Dagur - 24.10.1990, Blaðsíða 12
Háseti af Sléttbak fluttur
til lands með þyrlu:
„Læknirinn sýndi
fádæma kjark“
I fyrrinótt veiktist sjómaður
illilega um borð í frystitogaran-
um Sléttbaki EA-304 frá
Akureyri, þar sem hann var að
veiðum fyrir Suðurlandi. TF-
Sif, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, sótti manninn og hann er
nú á Borgarspítalanum.
„Maðurinn veiktist hastarlega
og því var gripið til þess í samráði
við lækna að senda TF-Sif eftir
honum. Maðurinn er nú undir
læknishöndum á Borgarspítalan-
um. Þyrlan kom hér yfir okkur
um kl. 4.00 um nóttina og allt
gekk vel fyrir sig þrátt fyrir afar
erfiðar aðstæður. Súld var, lág-
skýjað, hvasst og töluverður sjór.
Glannalegur ökumaður:
Tekiim á 154 km
hraða á Ólafs-
fjarðarvegi
Góða veðrið og betri færð
veldur því að ökumönnum
hættir til að aka of hratt þessa
dagana. Lögreglan tók þrjá
ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur í gær og þar af einn fyrir
ofsaakstur.
„Okkar menn voru úti við í
gær með radarinn og stöðvuðu
þrjár bifreiðar sem ekið var of
hratt. Ein þeirra var tekin á móts
við Hámundarstaði, hvar hún
flaug eftir veginum á 154 km
hraða. Ökumaðurinn var sviptur
ökuleyfinu á staðnum,“ sagði
Gunnar Randversson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri. ój
Grímsey:
Bátarnir fengu 35 tonn í síðustu viku
- sautján tonna bátur bættist í flotann fyrir skömmu
í raun og veru er ekki annað hægt
en dást að færni flugmannanna
og læknirinn Alma Möller, sem
seig niður til okkar og bjó um
manninn, sýndi fádæma mikinn
kjark. Að hanga neðan í þyrlu í
vitlausu veðri um hánótt, sem
hún gerði, er ekki allra,“ sagði
Kristján Halldórsson, skipstjóri
Sléttbaks, hvar hann var staddur
um borð í skipi sínu á Grindavík-
urdýpinu. ój
Verð á íbúðarhúsnæði á Akur-
eyri er nú 5-7% hærra en var í
lok síðasta árs. Sé miðað við
lánskjaravísitöluna er verðið
um 2-3% lægra. Þessi verð-
þróun er hliðstæð verðþróun á
fjölbýlishúsaíbúðum á Reykja-
víkursvæðinu á þessu tímabili.
í fréttabréfi Fasteignamats
ríkisins og Matsmannafélags
íslands segir að efnahagsþróun
hafi verið heldur óvenjuleg á
þessu ári. Verðbólga hafi mælst í
eins stafs tölu og þannig verið
minni en um 20 ára skeið. Þetta
atriði ásamt húsbréfakerfinu hafi
þótt líklegt til að hafa nokkur
Bátar frá Grímsey hafa aflað
ágætlega undanfarið, og í síð-
ustu viku lönduðu þeir tólf bát-
ar sem leggja upp hjá Fisk-
áhrif á fasteignamarkaðinn en
margir spáðu því þegar á árið leið
að fasteignaverð færi að standa í
stað.
Samkvæmt könnun á 1. árs-
fjórðungi ársins var verð um
0,6% hærra en á síðasta ársfjórð-
ungi síðasta árs. Hér er átt við
fjölbýlishúsaíbúðir í Reykjavík
en verðþróun hefur verið sú sama
á íbúðarhúsnæði á Akureyri, eins
og áður segir. Bráðabirgðaniður-
stöður liggja nú fyrir um sölu
fasteigna á 2. og 3. ársfjórðungi í
ár og bendir flest til að við lok 3.
ársfjórðungs hafi íbúðaverðið
hækkað um 5-7% frá síðasta árs-
fjórðungi 1989. JÓH
verkun KEA samtals þrjátíu
og fimm tonnum. Sautján
tonna bátur bættist í flota
Grímseyinga fyrir skömmu,
Magnús EA, og hefur hann
aflaö vel.
Einar G. Þorgeirsson, verk-
stjóri, segir að aflinn í síðustu
viku verði að teljast mjög þokka-
legur á tólf báta. Bátarnir þurfa
ekki að fara langt til veiða, þeir
eru á færum og línu nema einn,
sem er á snurvoð.
Síðastnefndi báturinn, Magnús
EA, er sautján tonn að stærð,
stálbátur, sem kom til Grímseyj-
ar fyrir þremur vikum. Eigandi
Magnúsar er Sigfús Jóhannesson,
útgerðarmaður í Vogi. Tveir til
þrír menn eru á Magnúsi í róðri.
Báturinn var smíðaður á Seyðis-
firði fyrir þremur árum, en
núverandi eigandi keypti hann
frá Rifi. Jafnframt seldi hann
eldri bát, sem bar sama nafn.
Þær miklu hafnarframkvæmdir
sem staðið hafa yfir í Grímsey á
þessu ári hafa þegar sannað gildi
sitt, og eru sjómenn mjög ánægð-
ir með það skjól sem nýja höfnin
veitir. Búið er að ganga frá garð-
Reinhard Reynisson tók við
starfi sveitarstjóra á Þórshöfn
um síðustu mánaðamót en
hann var áður sveitarstjóri í
Reykhólahreppi í Barða-
strandasýslu. Þar snerist lífið
um landbúnað og þörunga-
vinnslu en nú er það ftskurinn
sem öllu máli skiptir.
Dagur hafði samband við nýja
sveitarstjórann á Þórshöfn og
innti hann eftir helstu málum sem
að hans mati væru á döfinni hjá
hreppnum. Hann nefndi fyrst
áframhaldandi gatnagerðarfram-
kvæmdir. Ný vatnsveita var lögð
á Þórshöfn 1987-88 og næsta
sumar verður væntanlega lokið
við frágang gatna eftir þær fram-
kvæmdir.
í öðru lagi talaði Reinhard um
hafnarmálin. Hann segir nauð-
synlegt að dýpka höfnina en byrj-
inum sunnan við höfnina, og ver-
ið að smíða bryggju. Dýpkun
stendur yfir í höfninni, en bátum
hefur verið hleypt upp að bryggj-
unni til legu yfir nætur. EHB
að var á þeim framkvæmdum fyr-
ir fáeinum árum en ekki náðist
alls staðar það dýpi sem stefnt
var að. Þá var ekki lokið við
brimvarnargarð og sagðist Rein-
hard vonast til að fjárveiting
fengist tii þessara mála fyrir
næsta ár.
„Síðan er þetta hér eins og hjá
mörgum sveitarsjóðum að við
þurfum að halda fast um budd-
una. Það hefur verið reynt að
veita ákveðna þjónustu og tölu-
vert verið fjárfest en það er ekki
hægt að halda uppi miklum fram-
kvæmdum ár eftir ár. Þessir litlu
sveitarsjóðir eru ekki digrir og
menn verða stundum að slá af,“
sagði Reinhard.
Hann sagði þó að staða sveitar-
sjóðs væri alls ekkert slæm og
gott hljóð í mönnum á Þórshöfn.
SS
Jóhann Sigurjónsson, sjávarliffræðingur:
Sér fram á stöðvun hvaia-
raimsókna á næstu tveim árum
fbúðarhúsnæði á Akureyri:
Verðhækkun á árinu um 5-7%
Þórshafnarhreppur:
Gatnagerð og dýpkun
hafriar helstu málin
nái tillögur í Qárlagafrumvarpi fram að ganga
Kaldbakur á Grenivík:
Kaupir fisk frá Dalvík
Jóhann Sigurjónsson, sjávar-
líffræðingur, segist sjá fram á
stöðvun hvalarannsókna á haf-
svæðinu í kringum ísland inn-
an tveggja ára, nái tillögur í
fjárlagafrumvarpi fyrir 1991
fram að ganga. Þar er gert ráð
fyrir um helmings skerðingu á
framlögum til hvalarannsókna
miðað við núgildandi fjárveit-
ingar.
Þetta kom m.a. fram f máli
Jóhanns á aðalfundi Útvegs-
mannafélags Norðurlands á
Akureyri í gær.
Jóhann gerði útvegsmönnum
grein fyrir ýmsum rannsóknum á
hvalastofnum á svæðinu ísland -
Austur-Grænland - Færeyjar.
Fram kom í máli hans að vísinda-
menn telja sig geta sagt með
nokkurri vissu að hrefnustofninn
á umræddu svæði séu um 28 þús-
und dýr og 11.500 langreyðar.
Um stofnstærð annarra teg-
unda sagði Jóhann að væri erfið-
ara að segja til um vegna skorts á
upplýsingum. Af þeim sökum
væri örðugt að kveða upp úr um
hversu mikið magn fisks hvala-
tegundir í norðurhöfum ætu. Þó
væri vitað að þar væri um gríðar-
legt magn að ræða. Til marks um
það sagði Jóhann að þann tíma á
hverju ári sem hvalategundir,
t.d. langreyður, hrefna, steypi-
reyður, sandreyður og hnúfubak-
ur, væru á norðurslóðum, ætu
þær um 2% af þyngd sinni á dag.
Jóhann sagði að um síðustu
aldamót hafi verið gengið nálægt
hnúfubaksstofninum, en hann
hafi náð sér vel á strik og talning
árið 1987 hafi leitt í ljós að hann
teldi um 2000 dýr. Hann áætlaði
út frá þessari tölu að margt benti
til að hnúfubaksstofninn hefði
náð sömu stofnstærð og fyrir síð-
ustu aldamót. óþh
Frystihús Kaldbaks hf. á Greni-
vík hefur undanfarið fengið
töluvert af fiski frá Fiskmiðlun
Norðurlands á Dalvík. Með
því móti hefur verið hægt að
halda átta stunda vinnudegi í
frystihúsinu.
Togarinn Frosti er í siglingu,
og mun hann landa erlendis í
byrjun næsta mánaðar. Ekki er
því von á að hann landi á Greni-
vík á næstunni. Sjöfnin er á
rækjuveiðum. Línubátar hafa því
séð frystihúsinu fyrir afla, auk
þess sem hefur verið keypt frá
Dalvík, en bátarnir hafa aflað
þokkalega undanfarið.
Hrafnhildur Áskelsdóttir,
verkstjóri hjá Kaldbak, segir að í
síðustu viku hafi vinna fallið nið-
ur í einn og hálfan dag, en að
öðru leyti hafi verið unnin dag-
vinna í frystihúsinu. EHB