Dagur - 15.12.1990, Page 2

Dagur - 15.12.1990, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 15. desember 1990 1 fréttir 99 Kristnesspítali tekur í notkun hluta nýbyggingar: Hátíðardagur fyrir vistmenn og starfsfölk“ - sagði Bjarni Arthúrsson í vígsluræðu sinni „Dagurinn í dag er mikill há- tíðardagur fyrir vistmenn og starfsfólk Kristnesspítala, há- tíð sem við höfum lengi beðið eftir með mikiili tilhlökkun. Draumur okkur um bætta að- stöðu fyrir skjólstæðinga okk- ar er orðinn að veruleika og við höfum fengið viðbrögð þeirra sem hér dvelja sem sýna að vel hefur til tekist með endurbætur og nýframkvæmd- ir. En við eigum okkur enn stærri draum sem birtist í áætl- un um frekari viðbyggingar og endurbætur sem ætlað er að gera spítalann að helstu endur- hæfíngarstofnun utan Reykja- víkursvæðisins,“ sagði Bjarni Arthúrsson, framkvæmda- stjóri Kristnesspítala, þegar hluti nýbyggingar við spítalann var vígður formlega í fyrradag Endurvinnslan: Fleiri opn- unardagar fyrir jól Endurvinnslan hf. við KA heimilið, þar sem tekið er á móti öl- og gosdrykkjaumbúð- um, verður opin í dag frá kl. 13 til 17. Sami opnunartími gildir fyrir næstkomandi laug- ardag en þessar opnanir bæt- ast við venjulegan opnunar- tíma. í næstu viku verður opið frá kl. 10-17 alla daga nema föstudag þegar opið verður til 16. Fólki er bent á að opið er í hádeginu þessa daga og að á milli jóla og nýárs verður lokað. (Fréttatilkynning.) að viðstöddum fjölda gesta. Að þessu sinni voru vígðir tveir nýir borðsalir fyrir vistmenn svo og setustofur. Bjarni rakti í ávarpi sínu aðdraganda að þess- ari byggingu og sagði að fram- kvæmdir hefðu hafist árið 1987, fyrst með byggingu stiga og lyftu- húss en ári síðar var byggð þriggja hæða viðbygging sem ætl- að er að hýsa borðsali og setu- stofur á efri hæðum en í kjallara verður sundlaug í framtíðinni. Byggingu hennar er ekki lokið. f>að rými sem nú var tekið í notkun er um 450 fermetrar að stærð og breytir það miklu fyrir starfsemina á spítalanum. Bjarni vék að áætlun um framkvæmdir á næstu árum og sagði fyrir liggja að ljúka við sundlaugina en vænt- anlega verði hafist handa við endurbætur legudeildar um mitt næsta ár, síðan verði byggt yfir sjúkraþjálfun, stjórnunarskrif- stofur og læknaskrifstofur en mötuneyti spítalans færist síðan í núverandi skrifstofuhúsnæði. „Það er því mikið starf framund- an við nýsköpun spítalans," sagði Bjarni. í ávarpi framkvæmdastjórans kom fram að á núgildandi verð- lagi nemur kostnaður við nýbygg- inguna um 45 milljónum króna. Hann sagðist reikna með að kostnaður við þá áfanga sem eftir eru nemi um 25 milljónum. Séra Hannes Örn Blandon blessaði hið nýja húsnæði sem Kristnesspítali hef- Ur nú tekið í notkun. Myndir: JÓH Fjöldi gesta var við vígsluhá- tíðina, þeirra á meðal Guðmund- ur Bjarnason, heilbrigðisráð- herra, Guðmundur G. Þórarins- son alþingismaður og formaður stjórnar Ríkisspítalanna, svo og nokkrir þingmanna kjördæmisins en gestum var boðið að skoða sig um á spítalanum að vígslunni lokinni. JÓH Hluti gesta í hinni vistlegu setustofu á neðri hæð nýbyggingarinnar við Krist- nesspítala. Þingeyjarsýsla: Atvimmþróunar- félag stoftiað - Iðnþróunarfélagið lagt niður Iðnþróunarfélag Þingeyinga heldur aðalfund sinn nk. mánudag og verður síðan lagt niður frá og með þeim degi, en fundurinn verður jafnframt undirbúningsstofnfundur Bæjarstjórn Ólafsljarðar um kvótaúthlutun til smábáta: Vegið að rótgróiimi smábátaútgerð í Ólafsfirði Á fundi bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar í vikunni var samþykkt samhljóða ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af úthlut- un veiðiheimilda til smábáta í Ólafsfírði. Ályktunin er svo- hljóðandi: „Bæjarstjórn Ólafsfjarðar lýsir áhyggjum sínum vegna nýafstað- innar úthlutunar veiðiheimilda til smábáta í Ólafsfirði. Bæjarstjórn álítur að með Skiptafundir í Skagafirði: Fyrstu fimdir í Melrakka og Fomósi Fyrstu skiptafundir voru haldnir í þrotabúum fóður- stöðvarinnar Melrakka og eldisstöðvarinnar Fornóss á Sauðárkróki sl. fímmtudag. Lögð voru fram gögn og Jó- hannes Sigurðsson sem verið hefur bústjóri beggja þrota- búanna var skipaður skipta- stjóri og var honum falið að koma eignum í verð og inn- heimta útistandandi kröfur. Á skiptafundi þrotabús Mel- rakka var samþykkt að inn- heimta kröfur hjá viðskipta- mönnum með þeim skuldbreyt- ingum sem staðið hafa yfir og koma skuldabréfunum í verð, bæði þau sem eru með og án ríkisábyrgðar og var skipta- stjóra falið það. Næsti skipta- fundur verður þann 11. janúar. Á skiptafundinum í þrotabúi Fornóss voru m.a. bókuð ein mótmæli við kröfuskrá. Skipta- stjóra var síðan veitt heimild til að kanna mögulega málsókn á hendur íslandsfiski hf., en frá þeim kom tilboð í fisk Fornóss í ágúst sl. og því var aldrei rift formlega. Næsti skiptafundur í Fornósi verður einnig þann 11. janúar. SBG þessari úthlutun sé vegið að rót- gróinni smábátaútgerð í Ólafs- firði þar sem ljóst er að skerðing frá viðmiðun er að meðaltali ekki undir 25%. Málið er mun alvarlegra sakir þess að viðmiðunarárin voru mjög slök hjá Ólafsfjarðarbátum vegna slæms árferðis í sjónum undan Norðurlandi. Ef fer sem horfir mun fjöldi manna sem haft hefur lífsviður- væri sitt af smábátaútgerð í Ólafsfirði neyðast til að snúa sér að öðru. Að hverju veit enginn sem stendur. Bæjarstjórn skorar því á yfir- völd sjávarútvegsmála að endur- skoða úthlutunarreglur á þann hátt að tillit verði tekið til gífur- legs aðstöðumunar landshlut- anna hvað varðar sóknarmögu- leika og aflaviðmiðun og lagfæra ýmsa augljósa agnúa á úthlutun veiðiheimilda til smábáta.“ óþh Atvinnuþróunarfélags Þingey- inga. Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafi, sagði að starfsvettvangur hins nýja félags yrði báðar Þingeyjar- sýslur, frá Vaðlaheiði til Langa- ness. Sagði hann að þau viðbrögð við stofnun félagsins sem borist hefðu væru jákvæð, en málið hefði ekki verið afgreitt enn í öil- um sveitarfélögum. Á fundinum verður kjörin stjórn sem inn- heimta mun hlutafé og boða síð- an til stofnfundar, væntanlega í janúar. Ásgeir sagðist ætla að bera fram tillögu á fundinum um að félagið héti Hagþróunarfélag Þingeyinga, þar sem að félagið ætti að efla hag og hagsæld í sýsl- unni sem síðan hefði jákvæð áhrif á atvinnuþróunina. Vill Ásgeir beina því til áhuga- fólks um atvinnumál að allir eru velkomnir á fundinn og að þar verða mörg áhugaverð mál á dagskrá. Fundurinn verður hald- inn 17. des. á Hótel Húsavík, 4. hæð, og hefst kl. 13. IM Bæjarstjórn Neskaupstaðar: Vinmibrögðum forsvarsmaima Þjóðleikhússins mótmælt - leikhúsið neitar að sýna „Næturgalann“ utan Reykjavíkur Þjóðleikhúsið hefur auglýst sýninguna „Næturgalinn“ sem sýningu fyrir grunnskóla landsins. Þó er ekki gert ráð fyrir því að farið verði með sýninguna lengra en í grunn- skóla Reykjavíkur og nágrenn- Þessu hefur Bæjarstjórn is. Neskaupstaðar mótmælt. í bréfi sem Ásgeir Magnússon, bæjarstjóri, sendi þjóðleikhús- stjóra, menntamálaráðherra og fjölmiðlum kemur fram að for- maður menningarmálanefndar Neskaupstaðar spurðist fyrir um hvenær þessi sýning fyrir „grunn- skóla landsins“ yrði í grunnskól- um á Austurlandi. Hann fékk þau svör að ekki væri gert ráð fyrir sýningum utan grunnskóla í Reykjavík og nágrenni. „Bæjarstjórn Neskaupstaðar mótmælir harðlega þessum vinnu- brögðum og bendir á að Þjóð- leikhúsið er ríkisstofnun og ber sem slíkri að leitast við að veita íbúum landsins sem jafnasta þjónustu,“ segir í ályktun frá bæjarstjórn. Bæjarstórn Neskaupstaðar minnir einnig á yfirlýsingar for- svarsmanna Þjóðleikhússins um að meðan endurbygging leikhúss- ins standi yfir verði tíminn notað- ur til að stórauka sýningar á landsbyggðinni. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.