónvarpi. (The World: A Television History.) 14.00 í brimgarðinum. (North Shore.) Ungur brimbrettaáhugamaður kemur til Hawaii að leita sér frægðar og frama á risaöldunum þar. Aðalhlutverk: Matt Adler, Gregory Harri- son og Nia Peeples. 15.35 Eðaltónar. 16.05 Sportpakkinn. 17.00 Falcon Crest. 18.00 Popp og kók. 18.30 Bílaiþróttir. 19.19 19.19. 20.00 Morðgáta. (Murder She Wrote.) 20.50 Spéspegill. 21.20 Blindskák. (Blind Chess.) Splunkuný og þrælspennandi bandarisk sjónvarpsmynd. 22.50 Zabou.# Rannsóknarlögreglumaðurinn Schimanski er á hælum eiturlyfjamafiunnar. Böndin berast að næturklúbbi sem stundaður er af þotuliðinu. Sér til skelfingar uppgötvar Schimanski að dóttir gamallar vinkonu hans virðist flækt í málið. Hann reynir að koma henni undan en hann fellur í gildru mafíunnar og vaknar á spítala sakaður um morð. Hann á engra kosta völ en að flýja af spítalanum og hundeltur af lög- reglunni og mafíunni, reynir hann að fletta ofan af eiturlyfjabaróninum til að sanna sakleysi sitt. Aðalhlutverk: Götz George, Claudia Messner og Wolfram Berger. Bönnuð börnum. 00.30 Einvalalið. (The Right Stuff.) Myndinni má skipta í tvo hluta. Sá fyrri fjallar um frægasta tilraunaflugmann Bandarikjanna fyrr og siðar, Chuck Yeager, en hann rauf hljóðmúrinn árið 1947. Seinni hlutinn greinir frá mönnunum sjö sem mynduðu fyrsta geimfarahóp N.A.S.A. Aðalhlutverk: Sam Shepard, Barbara Hershey, Kim Stanley, Donald Moffat, Levon Helm og Scott Wilson. Bönnuð börnum. 03.35 Dagskrárlok. Stöð 2 Sunnudagur 21. október 09.00 Kærleiksbirnirnir. 09.25 Trýni og Gosi. 09.35 Geimálfarnir. 10.00 Sannir draugabanar. 10.25 Perla. 10.45 Þrumufuglarnir. 11.10 Þrumukettirnir. 11.35 Skippy. 12.00 Kostulegt klúður. (Kidnapning.) Spennandi og skemmtileg fjölskyldu- mynd sem segir frá fjórum ungmennum en frændi þeirra fær þau til að ræna syni auðkýfings nokkurs. Aðalhlutverk: Otto Brandenburt, Jesper Langber, Lisbeth Dahl og Axel Ströbye. 13.15 ítalski boltinn. 14.55 Golf. 16.00 Myndrokk. 16.30 Popp og kók. 17.00 Björtu hliðarnar. 17.30 Hvað er ópera? Tjáning tónlistarinnar. (Understanding Opera.) 18.25 Frakkland nútimans. (Aujourd’hui.) 18.40 Viðskipti í Evrópu. (Financial Times Business Weekly.) 19.19 19.19. 20.00 Bernskubrek. (Wonder Years.) 20.25 Hercule Poirot. 21.20 Björtu hliðarnar. 21.50 Ósigrandi. # (Unconquered.) Sannsöguleg mynd sem byggð er á ævi Richmond Flowers yngri. Árið 1955 var Richmond Flowers sjö ára strákur sem þjáðist af asma og gekk í bæklunarskóm en dreymdi um að spila fótbolta. Á táningsárunum heilsast hon- um betur og kemst i skólafótboltaliðið. Þegar hann neyðist til að hætta þar vegna asmans reynir hann við grindahlaup í staðinn. Á þessum tímum ríkir mikill órói í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna kyn- þáttahaturs og faðir hans, sem er mjög frjálslyndur, verður fyrir barðinu á Ku Klux Klan. En Richmond lætur ekkert aftra sér og sækir um inngöngu í fótbolta- lið Tennessee háskólans. Aðalhlutverk: Peter Coyote, Dermot Mul- rooney og Tess Harper. 23.45 Mögnuð málaferli. (Sgt. Matlovich Vs the U.S. Air Force.) Leonard hefur starfað i þjónustu banda- riska flughersins um tólf ára skeið og hlotið margvíslegar viðurkenningar og orður fyrir dugnað i starfi. Þegar hann viðurkennir samkynhneigð sína horfir málið öðruvisi við fyrir yfirmönnum hans, sem boða til réttarhalda til að skera úr um hvort Leonard sé hæfur til að gegna her- þjónustu. Aðalhlutverk: Brad Dourif, Marc Singer og Frank Converce. Stranglega bönnuð börnum. 01.20 Dagskrárlok. Stöð 2 Mánudagur 22. október 16.45 Nágrannar. (Neighbours.) 17.30 Depill. 17.40 Hetjur himingeimsins. 18.05 Elsku Hóbó. 18.30 Kjallarinn. 19.19 19.19. 20.10 Dallas. 21.05 Sjónaukinn. 21.35 Á dagskrá. 21.50 Öryggisþjónustan. (Saracen.) 22.40 Sögur að handan. (Tales from the darkside.) 23.05 Fjalakötturinn. Rocco og bræur hans. # (Rocco e i suoi fratelli.) I þessari mynd er sögð saga fjögurra sik- ileyskra bræðra og sagt frá þeim erfiðleik- um sem þeir upphfa sem innflytjendur. 01.55 Dagskrálok.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.