Dagur - 22.11.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 22.11.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 22. nóvember 1990 - DAGUR - 3 -i fréttir » © » » » I » Rottufaraldur á Akureyri? „Aldrei heyrt á slíkt miimst - segir Svanberg Þórðarson, meindýraeyðir 66 „Aldrei heyrt á slíkt minnst,“ sagði Svanberg Þórðarson, dýraeftirlitsmaður og meindýra- eyðir á Akureyri, þegar hann var spurður um meintan rottu- faraldur á Akureyri. Húsmóðir við Hjallalund hafði hringt til Dags og kvartað undan mein- dýrum þessum. Að sögn Svanbergs hefur ögn borið á músum á haustdögum og fyrstu dögum vetrar, en ekki rottum. „Lítið hefur orðið vart við rottur í sumar og haust á Akureyri. Eitur var sett í brunna í júm'mánuði og einnig í lok októ- ber. Raunareru bæjarstarfsmenn að vinna að þessum málum einnig nú. Eitt og eitt rottutilfelli kemur inn á borð til okkar. Oft- ast er þá um að ræða að skólp- lagnir hafa gengið í sundur í eldri Akureyri: Bæjarfógeti vonast eftir að fá Útvegsbankahúsnæðið „Ég vona sannarlega að við fáum þetta húsnæði til umráða sem fyrst,“ sagði Elías Elías- son, bæjarfógeti á Akureyri, þegar hann var spurður um hvort til stæði að bæjarfógeta- og sýslumannsembættið myndi fá gamla Útvegsbankahúsnæð- ið við Hafnarstræti á Akureyri til umráða. Fógetaembættið er til húsa á hæðunum yfir gamla afgreiðslu- sal Útvegsbankans við Hafnar- stræti 107. Fyrir löngu er orðið alltof þröngt um starfsemina og því horfir fógeti vonaraugum til þess að fá afnot af húsnæði Útvegsbankans. Til þess að svo megi verða þarf ríkið hins vegar að kaupa húsnæðið af íslands- banka, sem telst vera eigandi þess eftir samruna Útvegsbanka, Alþýðubanká, Verslunarbanka og Iðnaðarbanka. „Eg veit ekki annað en málið sé í Stjórnarráðinu. Fjárveitinga- valdið ræður þessu. Ég held að menn séu inn á því að kaupa þetta húsnæði. Ríkið á húsið að öðru leyti og því færi vel á að það eignaðist einnig þennan hluta þess. Sjúkrasamlagið kom undir embættið um síðustu áramót og það er í leiguhúsnæði út í bæ. Við reiknuðum með að fá það hingað inn,“ sagði Elías. Elías sagði að ef húsnæðið yrði keypt fyrir embættið væru uppi ýmsar hugmyndir um nýtingu þess. Til greina kæmi t.d. að flytja innheimtuna niður á jarð- hæð. óþh Bæjarstjórn Húsavíkur: Ákveðið að kaupa nýjan slökkvibíl Bæjarstjórn Húsavíkur hefur samþykkt tillögu um heimild til kaupa á slökkvibifreiö fyrir Slökkvistöð Húsavíkur. Það er Jón Ásberg Salómons- son, bæjarfulltrúi og slökkviliðs- stjóri, sem lagði tillöguna fram. Er hún þess efnis að bæjarráði verði veitt fullt umboð og heimild til að taka ákvörðun um kaup á slökkvibifreið. Áætlað kaupverð með vsk. er 13-15 milljónir króna. f tillögunni felst ósk um að bæjarstjóri leggi kauptilboð fyrir bæjarráð eins fijótt og tök eru á og að bæjarráði verði heim- ilaðar nauðsynlegar lántökur vegna kaupanna. IM Samtök sjómanna og útvegsmanna: Vilja veðurfregnir á samtengdum rásum RÚV Páll Bergþórsson, veðurstofu- stjóri, segir að af hálfu Veður- stofunnar sé áhugi fyrir að auka veðurfréttaþjónustu við sjófarendur og raunar lands- menn alla. Hann segir að sam- tök sjómanna og útgerðar- manna hafi farið þess á leit við Veðurstofuna að hefja útsend- ingar veðurfregna á Rás 2 og standi nú yfír viðræður við Ríkisútvarpið um að koma til móts við þær óskir. Þá segir Páll það hafa komið til tals að útvarpa veðurfréttum með öðru sniði en verið hefur í þeim tveim fréttatímum Ríkis- útvarpsins sem hafa mesta hlustun, hádegisfréttum og kvöldfréttum. Að sögn Páls Bergþórssonar er of snemmt að segja til um hvort samningar takist milli Veðurstof- unnar og Ríkisútvarpsins um útsendingar veðurfrétta á Rás 2. Hann segir að samtök sjómanna; Farmanna- og fiskimannasam- bandið, Landssamband smábáta- eigenda og Sjómannasambandið auk Landssambands íslenskra útvegsmanna liafi sýnt mikinn áhuga á að veðurfréttir yrðu sendar út í samtengingu Rásar 2 og Rásar 1. Eins og flestum er kunnugt eru aðalveðurfréttatímar Veðurstof- unnar sendar út á Rás 1. ítarleg- ustu veðurfregnirnar eru kl. 12.45, 16.15 og 18.45. Sjómenn fullyrða að hlustun á Rás 2 í þeirra stétt sé nokkuð almenn og því fari veðurfregnatímar tíðum framhjá þeim. „Ég veit ekki hvað kemur út úr þessu, en ég reyni hvað ég get til að koma þessu máli í kring,“ sagði Páll. óþh hverfum bæjarins. Rottur sleppa þar út og grafa sig upp á yfirborð jarðar. Ég vil beina því til húseig- enda að gæta þess að ristar á niðurföllum séu á sínum stað og einnig að gæta þess að frágangur á þakrennum við jörðu sé í lagi. Rottur vilja smjúga á ótrúlegustu stöðum. Verði þeirra vart ber fólki að láta meindýraeyði vita og við komum og gerum viðhlít- andi ráðstafanir. Embætti mein- dýraeyðis hefur unnið mikið starf við að eyða rottum og músum og það starf hefur skilað sér. Okkar starf að þessum málum í dag er mest fyrirbyggjandi," sagði Svan- berg Þórðarson. ój Þessir glaðbeittu en gáfulegu nemendur Menntaskólans á Akureyri fengu viðurkenningu í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna en þeir komust allir í úrslit. Piltarnir tveir sem hvíla í fanginu á hinum eru þeir Frosti Pétursson og Birgir Orn Arnarson úr 4X, en þeir fengu viðurkenningu á efra stigi. Hinir nemendurnir níu fengu viðurkcnniugu á neðra stigi. Frá vinstri: Sigvaldi Heiðarsson 2U, Kristbjörn Gunnarsson 1B, Ari Eiríksson 2X, Davíð Þór Bragason 2X, Þórarinn Stefánsson 2V, Aðalsteinn Arnarson 2X, Stefán Jónsson 2X, Jan Wilm 2T og Jóna Finndís Jónsdóttir 1A. Þess má einnig geta að ræðulið MA er komið í 4ra liða úrslit í Morfís keppninni. Mynd: Goiii Raufarhöfn: Vilja íbúarnir stinga sér til sunds í vetur? Nú á að láta á það reyna hvort Raufarhafnarbúar vilja stinga sér til sunds uni hávetur. Sund- laugin verður opnuð í tilrauna- skyni 1. desember næstkom- andi en hingað til hefur hún aðeins verið opin yfír sumar- mánuöina. „Við ætlum að skoða hvernig þetta kemur út. Það er náttúrlega ófært að byggja svona dýrt hús og nota það ekki nema liluta úr árinu. Þetta er mjög fín innilaug og við ætlum að reyna að hafa hana opna,“ sagði Sigurbjörg Jónsdóttir, sveitarstjóri Raufar- hafnarhrepps. Hún sagði að það væri dýrt að kynda laugina og hreppsnefndin væri að skoða kostnaðarhliðina. Fyrirhugað er að opna sundlaug- ina 1. desember og sjá hvernig aðsóknin verður og hvernig fjár- hagsdæmið kemur út. Aðspurð sagði Sigurbjörg að sundkennsla í skólunum hefði farið fram í lauginni á vorin og eftir það hefði hún verið opin fyr- ir almenning yfir sumarmánuðina en hún hefur alltaf verið lokuð yfir veturinn. SS ALLA FIMMTUDAGA! Vikulega að sunnan. Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum. Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum. Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIP Akureyri, sími 24131. EIMSKIP 111

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.