Dagur - 24.10.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 24.10.1990, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 24. október 1990 - DAGUR - 5 ozta stoou6. . ckki að bcrjast fyrir bzttum kjörum cð T ganga úr skugga um hvort það fái nú örugg lcga grcitt samkvzmt kjarasamningum." Misrétti kynjanna í launamálum „Þctta ár hjá Alþýðusambandinu brcytti sýn ’minni á misrétti kynjanna á vinnumarkaðin- um. Bzði komst ég áþrcifanlcga að þcssu í gcgnum útgcfnar tölur Kjararannsókna- ncfndar og þá varð ég sjálf fyrir því að fá minna greitt, cn ég taldi mig ciga að fá." Vinnan hjá Alþýðusambandinu vari' skemmri en til stóð. Lilja gerði athugascir við launakjör sín þar scm mikill munur vr| á hennar launum og launum Ara. Auk þc'I _ EUki tekið mark á konu Piftir ."ib ég kom hcim fór ég að lcita mér að J tiíiu í sjávarútvegsgciranum. Mig langaði ■ið vinna fyrir sjávarútvcginn kannski af V vcim ástzðum, í fyrsta lagi skrifaði ég loka- I itgerð mína um málcfni hans og þá hef ég ■ >ann bakgrunn að hafa alist upp í sjávar- ■plássi og unnið í fiskvinnslu. Eg rcyndi sam- ■ fcllt í tvo mánuði að fá vinnu og fékk yfir- lieitt þau svör að ástandið vzri mjög svart og ■iví ckki hzgt að ráða nýtt fólk til starfa. ^inn zttingi minn, háttscttur í valdakcrfi ^ívarútvcgsins, var þó mjög hreinskilinn HL mig og sagði: „Því miður, þá getum við | -áðið þig af því þú ert kona. Karlarnir j im bransa taka cinfaldlcga ekki mark u.“ Ég býst því við að kynferð- . ^crið meginástzðan fyrir J .t var að fá vinnu, þrátt f' f hzft mig í efnahagslcgi' ' varútvcgsins. Pað hafa l.zðingar gcrt. J Ég gafst einfaldlcga I jóllcga fékk ég upphrii ■ skrifstofu, scm ég hafð liér boðin staða hagfrzc | imbandinu. Ég sló til.“ Steinrunnin verkalýðsforusta f Par á bz störfuðu tveir hagfræðingar, auk ' Ásmundar Stcfánssonar, forscta Alþýðu- i sambandsins. Hinn var Ari Skúlason. k enn starfar hjá ASÍ. „Ég starfaði hjá /- Vtzpt ár. Ég var ckki sett í neina ákye? ^ "^ka, cn sá um þau verkefni “.................• r.,rtta verk " Mikið lótið með fyriitœkin É viiisléWna áikuievti. Rangfærslum LBju Mósesdóttur svarað Pann 13. október sl. birtist í blaði ykkar viðtal við Lilju Mósesdótt- ur, lektor við Háskólann á Akur- eyri. í viðtalinu er víða komið við, og meðal annars rekur Lilja þar kynni sín af íslenskri verka- Íýðshreyfingu og störf sín og starfslok sem hagfræðingur hjá Alþýðusambandi íslands. Par sem Lilja kýs rangfæra ýmis atriði í frásögn sinni af störfum sínum og starfslokum hjá ASÍ er hér óhjákvæmilegt að koma að leið- réttingum. Það hefur þó ekki ver- ið gert opinberlega fyrr, þrátt fyr- ir umfjöilun fjölmiðla um málið á sl. ári, ekki af því að Alþýðu- sambandið hafi þar eitthvað að fela, heldur af tillitssemi við Lilju Mósesdóttur, sem var að hefja starfsferil sinn sem hagfræðingur á íslenskum vinnumarkaði með störfum sínum hjá ASÍ. Svo sem fram kemur í viðtal- inu var Lilja ráðin til starfa hjá ASÍ haustið 1988, nánar tiltekið þann 1. nóvember 1988. Hún hafði því starfað í rétt rúma 9 mánuði er hún sagði upp störf- um. Við ráðningu var rætt við hana um vinnutilhögun og skipt- ingu starfa, og henni gerð grein fyrir ýmsum atriðum, sem eru sérstök fyrir vinnustað eins og skrifstofu ASÍ. Vinnustaðurinn er fámennur og sérfræðingar ein- ungis teljandi á fingrum annarrar handar, en störfin sem vinna þarf ákaflega mismunandi, og álag og streita geta orðið gífurleg. Pví verða allir að sætta sig við að ganga í hvaða störf sem er, þegar á þarf að halda. Hér ríkir ekki sú akademíska friðsæld, sem fólk, sem kemur úr löngu háskólanámi er vant. Vísindastörfin verður að vinna í tengslum við og í ígripum með öðrum störfum, sem kalla að. Skrifstofa Alþýðusambands- ins starfar undir stjórn fram- kvæmdastjóra og forseta ASÍ, en í raun er það miðstjórn sam- bandsins sem leggur línur um störfin. Eins og gefur að skilja er málum raðað í forgangsröð og hafa þau verkefni sem miðstjórn og þing ASÍ ákveðið að unnin séu forgang umfram önnur. Þessi atriði virtist Lilja ekki geta sætt sig við, og eins og kemur fram í viðtalinu taldi hún sig verða fyrir einhvers konar niðurlægingu, sem hún síðar hefur tengt kyn- ferði sínu. Þegar Lilja sagði upp störfum gaf hún ýmsar ástæður fyrir upp- sögn sinni, en launin voru ekki einn af þeim þáttum sem hún þá nefndi. Hún var beðin að endur- skoða afstöðu sína og setja fram kröfur sínar um skilyrði fyrir áframhaldandi störfum. Það gerði Lilja stuttu síðar með bréfi þar sem hún setti fram kaup- kröfu, kröfu um vinnutilhögun og kröfu um valdastöðu. Varð- andi vinnutilhögun óskaði Lilja eftir því að henni yrðu ekki falin umfangsmikil verkefni sem Lára V. Júlíusdóttir. tengdust félagslegum réttindum, sbr. sjúkrasjóði, og að hlutfalls- leg skipting milli þjónustuverk- efna og stefnumarkandi verkefna yrði sú sama hjá henni og hinum hagfræðingnum. Varðandi valda- stöðu sína vildi hún að völd hennar yrðu aukin þannig að í nefndastörfum héldist sama hlutfall milli ritarastarfs og full- trúastarfs og gerðist hjá hinum hagfræðingnum. Þannig háttar til að sérstök nefnd skipuð af mið- stjórn ákveður launakjör starfs- fólks ASÍ. Þegar forseta og hag- fræðingi barst þetta bréf var ljóst að kröfur um vinnutilhögun og valdastöðu féllu ekki að því vinnu- fyrirkomulagi sem hér tíðkast, þar sem allir verða að leggjast á eitt til að ná settum markmiðum í þeirri vinnu sem hér þarf að vinna, og þar er ekki hægt að aðgreina það hvaða verkefni eru félagsleg og hvar stefnumark- andi, oftast fer það saman, eða hvaða hlutfall sé milli þjónustu- verkefna og stefnumarkandi verkefna hjá einstökum starfs- mönnum. Ennfremur þurfa störf að vinnast án þess að starfsmenn séu uppteknir við að velta fyrir sér valdastöðum og hlutföllum milli starfa sem starfsmenn nefnda og sem fulltrúar í nefndum. Lilju var ítarlega gerð grein fyrir þessu við ráðningu. Því var henni tjáð, þegar málið kom upp að nýju að þessar kröf- ur yrði ekki hægt að uppfylla. Því kom aldrei til þess að launakrafa hennar væri tekin til umfjöllunar af launanefnd miðstjórnar, og uppsögn hennar stóð. Síðar hefur Lilja reynt að tengja uppsögn sína ágreiningi um launakjör og kynjamisrétti og hefur meðal annars gripið til samanburðar við laun þess hag- fræðings sem fyrir var í starfi og laun skrifstofustjóra ASÍ máli sínu til stuðnings. Sá hagfræðing- ur er forstöðumaður hagdeildar ASÍ og hefur margra ára starfs- reynslu. Lilju var fullkunnugt um launakjör hans er hún hóf störf, og gerði enga athugasemd við þann mun sem yrði á laununum. Það er rétt að laun skrifstofu- stjóra voru hækkuð nokkru áður en Lilja sagði hér upp störfum. Sömuleiðis voru laun nokkurra annarra starfsmanna hækkuð, meðal annars nokkurra þeirra kvenna sem hér starfa. Tengdist þetta ákveðinni samræmingu á Íaunakjörum stárfsmanna í hús- inu, og náði ekki til sérfræðinga ASÍ. Þótt grunnlaun skrifstofu- stjóra hafi hækkað lítillega upp fyrir laun hagfræöings ber þess að geta að hagfræðingur var í lífeyr- issjóði starfsmanna ríkisins á þessum tíma, en skrifstofustjóri ekki. Þennan mun er skylt að meta þegar laun eru borin saman. Samkvæmt upplýsingum tryggingafræðings samsvarar þessi munur 11,8%. Án þess að til standi að gera samanburð á hæfni eða starfsreynslu Lilju og umrædds skrifstofustjóra má geta þess að auk þess að hafa að baki fjögurra ára háskólanám hefur skrifstofustjóri 14 ára starfsreynslu við skrifstofustörf, kennslu og blaðamennsku, þar af hafði hann starfað í sex ár innan verkalýðs- hreyfingarinnar. Það urðu mér mikil vonbrigði að Lilja Mósesdóttir skyldi ákveða að hætta að vinna hjá Alþýðusambandinu, enda hafði ég hlakkað til þess að konum fjölgaði í sérfræðingaliði launa- fólks. En mig óraði ekki fyrir að hún myndi síðar sverta þennan vinnustað sinn og bera hann út vegna kynjamisréttis. Ég get fyllilega tekið undir það sjónar- mið að ekki er auðvelt að vinna þau störf sem hér eru unnin, erf- itt að vera kona í störfum hér, og lítið næði til að sinna nákvæm- lega því sem maður helst vildi. En að Lilja Mósesdóttir hafi hætt hér störfum vegna misréttis kynja í launum er beinlínis rangt. Henni voru greidd hér þau laun sem nýútskrifaðir hagfræðingar fá á almennum vinnumarkaði (að hennar sögn helmingi hærri en lektorslaun við Háskólann á Akureyri), henni voru búin eins góð vinnuskilyrði hér og hægt var, keýpt handa henni ný tölva, hún fékk m.a. að aðlagast þeim verkefnum sem unnin eru á skrif- stofu ASÍ og hún kostuð og send á skóla Norræna menningar- og fræðslusambandsins á þeim stutta tíma sem hún var hér. Hún átti þess alla kosti að vinna sig hér upp sem hagfræðingur heildar- samtaka launafólks á íslandi, en hún sneri frá eftir aðeins níu mánuði vegna þess að hún vildi ekki vinna í þeim erli sem hér er og óskaði að geta sinnt fræði- störfum í meira næði. Að reyna að koma sökinni af þeirri ákvörð- un yfir á ASÍ segir mest um hana sjálfa. Lára V. Júlíusdóttir. Höfundur er framkvæmdastjóri A.S.Í. Húseignir á Skagaströnd Kauptilboð óskast í 2 skála að Strandgötu 34 á Skagaströnd, samtals 301 m2 að stærð. Brunabóta- mat er kr. 7.291.000.00. Skálarnir verða til sýnis í samráði við Vilhelm Jónsson, Bogabraut 9, Skaga- strönd, (sími: 95-22729). Tilboðseyðublöð eru afhent á staðnum og á skrif- stofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00, 30. október 1990, þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTUNI 7 SÍMI 26844 r ■n Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri Slmi 21635 - Skipagötu 14 60 ára afmælisfagnaður Félags verslunar- og skrifstofufólks verður hald- inn í Bláhvammi, Skipagötu 14, laugardaginn 3. nóvember kl. 19.30. Matseðill: Blandaðir sjávarréttir í brauðkænum Svínahamborgarahryggur m/rauðvínssósu Marineraðar ferskjur m/rjóma Skemmtiatriði ★ Dansað til klukkan 3 Hljómsveit Birgis Marinóssonar Miðaverð kr. 2.400.00.- Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast skrif- stofu félagsins eigi síðar en þriðjudagskvöld 30. október. Sími 21635. Félagar fjölmennnum á afmælisfagnaðinn. Stjórnin. V_____________________________________________/ Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3 lækkar niður í 1,8% og af Einingabréfum 2 niður í 0,5% sé tílkynnt um innlausn með engum fyrirvara, Innlausnargjald af Einíngabréfum 1 og 3 lækkar niður í 0,9% ef tilkynnt er um innlausn með 30 daga fyrirvara. Sölugengi verðbréfa þann 24. okt. Einingabréf 1 5.127,- Einingabréf 2 ............ 2.783,- Einingabréf 3 ............ 3.372,- Skammtímabréf ............ 1,726 áál KAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.