Dagur - 22.11.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 22.11.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. nóvember 1990 - DAGUR - 13 Þakkarávarp frá sóknamefiid og sóknarprestum Akureyrarkirkju Oröiö „stórkostlegt" hefir víða heyrst af munni þeirra, sem komu í Akureyrarkirkju og Safn- aðarheimilið síðastliðinn laugar- dag og sunnudag. Til allra þeirra, sem stuðluðu að tilefni þessara hátíðisdaga og unnu að fram- kvæmd þeirra er hugsað með miklu þakklæti. Biskupum, kirkjumálaráð- herra, aðkomuprestum, organista, Kór Akureyrarkirkju, tónskáld- inu Jóni Hlöðver Áskelssyni, lista- fólki, öðrum sem aðstoðuðu og ekki síst hinum mikla mann- fjölda, sem fyllti húsakynnin, eru færðar bestu þakkir. Kvenfélag Akureyrarkirkju vann stórvirki með því að veita af rausn mann- fjöldanum öllum. Blóm, gjafir og heillaóskir bárust víða að og fær- um við þeim velunnurum, sem þar stóðu að baki, bestu þakkir. Saga Akureyrarkirkju kom út á afmælisdegi kirkjunnar, mikið verk og vandað. Höfundinum Sverri Pálssyni, fyrrverandi skólastjóra, þökkum við sérstak- lega. Síðast en ekki síst færum við hönnuði Safnaðarheimilisins, Fanneyju Hauksdóttur, og öllum þeim sem að þeirri fögru bygg- ingu unnu bestu þakkir. Guð blessi ykkur öll! Sóknarnefnd og sóknarprestar. Sextugsafmæli: Sr. Ingólfur Guðmundsson Sr. Ingólfur Guðmundsson, sett- ur sóknarprestur í Akureyrar- prestakalli, er sextugur í dag. Hann fæddist að Laugarvatni í Árnessýslu, sonur hjónanna Guðmundar Ólafssonar, kennara þar, og Ólafar Sigurjónsdóttur, húsfreyju. Ingólfur lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands vorið 1962, og stundaði framhaldsnám í kenni- mannlegri guðfræði í skóla Sam- einuðu lúthersku kirkjunnar í Pullach í V.-Þýskalandi 1966- 1967. Auk þess hefur hann lagt stund á margvíslegt annað fram- haldsnám. Áður en Sr. Ingólfur lauk guðfræðiprófi starfaði hann um árabil í lögreglunni í Reykjavík, og stundaði auk þess kennslu. Hann vígðist til Húsavíkur 1. október 1962, og þjónaði þar um tíma. Því næst varð hann prestur á Mosfelli í Grímsnesi um nokk- urra ára skeið, stundakennari við Kennaraháskóla íslands allmörg ár og lektor þar frá 1972 til 1985, æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar 1979 til 1981, námsstjóri í skóla- þróunardeild menntamálaráðu- neytisins um árabil og farprestur. Sr. Ingólfur hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa, ritað greinar í blöð og flutt útvarpserindi. Eiginkona Sr. Ingólfs er Ás- laug Eiríksdóttir, kennari og bókavörður, frá Glitsstöðum í Norðurárdal í Borgarfirði. Þau eiga fjögur börn. Sr. Bolli Gústavsson, Laufási. II Síðbúin kveðja: X Kristín Siguijónsdóttir Fædd 1906 - Dáin 1990 Ég á eina minningu sem ég gleymi aldrei. Það er eilíft sumar í lofti og fallegt veður. Ég og Kiddi, besti vinurinn minn og frændi, stökkvum á hjólin okkar, skóli er búinn. Rennum kapps- fullir út úr bænum, yfir brúna, fram í Garð. Við flýtum okkur, megum engan tíma missa því við vitum af gáfaðri tík með marga hvolpa. Hendum hjólunum frá okkur og hlaupum inn um dyr á neðri hæð. Þar er Píla, rauðleit og voldug. Og við hlið hennar tísta hvolparnir agnarsmáu. Við Kiddi leggjumst hjá þeim, strjúk- um þeim og kitlum, kyssum þá jafnvel og lyftum þeim upp í loft. Svo þið eruð komnir, segir kona og viö lítum við og sjáum að það ljóslifandi fyrir hugskotssjónum enn í dag, þrátt fyrir fjarlægðina eftir að þau fluttu til Akureyrar og árin sem liðin eru; hún var mér svo góð í þessum stuttu heimsóknum að ég hélt eitt sinn að hún væri amma mín. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið, sem drengur, að kynnast svona góðri konu. Helgi Jónsson, Ólafsfírði. Bændur athugið! Höfum til sölu grasköggla, blandaða með fiski- mjöli. Afbragðs fengieldisfóður. Hafið samband við Pétur í síma 95-38233. er bara hún Kristín; Kristín í Garði. Lágvaxin kona og róleg eins og fjöllin allt í kringum fjörðinn hennar. Blíðlynd kona, hugulsöm, traust. Mér leið alltaf vel nálægt lienni. Svo gaf hún okkur Kidda mjólk að drekka og ekki brást meðlætið. Á meðan stóð Nývarð reffilegur úti á túni og leit eftir hrossunum sínum. Síðan eru liðin mörg ár og nú er Kristín dáin. Hún stendur mér Parkinsonsfélag Akureyrar og nágrennis heldur fund í Glerárkirkju laugard. 24. nóv. kl. 14.00. Friðrik Yngvarsson læknir, talar um þoi og þrek park- insonssjúklinga. Skemmtiefni og kaffiveitingar. Stjórnin. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur í hyggju að taka upp nám fyrir samningsbundna bókagerðarmenn á vorönn 1991, ef næg þátttaka fæst. Innritun lýkur 30. nóvember. Skólameistari. Jólabasar laugardaginn 24. nóv. kl. 15.00-17.00. Laufabrauð, kökur, munir. Kaffisala. Skyndihappdrætti. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. Harmoniku- unnendur Dansleikur verður í Lóni við Hrísalund, laugardaginn 24. nóvember frá kl. 10.00 til 03.00. Allir velkomnir ARNÓR BENÓNÝSSON er frambjóðandi í opnu prófkjöri Alþýðuflokksins á Norðurlandi eystra. Kosningaskrifstofa hans er að Óseyri 6, Akureyri. Síminn er 25002. Opið alla daga frá kl. 16- 19. (Arnór hellir upp á kaffið!) Bjóðum upp á akstur á kjördag. Stuðningsmenn. Arnór Benónýsson. m Framsóknarfóik á Húsavík Framvegis verður skrifstofa flokksins í Garðari, Garðars- braut 5, opin á laugardagsmorgnum milli kl. 11.00-12.00. Heitt á könnunni. Lítum inn og ræðum málin. Framsóknarfélag Húsavíkur. Faðir okkar, GÚSTAVJÓNASSON, rafvirkjameistari, lést á Kristnesspítala þriðjudaginn 20. nóvember. Ingibjörg Gústavsdóttir, Bolli Gústavsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.