Dagur - 22.11.1990, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 22. nóvember 1990
* ' i
*
Stöðvarhús Mjólkursamlags KS á Sauðárkrókí.
Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki:
„Alltaf leitað að einhverju
nýju til að framleiða"
- segir Snorri Evertsson, samlagsstjóri
í sjónvarpi og blöðum má oft sjá súrmjólkurauglýsingar. Þar
er ekki verið að auglýsa neina venjulega súrmjólk, heldur
bragðbætta ávaxtasúrmjólk frá Mjólkursamlagi KS á Sauðár-
króki. Eftir að fólk komst á bragðið með þessa framleiðslu-
vöru þá hefur verið stöðug söluaukning og sala frá Sauðár-
króki til Reykjavíkursvæðisins hefur aukist um 30% milli
ára. Á heimasvæði hefur salan aukist um tæp 20%. Nýlega
fékk Mjólkursamlag KS einnig viðurkenningar fyrir osta á
norrænni sýningu og Degi þótti því tilvalið að líta inn í þetta
samlag sem er í raun og veru ostagerðarsamlag að megin-
hluta.
Saga mjólkuriðnaðar í Skagafirði
er löng og mjólkurvinnsla á sam-
vinnugrundvelli á sér þar lengri
sögu en annars staðar á Norður-
landi. Árið 1901 var fyrsta rjóma-
búið norðan heiða stofnað að
Páfastöðum í Skagafirði og næstu
tvo áratugina störfuðu þrjú
rjómabú í Skagafirði, þó aldrei
nema tvö samtímis. Rjómabú
voru einskonar forverar mjólkur-
búanna og tóku við rjóma aðild-
arbændanna, aðallega sauða-
rjóma, og unnu úr honum smjör.
Smjörið var síðan flutt að mestu
út til Englands og aflaði þjóðinni
verulegs gjaldeyris um tíma. Með
breyttum búskaparháttum vegna
hækkandi kjötverðs á árunum
fyrir fyrri heimsstyrjöldina og
minnkandi smjörsölu til
Englands, fór að halla undan fæti
hjá rjómabúunum. Búið að
Gljúfurá í Viðvíkursveit í Skaga-
firði, hafi þó dálitla sérstöðu. Par
var unnið í einhverjum mæli úr
mjólk aðildarbændanna, einkum
smjör en einnig ostur. Segja má
því að Gljúfurárbúið hafi verið
vísir að mjólkurbúi.
Hafist handa við að byggja
Með vaxandi þéttbýli og breytt-
um atvinnuháttum jókst þörf
landsmanna fyrir mjólkurafurð-
ir og mikið magn var flutt inn á
hverju ári af þeim. Stefnt var að
því að auka ræktun, svo að sjá
mætti landsmönnum fyrir nauð-
synjum í mjólk og mjólkurafurð-
um. Fyrstu mjólkurbúin spruttu
upp á Akureyri ’28, á Selfossi ’29
og í Hveragerði ’30. Byrjunarár-
in voru erfið vegna heimskrepp-
unnar miklu og trúlega helsta
orsökin fyrir því að stofnun sam-
lags á Sauðárkróki dróst á lang-
inn eftir að Ólafur Sigurðsson á
Hellulandi kom með tillögu á
kaupfélagsfundi árið 1929 um að
athuga möguleika á slíkri
stofnun.
Árið 1933 var Jónas Kristjáns-
son, samlagsstjóri á Akureyri,
fenginn til ráðgjafar. Lagði hann
til að safnað yrði þátttökuloforð-
um í fullkomið mjólkurbú. Aflað
var loforða um 188 kýrnytjar,
sem nægði aðalfundi Kaupfélags
Skagfirðinga í apríl ’34, til að
samþykkja stofnun mjólkur-
vinnslustöðvar á Sauðárkróki.
Byggingunni var valinn staður við
hlið Gránufélagshússins þar sem
skrifstofur KS voru til húsa. Haf-
ist var handa við bygginguna 10.
maí 1934. Fyrst var tekið á móti
mjólk í Mjólkursamlagi Skagfirð-
inga þann 16. júlí 1935 og þá var
mjólkursamlagsstjóri Jens Kill-
engreen, norskur maður. Hann
var einungis samlagsstjóri í þrjá
mánuði, en þá tók við Skafti
Óskarsson frá Kjartansstaðakoti
í Skagafirði, bændaskólagenginn
og með töluverða reynslu frá
samlögunum á Selfossi og á
Akureyri. Hann gegndi starfinu
til 1944.
Fyrstu árin erfið
Fyrstu ár samlagsins voru erfið,
bændur voru óánægðir með flutn-
ingafyrirkomulagið og aðstöðu til
mjólkurflutninga. Oft urðu veru-
legar skemmdir á brúsum og
mjólk fór til spillis vegna illfærra
vega og fyrir það fengust engar
bætur. Samlagið annaði heldur
ekki eftirspurn eftir mjólk á
Sauðárkróki og lágt verð gerði
það að verkum að reksturinn
gekk illa.
Endurnýjun og úrbætur í sam-
laginu hófust árið 1945 og ári síð-
ar var farið að huga að framtíðar-
byggingu fyrir starfsemina, hvort
byggja ætti við gamla samlagið
eða reisa nýtt. Árið 1947 var
nýbyggingu valinn staður á eyr-
unum sunnan við bæinn, þar sem
samlagið er núna. Ostageymslur
voru byggðar og teknar í notkun
’48, en fjármagn vantaði í sam-
lagsbygginguna sjálfa. Veruleg
þörf hafði verið orðin á geymslu
fyrir osta og m.a. höfðu skemmst
ostabirgðir árin á undan vegna
lélegs geymsluhúsnæðis.
Nýtt samlagshús
Þann 30. nóvember 1951 hóf nýtt
samlag starfsemi sína og
skemmtileg tilviljun var að sami
maður, Ólafur Lárusson í Skarði,
og hafði verið fyrsti innleggjand-
inn í gamla samlagið var fyrstur
aftur ’51. Aukning var í mjólk-
urframleiðslu á svæði Mjólkur-
samlags KS allt frá 1940, einkum
þó frá ’60 til ’65. Tækniframfarir í
mjólkurvinnslu urðu miklar og
árið 1963 var samþykkt að
stækka húsnæðið. Byggt var við
norðurenda hússins og var þeirri
framkvæmd lokið á árinu 1966.
Sama ár var keypt pökkunarvél
fyrir 1 lítra einnota plastpoka
undir mjólk og einnig tekin í
notkun áfyllingarvél fyrir 10 lítra
poka.
Jöfn vélaendurnýjun
Endurnýjun á tækjakosti sam-
lagsins á Sauðárkróki hefur alltaf
verið góð og helst hefur það verið
geymslurými osts sem hvílt hefur
þungt á mönnum. Það breyttist
þó að miklu leyti þegar Osta- og
smjörsalan byggði nýtt húsnæði í
Reykjavík á áttunda áratugnum
sem nýtist að hluta sem sameigin-
legt geymslurými fyrir mjólkur-
samlögin í landinu.
Tankvæðing í Skagafirði hófst
1976 og fyrsta mjólk tekin á
tankbíl þann 29. apríl 1977. Nú
er bílarnir fjórir talsins og þrír í
stöðugri notkun. Tankar við sam-
lagið eru tveir 60 þús. lítra. Vél-
búnaður samlagsins jókst til
muna vorið 1983. Þá var tekin í
notkun vélvirk forpressa fyrir ost
og einnig ný ostapressa til að full-
móta skorpulausan ost. Árið ’84
voru síðan mjólkuráfyllingarvél-
ar fyrir einnota pappaumbúðir
teknar í notkun, ásamt nýjum
flutnings- og dreifingarbúnaði.
Mjólkursamlag KS í dag
Þetta er saga Mjólkursamlags
Skagfirðinga, sem almennt er
kallað Mjólkursamlag KS, í stór-
um dráttum. En hver er staða
samlagsins í dag? Snorri Everts-
son, samlagsstjóri, svarar þeirri
spurningu.
„Það sem hægt er að segja um
framleiðsluna er, að eins og
menn vita var settur á kvóti.
Okkar hlutur í mjólkurfram-
leiðslu yfir landið er samkvæmt
því um 7.9 prósent. Við höfum
haldið því nokkurn veginn. En
bara 1985 var töluvert meiri mjólk
framleidd hér en nú og segja
má að framleiðslan minnki stöð-
ugt. Samt förum við trúlega yfir
8 milljónir lítra í ár, en í fyrra
vantaði um 50 þúsund lítra upp á
það. Helstu nýjungar í fram-
leiðsluvörum er e.t.v. ekki
margar. Fyrir nokkrum árum
hófum við framleiðslu á ávaxta-
súrmjólk og eftir samningavið-
Almennar
kaupleiguíbúðir
Upplýsingar fást á Húsnæðisskrifstofunni, Skipagötu 12,
sími 96-25392.
Snorri
Unnið
í I
i I
i I
4 i
5 I
I
Myndir og texti