Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 4
áS^DBLI,
fo'apafíóð
;iykarbrúi]
•■'■iK.U,
'fíiluvcrðurerii/
,"Ja “gregJmuii
^'w-^ShtaT
F» /» ° ‘VKKir
sfjarðark
dfcslBÚr3S£S!2!&**
1,7 SíluOsrðjr:
lornarinnar
4 - DAGUR - Laugardagur 15. desember 1990
Óiafur bekkur verður nú þriðja
fleyta í flota Sæbergs hf. Rekstur
togarans hefur verið mjög erfiður og
hvflir á fjórða hundrað inilljóna
króna skuld á skipinu.
Sæberg hf. hefur umboð fyrir Olís í Ólafsfirði. Að sjálfsögðu hefur Olís séð
skipum Sæbergs, Mánabergi og Sólbergi, fyrir olíu og nú færast olíuviðskipti
Ólafs bekks frá Skeljungi yflr á Olís.
Hér var áður veldi Magnúsar Gamalíelssonar. Nú er þar m.a. til húsa rækju-
vinnsla Hraðfrystihússins, sem færist yfir á herðar Sæbergs. Ekki hefur verið
ákveðið hvort og þá með hvaða hætti rekstur frystihússins, þ.m.t. rækju-
vinnslunnar, verður stokkaður upp.
Sólbergið ÓF-12 var keypt nýtt til
Ólafsfjarðar árið 1974 og hefur
reynst mikil happafleyta og lagt
grunninn að veldi Sæbergs hf.
Móðurskipið, verslunarhúsnæði Valbergs hf. við Aðalgötu. Valberg hf. var
stofnað árið 1961 og fljótlega byrjað á byggingu þessa húss, þar sem æ síðan
hefur verið verslað.
í þessu húsnæði við Strandgötu er byggingarvöruverslun Valbergs. í húsinu
hefur frá fornu fari verið verslað. Gamlir Ólafsfirðingar minnast Binnabúð-
ar, verslunar sem var kennd við Brynjólf Sveinsson.
Ólafsfirðingar nokkuð sáttir við
uppstokkun á útgerð og fiskvinnslu á staðnum:
Vonir bundnar við Sæberg
Með kaupum Sæbergs hf. á 17%
hlut Ólafsfjarðarbæjar og 49%
hlut Hlutafjársjóðs í Hraðfrysti-
húsi Ólafsfjarðar hf. á fyrirtækið
orðið 70% hlut í frystihúsinu á
móti ýmsum fyrirtækjum og ein-
staklingum. Þetta þýðir að rekstur
frystihússins færist yfir á herðar
Sæbergs hf. að langmestu leyti.
Sömuleiðis yfirtekur Sæberg hf.
rekstur Útgerðarfélags Ólafsfjarð-
ar hf., sem gert hefur út togarann
Ólaf bekk. Ólafsfjarðarbær átti
30% hlut í Útgerðarfélaginu og
Hraðfrystihúsið 70%. Sæberg hef-
ur keypt hlut bæjarins í Útgerðar-
félaginu.
Með þessari uppstokkun í útgerð-
armálum í Ólafsfirði fer ekkert á
milli mála að Sæberg hf. og Valberg
hf., sem eru nátengd fyrirtæki, eru
stærstu atvinnuveitendur í Ólafsfirði.
Ætla má að hjá þeim starfi um 170
manns. í áhöfnum þriggja togara,
Sólbergs ÓF-12, Mánabergs ÓF-42
og Ólafs bekks ÓF-2 eru á sjöunda
tug manna. í frystingu, rækjuvinnslu
og loðnubræðslu má ætla að vinni um
90 manns þegar allt er í fullum
rekstri. Pá er ótalinn verslunarrekst-
ur Valbergs hf., en í tveim verslun-
um vinna um 15 manns, þar af um
helmingur í fullu starfi.
Mörgum kann að finnast sem upp-
gangur -berg fyrirtækjanna í Ólafs-
firði hafi verið með ólíkindum. Pað
Aflinn er frystur um borð í Mána-
berginu. Sæberg hf. keypti það árið
1987, en áður hét það Merkúr.
má til sanns vegar færa. Á um 30
árum hefur styrkur þeirra aukist
jafnt og þétt og þeir sem til þekkja
segja að enginn annar aðili í Ólafs-
firði hafi getað tekið á sig allar þær
byrðar sem á Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf. hvíla.
Að Valbergi hf. og Sæbergi hf.
standa sömu aðilar. Valberg var
stofnað 7. desember árið 1961 af
nokkrum einstaklingum í Ólafsfirði
og þá þegar hófst verslunarrekstur á
þess vegum. Byggt var verslunarhús
við Aðalgötu 16 og þá fékk Valberg
einnig til umráða verslunarhúsnæði
við Strandgötu 4, þar sem áður var til
húsa svokölluð Binnabúð, verslun
kennd við Brynjólf Sveinsson. Versl-
unarrekstur Valbergs hf. hefur ekki
breyst umtalsvert í tímans rás. í
versluninni við Aðalgötu er matvöru-
deild, nýlenduvöru- og gjafadeild.
Vöruúrvalið þar þykir gott og nánast
hver sentímetri í versluninni er
gjörnýttur. í versluninni við Strand-
götu eru hins vegar seldar byggingar-
vörur og ýmis stærri raftæki.
Formaður stjórnar Valbergs hf. er
Sigurður Guðmundsson, en aðrir í
stjórn eru Sigvaldi Þorleifsson,
útgerðarmaður og fiskverkandi og
Jón Þorvaldsson. Framkvæmdastjóri
Valbergs með prókúru er Gunnar
Pór Sigvaldason, sonur Sigvalda Þor-
leifssonar. Sigurður Guðmundsson
hefur yfirumsjón með versluninni í
Valberg en Jón Porvaldsson er á
skrifstofunni og sér um þá hlið mála.
Sæberg hf. var stofnað 1. október
1970. Núverandi formaður stjórnar er
Ásgeir Ásgeirsson, en aðrir í stjórn
eru Sigurður Guðmundsson og Jón
Þorvaldsson. Framkvæmdastjóri og
prófkúruhafi er sá sami og í Valbergi
hf., Gunnar Þór Sigvaldason.
Segja má að útgerð Sæbergs hf.
hafi byrjað fyrir alvöru með kaupum
á Sólbergi ÓF-12, 500 tonna skuttog-
ara frá Frakklandi, árið 1974. Útgerð
skipsins hefur alla tíð gengið vel og
skipið hefur „malað þeim Sæbergs-
mönnum gull,“ eins og einn viðmæl-
andi Dags orðaði það. Afli skipsins
fer nú að mestu leyti á tvo staði í
Ólafsfirði, til fiskverkunar Sigvalda
Þorleifssonar og fiskverkunar Sæ-
unnar Axelsdóttur (sem er eiginkona
Ásgeirs Ásgeirssonar formanns
stjórnar Sæbergs hf.). Þá hefur tölu-
vert af afla skipsins farið í gáma á
markað erlendis.
Mánabergið, 1000 tonna Spánar-
togara, sem áður hét Merkúr, keypti
Sæberg hf. árið 1987. Aflinn er fryst-
ur um borð og segja heimildir að
útgerð skipsins gangi allvel.
Þriðja skipið, sem nú bætist í fiski-
skipaflota Sæbergs hf., er Ólafur
bekkur.
„Bekkurinn“ var smíðað árið 1973
og er einn þeirra frægu Japanstogara.
Hann var lengdur og endurbættur í
Póllandi árið 1987. Sú viðgerð reynd-
ist kostnaðarsöm og rekstur skipsins
hefur verið afar erfiður síðan.
Samkvæmt síðasta uppgjöri eru
skuldir á skipinu rúmar 300 milljónir
króna. Heimildamaður Dags, sem
vel þekkir til reksturs á Ólafi bekk og
Hraðfrystihúsinu, segir að hefði
Sæberg hf. ekki komið inn í dæmið
nú, hefðu Ólafsfirðingar þurft að
horfa á eftir Ólafi bekk úr byggðar-
laginu. Þetta er ekki síst stutt þeim
rökum að skipið er á sóknarmarki í
ár og færist yfir á aflamark á næsta
ári með tilheyrandi skerðingu á
kvóta. Þessi kvótasamdráttur er talið
að hefði riðið rekstri skipsins að
fullu
Ljóst er að Sæbergs-manna bíður
erfitt verkefni við að samræma veið-
ar og vinnslu ísfisktogaranna tveggja
og frystihússins. Samkvæmt heimild-
um Dags eru skuldir á frystihúsinu
nálægt 140 milljónum króna.
En öllum þeim sem Dagur hefur
talað við ber saman um að geti
Sæbergs-/Valbergsmenn ekki komið
rekstri Ólafs bekks og frystihússins á
réttan kiöl, þá sé það ekki á færi
aðila í Ólafsfirði. Bent er á að þeir
hafi gætnina og skynsemina að leið-
arljósi í peningamálum, sem sést best
á því hversu vel til hefur tekist með
verslunarrekstur undir nafni Val-
bergs og útgerð Sólbergs og Mána-
bergs undir nafni Sæbergs.
En hvert er viðhorf Ölafsfirðinga
til þessara breytinga í fyrirtækja-
rekstri í Ólafsfirði? „Hljóðið í Ólafs-
firðingum er yfirleitt gott. Menn trúa
því að rekstrarlega geti þetta aldrei
gengið hjá neinum öðrum en Sæ-
bergs-mönnum, þeir hafi sýnt það að
þeir kunni að reka fyrirtæki. Hins
vegar finnst sumum varhugavert
hversu stór hluti atvinnulífsins á
staðnum færist með þessu undir einn
aðila,“ voru orð heimildamanns
Dags í Ólafsfirði. óþh
Með kaupum á 17% hlut Ólafsfjarðarbæjar og 49% hlut Hlutafjársjóðs í
Hraðfrystihúsinu á Sæberg nú um 70% hlut í því.