Dagur - 22.11.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 22. nóvember 1990 - DAGUR - 9
við ostagerð. Svipmyndir úr vinnslusölum.
o
V)
V)
L.
n
c
c
3
D
>-
o
Q
3
§
0
ræður við aðra, sérstaklega
Mjólkursa.msöluna, um dreifingu
á vörunni á Reykjavíkursvæðinu
hefur sala hennar gengið nokkuð
vel. í fyrra var smásamdráttur í
sölunni, en okkur hefur tekist að
sporna við því í ár, með auglýs-
ingum og einnig með því að
koma með tvær nýjar tegundir á
markaðinn. Þetta hefur haft það í
för með sér að salan í þessum
vörum hefur aukist um 30% á
þessu ári. Mér er sagt að það séu
aðallega þykkmjólkin og ávaxta-
súrmjólkin sem sýnt hafa aukn-
ingu í sölu af súrmjólkurvörum.
Ýmislegt höfum við reynt í
ostum, en það hefur þróast þann-
ig að við framleiðum nær ein-
göngu hina hefðbundnu osta. Pó
eru framleiddar hér tvær tegundir
Maribó-osts sem ekki er fram-
leiddur annars staðar á landinu.
Próun í mjólkurframleiðslu í
ár er upp á við og í októbermán-
uði var 14% aukning. Fram-
leiðsla á vörum í samlaginu
endurspeglast síðan af þessari
auknu framleiðslu hjá bændum.“
Verðjöfnunarsjóður
í mjólkuriðnaði á íslandi hefur
verið tekin upp einskonar verð-
jöfnun. Mjólkursamlögin greiða í
verðjöfnunarsjóð og fá síðan
greitt úr honum til baka miðað
við framleiðslu. Fyrir tímabilið
okt.-feb. er greitt yfirverð fyrir
mjólkina til bænda og hugsað
sem hvatning til að jafna mjólk-
urframleiðslu yfir árið. Flina
mánuði ársins er síðan greitt
lægra verð fyrir mjólkina og með
þessu næst jafnvægi í framleiðslu.
Snorri sagði ekki vera mörg ár
síðan hæsti mánuður hjá samlag-
inu í mjólkurframleiðslu hefði
verið 1.2 milljónir lítra, en sá
lægsti 450 þús lítrar. Nú væri
þetta aftur á móti 900 þús. og 550
þús. lítrar.
Mjólkursamlag KS hefur greitt
um 30 milljónir í verðjöfnunar-
sjóð það sem af er árinu. Að sögn
Guðbrands Porkels Guðbrands-
sonar, fulltrúa kaupfélagsstjóra,
hefur landbúnaðarráðuneytið
gert könnun á greiðslum út og
inn úr sjóðnum til einstakra
mjólkursamlaga síðustu árin. í
þeirri könnun kom í ljós að ef
Mjólkursamlag KS hefði þá pen-
inga tiltæka núna gæt* þeif nærri
því keypt sér togara.
Tuttugu og þrjú ársverk hafa
síðustu árin verið innandyra í
samlaginu, en störf við það alls í
kringum þrjátíu. Þær fram-
kvæmdir sem eru í gangi þessa
dagana í samlaginu á Sauðár-
króki eru aðallega breytingar á
ostalager. Verið er að taka í
notkun lyftara og stóra kassa sem
taka rúmlega eitt tonn af osti.
Lyftarann á síðan að vera hægt
að nota til að stafla upp kössun-
um og einnig til að snúa þeim,
eins og hingað til hefur þurft að
gera með handafli. Af þessu hlýst
töluverð vinnuhagræðing.
Drekka ekki bara brennivín
Á þessu ári hafa selst að meðal-
tali 23 þúsund lítrar af ávaxtasúr-
mjólk á mánuði á Reykjavíkur-
svæðinu og um 6 þúsund norðan-
lands. Einnig er aukning f ný-
mjólkursölu.
„Gaman er að geta þess að
nýmjólkursala hefur alltaf farið
minnkandi hér í Skagafirði, en
léttmjólkur- og undanrennusala
aukist. í ár er aftur á móti smá-
aukning í nýmjólkinni og skýr-
inguna tel ég vera landsmót
hestamanna og sýnir að þeir
drekka ekki bara brennivín,“
sagði Snorri.
Smjörvi með hækkandi sól
Á sínum tíma var mikið af ostum
flutt út frá Mjólkursamlagi KS til
Bandaríkjanna og Norðurland-
anna. Landbúnaðarstefnan hefur
haft það í för með sér að útflutn-
ingur er orðinn mjög lítill og
neysla innanlands hefur einnig
aukist. Heimamarkaður samlags-
ins á Sauðárkróki er um 15% af
innkominni mjólk. Afgangurinn
fer allur suður á Reykjavíkur-
svæðið.
- Hver er nánasta framtíð
Mjólkursamlags KS?
„Landbúnaðarstefnan er í
eilífri endurskoðun og spurning
hvernig þau mál fara. Nú er verið
að tala um innflutning á landbún-
aðarvörum og ég held að við eig-
um bara að berjast á markaðin-
um ef af því verður.
Við hérna erum alltaf að leita
að einhverju nýju til að fram-
leiða, en stundum er sagt að ekki
sé rétt að segja frá því fyrr en það
er tilbúið. Það sem við stefnum
að núna er að hefja framleiðslu á
smjörva, en ýmis vandamál hafa
komið upp og seinkað því að við
hefjumst handa. Reiknað er með
að fá tækniaðstoð frá Svíþjóð og
ættum við að geta hafið smjörva-
framleiðsluna með hækkandi
sól,“ sagði Snorri Evertsson
mjólkursamlagsstjóri á Sauðár-
króki.