Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 20.10.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 20. október 1990 - DAGUR - 5 Hjármál Leikfélags w'nnings: uxJJj *w"SSt2íís: iffii. ««■*" s« .nc(nd»r»ui< «S ',0 hondum mcn»i»m»l»- LCffl þc»u »!»»«»•«» (|án»»l»fj hx «f '•«' núlJt*'*“ Staða Leikfélags Akureyrar í brennidepli: Línudans yfir peningagjá Enn berast fregnir af erfíðum íjárhag Leikfélags Akureyrar og svo virðist sem þríhliða samn- ingurinn frá 1987 hafí ekki gengið upp og nú er beðið eftir nýjum leik. Við ætlum að skoða þessi mál og einnig viðhorf fólks til Leikfélags Akureyr- ar, húsnæðismál félagsins og jafnvel velta fyrir okkur tíðum leikhússtjóraskiptum. En fyrst eru það peningarnar. Þeir eru víst sá grunnur sem byggja verður starfsemina á og þótt leiklist byggist ekki á gróðavon fremur en önnur list verður að skapa henni viðunandi umhverfí og þar koma pen- ingarnir til sögunnar. í tengslum við 125 ára kaup- staðarafmæli Akureyrarbæjar 29. ágúst 1987 var gerður þríhliða samningur milli bæjarins, leikfé- lagsins og ríkisins. Bærinn skuld- batt sig til að veita félaginu a.m.k. jafnhátt framlag og ríkið og raunar hefur hann gert betur. Þessi samningur virðist ekki hafa gengið upp og skuldir LA við ríkissjóð eru umtalsverðar og komnar í vanskil. Um aðra fjár- hagslega erfiðleika mun þó ekki vera að ræða. Samningurinn rann út um síðustu áramót og hefur ekki enn verið endurnýjaður og verður sennilega ekki endurnýj- aður með þessu sniði. Hvað þá? „Félagið getur unnið sig úr vandanum“ í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar- innar er eftirfarandi klausa um Leikfélag Akureyrar: „Framlag til Leikfélags Akur- eyrar nemur 15,4 milljónum króna og hækkar lítillega frá fjár- lögum 1990. Félagið hefur átt við fjárhagserfiðleika að stríða. Taka þarf á þeim málum sérstaklega í meðferð málsins í fjárveitinga- nefnd.“ Að sögn Sigurðar Hróarsson- ar, leikhússtjóra, var framlagið á síðustu fjárlögum 12,7 milljónir og ef þessi tala stenst er þetta því hækkun um tæpar 3 milljónir. Hann sagðist ekki vita hvort þessi tala væri endanleg, en Sigurður mun eiga fund ineð ráðuneytis- mönnum eftir helgina. Aðalmál- ið er vanskilaskuldin við ríkis- sjóð, frá henni hefur ekki verið gengið en hún verður tekin til umræðu við gerð fjáraukalaga. Sigurður telur að vandi LA sé að öðru leyti ekki það mikill að félagið geti ekki unnið sig út úr honum. Framlög frá ríkinu og Akureyrarbæ og aðhaldsstefna í leikhúsinu eiga að tryggja rekstr- argrundvöll. Hann sagði að ekki væri búið að ganga frá framlagi Akureyrar- bæjar en það hefði verið mun hærra en frá ríkinu undanfarin ár, m.a. vegna þess að bærinn sá um rekstur Samkomuhússins en nú er rekstur hússins í höndum leikfélagsins. A listastarfsemi aö standa undir sér? Þær raddir hafa heyrst á síðustu árum og gjarnan haldist í hendur við fréttir af erfiðleikum hjá LA að það sé of dýrt fyrir Akureyr- inga að reka atvinnuleikhús og nær væri að setja peningana í eitthvað annað. Einn viðmæl- anda Dags sagði t.a.m. að leik- húsið yrði að láta sýningarnar standa undir sér, ekki treysta á utanaðkomandi fé. Ef þetta gengi ekki upp ætti að leggja það niður sem atvinnuleikhús. Þessar raddir hafa vissulega heyrst í sambandi við menningar- starfsemi, að hún eigi ekki að njóta opinberra styrkja heldur „standa undir sér“. Flestir telja þó mikilvægt að styðja við bakið á listum, enda sé menningin nauðsynlegur þáttur í þjóðlífinu því fyrir utan það að skilja okkur frá dýrum veitir hún andlega vel- líðan. Einhver ástæða hlýtur að vera fyrir 230 milljóna króna framlagi ríkisins til lista í fjár- lagafrumvarpi fyrir næsta ár. Leikhússtjórinn segist einnig hafa heyrt raddir andsnúnar leikhúsinu, en þó mun fleiri sem styðja það. í sama streng tóku flestir viðmælendur blaðsins. Þeir vilja hafa atvinnuleikhús á Akur- eyri, telja það mjög jákvætt fyrir íbúana og út á við og þá hefur verið bent á að leikhúsið skilar óbeint tekjum til bæjarfélagsins gegnum gisti- og veitingastaði. „En það hefur hver sitt áhuga- mál og mönnum finnst það sem þeir eru að sýsla við stærra mál en annað. Hver reynir að ota sín- um, sem von er,“ sagði Sigurður, en hver er stefna bæjaryfirvalda gagnvart leikhúsinu? Bærinn styöur atvinnuleikhús Sigríður Stefánsdóttir, forsteti bæjarstjórnar, sagði það hafa komið fram í afgreiðslu bæjar- stjórnar og fjárlögum að Akur- eyrarbær styðji atvinnuleikhús í bænum. „Þessi stefna hefur kannski ekki komið fram í öðru en því að höfum alltaf reynt að gera okkar til að halda hér gangandi atvinnu- leikhúsi. Við höfum samt oft bent á það, og verið samtaka þeim sem eru í forsvari hjá leik- félaginu, að þetta er eina atvinnuleikhúsið után Reykja- víkursvæðisins og það ætti að mörgu leyti erfiðara uppdráttar vegna þess að markaðurinn er ekki eins stór og fyrir sunnan. Okkur finnst að stjórnvöld hafi ekki tekið nægilegt tillit til þess og við höfum verið að þrýsta á að það komi meira frá fjárveitinga- valdinu,“ sagði Sigríður. Hún sagði að fjárhagslegir erf- iðleikar hefðu komið upp öðru hverju hjá Leikfélagi Akureyrar og nú yrði að skoða hvað fór úrskeiðis í sambandi við þríhliða samninginn, sem átti að marka tímamót í rekstrinum. Þetta verður að fá á hreint áður en nýr samningur verður gerður milli Akureyrarbæjar og leikfélagsins og þá verður að hafa fengist botn í skuldastöðuna gagnvart ríkinu. Raunhæf aöhalds- stefna í vetur Sigurður Hróarsson segist hafa mætt jákvæðu viðhorfi, bæði hjá bæjaryfirvöldum og menntamála- ráðherra. Hann taldi tilveru atvinnuleikhúss á Akureyri ekki í hættu, „nema landsfeðurnir taki skyndilega allt aðra stefnu en þeir hafa viðrað við okkur í leikhúsinu.“ Hann segir líka að síðastliðin ár hafi verið rekin ströng aðhaldsstefna í leikhús- inu. Settar hefðu verið upp fámennar og fremur ódýrar sýn- ingar og sparað hefði verið í mannahaldi, t.d. fáir leikarar fast- ráðnir. „Við rekum raunhæfa aðhalds- stefnu í vetur og setjum upp þrjú verk í húsinu. Fyrsta verkið er f-ierrsir MaiöUur i ’ÍT’ív^' c_ “*V1 |J hluthafa mjög ódýrt og uppsetningin í kirkjunni verður líka mjög ódýr sem leiksýning. Ættarmótið er miðlungsstykki og svo kemur einn dýr söngleikur, en reynslan hefur sýnt að þeir laða að flesta áhorfendur,“ sagði Sigurður. Hann sagði að LA hefði verið látið taka á sig hluta af vandanum og félagið reyndi nú að vinna sig út úr honum. Með bærilegri af- greiðslu á fjáraukalögum svo og á fjárlögum, jafnvel þótt miðað væri við töluna 15,4 milljónir, ætti félagið að geta bjargað sér út úr vandræðunum, að mati Sig- urðar. Já, það er beðið eftir næsta leik ríkisvaldsins. Forseti bæjar- stjórnar segir líka að ef ríkið dragi lappirnar þá sé spurning hvað bæjarfélagið hafi mikið bol- magn til að styðja leikfélagið. Hingað til hafi það verið reynt og framlag bæjarins hafi verið mjög hátt, miðað við hina sígildu höfðatölu. Húsnæðismál leikfélagsins Þetta er línudans, sem við erum að fjalla um hér. Leikfélagið reynir að feta sig eftir beinni línu, sem sumir vilja toga niður en aðr- ir hífa upp. Þeir síðarnefndu vilja bæta umhverfi LA með því að taka Santkomuhúsið í gegn og byggja við það. Rætt er um Samkomuhúsið á Akureyri. Á innfelldu myndunum eru Sigríður Stefánsdóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar og Sigurður Hróarsson leikhússtjóri. þrengsli og óhentug húsakynni, en skyldi vera raunhæft að hugsa um þessi mál meðan reksturinn er í járnum? „Það er í höndum bæjarins, eiganda hússins, hvað gert verður í Jteim málum,“ sagði Sigurður. „I haust er búið að gera heilmikið í húsinu, taka snyrtingar í gegn, leikaraherbergin sömuleiðis, búið að setja upp viftu og margt fleira.“ Hann sagði að nú væri brýnast að taka sjálfan salinn í gegn. Nauðsynlegt er að gjörbreyta loftræstingunni og einnig eru sæt- in farin að syngja sitt síðasta. Þessi atriði verða áhorfendur auðvitað mjög varir við. „Við vonum svo sannarlega að þetta verði síðasti veturinn sem áhorf- endum verður boðið upp á salinn í þessari mynd,“ sagði Sigurður. Tíð leikhússtjóraskipti „Viðbygging hefur ekki komið á borð þessarar bæjarstjórnar. Ég býst við að það komi að því en auðvitað verður fyrst að tryggja rekstur leikfélagsins. Þótt húsið sé skemmtilegt og eigi sér sögu þarfnast það endurbóta til að teljast nútíma leikhús,“ sagði Sigríður. Hún bjóst við að húsnæðismál LA yrðu skoðuð í samhengi við önnur menningarmál því þar er margt sent þarf að gera en ekki hægt að gera allt í einu. Við komumst ekki lengra í þessari umfjöllun. Við reyndum aðeins að drepa á andrúmsloftinu í leikhúsinu og vegna tíðra leik- hússtjóraskipta vaknaði sú spurn- ing hvort það væri vont að vinna hjá Leikfélagi Akureyrar. Sigurður Hróarsson, fráfarandi leikhússtjóri, gat ekkert nema gott sagt um starfið hjá LA og að sér hefði ltkað mjög vel að vinna með fólkinu. Ástæðuna fyrir um- sóknunt hans um leikhússtjóra- stöður í Reykjavík er því ekki að finna í starfsumhverfinu á Akur- eyri. Sunna Borg, núverandi for- maður LA, sagðist ekki hafa skýringar á örum leikhússtjóra- skiptum á síðustu árum. Hún bjóst við að ástæðurnar væru mis- munandi hjá hverjum og einum en hún gat þess að það vaéri slæmt að missa Sigurð. Aðspurð kvaðst Sunna ekkert geta sagt unt það núna hvort eða hvenær auglýst yrði eftir nýjum leikhússtjóra. Leikhúsráð ætti eftir að meta stöðuna og auðvitað yrði leikfélagið að hugsa sinn gang í þessum efnum. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.